Morgunblaðið - 09.11.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, f iMMTUDAGUR 9. NÖV. 1967
\
*
Hverfisgötu 103.
Sími eftir iokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAM
- VAKUR -
Sundaugaveg 12 . Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
♦ '/-=*a/lA.l£/G/U*
HAUÐARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Riiskinnshreinsun
Hreinsum rúskinnskápur,
jakka og vesti. Sérstök
meðhöndlun.
Efnalaugin Björg,
Háaleitisbr. 58—65, sími
31380, útibú Barmahlíð 6,
sími 23337.
AU-ÐVITA0
ALLTAF
Erlendir ferðamenn
á íslandi
Allar þjóðir keppast um
að laða sem flesta ferðamenn
til landa sinna. Bæði er þar um
beinharðar gjaldeyristekjur að
ræða, og svo er álitið, að „hinn
óbeini ávinningur“ sé mjög
mikils virði. Þar er átt við, að
eftir kynni erlendra ferða-
manna af landi og þjóð flytji
þeir heim með sér hlýjan hug
til gestgjafanna, sem geti svo
haft ótfyrirsjáanleg áhrif á af-
stöðu annarra ríkja til lands
gestgjafanna.
Við íslendingar vorum nokk
uð seinir til þátttöku í kapp-
hlaupinu um „túristana“, en
nú er markvisst unnið að því,
bæði á vegum hins opinbera
og annarra aðilja, að vinna
upp tapaðan tíma. Þó eimir
eitthvað eftir af einangrunar-
hugsunarhætti hjá sumu fólki,
að við eigum að una glaðir
við okkar hlut. án þess að leyfa
útlendingum svo mikið sem
horfa á okkur og landið okk-
ar.
★ Áhyggjur Dana
f sumUm löndum em
tekjur af erlendum ferðamönn
um orðnar svo miklar, að
bregði eitthvað út af með
ferðamannastrauminn, skrifa
blöðin þar, eins og við skrif-
um um aflaleysi og verðhrun
afurða. Þess vegna veldur það
Dönum núna geysilegum
áhyggjum, að fyrirsjáanlegt
er, að feðamannastraumurinn
til Danmerkur í ár verður
mun minni en undanfarin ár,
a.m.k. frá Bandaríkjunum, en
Bandaríkjamenn hatfa verið
einna beztir viðskiptavinir
Dana að þessu leyti, enda
stendur dollarinn alltaf fyrir
sínu.
Nokkrir helztu áróðursstjór-
ar SAS oru fyri skömmu á
fundi í Los Angeles með full-
trúum tíu helztu ferðaskrif-
stofna í Kalifomíu. Fulltrúam
ir tíu tilkynntu SAS-mönnum,
að engar ferðir yrðu skipulagð
ar frá Kalifomíu til Dammerk
ur á árinu 1968, þ.e. engar hóp
ferðir yrðu skipulagðar af
ferðaskrifstotfum. Dönum féll
þetta að vonum mjög þungt, og
ekki bætti það úr skák, þeg-
ar flestar stærstu ferðaskrif-
stotfurnar í Chicago, Warfiingt-
on og New York tilkynntu, að
engar hópferðir yrðu auglýst-
ar á þeirra vegum á næsta
ári.
Hótelskortur aðal-
ástæðan
Bandaríkjamenn sögðu,
að höfuðástæða þess, að Dan-
mörk væri ekki jafn-vinsælt
túristaland í augum banda-
rísks almennings og áður, væri
gistihúsavandræðin í Kaup-
mannahöfn. Fólk vildi ekki
þurfa að bíða lengi eftir svari
við því, hvort það gæti feng-
ið góða gistingu miðsvæðis í
Kaupmannahöfn frá og með
ákveðnum degi eða jafnvel ein
hvern tíma á vikutímabili.
Þessi hótelskortur fældi fólk
frá þegar í byrjun, svo að það
leitaði heldixr annað.
Önnur ástæða var gefin upp
sem óheppileg verðlagisþróun í
Danmörku. Landið, og þá sér-
staklega Kaupmannahöfn,
væri aðverða alltotf „dýrt“ fyr-
miðað væri við önnur lönd og
ir venjulega ferðamenn, þegar
aðrar borgir í Evrópu.
Reisa Bandaríkja-
menn hótel í Dan-
mörku?
Nú hafa ýmis bandarísk
fyrirtæki sýnt áhuga á því að
byggja gistihús í Danmörku,
og hafa Danir tekið því fegins
hendi (nema auðvitað SF-
kommúnistarnir, sem stjórnar-
meirihluti danskra sósíaldemó-
krata byggist á, og þó hafa
jafnvel sumir SF-menn lýst sig
hlynnta hugmyndinni). Eink-
um er rætt um stórfyrirtækið
„Holiday Inns“, sem hefur
hug á að reisa fullkomið gisti
hús með a.m.k. þúsund gisti-
herbergjum. Danski ferðamála
stjórinn og yfirborgarstjórinn í
Kaupmannahöfn hafa mikinn
áhuga á málinu, en þykir verst,
að Bandaríkjamennirnir telja
síg þurfa heilt ár til þess að
byggja húsið. Það finnst Dön-
um langur tími!
SAS hefur leiguflug
í Skandinavíu
Um þessar mundir er að
hefjast mjög hörð samkeppni
í leiguflugi í Skandinavíu.
Hún hefur svo sem verið tal-
in nógu hörð til þessa, en nú
er SAS (eða réttara sagt dótt-
urfyrirtæki þess, Scanair) að
hefja leiguflug með DC-8 flug
vélum, sem taka 165 farþega.
