Morgunblaðið - 29.12.1967, Síða 26

Morgunblaðið - 29.12.1967, Síða 26
26 •**» ■ « » ri ■ if'íí.... y !-■■ ■ . ir. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DES. 19CT KR stöövaði skyttur Víkings — og vann óvænt 23-15 KR-ingar, nýliðarnir í 1. deild- inni, komu sannarlega á óvart í fyrrakvöid er þeir sigruðu Vík ing með nokkrum yfirburðum, 23 mörk gegn 15. Fyrirfram var að vísu búizt við jöfnum leik og KR-ingar gaetu gert Víking skrá veifu — en yfirburðasigri bjóst enginn við. En það var fyrst og fremst baráttuviljinn og ákveðni leikmanna að gefast ekki upp, sem færði KR þennan sigur og dýrmæt stig. Framan af fór leikurinn eftir spáimannsbókinni og var jafn. KR hafði yfir í hálfleik 9-8. En er baráttan hófst í síðari hálfleik hófu KR-ingar stórsókn sína snemma. >eir höfðu séð, að þeim hafði tekizt að stöðva stór- skyttur Víkings, þá Einar Magn- ússon og Jón Hjaltalín, og nú varð bara að skora. Og það Karl Jóhannsson er driffjöður KR-liðsins. tókst. Á örfáum mínútutm skor- aði ungur nýliði hjá KR, Geir Friðgeirsson þrjú mörk og KR hafði náð 4 marka forskoti. Þetta virtist riða keppnisskapi Vík- inga að fullu og eftirleikurinn var hægur fyrir KR-inga. Leynivopnið. Leynivopnið að þessuim sigri KR-inga var öðru fremur leik- ur Halldórs Björnssonar. Hann er skapmikill og ákafur leikmað ur og gengur eins lanigt í „pöss- un“ sinni á ákveðnuim leikmönn um og frekast má — og stundum jafnivel lengra. En hann hefur sýnt að hionum tekst að „drepa niður“ sér miklu sterkari menn með sinni ákveðni. Og nú gekk hann móti þeím Einari og Jóni til skiptis er þeir komust í færi og hvað etftir annað stöðvaði hann hin hættulegu skot þeirra. Er hann þó 15—20 cm. lægri en Einar. Framfarir. KR-liðið er sannarlega á fram farabraut og með slíkri ókveðni sem liðið hefur sýnt í leikjum sínum nú, verða þeir fljótir að forða sér úr fallhættunni. Fer saman ágætur ’eikur ungra manna og þeirra eldri, Karls og Sigurðar og er langt síðan KR hetfur átt svo samstillt lið. Og harkan og keppisviljinn er ávallt só sami. Þetta skap skorti Víkingana og buguðust þeir beztu gegn veikari rnönnum. Með slíku er aldrei hægt að vinna leik örugg lega. Staðan STAÐAN hjá 1. deild að loknum 2 umferðum (af 10) í mótinu er þessi: Fram 2 2 0 0 44:34 4 FH 2 1 1 0 50:43 3 Valur 2 1 0 1 37:33 2 Víkingur 2 0 1 1 36:44 0 KR 2 1 0 1 37:35 2 Haukar 2 0 0 2 37:54 0 Gyifi Hjálmarsson hefur hér fundið góða smugu. Valsmennirnir eru varnarlausir. Ljóism,. Sv. Þ.) Islandsmótið á hrak- hólum í Höllinni? Enn ekki hægt að skipa á ENN er ekki lokið við niðurröð- un í ísáandsmótið í handknatt- leik, þótt nú siéu 1. deildarliðin búin að leika tvo leiki hvert féiag. Stafar seinagangurinn, að því er blaðafulltrúi HKRR hefur sagt, af því að ekki hafa fengizt loforð fyrir ákveðnum eða nógu mörgum leikdögtum í íþróita- höUinni- Vonandi rætist úr þestsiu og leikskráin komi út — að venju. Næstu leikkvöld mótsins verða þessi: Sunnudaginn 14. jan. kl. 2: 2. deild karla ÍR-Þróttur 1. deild — Haukar-Valur. 