Morgunblaðið - 29.12.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.12.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DES. 1967 3 Er alveg búinn að ná mér — segír Júlsus Ívarsson, sem féll fram af hömrtinum við Húsavík I GÆR leit inn á ritstjórnar- skrifstofur Morgunblaðsins, Júlíus ívarsson frá Húsavík, en sem flesta rekur minni til féll hann fram af hömrum við Húsavík skömmu fyrir páskana í fyrra. Var þetta 35 metra fall, og þótti mörgum furðulegt að hann skyldi komast lífs af, hvað þá held- ur að honum skyldi takast að komast upp bjargið aftur. Júlíus dvaldist í Reykjavík yfir jólin, og hann varð 11 ára í fyrradag. Heimsótti hann okkur ásamt afa sínum, Skarphéðni Þórarinssyni. Við notuðum tækifærið og röbbuðum lítið eitt við Júlíus og afa hans. Júlíus er frísk- legur drengur, og var ekki annað að sjá en hann væri algerlega búinn að ná sér eft- ir óhappið, en á hinn bóginn var hann fremur fámáll um atburði. Við spurðum hann fyrst hvort hann væri algjör- lega búinn að ná sér. — Já, fyrir löngu. Ég lá í spítalanum í hálfan mánuð, en eftir það var ég orðinn alveg eins og fyrir slysið. — Hvað meiddustu mikið? — Ég fékk skurð á fótinn og meiddist á auganu. Og afi hans bætir við: — Þetta var mikill skurður á iærinu og læknarnir voru i kringum tvo tíma að ná gler- brotum úr sárinu. Svo var annað augað nokkuð skaddað, og læknarnir voru á tímabili jafnvel hræddir um að hann myndi ekki halda sjón á því, en raunin varð samt önnur. Við rifjum lítillega upp hvernig slysið bar að höndum og Júlíus kveðst ekki muna mikið eftir því, og segist alveg hafa forðazt að fara á slysstaðinn aftur. — Ég skoðaði staðinn, þeg- ar ég átti leið um Húsavík í sumar, sagði Skarphéðinn. — Þetta er 35 metra þverhnípi með stórgrýti fyrir neðan, og Húsvíkingar hrista enn höf- uðið í undrun yfir því að hann skyldi komast lífs af. Á þessum stað eru sorphaugar Húsavíkur og telja menn helzt að hann hafi. lent á milli klappa ofan á pappakassa. Ennfremur var suðvestan Júlíus ívarsson og afi hans Skarphéðinn Þórarinsson. hvassviðri þegar þetta gerð- ist og uppstreymi við bjargið var talsvert, og telja menn að það hafi ennfremur átt tölu- verðan þátt í því að draga úr fallinu. Húsvíkingar telja einnig furðulegt hvernig Júlíusi skyldi takast að kom- ast upp bjargið. Hann fór upp kleif sem þarna var skammt frá, og telja þeir að hún hafi verið ófær vegna klaka. Reyndu nokkrir menn það seinna og tókst að vísu, en telja furðulegt að slösuðu barni skyldí takast þetta. - GRIKKLAND Framhald af bls. 1 og ákærður fyrir þátttöku í sam- særi um að steypa stjórninni. innar, Papadopoulos, Pattako og sætisráðherra, tilkynnti um sak- aruppgjöfina um jólin nefndi hann Theodorakis sérstaklega og sagði í gamansömum tón, að honum yrði sleppt úr haldi svo að hann gæti samið söngva um aprílbyltinguna. Klofningur í stjórninni Fréttaritari AP í Aþenu herm- ir, að hinar ósamhljóða tilkynn- ingar um sakaruppgjöfina beri vott um klofning innan herfor- ingjaklíkunnar og með takmörk- un náðananna hafi öfgafullir herforingjar farið með sigur af hólmi. Þrír helztu leiðtogar stjórnar- innar, Papadopoulos, Pattakos og Markazeros, eru taldir í hópi hófsamari herforingja er vilji taka tiltölulega vægt á pólitísk- um andstæðingum. Öfgasinnarn- ir eru undir forystu John Ladas ofursta, yfirmanns öryggismála, Konstantíns