Morgunblaðið - 09.11.1967, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓV. 1967
23
FISKUR í IVIATIIMIM
Fiskréttur
Ef fisksalinn á engan nýjan
fisk, er mjög gott að geta gripið
til frosnu fiskflakanna, sem eru
mjög ljúffeng í eftirfarandi rétt,
en hann er mjög þægilegur og
fljótfengur:
2 dl. hrísgrjón
3 dl. vatn
1 pk. frosnar grænar baunir
gulrætur
1 pk. frosinn fiskur (ýsa eða
þorskur)
safi úr 1/2 sítrónu
salt, pipar, smjör
Hrísgrjón og vatn er sett í eld-
fast fat (eða pott), þar næst
grænu baunirnar og gulræturn-
ar, ef vill steinselja líka. Salt
og pipar sett á og smjörbitar.
Efst er frosni fiskurinn settur,
skorinn í bita. Sítrónusafinn
settur yfir og lok sett á. Bakað
í ofni í ca. 45 mín., eða gufu-
so’ðið í 25 mín. Með þessum rétti
er gott að bera fram tómata og
dild.
Fiskflök í ofni.
Pakki af hraðfrystum fiski
látinn í vel smurt eldfast mót,
yfir hann helt blöndu af brún-
uðum lauk og piparávexti, sem
skorinn er í sneiðar. Saxaðri
Þœgilegt herðatré
að þurrka á
TIL að koma í veg fyrir að för
kotmi í peysuna undan herða-
trénu, þegar hún er þurrkuð, er
hægt að búa til úr pappír, þ.e.a.s
samanvöfðum dagblöðum, sem
eru jafnbreið peysunni. Síðan er
vafið utan um blöðin með segl-
garni og lykkja úr því notuð
til að hengja upp með, eins og
sést á meðfylgjandi mynd.
steinselju stráð yfir og lok sett
á. Mótið sett í meðalheitan ofn
þar til fiskurinn er gegnumsoð-
inn. Góður réttur með kartöflu-
salati,
Réttur fiskimannsins.
1 pund rauðsprettuflök
3 bollar vatn
1 tsk. salt
nokkur heil piparkom
dálítill laukur í sneiðum
1 sítrónusneið
4 matsk. smjör eða smjörlíki
4 matsk. hveiti
1 tsk. sítrónusafi
blandað grænmeti, hra’ð-
fryst eða úr dós
dálítið selleri
Blandið saman vatni, salti,
piparkornum, selleri, lauk og
sítrónusneiðum í stóran pott,
hitað upp að suðu. Flökin sett
í og látið smásjóða í 7 mínútur.
Fiskurinn tekinn upp úr og soð-
ið látið sjóða niður, en það á
a'ð vera u.þ.b. 2 bollar. Smjör-
líkið brætt í potti, hveitinu bætt
í, síðan þynnt út með 2 bollum
af fisksoðinu, Iátið sjóða þar til
sósan þykknar þá tekið af plöt-
unni. Síðan bætt í sítrónusafa
og ef vill dropa af gulum matar-
lit. Grænmetinu komið fyrir á
fati, síðan er fiskurinn settur of-
an á og grænmeti sett í kring.
Gott að setja fatið aðeins inn í
ofninn. Sósan er borin fram
sér, en fallegt að setja dálítið
af henni yfir fiskinn.
Fiskflök með sveppum, rækjum
og spínati.
12 stór raúðsprettuflök
1/2 kg sveppir
250 gr rækjur
1/2 1 rjómi
50 gr smjör
50 gr hveiti
salt, pipar, múskat, rifinn
ostur, rasp.
Spínatið hreinsað og soðið í
nokkrar mínútur í léttsöltu
vatni, sett á gatasigti og vatnið
látið drjúpa af. Það má sjálfsagt
nota niðursoðið spínat líka. Spín-
atið lagt í eldfast mót, salti,
pipar og múskati stráð yfir.
Rauðsprettuflökunum rúllað upp,
sett upp á endan ofan á spínat-
ið, rækjunum dreift yfir. Jafn-
ingur bakaður upp úr smjörlíki,
hveiti og rjóma, sveppum, (sem
a'ðeins á að hita í vatni með sítr-
óhusafa áður) blandað í og síð-
an hellt yfir flökin. Raspi og
osti stráð yfir og síðan bakað í
ofni í um það bil 40 mínútur við
góðan hita. Áður en rétturinn
er borinn fram, er ágætt að
setja nokkrar rækjur yfir til
skrauts. Þetta er áætlað fyrir
um átta manns, nokkuð dýr
réttur, en sannkölluð veizlumál-
tíð.
Rauffspretturúllur.
16 raúðsprettuflök
salt og pipar
1 búnt söxuð steinselja
dálítið af graslauk
smjör, 1 ds, tómatpuré
hvítvín
sykur og rasp.
Flökin þvegin og þurrkuð vel.
Salti og pipar stráð yfir ásamt
steinselju og graslauk. Flökun-
um rúllað saman og lögð hlið
við hlið í eldfast mót. Tómatpuré
og dálitlu hvítvíni blandað sam-
an, sykur og salt sett í og blönd-
unni hellt yfir fiskinn. Raspið
aðeins brúnað í smjöri á pönnu
og síðan stráð yfir flökin. Fatið
sett í heitan ofninn og bakað
í ca. 1/2 klst.
Milanaise-fiskur.
Rauðsprettuflök þurrkuð, pip-
ar dreift yfir þau. Flökunum
fyrst dýft í þeytt egg, síðan í
rifinn ost og að síðustu í rasp.