1. deild — Fram-Vík. Mánudaginn 15. jan. kl- 20.15: Mfl. kvenna Víkingur-Fram Mlbl. fl. kvenna KR-Ármiann 2. fl. ka. ÍR-Valur 2. fl. ka. B KR-ÍBK Sunnudaginn 21. jan- kl. 19.15: 2. deild karla Ármann-ÍBK 1. d*eflld — FH-KR 1. deild — 'Haukar-Víkingur Lengra mun enn ekki hiægt að ákVeða mótið — og því ekki hægt að gefa út skrá. Ákveðið 'hefur verið að leikir í 2. deild verði leiknir heima og 'heiman eins og var í fyrra, það er að öll þátttökuiiðin hér syðra fari tál leiks við Akureyringa á Akureyri og Akureyringar komi suður til hins leiksins. Vest- mannaeyingar eru nýliðar í 2. deild og eiga ekki hús og leika báða sína leiki við viðkomandi félög á þeirra heimavelli. — ■ i ■ . ■ » — ■ - < - ■— - -- j-i — — - ' " "" ■— 11 ~ íslendingar í heimsliðið? Rætl um möguleika á leik milli Tékka og úrvalsliðs heims RÁÐAGERÐIR eru uppi um það að efna til kappleiks í handknattleik milli heims- meistaraliðs Tékka og úr- valsliðs Evrópulanda, sem jafnframt yrði einkonax „heimslið“. Ef atf verður, fer leikurinn fram í tilefni af af- mælishátíð tékkneska hand- knattleikssambandsins 1968. Tékkar settu fram þessa hugmynd og hefur hún hvar vetna hlotið góða dóma. Að- alvandinn er, hvernig á að velja „heimsliðið". Menn eru á eitt sáttir um að styðjasi við það „heims- lið“ er valið var af öllum fréttamönnum og fleirum að lokinni síðustu HM keppni en það var þannig. Eri'k Holst, Danmörk, Gru- ia, Rúmeníu, Bruna Tékkó- slóvakíu, Paul Tiedemann, A-Þýzkaland, Mares, Tékkó- slóvakíu, Solomko Sovét og Duda Tékkóslóvakíu. Þetta lið getur að sjálf- sögðu ekki leiikið, þvi Tékk- arnir leika í sínu landsliði. Og um lauisu sætin ■— og kannski fleiri — stendur bar- áttan. Rúmenar hafa sýnt miklar framfarir m.a. með stónsigri yfir V-Þjóðverjum nýlega og þá er að finna í landsliðum margra annarra þjóða liðsmenn sem hæfir væru. Og eftir uimmæli Tékka í Höfn, þá er ekki óliklegt að einhverjum detti íslenzkur eða íslenzkir leikmenn í hug þegar valið verður. Þar sagði Arnost markv. og fyrirliði að betri eins’taklingar væru í ísl. liðinu en hinu danska. Leikur sem þessi mun, hvernig sem úr rætiist, standa á sama grunni og hinir stærri knattspyrnuleikir t.d. er enska landsliðið lék á móti „heimsliði." Unglingamót TBR LAUGARDAGINN 16. des. gekkst TBR fyrir opnu einliða- leiksmóti í badminton í þremur aldursflokkum unglinga. Þátt- takendur voru 30 frá TBR, Val, KR og Akranesi. Sigurvegarar urðu þessir: Sveinar (yngri en 14 ára): Helgi Benediktsson, Val, sigr- aði í úrslitum Þórhall Björnsson, einnig úr Val, með 11:1 og 11:2. Drengir (14—16 ára): Sigurvegari varð Sigurður Haraldsson, TBR. Sigraði hann í úrslitum Jón Gíslason, Val, með 11:7 og 11:4. Unglingar (16—18 ára): Þar sigraði Haraldur Korne- líusson, TBR, Svein Kjartansson, einnig úr TBR, í úrslitum með 15:4 og 15:7. Mótið fór fram í íþróttahúsi Vals og tókst mjög vel. Að plata hússtjórnina ÞAÐ veríur nýlunda við £s- landsmótið í handknattleik frá í fyrra að 2. deildar leikjunum er komi-ð fyrir á undan leikjum á leikkvöld'um 1. deildar. Lengir þetta leikkvöldin en á þennan hátt komast forráðamenn móts- ins hjá 5000 kr. lágmarksleig- unni í íþróttalhöllinni, því lág- marksieigan er jafnihá hvort sem fram fara þrír leikir eða tveir. Á hinn bóginn verða heldur engar „aukatekjur“ af leikjum í 2. deild, því áhorfendiuir greiða sama gjald og fyrir venjulegt 1- deildar kvöld. Það verða því engin hús- næðisútgjöld hjá 2. deiid í Rvík. og engar tekjur. Tap verður ferðakiostnaður liðanna, sem verður óvenjumikill þar sem Vestmannaeyingar og Akureyr- ingar eru með.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.