Morgunblaðið - 29.02.1968, Page 1

Morgunblaðið - 29.02.1968, Page 1
32 SfODR 51. tbl. 55. árg. FIMMTUDAGUR 29. FEBRUAR 1968 Prentsniiðja Morgunblaðsins. EIIMHVER MESTll FLÓD Á ÞESSARI ÖLD: GífnrlegS tjén n Suðurlnndi Frá flóðunum á Selfossi í gær, en í því var mikill klaltaburður, eins og sjá má á myndinni. í baksýn er Selfosskirkja, en hún er umflotin vatni og streymdi vatn inn í kjallara hennar. Innan um klakahrönglið má sjá bifreið sem varð fyrir flóðinu. (Ljósm. Mbl. Tómas Jónsson). gær og ru'didist með jakaourði Hætta á frekari flóðum! FLÓÐIN á Suðurlandi fóru held ur vaxandi í gærdag og hafa þegar valdið milljónatjóni. Hef ur flóðið í Ölfusá vialdið miklu tjóni á mannvirkjum á Selfossi og miklar vega- og brúar- skemmdir hafa orðið fyrir aust an Fjall vegna flóðannia í Ölf- usá, Hvrtá og Brúará. Eru flóð in núna hin mestu, sem komið hafa frá 1948 og margir telja þeissi flóð hin mestu, er komið hafia á þessari öld. Á Selfossi hefur víða flætt inn í hús, og þrjár fjölsikyldur urðu að flýja heimili sín í fyrrinótt, vegna þess að mittisdjúpt vatn var í íbúðunum. Við Selfossbýlið hef ur klaki hrannast upp við bæj- arhúsin, og eru engar sagnir skráðar um að það hafi gerzt áður frá því að liand byggðist. Víða á Suðurlandsundirlendi eru bæir umflotnir vatni, og í Biskupstungunum brast gamla Brúarárbrúin í gærmorgun, en hún var opin fyrir umferð þar til í desember sl. 1 gærkveldi fór vatnið í Ölfusá enn hækk- andi, og gerðu menn ráð fyrir að aftur mundi fljóta inn í hús á Selfossi. Þriðja jakastíflan hafði mynd- azt á Selfossi í gærkvöldi Ölfusá hljóp þrívegis upp í 'hátt uppí yfir bakka sína. Að sögn Tómasar Jónssonar, frétta- ritaira Mbl., kom fyrsta háflæð ið um fjögurleytið í fyrrinótt. Hækkaði skyndilega gífurlefa í ánni og flæddi hún yfir bakka sína um Selfossveg og Þóristún. Sex hús standa við Seifossveg og flædd'i i-nn í þau öll, og urðu þrjár fjölskyldur að yfirgefa heimili sín, án þess að tími gæf ist til þess að bjarga neinu af innanstokiksmunum. Við Þórís- tún eru sex íbúðir, og flæddi þar inn á gólf, en ekki var á- stæða fyrir íbú.a þa-r að yfir- gefa heimili sín. Þá flæddi einn ig inn í Tryggvaskála, og var u.þ.b. hnédjúpt vatn á jarðhæð- inni. Mikið tjón varð á verk- stæðum Kaupfélags Árnesinga, sem standa við árlbakkann, þeg ar vatnið beljaði þar inn. Vatn ið bar með sér mikið af jök- um, sem voru allt að því nr.et- ersþykkir og mörg tonn að þyngd. Hlátflæði þetta stóð í u.þ.b. hálfa klukkustund, en þá ruddi áin sig skyndilega og á örfá-* um mínútum lækkaði svo í ánni, að hún var rétt bakkafull. En þá fór aftur að hækka í ánni hægt og stígandi og í birt ingu í gærmorgun sáu menn að farin var að myndast mdkil jakahrönn á móts við Selfoss- bæina. Allur jakaftaumurinn, sem áin bar með sér, hrannað- i’st þarna upp, og að sama skapi hækkaði vatnið í ánni við Selfoss. Náði flóðið hámarki um fimm leytið í gærdag. Var þá flóðlhæðin mjög svipuð og um nóttina, en 10 sm vantaði upp á, að hún næði flóðhæðinni 1948. Vatnavextir í Borgarfjarðarám valda miklum vegatálmunum Mestu flóð í Hvítá í aldarfjórðung MIKLIR vatnavextir eru í Borg- arfirSi og er Norðurárdalur all- ur lokaður vegna flóða, Sömu sögu er að segja um Borgar- fjarðardali, en þó var stórum bílum fært fram hjá Hesti, en þar flaut Grímsá yfir veginn. Hvítá flæðir yfir veginn hjá Hvítárvöllum, Norðurá hjá Hvammi og lokar veginum norð- ur og Bjarnardalsá fyrir neðan