Er hér um að rœða stærstu
flugvélar, sem gerðar eru út
frá Skandinavíu. Fyrsta vélin
er sjö ára gömul vél í eigu
SAS, sem ber nafnið „Óttar
víkingur." Hún hafði rúm fyr-
ir 139 farþega, en var breytt
fyrir eina og háltfa milljón
danskra króna (um 9,3 millj.
ísl. kr.). Fyrsta farrými er af-
numið og eldhúsið minnkað,
svo hægt væri að bæta við 26
farþegasætum.
Tapað — fundið
Velvakandi hefur ein-
staka sinnum skýrt frá því, að
hjólhestar (einkum barnahjól)
hafi horfið, og hefur hann gert
það vegna óska bréfritara. Vel
vakandi man í svipinn eftir
þremur dæmum þess, að börn
hafi fengið hjólin sín aftur,
eftir að þeim hafði verið lýst
í þessum dálkum. Slíkt er
mjög ánægjulegt, og hetfur Vel
vakandi auðvitað haft gaman
af því að geta orðið börnun-
um að liði. En öllu má nú
ofgera. Nú virðast sumir
halda, að þessir dálkar séu
einhvers konar „Tapað-fund-
ið“-auglýsingadálkar. Vill Vel
vakandi því taka það fram, að
hann getur ekki tekið að sér
að auglýsa eftir týndum mun-
um; slíkt má gera í auglýs-
ingum blaðsins og stundum
með klausu í Dagbók, einkum
ef um börn er að ræða. Því
hættir Velvakandi hér með að
birta slík bréf, en segir þó
IJrval nýrra eyðublaða frá
Eyðublaðatækni
★ Sérstakiega viljum við vekja athygli á nýju
vinnulaunakerfi fyrir atvinnurekendur.
★ Margar gerðir geymslna fyrir eyðublöð, nýjar
möppur, plastskuffur, möppustoðir o.fl.
★ Munið: Hentug eyðublöð spara vinnu og lækka
skrifstofukostnað.
★ Kynnið ykkur helztu nýjungarnar.
HVERFISGÖTU 37, KEYKJAVÍK.
SÍMI 18994.
ekkl, að hann mundi ekki gera
eina undantekningu eftir mála
vöxtum, sérstaklega ef um
börn er að ræða, sem einihver
vondur strákur hefur rænt
hjólinu. Það þekkir hann sjálf
ur af eigin raun, að er voða-
lega sárt.
Hér skal þó að lokum birt
bón frá konu, sem týndi pen-
ingaveski við Osta- og smjör-
söluna á Snorrabraut mánudag
inn 30. okt. Sá hún einhvern
taka veskið upp, en náði ekki
til manneiskjurmar. Veskið seg
ir hún að sé greinilega merkt
með nafni, síma og heimilis-
fangi. Vegna einka-skilríkja í
veskinu biður hún finnandann
að senda sér veskið í pósti með
öllu í, en tíunda hluta fjár-
upphæðarinnar megi hann
reikna sér í fundarlaun. (Vel-
vakanda minnir nú, að fundar
laun séu þriðjungur).
Sameinuðu þjóð-
irnar
„Guðmundur S.“ skrif-
ar:
„Kæri Velvakandi!
Ég er einn þeirra, sem
bundu miklar vonir við stofn-
un Sameinuðu þjóðanna í upp-
hafi. Ýmis víxlspor tel ég, að
þær hafi stigið á umliðnum ár-
um, en þrátt fyrir allt hafa
þaar miklu góðu til leiðar kom
ið, einkumn undirstofnanir
þeirra. Hins vegar er allsherj-
arvettvangur þeirra meira og
meira að verða að áróðurs-
kenndur, þar sem einsýnir
menn flytja hatursprédikanir
hver gegn öðrum, og er ég
viss um, að sumar samþykkt-
ir í seinni tíð hafa bókstaflega
stuðlað að úlfúð og ófriðL
En nú þykir mér þó keyra
um þverbak, þegar samþykkt
eru á þingi hinna Sameinuðu
þjóða „tilmæli til Breta um að
hætta samningaumleitunum
þegar í stað við Ródesíustjórn"
og „hvatning um að beita
vopnavaldi tafarlaust.“
Við skulum alveg láta
liggja milli hluta, hverja skoð-
un við höfum á stjórninni í
Ródesíu. En er þetta sá andi
friðar og sáttfýsi, sem við von-
uðum og trúðum, að rnundi
alla tíð stjórna gerðum Sam-
einuðu þjóðanna? Byggjast
þær ekki einmitt á því, að deil
ur skuli leystar með samning-
um en ekki með vopnavaldi?
Hafi ég misskilið þetta, þætti
mér vænt um. ef einhver mér
fróðari vildi þá leiðrétta mig.
Guðmundu S.“
Suðurnesjavegnr
eða Reykjanes-
braut?
„Suðurnesjamaður" skrif
ar:
„Kæri Velvakandi!
Hvernig ætli standi á því, að
opinberir aðilar, eins og t.d.
Ríkisútvarpið og Hafnarfjarð-
arlögreglan, tala alltaf um
Reykjanesbraut, þegar átt er
við Suðurnesjaveg? Nú vita
allir, að Reykjanes er ekki
nema smáskagi út úr Reykja-
nesskaga, sem farið er að kalla
svo (og gjarnan má), og kem-
ur umtalaður vegur hvergi
nærri því. Hins vegar heitir
þessi vegur fra aldaöðli Suð-
urnesjavegur, enda ligguir
hann um Suðurnes. Skil ég
ekki, af hverju sumir finna
þörf hjá sér til þess að breyta
því. Vegurinn liggur ekki út á
Reykjanes, og braut er ósköp
tilgerðarlegt.
Suðurnesjamaður."
t