Morgunblaðið - 06.09.1967, Side 1
28 SIÐUR
HANOISTJÚRN afneitar
FRIDARVIÐRÆÐUM
— segir kosningarnar í S-Vietnam tilraun
Johnsons forseta til að losa Bandaríkin
urogongum
Saigon, 5. sept. (AP-NTB).
• Staðfest var opinberlega í
Saigon í dag að frambjóðendur
fráfarandi ríkisstjórnar hersins,
þeir Nguyen Van Thieu og
Nguyen Cao Ky, hefðu verið
kjörnir forseti og varaforseti
landsins til næstu fjögurra ára.
• Erlendir eftirlitsmenn, sem
sendir voru til að fylgjast með
kosningunum, telja yfirleitt að
þær hafi farið heiðarlega fram,
og að alls ekki hafi orðið vart
við nein kosningasvik.
• Nokkrir þeirra frambjóð-
enda, sem féllu í kosningunum,
hafa hinsvegar haldið því fram
að brögð hafi verið í tafli.
1 Moskvu hefur því verið haldið
fram að úrslit kosninganna hafi
verið sviðsett í Washington. I
Hanoi segir málgagn kommúnista
stjórnarinnar að sérhverri til-
raun Bandaríkjanna til að beita
nýkjörnum forseta Suður-Víet-
nam til friðarumleitana verði
vísað á bug.
Fyrir kosningar lýsti Thieu,
sem nú hefur verið kjörinn for-
seti landsins, því yfir að hann
mundi fara þess á leit vi'ð stjórn-
ina í Hanoi að teknar yrðu upp
viðræður um frið. Þessari við-
leitni vísar dagblaðið Nhan Dan,
málgagn stjórnar Ho Chi Minhs,
á bug í dag. Segir það í „rit-
stjórnargrein: „Eins og fyrir kosn
ingarnar í Suður-Víetnam, eru
Thieu og Ky áfram mestu svik-
arar lands síns, og þeir hjúfra sig
að blóðiroðnum stígvélum banda
rískra yfirmanna sinna.“ Blaðið
álítur að vandamál Suður-Víet-
nam verði að leysast á grundvelli
stef nu „þj óðfrelsisfylkingarinn-
ar“, þ. e. kommúnista.
Blaðið telur sjálfsagt að kosn-
ingarnar í Suður-Víetnam hafi
verið skrípaleikur einn. „John-
son vissi sjálfur mætavel að það
var mikill skopleikur, sem hann
setti á svið,“ segir í ritstjórnar-
greininni. „En hann hafði ekki
um aðra kosti að velja, því
Bandaríkin hafa verið hrakin í
ógöngur og sjá ekki fram á ann-
að en ósigur. Johnson reyndi að
láta líta svo út sem stjórnin í
Brezku alþýðusam-
tökin krefjast
breyttrar stetnu varðandi Vietnam
Brighton, 5. sept.
(AP-NTB)
Á ÁRSÞINGI brezku alþýðu
samtakanna, sem haldið er í
Brighton, var í dag sam-
þykkt áskorun á hrezku
stjórnina um að afneita
stefnu Bandaríkjanna í Víet-
nam, og krefjast þess að
Bandaríkin kalli allt herlið
sitt heim þaðan. Var sam-
þykktin gerð þrátt fyrir and-
stöðu stjórnar alþýðusam-
takanna.
Fulltrúar á þinginu gerðiu
hróp að einum félaga sínum,
sem reyndi að maela stefnu
Bandaríkjanna bót, og kröfðust
500 þús. lesta
olíuskip?
Tókíó, 5. sept. NTB.
JAPANSKA samgöragumála-
ráðuraeytið hefur í hyggju, að
hefja athuganir á byggingu 500
þús. lesta oiíuskipa. Verður til-
laga þar að lútandi lögð fram á
alþjóðlegu skipasýniragurani, sem
haldin verður í Noregi næsta
vor. Ráðuneytið hefur þega.r lát-
ið gera teikningar aif slíku skipi
í samráði við japanska skipa-
smíðastöð. Hingað tii haifa ekki
verið byggð stærri skip en 200
þús. lestir.
þess að hlýtt yrði ákvæðum
samniragsins, sem gerður var í
Genf árið 1954 um framtíð Indó-
kíraa, og komið á friði í Víet-
nam. Þetta væri aðeins unnt
með brottflutningi bandaríska
hersins og kosningum í báðum
lands’hlutum Víetnam.
Framhald á bls. 27
Saigon væri lögmæt stjórn, þann-
ig að Thieu og Ky gætu komið
fram fyrir hans hönd. Þetta var
ástæðan fyrir því að Johnson
kippti nokkrum dögum fyrir
kosningarnar í brúðuleikhús-
snúrurnar til að láta Thieu segj-
ast vera reiðubúinn til að semja
um að binda enda á styrjöldina,"
segir Nhan Dan.
Moskvuútvarpið lýsti því yfir
strax í gær að úrslit kosninganna
í Suður-Víetnam hafi verið fyrir-
fram ákveðin. 1 dag segir svo
blaðið Pravda, málgagn komm-
únis*aflokks Sovétríkjanna, að
kosningarnar séu „bersýnilega
undanfari nýrra og blóðugra
glæpa.“
Erlendir frétta- og eftirlits-
menn í Suður-Víetnam eru á
öðru máli, og telja að kosningarn
ar hafi í alla sta'ði farið mjög vel
fram. Tveir þeirra fulltrúa, sem
Baradaríkjastjórn sendi til að fylgj
ast með kosningunum, þeir Bour-
ke Hickenloper öldungadeildar-
þingmaður repúblikana frá Iowa
og Joseph Barr borgarstjóri de-
mókrata í Pittsburg, segja til
dæmis að enginn hafi getað bent
á nein rök fyrir því að nokkurs-
staðar hafi svik verið í tafli.
í kvöld var lokið talningu í
öllum kjördæmum nema fimm,
og bendir allt til þess að Thieu
forseti muni njóta verulegs fylg-
is í nýkjörinni öldungadeild
þingsins, þegar hún kemur sam-
an í fyrsta sinn hinn 2. októ-
ber n. k. Alls verða þingmenn
60, og er þegar vitað um 20
stuðningsmenn forsetans, sem
þar taka sæti.
Alls greiddu atkvæði í for-
setakosningunum 4.735.404 af
þeim 5.853.251, sem á kjörskrá
voru, eða 80,9%. Ellefu fram-
bjóðendur voru til forsetakjörs,
og urðu þessir efstir:
Nguyen Van Thieu 1.649.561 akv.
Truong Dinh Dzu 817.120 —
Phan Khac Suu 513.374 —
Tran Van Huong 474.100 —
Thieu hefur því hloti'ð 34,9%
greiddra atkvæða, og telja sumir
að hann hefði tryggt sér hærri
hlutfallstölu, hefði hann sjálfur
ráðið úrslitunum.
Ódráttur við Noreg
— skrímsli í netinu
Bodö, Noregi,
5. september (NTB).
ÞEGAR norski fiskimaðurinn
Káre Olufsen var að draga
net sitt skammt fyrir utan
Bodö fyrir helgi, var skrímsli
fast í því. Að sögn Olufsens
líktist skrimstið manni, og
greip þykkum klóm sínum
um borðstokkinn um leið og
það gaf frá sér hljóð, er líkt
ust urri.
Netið festist í bátnum, sem
seig svo að aftan, að sjór gekk
inn í hann. Lá við, að bátur-
inn sykki, en þá rifnuðu
möskvar netsins og ófreskjan
hvarf í djúpið. Segist Olufsen
aldrei hafa séð neitt svipað
þessu skrímsli fyrr.
Haft hefur verið samband
við fiskasafnið í Osló, og seg-
ir talsmaður þess að einu
sinni áður hafi frétzt um
svipað skrímsli, en það var í
Mexíkóflóa.
Gunnar Rollefsen, forstjóri
hafrannsóknarstofrauraarinn-
ar í Bergen, er þeirrar skoð-
unar að ófreskja þessi hafi í
rauninni aðeins verið risa-
vaxinn kolkrabbi. Segir hann
að stórir kolkrabbar geti ver-
ið ógnvekjandi á að líta, og
svipi talsvert til þeirrar
myndar, sem sumir hugsa sér
þegar rætt er um „Óvininn"
sjálfan.
Olufsen er hinsvegar ekki
á þeirri skoðun að skrímslið
hans hafi verið kolkrabbi.
Hann segist þó ekki hafa get-
að skoðað það nákvæmlega,
því honum hafi eingöngu ver-
ið umhugað um að losna við
skepnuna.
Frá kosningunum í S-Víetnam á sunnudag.
34 farast í flugslysi
á Nýfundnalandi
Tékknesk farþegaflugvél steypist
til jarðar í flugtaki
Gander, Nýfundnalandi,
5. sept. (AP-NTB)
TÉKKNESK farþegaflugvél
fórst skömmu eftir flugtak
frá Gander-flugvelli á Ný-
fundnalandi snemma í morg-
un. Alls voru í vélinni 69
manns, og fórust 34 þeirra.
Margir þeirra, sem komust
lífs af, eru illa brenndir, og
sumir enn í lífshættu.
Flugvélin, sem fórst, var
skrúfuþota af gerðinni Ilyus-
hin-18, en vélar þessar eru
smíðaðar í Sovétríkjunum.
Var hún á leið frá Prag til
Havana á Kúbu, og kom við
á Gander-flugvelli til að taka
eldsneyti.
Flugumferðarstjórinn á Gand-
er-flu,gvelli segist hafa verið að
tala við flugstjóra tékknesku vél
arinnar 32 sekúndum áður en
Framhald á bls. 27
606 létust í
umferðarslysum
Ohicago, 5. sept. AP.
606 BANDARÍKJAMENN
létu lífið í umferðarslysum yfir
„Labor Day“-hielgina, sem er ein
mesta umferðahhelgi í Bandaríkj
urauim. Þetta er heldur lægri dén
artala en í fyrra, er 636 manras
létu lítfið. Helgi þessi markar lok
sum arleyfisferða í Bandaríkjun-
um. Talsmenn bandaríska slysa-
varnafélagsins hafa látið í ljós
ánægju með þessa lækkun dauðs
falla, og segja han.a stórt fram-
fanaskref í umferðarmálum
landsins.
Chagla segir af sér
Utanríkisráðherra Indlands óánœgður
með stefnu stjórnarinnar
Nýju Delhi, 5. sept. (NTB)
Utanríkisráðherra Ind-
lands, Mohammedali Currim
Chagla, sagði í dag af sér ráð
herraembætti í mótmæla-
skyni vegna utanríkisstefnu
stjórnarinnar.
Ohagla, sem er fyrsti Múha-
mieðstrúarmaðurinn er gegnt hef
ur utanrúkisráðberraembætti á
Indlandi, segir að ýmisar breyt-
ingar ríkisstjórnarinnar á skóla-
löggjöfinni geti stefnt þjóðarein-
ingu Indlands í voða, meðal ann-
ars sú réðstöfun að hætta skyndi
lega að nota enska tungu í skól-
uraum og taka í hennar stað mál-
lýzkur og tungumál héraðanna.
í afsagnarbréfi sínu segir
OhagLa að hann sé því mjög
fylgjaradi að tungumál Indlands
verði meira metin, en sú þróun
'hljóti að taka langan tíma. —
Stefna stjórnarínnar í þessu
máli hljóti að ógna og grafa und-
an einingu landsins. „Það verk-
ar eins og martröð að hugsa tái
þess að á öllum ráðstefnum þurfi
túlka til að þýða þegar tveir
Indverjar ræðast við“, sagði
Chaiglia.