Dalsmynni. Fréttaritari Mbl. í Borgarnesi Hörður Jóhannesson tjáði blað inu, að ástandið í Borgarfirði hefði verið mjög svipað í gær og það var í fyrradag. Flóðið í Hvítá er eitt hið mesta, sem menn muna, sennilega um aldar- fjórðung, og fór áin í gærkvöldi heldur vaxandi. Þess má þó geta að sjávarföll hafa töluverð á- hrif þar á og var stórstreymi í gær. Allmargt fólk var teppt í Hreðavatnsskála og fyrir ofan Hvamm. Einnig munu menn hafa teppzt í Fornahvammi, m.a. var heil bekkjardeild úr Reykholts- skóla þar í nótt, en þangað höfðu börnin farið á skíðanám- skeið. Morgunblaðið ræddi í gær við nokkra bændur og búendur í Borgarfjarðarsveitum og fékk lýsingu þeirra á aðstæðum. Fyrst ræddum við við Kristján Fjeldsted, bónda í Ferjukoti. Kristján sagði að hann myndi ekki annað eins flóð í Hvítá og taldi hann allt að 30 ár síðan slíkt hefði gerzt. — Hér er allt á kafi - sagði Kristján og allar leiðir til okkar hér eru ófærar. Vegurinn við Ferjukotssíki er eyðilagður og eins í hina áttina við Hvítár- velli. Nú er farið að snjóa og vonumst við til að það boði kólnandi veður. Má þá búast við því að fari að sjatna í ánni. Þó lækkar ekki í ánni fyrr, en fer að falla út. Rafmagnslaust í 4 klst. — Hér út með eru tveir síma- staurar brotnir og hanga þeir uppi á línunni. Hefur orðið vart við töluverðan samslátt á lín- um í dag, en annars er ómögu- legt að gera sér grein fyrir skemmdurri, fyrr en vatnið sjatn ar. Hér var í morgun rafmagns- laust í um það bil fjórar klst, en nokkrir rafmagnsstaurar í Norðurárdal munu hafa brotnað. — Mjólkurbíll, sem var að fara í Bæjarsveitina til þess að sækja mjólk, fór út af veginum við síkið í gærmorgun. Kristján tjáði Mbl., að bíllinn hefði farið á kaf ’ vatnið og borizt með straumþunganum nokkuð frá veg inum. Bifreiðarstjóranum hafi tekizt að komast upp á bílinn, sem kom niður á hjólin. Þá gat Kristján þess að í kjallaranum hjá sér væri allt á floti. Skúli Kristjónsson, bóndi í Svignaskarði, kvað engin flóð vera í nágrenni við sig, en hann hefði heyrt mikið um flóð í Norðurá og Hvítá. Hann kvað Norðurá ekki búna að ryðja sig neðan til í Norðurárdal og ef hún gerði það mundi Ihún skemma mikið af engjum með jakaframiburði. Vatnið í ámni rennur nú mi'kið til ofan á Framhald á bls. 23. Aþenu, 28. febrúar — NTB BANDARÍSKI flotaforinginn, Horaciot Rivero, sem er yfirmað ur herja Atlantshafshandalags- ins í Suður-Evrópu, hélt í gær ræðu í Aþenu og hyllti Grikki fyrir hollustu við „þær grund- vallarreglur, sem Atlantshafs- bandalagið byggist á“, eins og hann komst að orði. Hann sagði ennfremur, að hann teldi sér það mikinn heiður að eiga innan At- Litlu síðar sprengdi áin aftur af sér og lækkaði þá aftur í ánni niður í balkkafylli á ör- fáuim mínútum. Hafði jakastíifl- an borizt fram undir Sandvíkur bæi, en þeir eru 2-3 km neðar en Sel'fossbæirnir. Hrömuðusi, jakar þar upp í gærkvöldi, og fór vatnið í ánni enn hækkandi, Framhald á bls. 10 lantsihafsbandalagsins samvinnu við leiðtoga griska ríkisins og gríska hersins. Ftotaforinginn hélt ræðu þessa í veizlu, sem gríska stjórnin hélt bronum til heiðurs. Hann sagði þar ennfremur: „Mér er full'komlega ljóst, að frá þeim degi, sem Grikkland gerðist að- ili að Atlantsihafgbandalaginu fyrir sextán árum, Ihefur það Framlhald á bls. 23. „Heiður að eiga samvinnu við leiðtoga Grikklands44 — segir einn af yfirmönnum NATO

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.