Morgunblaðið - 29.02.1968, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.02.1968, Blaðsíða 32
AU6IYSIN6AR SÍMI SS*4*8Q FIMMTUDAGUR 29. FEBRUAR 1968 RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA SÍMI ID'100 Vatnsleiðslurnar til borgarinnar í hættu SÍÐARI hluta dags í gær brugðu fréttamenn Mbl. sér upp með Elliðaám og könn- uðu hinar miklu skemmdir, sem vatnavextirnir í ánum hafa valdið. Við það tækifæri var talað bæði við Þórodd Th. Sigurðsson, vatnsveitu- stjóra og Ingólf Ágústsson, stöðvarstjóra. í sama mund og fréttamenn voru við raf- veitúna við Elliðaár kom Eiríkur Briem, forstjóri Landsvirkjunar, þangað. í gær dag var enn mikið vatns magn í Elliðaánum, þó mun minna en þá er mest var í fyrrakvöld. Hins vegar varð flóðið í ánum aldrei meira en snemma í gærmorgun, því Ell- iðavatnsstíflan brast þá og sóp- aðist burtu á 30 metra kafla og það hafði mjög alvarlegar af- leiðingar, eins og fram kemur í samtali, sem blaðið átti við Ing- ólf Ágústsson stöðvarstjóra í Elliðaárstöðinni. Ingólfi fórust orð á þessaleið: — Klukkan um 4—5 í morgun brast stíflan við Elliðavatn og tók hana burtu á 30 m. kafla. f gærkvöldi, nálægt miðnætti, var vatnið í uppistöðu Elliða- vatns nálægt einum metra hærra en það er að jafnaði látið vera. Voru þá allar gáttir, sem opnan- legar eru í stíflunni opnar þar með talin öryggisop, sem aldrei eru opnuð, nema þegar mestu Framihald á bls. 23. w Arangurslaus fundur 1 GÆR var haldinn fyrsti sátta fundur deiluaðila í vinnudeil- Maður fyrir borð ú Knrlsefni í GÆR varð það slys um borð í togaranum Karlsefni, úti á mið unum, að maður féll fyrir borð og dTukknaði. Maðurinn heitir Bjarni Steingrímsson, Sogavegi 158 í Reykjavík. Togarinn hafði farið á veiðar fyrir tveimur dög- um, er slysið varð. i gœr unni með sáttasemjana og lauk honum án árangurs en annar fundur er boðaður kl. 10 fyrir hádegi í dag. Samninganefnd ASÍ, hin svomefnda 18 manna nefnd mun hafa haldið sérstak an fund síðari hluta dags í gær. Sam.kvæmt upplýsingum ASÍ mun atvinnumála'nefnd þeirra samtaka hafa skiiað bráða- birgðaskýrslu um atvinnu- ástand og tillögur til úrbóta í þeim efnum fyrir u.þ.b. viku og er nú unnið að frekari könn un á þeim málum. í gær munu nokkur félög í viðbót hafa boðað verkfall. Greiðsla atvinnuleysis- bóta stöðvast — ef til verkfalls kemur KOMI til verkfalls hinn 4. marz n.k. mun Atvinnuleys- istryggingasjóður stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til félagsmanna þeirra verka- lýðsfélaga, sem verkfallið nær til- Það sem af er þessu ári hefur Atvinnuleysistrygg ingasjóður greitt 2 milliónir citt hundrað tuttugu og fimm þúsund í atvinnuleysisbætur til atvinnulausra í Reykjavík. Eyjólfur Jónsson hjá Tryg/g- ingarstofnun ríkisins, skýrði Mbl. frá því í gær, að skýr lagaáfcvæði væru um það að atvinnuleysisbætur skuli ekki greiðast til þeirra, sem eiga 1 verkíalli. Hann sagði, að at- vinnuieysisibætur þær, sem greiddar hafa verið á þessu ári næðu yfir tímabilið frá nóv. til þessa dags en megnið af atvinnu Framihald á bls. 14 MIKIÐ tjón varð á íbúðar- húsum og innanstokksimunum á Selfossi, þegar flóðið í Ölfusá náði hámarki í fyrri- nótt. Flæddi inn í sex hús, er standa við Selfossveg, einnig sex íbúðarthús sem standa við Þóristún. Þá urðu miklar skemmdir á Tryggvaskála og á verkstæðum Kaupfélags Ár nesinga, sem standa í nám- unda við ána. Þrjár fjölskyld ur urðu að flýja heimili sín, en þær búa allar í sambýlis- húsi við Seifossveg 9. Við ræddum við Bergstein Halldórsson, en hann býr í vestustu álmu hússins, ásamt konu og þremur börnum. Honum sagðist svo frá. — Það var engu líkara en flóðalda skylli á húsið um fjögur leytið í nótt. Ég hafði verið meira og minna á fótum um nóttina, og um kl. 3 fór ég framúr til að huga að ánni, en þá var hvergi vatn að sjá í nánd við húsið. — Ég gekk þá aftur til náða, en hef ekki verið búinn að sofa í meira en hálftíma, þegar buldu við brestir og vatn streymdi inn í ífoúðina. Náði vatnið wpp að rúmgrind inni, þegar ég fór framúr. — Þegar vatnið stóð hæst í ífoúðinni, gæti ég trúað að það foafi verið mittisdjúpt. Við vorum þá að reyna að .komast út, en áttum í mikl- um erfiðleikum með að opna dyrnar, og það var ekki fyrr en vatnið lækkaði aftur, að okkur tókst það. — Við kom.ums't í nálægt foÚB, og biðum þar stundar- korn, en þá hvarf vatnið jafn skjótt og það kom. Fór ég þá að reyna að bjarga einlhverju af innanstokksmunum., en þeir hafa blotnað mikið og farið mjög illa í þessu. — I húsinu eru þrjár ífoúð- ir, og bjuggum við í þeirri vestustu, en í miðílbúðinni búa öldruð hjón og í austur- Sbúðinni búa 'hjón ásamt börnum gínum. Urðu þau að bjarga sér út um glugga á Framfo'aM á bls. 14. : ■ : íbúðarhúsið við Selfossveg 9 var umflotið vatni og streymdi vatnið þar inn í fyrri nótt, svo að þrjár fjölskyldur, sem í húsinu bjuggu urðu að flýja heimili sín. Ljósm. Mbl. Tómas Jónsson. wmmmm ■ §H

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.