Morgunblaðið - 08.09.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.09.1967, Blaðsíða 1
54. árg. — 203. tbl. FOSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kosningarnar í Vietnam kærðar Dzu boðar stofnun sfjórnmálasamtaka Var hann studdur af Vietcong? Saigon,, 7. september — NTB — ÁTTA hinna tíu borgaralegu frambjóðenda er biðu ósigur í forsetakosningunum í Suður- Víetnam á sunnudaginn kröfð- ust þess í dag, að kosningaúr- slitin yrðu ógild, en áreiðanleg- ar heimildir berma að krafa þeirra verði ekki tekin til greina. Frambjóðendurnir hafa sent bráðabirgðaþinginu kæru, þar sem sigurvegararnir í kosn- ingunum, Nguyen Van Thieu, forseti og Nguyen Cao Ky, for- sætisráðherra, eru sakaðir um að hafa haft svik í fimm til- vikum. Að því er heimildirnar herma er ósenniPegt að þingið taki kær una til greina, þótt hún bein- ist gegn meintum svikum í kosningabaráttunni en ekki gegn meintu svindii við atkvæða talninguna. Hersháfðingjarnir Thieu og Ky eru sakaðir um að hafa notað aðstöðu sína sjálfum sér til framdráttar í kosninga- baráttunni og notað útvarp og sjónvarp um of. Frambjóðend- urnir halda því einnig fram, að Ky hafi hótað að steypa hverri þeirri þjóðkjörnu stjórn, sem mynduð yrði eftir kosningarn- ar, til þess að hræða kjósendur og fá þá til að kjósa herfor- ingjana af ótta við byltingu. Ný stjórnmálasamtök? Lögfræðingurinn Truong Dinh Dzu, sem var skæðasti keppinautur herforingjanna í kosningunum, sagði blaðamönn um, að hann og annar fram- bjóðandi, Phan Khac Suu, hygð ust koma á fót stjórnmálasam- tökum, er mundi halda uppi bar áttu gegn stjórninni, ef kröfunni j yrði hafnað. Tveir frambjóðend j ur hafa ekki undirritað kær- una, Tran Van Huong, fv. for- sætisráðherra og búddatrúar- maðurinn Ha Thuc Ky, sem voru í fjórða og fimmta sæti í kosn- ingunum. Þingið verður að taka afstöðu til þess, hvort kosning- arnar hafi verið heiðarlegar eða eklti, fyrir 2. október, Stjórnin í Saigon setti í dag Framihald á bls. 31 Þessi mynd er af fyrstu brezku hermönnunum, sem settir hafa verið til að gæta landamæra Hong Kong og kínverska Alþýðulýðveldisins. Þessir Bretar eru í flokki Gúrka-hermanna, sem gæta þjóðvegarins á landamærunum við Man Kam Fo. (AP-mynd.) De Caulle í Póllandi: Valdastreita í Damaskus Beirút, Líbanon, 7. september, AP. BLÖÐ í Beirút skýrðu í dag frá valdabaráttu innan hinnar vinstrisinnuðu stjórnar í Sýr- landi. Hinn voldugi kommúnista flokkur landsins, sem er bann- aður, er sagður hafa hvatt stjórn ina til að fylgja hófsamari stefnu í deilumálunum í Austurlönd- um nær. Blaðið „Sawtal Aruba“, sem er vinveitt Egyptum, hermir að forseti Sýrlands, dr. Nureddin Atassi, sitji í stofufangelsi, en þessi frétt hefur ekki fengizt- staðfest i Damaskus, þax sem blöðin eru undir strangri ritskoð un. Hervörður er á verði í borg- inni, og myrkvun hefur verið í gildi síðan í júnístríðinu. Líbanonsku blöðin segja, að nýlokið sé 10 daga leynifundum í stjórn Baath-flokksins, sem fer með völdin í Sýrlandi, og forseti herráðsins, Ahmed Sweidani, hafi reynt að bola ríkjandi atjórn frá völdum. Ekki er minnzt á byltingu, en svo virðist sem for- ingjar úr flokknum og hernum, sem allir eru í Baathflokknum, vilji að skipt verði um forystu- menn. Áður hefur helziti komm- únistaleiðtoginn í Arabaheimin um, Khaled Bagdash, tekið und- ir meintar áskoranir Rússa til sýrlenzku stjórnarinnair um að hún sýni meiri hófsemi. Oder-Neisse línan end- anleg v-landamœri Póll. Varsjá, 7. sept., AP-NTB. DE GAULLE, Frakklands- forseti, sem nú er í sex daga opinberri heimsókn í Pól- landi, hóf í dag stjórnmála- viðræður við forseta Pól- lands, Edward Ochah, og, for sætisráðherrann, Jozef Cyran kiewicz. I ræðu í Varsjá í gærkvöldi talaði de Gaulle um Vestur-Evrópu, Mið- Evrópu og Austur-Evrópu, en pólskir stjórnmálamenn álíta að hér sé um að ræða nýjan skilning á þessum heitum í utanríkismálastefnu Frakk- lands, sem ef til vill gefi til kynna, að greina beri á milli Póllands og annarra fylgi- ríkja Sovétríkjanna í Evr- ópu. — De Gaulle kvaðst álíta, að Auatur-Evrópulöndin gætu orðið brú milli Vesturlanda og Sovét- ríkjanna, ef þau tækju upp stefnu óháðari stjórnvöldunum í Kreml, og á þann hátt stuðlað að því að minnka spennuna í Evrópu. f sömu ræðu sagði Frakk- landsfonseti einnig, að 'hann óak- aði Póllandi gengis innan þeirra