Morgunblaðið - 20.04.1968, Side 1

Morgunblaðið - 20.04.1968, Side 1
79. tbl. 55. árg. LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1968. Prentsniiðja Morgunblaðsins. „Versta fjárhags- kreppa síðan 1931“ Bjarni Benediktsson í rœðu um utanríki smál á Alþingi í gœr: WaShngton, 19. apríl AP. WILLIAM McChesney Martin, formaður stjórnar seðlabanka Bandaríkjanna, skýrði frá því á fundi með blaðaútgefendum í dag, að Bandaríkin stæðu „annað hvort frammi fyrir óstjórnlegri kreppu, eða óstjórnlegri verð- bólgu“, ef þau bættu ekki úr og lagfærðu hallann á fjárlögum sinum og greiðsluhallann við út- lönd. „Við erum stödd mitt í verstu fjárhagskreppu. sem við höfum lent í síðan 1931 — ekki í viðskiptakreppu heldur fjár- hagkreppu“. Martin sagði þetta á fundi 5 félagi bandarískra blaðaútgef- enda og bætti við: „Munurinn á árinu 1931 og nú er sá, að land- ið er nú á skeiði verðbólgu en ekki verðfalls“. Hann sagði, að vandamálið væri fyrst og fremst fólgið í tilbneigingunni til „sá- vaxandi greiðsluiballa". „Ef við breytum ekki þeirri þróun, sem við búum nú við, þá mun hún óhjákvæmilega leiða til gengis- lækkunar peninga um víða ver- öld“. Pormaður bandaríska seðla bankans bar hvað eftir annað fram þá áskorun, sem hann lagði ríka áherzlu á, að þingið sam- þykkti tillögu Johnsons forseta um 19% aukaskatt og að dregið yrði úr útgjöldum sambands- stjórnarinnar. Poul Reumert látinn Kaupmannahöfn, 19. apríl. (NTB) POUL Reumert andaðist í dag að heimili sínu í Kaupmanna- höfn, 85 ára að aldri. Hann hafði átt við langvarandi vanheilsu að stríða. Reumert hefur um langt skeið verið talinn fremsti leikari Danmerkur, og lék hann síðasta hlutverk sitt í Konunglega leik- húsinu í Kaupmannahöfn hinn 31. maí í fyrra. Var það í hátíða- sýningu í tilefni giftingar Mar- grétar prinsessu, og lék Reumert Framhald á bls. 31 Vorið er komið og því tilvalið að renna færi í blíðviðrinu. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Sannfærður um að ísland á að halda áfram í Atlantshaf sbandalagi n u — en sjálfsagi að kanna málið rœkilega — íslendingar verða að leggja sitt af mörkum til öryggis og jafnvœgis í GÆR urðu miklar umræð- ur í Sameinuðu þingi um ut- anríkismál í framhaldi af skýrslu Emils Jónssonar, ut- anríkisráðherra til Alþingis um Atlantshafsbandalagið og varnarsamninginn við Banda ríkin. í þessum umræðum flutti Bjarni Benediktsson, forsætis ráðherra, ræðu, þar sem hann kvaðst telja sjálfsagt að at- huga rækilega afstöðu ís- lands til Atlantshafsbanda- lagsins, en sjálfur sagðist hann vera sannfærður um að sú skoðun leiddi í ljós, að Atlantshafsbandalagið ætti ekki að leggja niður og að ís- lendingar ættu ekki að segja sig úr því. Bjarni Benediktsson lagði ennfremur ríka áherzlu á það, að ekki yrði hér erlendur her um alla framtíð. Hins vegar ræðu Bjarna Benediktssonar og öðrum umræðum um mál- ið: Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra, sagðist taka undir orð fyrri ræðumanna að eðlilegt væri að ræða utanríkismál á Al- þingi eftir því, sem efni stæðu til. Bæri að ræða þau mál á mál- efnalegum grundvelli og af full- ri hreinskilni. Forsætisráðtherra sagði, að hér væri fjallað um tvö algjörlega ólfk mál og vék hann fyrst að Atlantshafsbanda- laginu. Hann kvað það óumdeilt, að það hefði verið stofnað vegna vanmáttar S.Þ. til að viðhalda friði og öryggi í heiminum, og vegna þess, að eitt höfuðmark- mið S.Þ., sem var að viðhafa Framhald á bls- 14 Poul Reumert Bjarni Benediktsson bæri íslendingum að leggja sitt af mörkum til þess að ör- yggi og jafnvægi héldist og dvöl varnarliðsins væri hluti af því framlagi. En vitanlega bæri að kanna það mál til hlítar nú. Hér fer á eftir frásögn af Háttsettur starfsmaður tékknesku leyniþjónustunnar finnst hengdur — Starfaði á sínum tíma að rannsókninni á dauða Masaryks Prag, 19. apríl — NTB—AP — BEDRICH Pokorny majór, fyrr- verandi háttsettur starfsmaður tékknesku leyniþjónustunnar, sem rannsakaði öll atvik varð- andi hinn dularfulla dauðdaga Jan Masaryks, utanríkisráðherra 1948, fannst hengdur fyrir þrem- ur vikum í skógi fyrir utan borg ina Brno. Skýrði hin opinbera fréttastofa Tékkóslóvakíu, CTK, frá þessu í dag. