Morgunblaðið - 29.02.1968, Side 20

Morgunblaðið - 29.02.1968, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1968 NÁMSSTYRKIR DeWitt Wallace — verðlaunin. Ákveðið hefur verið að veita íslenzkum pilti og íslenzkri stúlku 17—22 ára, styrk til náms á Macalester College í Bandaríkjunum. Styrkurinn verður veittur Skátar á Drangajökli 1960 - EINHERJAR fyrir skólaárið 1968 — 69. Upplýsingar og reglur um umsókn um DeWitt Wallace verðlaunin eru sem hér segir: 1. DeWitt Walace verðlaun- in eru veitt af DeWitt Wallace, eiganda og útgef- anda bandaríska tímarits- ins Reader’s Digest og Morgunblaðinu, í samvinnu við Íslenzk-ameríska fé- lagið. 2. Ungt fólk á aldrinum 17—22 ára, sem hefur lok- ið, eða lýkur stúdentsprófi í vor, getur sótt um De Witt Wallace verðlaunin. 3. DeWitt Wallace ver’ðlaunin eru veitt einum pilti og einni stúlku frá hverju af Norðurlöndunum, til eins árs námsdvalar í Banda- ríkjunum, á mjög þekkt- um háskóla, sem heitir Macalester College og er í St. Paul, Minnesota- ríki. Verðlaunin nema skólagjöldum, fæði, hús- næði, ferðakostnaði, öðrum gjöldum og sjúkratrygg- ingu. Hver þátttakandi þarf að hafa með sér $500 í vasapeninga. DeWitt Wallace verðlaunin veita einnig hverjum námsmanni eins mánaðar, eða 17.500 mílna ferðalag um mið- vestur, suður- og vestur- hluta Bandaríkjanna á prógrammi, sem nefnist „Ambassadors for Friends- ship“. Þá verður janúar- mánuði varið til heimsókna á 4—5 mjög þekkta gagn- fræða- og menntaskóla í norð-austurhluta Banda- ríkjanna. 4. Umsækjandi verður að skila eftirfarandi gögnum: A. Meðfylgjandi umsókn verð ur að vera vandlega út- fyllt og hverri spurningu svarað. B. Einkunnir frá mennta- skóla á ensku fyrir öll 4 árin ver’ða að fylgja. C. Meðmæli á ensku frá 2 menntaskólakennurum og frá einhverjum 2 aðilum, sem geta gefið persónu- leg meðmæli með við- komandi (Nöfn ættingja eru ekki gild). D. Umsækjandi verður að faka enskupróf, sem gef- ur til kynna getu viðkom- andi í lesinni, skrifaðri og talaðri ensku. E. Persónulegar upplýsingar á ensku sem segja frá um- sækjanda, þátttöku hans í félagslífi skólans, íþrótta- félagi og eða öðrum fé- lögum: upplýsingar um á- hugamál, fyrri ferðalög, tómstundaáhugamál, sum- arvinnu, væntanlegt fram- tíðarstarf, o. fl. F. Að lokum þarf umsækj- andi að skila stuttri rit- gerð (um 1200 orð) á ensku, sem skal nefnast „The Importance of an American Studies Program for my Future in Iceland". Umsókn ásamt öllum gögn- skilist í lokuðu umslagi til Morgunblaðsins, ásamt passa- mynd af umsækjanda, fyrir 15. marz, 1968, merkt: DeWITT WALLACE — VERÐLAUNIN. Framthald af bls. 5. Andrew, oig 'þrír aðrir gtófnend- ur félagsins, Ágúst Leós, Finnur Maignússon og Halldór Magnús- Síon. f stjórn Einlherja eru nú: Jón Páll HaUdórss'On, Árn-i Guðtojarts son, Marías Þ. Guðlmundssion, Konráð Jakabsson, Jón Þórðar- son, Kjartan Júlíusson, Þröstur Guðjónsson, Jökull A. Guð- jónsson og Sniorri Hermannsision. Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu Morgunblaðsins. Auglýsing Samkvæmt heimild í kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur verið ákveðið að vinnutími á eftirtöldum skrifstofum borgarinnar breytist frá 1. marz n.k þannig, að þær verði opnar í hádeginu (kl. 12—13) mánudaga — föstudaga allt árið og frá kl. 17—18 á mánudögum frá 1. október til 1. maí, en lokaðar á laugardögum allt árið: Borgarskrifstofum, Austurstræti 16, Pósthússtræti 9 og Skúlatúni 2. Skrifstofu Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Skrifstofu Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Skrifstofu Reykjavíkurhafnar. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. Fræðsluskrifstofu Reykjavíkúrborgar. Skrifstofum Heilsuverndarstöðvarinnar og Borgar- spítalans. Skrifstofu Hitaveitu Reykjavíkur. Skrifstofutími annarra borgarstofnana er óbreyttur. Reykjavik, 27. febrúar 1968. Borgarstjórinn í Reykjavík. HVAÐ ER TIL ÚRBÚTA í SKÖLAMÁLUM? RÁÐSTEFNA í HAFNARFIRÐI Á VEGUM S.U.S. OG STEFNIS, F.U.S. Ráðstefnan verður haldin n.k. laugardag 2. marz í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði og hefst með borðhaldi kl. 12.30. Ræðumenn verða: 'jAr Matthías Johannessen, ritstjóri. ic Þorgeir Ibsen, skólastjóri. ■jír Árni G. Finnsson, form fræðsluráðs Hafnarfjarðar. ^ Birgir ísl. Gunnarsson, forni S.U.S. Á eftir verða frjálsar umræður. Birgir ísl .Gunnarsson Matthías Johannessen Þorgeir Ibsen Árni G. Finnsson Leiðrétting í BLAÐINU í gær birtuat minn- ingarljóð um Laufeyju Guð- jónsdóttur. Urðu þau mistök, að niðuT féll ein lína, um að ljóðin ■væru kveðja frá bræðrum hinn- ar látnu. Sjólfstæðis- félogið Ingólfur 20 óra Hverager’ði, 27. febrúar. SJÁLFSTÆÐISFÉLAGHD Ing- ólfur í Hveragerði er tuttugu ára um þessar mundir. í því til- efni heldur félagið skemmtun í Hótel Hveragerði laugardaginn 2. marz og hefst skemmtunin kl. 20:00 með borðhaldi. Ávarp flytja landbúnaðarmálaráðherra Ingólfur Jónsson, Steinþór Gestsson, alþingismaður frá Hæli og Þorvaldur Ólafsson frá Arnarbæli, fyrsti formaður fé- lagsins. Þá verður fluttur skemmti- þábturinn „Líður að Há-degi“ og Kristalkvartettinn leikur fyr- ir dansi. — Fréttaritari. Félag Sportvöru- kaupmanna stofnað STOFNFUNDUR Félags Sport- vörukaupmanna var haldinn fimmtudaginn 22. þ.m. á skrif- stofu Kaupmannasamtakanna að Marargötu 2. Pétur Sigurðsson, varafor- maður Kaupmiannasamtakanna, setti fundinn og stýrði hor.um, en framikv’æmdastjóri samtak- anna, Si'gurður Magnússon var fundarritari. Fonmaður hins nja félags var kjörinn Jón Aðalsteinn Jónas- son en mieðstjórnendur Hákon Jóhaniniesson og Gunnar H. Sig- urgeirsson. Varamenn í stjórn voru kjörnir þeir Axel Aspe- l'und og Svavar Gests. Endur- skoðendur voru kjörnir Konráð Gíslason og P. Cristian Wxllat- zen. Fuilltrúi í fulltrúaráð Kaup- mannasamtaka íslands var kjörinn Konráð Gíslason og til vara Axel Aspelund. ÞEKKIRÐU MERKIÐ? Þetta aðvörunarmerki, gult með rauSum jaðri, táknar að gang- braut sé framundan, og oftast. er vegalengdin gefin upp á sér- stöku spjaldi neðan við þrlhyrn- inginn, 50, 100 eða 200 metrar. Stundum eru merki þessi fleiri og þá með dálitlu millibili til þess að ítreka þá aðvörun við öku- menn, að gangbraut sé framund- an. HFRAMKVÆMDA NEFND HÆGRI UMFERÐAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.