landamæra, sem landinu til- heyrðu og mundu áfram til- heyra því. Litið er á þessi um- mæli, sem merki um að Frakk- land viðurkenni Oder-Neisse- línuna, sem varanleg vestur- landamæri Póllands. Varðandi Víetnam sagði for- setinn, að Pólland og Frakk- Þrjár stúlkur myrtar í Auburn — r Alabama-fylki — Morðingjans leitað Auburn, Alabama, 7. sept., AP. TVÆR systur og harnung gestkomandi stúlka voru myrtar á heimili systranna í borginni Auburn, Alabama- fylki, í dag. Talið er víst, að háskólastúdentinn Edward A. Seibold hafi framið morðin, en lögregluyfirvöld borgar- innar höfðu skipað honum að halda sig frá þessu heimili að viðlagðri fangelsisvist. — Seiboid hafði um nokkurt skeið verið vonhiðill elztu systurinnar, Kathy Sinclair, tvítugrar að aldri, en hún hafði vísað honum á bug og hafði Seibold oft síðan ráð- izt. með ofbeldi á heimili hennar, unz lögreglan greip í taumana. Er morðárásin var gexð árla í morgun var Kathy Sinclair stödd á heimili ásamt móður sinni, fertugri ekkju, systrum sínum tveimur, Söru, 16 ára að aldri, Mary Lynn, 9 ára og gest- komandi stúlku, Mary Durante, 8 áxa að aldri. Morðinginn sikaut yngri stúlkurnar tvær en réðd Söru Sinclair bana með hnífi. Móðurina, Juanitu Sinclair, særði hann með siboti 1 hand- legg. Kathy komst undan með því að fara í felur undir rúm. Þrjár handtökuheimildir hafa verið getfnar út á hendur Seibold 21 árs gömlum, sem hvarf þegar etftir morðárásina. Hundruð lög- reglumanna í Auburn auk leyni- lögreglumanna og sjálfboðaliða leita nú Seibolds. land ættu að vinna betur sam- an að lausn þessia vandamáls. Gaf forsetihn það í skyn, að Frakkland væri reiðubúið að taka að sér stærra hlutverk til að koma á friði í Víetnam. Hann hvatti einnig Pólland til að taka upp stefnu öháðari Sovétríkjun um. V-þýzka utanríkisráðuneytið hefur neitað, að ræða heimsókn de Gaulles opinberlega eða um- mæli hans um Oder-Neisse-lin una, sem endanleg landamæri Póllands í vestri. Sagði talsmað- ur ráðuneytisins, að beðið yrði með yfirlýsingax um ræ«ðu de Gaulles, unz heimsókn hans lyki, og fenginn væri orðréttur texti ræðunnar. Viðræður Frakklandsiforseta við pólska ráðamenn etóðu í rúma tvo kilukkutíma. IJnglingar í Aþenu dæmdir Aþenu, 7. septmber. NTB. HERDÓMSTÓLL í Aþenu hefur dæmt sjö unga menn í 1-14 ára fangelsi fyrir „kommúnistíska starfsemi“ og óhlýðni við her yfirvöldin í Grikklandi. Skothríð við Jórdan Tel Aviv, 7. september. NTB-AP. JÓRDANSKIR og ísraelskir hermenn skiptust á skotum í 20 mínútur skammt frá Allenby- brúnni á ánni Jórdan í morgun, T að því er ísraelskur talsmaður skýrði frá í Tel Aviv. Ilann sagði að enginn ísraelsmaður hafi fallið í bardögunum, sem hafi byrjað er jórdanskir hermenn hófu skothríð á ísraelskan varð- flokk. Jórdaníumenn segja að ísraelsmenn hafi byrjað. í Kaíró var tilkynnt í dag, að fimm borgarar hefðu særzt og nokkrar byggingar laskasit er ísraelskir hermenn gerðu skot- hríð á Ismailia á vesturbakka Súezskurðar í gær. Á mánudag- inn sló einnig í brýnu milli ísra- elsmanna og Egypta við Súez- skurð, og hyggjast Israelsmenn kæra þann atburð fyrir Orygg- isráðinu, samkvæmt frétt frá w Jerúsalem. Vopnaviðskiptin við Ismailia stóðu í tvær klukkustundir og beitt var stórskotaliði. fsraelskir blaðamenn segja, að þeir hafi séð mikla elda og sprengingax í borginni. Vopnaviðskiptunum lauk eftir miðnætti þegar vopna- hlésnefnd SÞ skar,s>t i leikinn. Málaliðar með stjórnarher Migeríu? Enu.gu, . 7sept., NTB. ÚTVARPIÐ í Biafra fullyxti í da,g, að 20 hvítir málaliðar, sem barizt hetfðu með her Satmbands stjórnarinnar Nigeriu hefðu verið felldir við landamæraborg eina í miðvestur-ríkinu undan- farna daga- Sa'gði útvarpið, að margir málaliðann,a hefðu verið slkatnir úr launsátrL Riteisstjórn Nigeríu hefur neit að því, að hatfa ráðið hvíta mála- liða til að berjast gegn upp- reisnarhermönnum frá Biafra. Útvarpið í Enugu, höfuðborg Biafra, sagði einnig í dag, að Saimbandsherinn hetfði orðið að hörfa undan eftir heiftuiga bar- daga við borgina Ore, og einnig hefðu uppreisnarmenn á sínu valdi borgina Benin- Þá saigði útvarpið, að Sambandsstjórnin hefði nú látið hefja stórfelldar loftárásir á heimiM borgara í Biafra, en í Laigos er því haldið fram, að einungis hefð'u verið sprengdir upp flugbækistöðvar : Biafra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.