Þetta er aðeins látið stífna, áður
en fiskurinn er steiktur í blöndu
af smjöri og olíu. Borið fram
með steiktum kartöflum og tóm-
atsósu.
Fiak á la Flamande.
Eldfast mót smurt með smjör-
líki og flökin, sem krydduð eru
með salti, pipar og múskati, lögð
í. Hakkaður laukur, steinselja,
1/2 mulið láidberjabla'ð og smjör-
bitar settir yfir (má líka setja
hvítvín ef vill). Fiskurinn sett-
ur í heitan ofn, í u. þ. b. 15
mín. Það á að koma allgóð sósa,
ef aluminiumpappír er settur
yfir fatið.
Þorsk- effa ýsuflök í fati.
Laukur steiktur í olívenolíu.
Sett út í tómatur, salt og pipar.
Allt soðið í 15 mín. og síað. Flök-
in lögð í smurt eldfast fat og
sósunni hellt yfir. Bakað í ca.
20 mín.
Fiskfillet jardiniére.
Gulrætur,. púrrur og sellerí
skorið í smábita og snöggsoðið
í saltvatni. Flökin sett í eldfást
mót eða pott, grænmeti látið yf-
ir. Kálvatni hellt á (má vera
hvítvín). Soðið. Jafningur búinn
til úr hveiti, smjöri og fisksoði
hellt yfir fiskinn, þegar hann er
borinn fram.
Fiskafgangur (ýsa eða þorskur)
Fiskafgangur
2 gulrætur
2 harðsoðin egg
1 sítróna, steinselja
smjörlíki.
Brætt smjör með.
Þykkt lag af kartöflumús er
látið jafnt á fat. Fiskurinn sett-
ur í bitum á, eftir að hann hef-
ur verið aðeins hitaður upp í
smjörlíki. Ofan á er látið hakk-
að egg. Gulrætur utanum.
Ofnsteiktur fiskur.
Fiskurinn penslaður með eggja
hvítu, raspi stráð á og salti,
sett í eldfast mót. Brætt smjör
látið yfir. Steikt í 1/2 klst. Ausið
yfir með vatni eða soði. Síðan
er búin til sósa úr soði, tómat-
puré og rjóma, og hún borin
með fiskinum.
Fiskflök meff Chutney-sósu.
Flak
3—4 bananar
8 matsk. smjörlíki
2 matsk. hveiti
2—3 bollar mjólk
1 matsk. rasp
1 eggjahvíta
Chutney, salt, pipar.
Flökunum dyfið í eggjahvítu
og rasp, steikt í helmingi smjörs-
ins. Rétt áður en fiskurinn er
tilbúinn, eru bananarnir látnir
á pönnuna, steiktir ljósbrúnir.
1/2 af smjörinu bakað upp með
hveitinu og mjólkinni. Chutney
látið í eftir smekk.
Luxus-fiskur.
Flök (ýsu- eða þorsk-) lögð
í bleyti í 1 tíma í sítrónusafa,
salti og pipar stráð á. Siðan
eru þau þerruð, smurð með
smjöri og sett í eldfast mót.
Hnetur muldar og blandaðar
með rjóma, rifinn ostur, sherry,
salt og pipar, blandað saman
og hellt yfir fiskinn. Efst er
sett rasp og smjörbitar.
Karrý-fiskur.
3 laukar (ekki stórir)
dálítið hvítlauksduft
1 grænn pipar, niðurskorinn
1 matsk. karrý
1/4 bolli smjörlíki
örlítið af negul
1/2 bolli mjólk
1/2 kg fiskflök (ýsa eða |
þorskuf), roðflett, skorin í
bita
salt
Soðin hrísgrjón borin með.
Smjörlíkið sett í pott, laukur,
hvítlauksduft, grænn pipar og
karrý sett út í, látið krauma í
5 mínútur. Fiski bætt út í ásamt
mjólk og negul, látið sjóða í
10 mínútur.
Fiskur meff eggjasósu.
750 gr fiskflök, ýsa eða þorsk-
ur, hvítlauksduft, salt og pipar.
Fiskurinn skorinn í hæfilega
bita, sem soðnir eru í mjög litlu
vatni í 10 mínútur.
Eggj asósa:
1/4 bolli smjörlíki
3 matsk. hveiti
Vz tsk. Worcestershire sósa
1 tsk. sinnep
1 1/2 bolli mjólk
3 harðsoðin egg, skorin í
smábita
3 matsk. hvítvín
paprika.
Smjörlíkið brætt í potti, hveit-
ið hrært út í ásamt kryddinu.
Mjólk bætt í og soðið þar til
sósan þykknar og hrært vel í.
Eggjunum bætt í og víninu. Salti
og pipar stráð á. Sósan sett yfir
fiskinn og papriku stráð yfir.
Fiskí-frikadellur.
1/2 kg af ýsu- eða þorskflök-
um hakkað í hakkavél, (eða
kaupið fiskhakk), bætið síðan 1
söxuðum lauk saman við. Hrær-
ið síðan saman við farsið í bolla
af raspi (eða muldu fransk-
brauði), 1 heilu eggi, salti, og
pipar ásamt ofurlitlu af karrý.
Ef farsið verður of þykkt, er
það þynnt með dálitlu af rjóma.
Farsið er síðan steikt eins og
buff á pönnu. Gott er að bera
soðin hrísgrjón með.
Prjónaskapur
ÞEGAR við prjónum og missum
niður lýkkju, er einfaldara að
nota fínni prjón en þann sem
prjónað er með, við að ná upp
lykkjunum, sem niður hafa fall
ið.