Morgunblaðið - 09.11.1967, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.11.1967, Qupperneq 1
32 SIMJR * Egyptar segjasf nú fúsir til viðrœðna: En skilyrðiö er brott- flutn. ísraelsmanna Beinar viðrœður við Israel útilokaðar Kaíró, 8. nóvember. NTB—AP. JEGYPZKA stjórnin er fús til við ræðna um áætlun bandaríslku stjórnarinnar um frið fyrir botni Miðjarðarhafs þegar ísraelsmenn hafa flutt burtu hersveitir sinar frá herteknum svæðunum, sagði Hassan Zayao, starfandi áróðursmálaráðherra Egypta á blaðamannafundi í dag. Persónulega kvaðst hann telja, að brottflutningur ísraels- manna mundi leiða til friðar. Ráðherrann kvaðst samifiála ummælum Husseins Jórdaníu- konungs í Bandaríkjunum þess efnis, að Arabar séu reiðubúnir að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkiis. Hann sagði, að þegar Palestínustríðinu lauk 1949 hefðu Arabaríkin undÍTritað vopnahléssamning, þar sem viðurkennd væri tilvera ísraels og réttur ísraelsmanna til að lifa í friði og öryggi. Ekkert Arabaríki hefði dregið þennan Framhald á bls. 31. Kosningarnar í San Francisco um Vietnamstríðið: Nær helmingi fleiri greiddu atkvæði með áframhaldandi þátttöku Bandaríkjanna ÞYRLUR eru mikið notaðar i Vietnamstyrjöldinni til þess að bjarga bandarískum flug- mönnum, sem skotnir eru niður. Mennirnir á þessari mynd eru þyrluflugmenn og var þyrla þeirra skotin niður skammt frá fljótinu Vam Co Hong í An-héraði i Suður- Vietnam í síðustu viku. Þeim var bjargað um borð í aðra þyrlu og eins og sjá má mun- aði mjóu í þetta skiptið. * Tveir blökkumenn kjöruir borgarstjörar í LSA New York, 8. nóvember AP-NTB. MILLJÓNIR bandarískra kjósenda víða í Bandaríkjun- um gengu á þriðjudag til kosninga til sveitastjórna og borgastjórna og í San Franc- isco voru einnig greidd at- kvæði um það, hvort Banda- ríkjamenn ættu að hverfa burt frá Víetnam eða ekki. í kosningum þessum gerð- ist það, að blökkumenn voru í fyrsta sinn kosnir borgar- stjórar í tveimur bandarísk- um borgum. I Cleveland í Ohio bar blökkumaðurinn Carl Stokes sigur úr býtum og í Gary í Indiana blökku- maðurinn Richard G. Hatc- her. Báðir eru þeir í flokki demókrata. í atkvæðagreiðslunni í San Francisco um þátttöku Bandaríkjamanna í styrjöld- inni í Víetnam, greiddu nærri því helmingi fleiri atkvæði með áframhaldandi þátttöku Bandaríkjanna þar en með því að, Bandaríkjamenn yrðu á brott með her sinn þegar í stað. Mikill áhugi á kosningunum i San Francisco Hubert Humphrey varaforseti, sagði, á meðan á kosningabar- áttunni stóð, að kjósendur í San Francisco gætu á frjálsan hátt látið í Ijós álit si.tt varðandi Vietnam-styrjöldina, en hver sem úrslitin yrðu, myndu þau ekki hafa áhrif á utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar. Engu að síður var fylgzt með þessum þætti kosninganna af mdklum áhuga bæði í Bandarikj- unum og erlendis, því að þetta var í fyrsta sinn, sem hin um- deilda stefna Johnsons forseta í Vietnam var borin undir eins konar þjóðaratkvæði. Ástæðan fyrir atkvæðagreiðsl- unni um þetta málefni í San Francisco var sú, að hópur manna, sem nefndust „Borgarar fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Vietnam“ höfðu safnað 12.000 undirskriftum um, að þessi atkvæðagreiðsla yrði látin fara fram og þannig fengið því framgengt, að spurningin varð- andi