Karydas, ráðu- neytisstjóra í forsætisráðuneyt- inu, og Skarmalioraksins flug- marskálks, sem er flugmála- stjóri Grikklands. Þeir vilja ekki að slakað verði á klónni, ritskoðun aflétt eða öfgafullum vinstrisinnum verði sleppt úr haldi. Papadopoulos vill fá Konstantín konung heim, annað hvort nú þegar eða eftir nokkra mánuði, en öfgasinnarnir vilja að konungur verði í útlegð um óákveðinn tíma. í dag voru sjö hershöfðingjar hollir konungi sviptir störfum, og er hér um að ræða þriðju meiriháttar hreinsunina í hern- um síðan Konstantín gerði gagn- byltingartilraun sína. Stjórnin birti í dag nýja fimm ára áætl- un sem á að auka meðalárstekj- ur Grikkja úr 48.000 ísl. kr. í 56.000 kr., auka þjóðarfram- leiðsluna um 7.5 til 8.5% á ári, og veita 350.000 mönnum at- vinnu, aðallega í iðnaði. Lögð er áherzla á erlenda fjárfestingu. Stjórnin fjarlægði í dag nafn Konstantíns konungs af lista yfir þá sem viðstaddir verða guðs- þjónustu í dómkirkjunni í Aþenu á nýársdag, og bendir þetta til þess að konungur verði um kyrrt í Róm. Ekki er vitað hvort sendiherrar erlendra ríkja verði við guðsþjónustuna að KOMIÐ er út 4. hefti þessa árs af tímaritinu Iceland Review. Er það fjölbreytt og vandað að efni og útliti, flytur fjölbreyttan fróðleik um land og þjóð. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, skrifar grein um kirkjuna á íslandi og birtar eru fjölmargar myndir af kirkjum, gömlum og nýjum. Þá er grein um Fiske-bókasafn- ið i íþöku, viðtal við bókavörð- inn, Vilhjálm Bjarnar, sem bandarískur blaðamaður átti við venju. Fjórir evrópskir þingmenn af- hentu í dag Alþjóða Rauða krossinum í Genf skrá yfir Grikki sem þeir segja að pynt- aðir hafi verið í fangelsum. hann fyrir ritið. Pétur Karlsson skrifar ferða- lýsingu frá Borgarfirði og Snæ- fellsnesi og birtar eru fjölmarg- ar myndir, bæði svarthvitar og í litum, úr þessum landshluta. Bandarískur blaðamaður, Tom Bross, skrifar grein um heim- sókn til íslands að vetrarlagi og nefnir hana: Undir norðurljós- unum. Fjölmargar myndir fylgja greininni, bæði svart-hvítar og í litum — og sýna ísland í vetrar- ham. Myndir eru af fyrstu íslenzku þotunni og myndskreytt frásögn er einnig í ritinu af komu banda rísku geimfaraefnanna hingað sl. sumar. Erlendur blaðamaður í heim- sókn skrifar grein um bókaflóð- ið á íslandi, eins og það kemur útlendingi fyrir sjónir. Hann kom hingað í desembermánuði og ræddi við bókaútgefendur og bóksala og niðurstöður hans eru athyglisverðar. Eiður Guðnason skrifar í þetta hefti Iceland Review um Tryggingastofnun ríkisins og hlutverk almannatrygginga í ís- lenzku þjóðfélagi. Magnús Finns- son skrifar um Innkaupastofnun ríkisins og hið fjölþætta starfs- svið hennar. Þá er sagt frá nokkrum iðnaðarfyrirtækjum á Akureyri. Af mörgu öðru efni í blaðinu má nefna almennar fréttir og fréttir frá sjávarútvegi í sam- þjöppuðu formi, bókaþátt, fróð- leiksmola fyrir ferðamenn og I fleira. Sýningar eru hafnar aftur í Þjóðleikihúsinu á hinu vinsæla barnaleikriti Galdrakarlinn í Oz. Leikurinn var sýndur 25 sinnum á sl. leikári við mjög góða aðsókn og við hrifningu hjá yngri kynslóðinni. Aðalhlutverk eru eru leikin af Margréti Guðmundsdóttur, Bessa Bjarnasyni, Árna Tryggvasyni, Jóni Júlíussyni, Sverri Guðmundssyni og fl. Leikstjóri er Klemens Jónsson. Mynd in er úr fyrsta atriði leiksins af Margréti Guðmundsdóttur og fl. Árcamótahefti