Morgunblaðið - 29.02.1968, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 29.02.1968, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1968 13 Áttræ&ur í dag: Einar Guðmundsson HINN 29. fefcrúar árið 1888 fæddist þeim hjónunum Stein- unni Sveinbjarnardóttur og Guð mundi Jóhannessyni, bónda í Skáleyjum á Brei'ðafirði, sonur, er í skírninni hlaut nafnið Einar. í dag, 29. febrúar 1968, hefur þessi síungi sveinn lifað 80 ár, enda þótt þetta sé aðeins 20. af- mælisdagurinn hans. Hvort sem það var nú fyrir glettni örlaganna eða af ein- hverjum öðrum ástæðum að fæð ing hans bar upp á hlaupársdag- inn, hlýtur sú spurning að vakna í hugum þeirra, er við hann eiga orðræður, hvort þessi hvíthærði öldungur gæti ekki í raun og veru verið aðeins 20 ára a'ð aldri. Svo skýr er hugs- un hans og hnyttin tilsvör, en úr augunum skín hýra og glettni hins lífsglaða manns, þótt andli'tið sé að öðrum þræði rist rúnum langrar ævi. Einar ólst upp í Skáleyjum hjá foreldrum sínum, þar til fað- ir hans dó, en síðan hjá móður sinni unz hún hætti búskap, en þá gerðist hann vinnumaður hjá Skúla Bergsveinssyni, er tók við búi í Skáleyjum af móður hans. Ungur að árum réðst Einar íil útróðra undir Jökul með Sveini Jónssyni, mági sínum. Ekki mun hann þó hafa hugsa'ð sér að gera sjómennsku að ævi- starfi sínu, þó sú yrði raunin, því hann hóf fljótlega smíðanám hjá Alexander Valintíusyni í Ól- afsvík og lauk því námi á til- skyldum tíma. Skömmu síðar fluttist Einar til Reyðarfjarðar og stundaði bæði smíðar og sjó- mennsku, var meðal annars há- seti á e. Vestra og síðar á Sterl- ing og þegar gamla Esia hóf strandferðir hér réðst hann sem timburmaður þangað og sigldi á henni alla hennar tí’ð, og svo á- fram á nýju Esju og síðast á Heklu, en þar var hann, þar til er hann hætti á sjónum nær sjö- tugur að aldri. í þessu rabbi er aðeins stiklað á stóru, enda ekki ætlunin að skrá neina ævisögu, og enn síð- ur að syngja neina lofsöngva. Ég þykist þekkja svo Einar Guðmundsson að honum væri lítill greiði gerður með slíku. Hann hefur aldrei verið maður auglýsinga. En eitt er þó um hann, sem ekki verður þagað um með öllu, en þa'ð er ást hans á bókum. Einar hefur um langan aldur lagt stund á bókasöfnun og á nú mikið og vandað bókasafn. Grunur minn er, að í þessu starfi hafi hann kostað öllu til og sýnt bæði þekkingu og frá- bæra natrii og jafnvel forðað ýmsu frá glötun, sem óvíða mun finnast. Hefur hann í þessu sýnt, mér liggur við að segja, ótrúlega kunnáttu og jafnframt smekk- vísi. Enda er hann víðlesinn og margfróður. Ætla ég, að ekki muni margir finnast með hans aðstöðu, sem afreka'ð hafa meiru á því sviði. Einar er kvæntur Steinunni Beek og eiga þau þrjú börn á lífi og fimmtán barnabörn. Ég vil á þessum tímamótum nota tækifærið og flytja Einari frænda mínum, þakklæti mitt og fjölskyldu minnar um leið og ég árna honum, konu hans og böm- um allrar blessunar. Og grunur minn er sá, að stór mundi sá hópur, sem í dag vildi gjarnan þrýsta hönd þessa aldna heið- ursmanns í hljóðri þökk, hvort heldur er fyrir langa eða skamma samfylgd. Theodór Daníelsson. UarÍMÍarhurÍir I l\l IM I L T I BÍLSKÚRS HURÐIR ^ ■•ÆBWiaiW ýhhi- & 'Ktikurtir H. □. VILHJÁLMSSDN RANARGDTU 12. SIMI 19669 Akureyri og nœrsveitir VARÐAR-KJÚRBINGÚ Varðar-kjörbingó í Sjálfstæffishúsinu sunnudaginn 3. marz hefst kl. 20.30 stund- víslega. Dansaff á eftir til kl. 01. • Stórglæsilegir kvöldvinningar frá Valbjörku, til sýnis í verzlun VaLbjarkar. • Spilað um framihaldsvinning: Sjónvarpstæki, ísskáp, sjálfvirka þvottavél, gólfteppi frá Álafossi, 16 daga páskaferð til Spánar m-eð Útsýn (fyrir einn) eða 7 daga ferð til Kaupmannahafnar og London með Sögu (fyrir tvo). Affgöngumiffasala í Skrifstofu Sjálfstæffisflokksins, Amaro-húsinu, sama dag kl. 14—15, og frá kl. 19 í Sjálfstæffishúsinu. VÖRÐUR FUS. CLUCCATJALDADCILD Nýkomið glæsilegt úrval af gluggatjaldaefnum. Stóresar i mörgum gerðum. Ull og dralon i glæsilegu úrvali. Rúmteppi og gluggatjaldaefni i sömu litum. Mesta úrval i allri borginni. Austurstrœti 22 — Sími 16180 Heildregin rör trá 3j8", suðubeygjur frá 3j4', Tœkni M. Súðavogi 9. — Sírai 33599. Orðsending frá Coca-Cola verksmiðjunni Samkværat ákvörðun verðlagsnefndar er smásöluverð á Coca-Cola nú svo sem hér segir: Coca-Cola minni flaskan kr. 5,25 Coca-Cola stœrri flaskan kr. 7,00 Verksmiðjan Vífilfell hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.