þetta málefni var einnig sett á atkvæðaseðlana. Spurn- ingin, sem lögð var fiyrir kjós- endur, var, hvort það ætti að vera stefna landsins að gera þeg ar í stað vopnahlé og kalla heim her iandsins frá Vietnam og láta vitnamiísku þjóðina ráða sjálfa fram úr vandamálum sín- um. Ekki fór fram nein kosninga- barátta varðandi þennan þátt kosninganna, en bæði blöðin, en þau eru tvö, sem gefin eru út í San Francisco, beittu sér gegn hópi þeim, sem krafizt hafði at- kvæðagreiðslunnar. Framhald á bls. 31. Bukavu fallin og mála- liðar flúnir til Rwanda Sollol verður um kyrrt í Bugdud Bagdad, 8. nóvember. AP. ABDULLAH Sallal, fyrrum forseti Jemen, hyggst dvelj- ast í írak fyrst um sipn, að því er blaðið „A1 manar“ skýrði frá í dag. Blaðið hefur eftir syni Sallals, Ali, sem var sendi- herra Jemens í Moskvu, og var í fylgd með honum í íraksheimisókninni, að hann hafi ekki viljað yfirgefa her- bergi sitt í höllinni í Bagdad vegna atburðanna í Jemen. Að sögn Ali var enginn ágreiningur í Jemen áður en Sallal fór úr landi, og allir hópar þeir, sem stóðu að byltingunni, voru samþykkir því að hann færi í ferðalag sitt. Aðalvirki málaliða á valdi Kongóstjórnar Kigali, Rwanda, 8. nóv. — NTB HVÍTIR málaliðar hafa hörfað úr hinum stríðshrjáða bæ Buka- vu í Austur-Kongó þar sem skot færi þeirra voru á þrotum og hafa skotið síðustu sprengju- vörpukúlunni, að því er segir í fréttum, sem borizt hafa frá Bukavu. Málaliðarnir, en um 100 þeirra eru hvítir og 2000 fyrrv. her- menn aðskilnaðarstjórnarinnar í Katanga, fóru yfir landamærin til Rwanda snemma á sunnu- dagsmorgun. Þeir höfðu þá haft Bukavu á sínu valdi í þrjá mán- uði, og þeir hörfuðu eftir snarpa bardaga við hersveitir Kongó- stjórnar. 14.000 menn úr Kongóher hafa náð Bukavu á sitt vald, en mála- liðamir dveljast í herbúðum í grennd við Cyangugu, sem er um 16 km frá landamærunum, og menn úr her Rwanda hafa gætur á þeim. Katangamenn til Zambíu? f AP-frétt frá Kampala, höf- uðborg Uganda, segir, að sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum hafi Kongóstjórn fallizt á að Katangamönnum þeim, sem flú ið hafa Rwanda, verði leyft að fara til Zambíu. 100 Katanga- menn, þar af 8 alvarlega særðir, hafa sótt um leyfi til að fara til Framhald á bls. 31. í lok byltingarafmœlis: r Oformlegar viðræður um ráð- stefnu leiðtoga kommúnistaflokka Sambúð Kúbu og Sovétríkjana versnandi Moskvu, 8. nóvember — NTB FLESTIR þeirra kommúnista- leiðtoga, sem tóku þátt i hátiða- höldunum vegna hálfrar aldar afmælis októberbyltingarinnar, eru taldir hafa átt með sér óform legar viðræður í dag. Kína og Albanía sendu ekki fulltrúa til hátíðahaldanna og sendinefnd Kúbu hélt heimleiðis á þriðju- dagskvöld og sendinefnd Rúm- eniu í morgun. Af opinberri hálfu hefur ekk- ert verið skýrt frá því, hvað kommúnistaleiðtogarnir ræddu á fundum sínum í dag, en sam- kvæmt heimildum í Moskvu seg ir, að þeir muni sennilega hafa rætt m.a. um tillögu um alþjóð- legan fund kommúnistaflokka. Var gert ráð fyrir, að flestir kommúnistaleiðtoganna myndu fara frá Moskvu á fimmtudags- kvöld eða á föstudag. Kína og Albanía sendu ekki fulltrúa til hátíðahaldanna eins og að framan segir, og í sendi- nefnd Kúbu voru ekki háttsettir Framhald á bis. 31. C «

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.