lceland RevSew STAKSTEINAH Staðfesting Á Þorláksmessu var að þvi vikið í þessum dálki, að liklega biðu Eysteins Jónssonar nú sömu örlög og tveggja fyrirrennara hans, að víkja nauðungur úr for- mennsku Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi hans í marz. f fvrradag birti Vísir fregn sama efnis á forsíðu sinni, og þann dag sneri Mbl. sér til Eysteins og óskaði umsagnar hans um málið. Hann vildi ekkert um það segja, sagði að það kæmi í ljós á sínum tíma, hvort hann hætti formennsku eða ekki. Þessi svör Eysteins eru i sjálfu sér næg staðfesting á því, að nú er komið að lokum forustu hans í Fram- sóknarflokknum og sú staðfest- ing er enn ítrekuð með útkomu Tímans í gær, sem ekki minnist einu orði á málið og er það örugg vísbending um, að það sé á þvi stigi, að ekki þyki fært að neita sannleiksgildi þess. Ýmsir munu velta þvi fyrir sér hvers vegna Eysteinn hættir eftir svo stuttan feril, sem formaður Framsóknarflokksins, en ástæð- an er augljós. Framsóknarflokk- urinn vandist því áratugum saman að vera við völd og Ey- steinn hefur aldrei kunnað tál annarra verka en þeirra, sem fylgdu því að vera í stjórnar- ‘ andstöðu. Sem formanni hefur honum mistekizt að skapa flokknum stjórnaraðstöðu á ný ; og bjartar vonur, sem kviknuðu í ] brjóstum Framsóknarmanna x ] haust, um, að nú mundi það tak- j ast, slökknuðu fljótt aftur. Fram- j sóknarmenn kunna illa að meta j pólitíska eyðimerkurgöngu og ' þeir hafa ekki mikla samúð með Ieiðtoga, sem heldur þeim utan dyra. Þess vegna hættir Eysteinn nú. í Eftirleikurinn Fullvíst má telja, að eining sé innan Framsóknarflokksins um að Ólafur Jóhannesson taki við formennsku flokksins af Eysteini, ef til vill fyrst og fremst vegna þess, að ekki þykir fært að ganga fram hjá Ólafi, sem verið hefur varaformaður flokksins um langt skeið, þótt margir Fram- sóknarmenn telji, að sú breyting á æðstu forustu flokksins verði ekki til þess að breyta þeirri flokksmynd, sem festst hefur í hugum kjósenda og þykir ekki ýkja geðþekk. Hins vegar má fullyrða, að nú þegar sé hafin hörð barátta um það hver verða skuli varaformaður flokksins í stað Ólafs og koma þá fyrst og fremst tveir menn til greina að því er talið er. Einar Ágústsson ig Helgi Bergs. Hinn síðar- nefndi hefur verið ritari flokks- ins nokkurt árabil og erfði það sæti af Eysteini er hann gerðist formaður. Þrátt fyrir það er tal- ið, að Einar Ágústsson hafi meiri möguleika á að ná kosningu en Ilelgi og ber þar ýmislegt til m.a. litlar vinsældir Helga í flokknum og sú almenna skoðun, að hann hafi unnið lítil afrek sem ritari flokksins, en undir hann heyra skipulagsmálin. Sá mögu- leiki er þó fyrir hendi, að báðir þessir menn falli í valinn og þriðji maðurinn komi fram til sam- komulags, og mundi það þá lík- lega verða eitt af eftirlætisbörn- nm Eysteins í þingflokknum. Óbreytt stefna Fyrirsjáanlegt er, eins og allt er í pottinn búið, að stefna Framsóknarflokksins mun verða óbreytt, þrátt fyrir þá breyt- ingu, sem nú má telja víst, að verði á forustu flokksins. Sú breyting er ekki nægilega mik- il, til þess að stefnubreytng geti fylgt í kjölfarið. Ólafur Jóhann- esson er samábyrgur Eysteini Jónssyni um þá ómerkilegu hentistefnu, sem Framsóknar- flokkurinn hefur rekið um nokk urt skeið — og því miður litlar líkur á að breytist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.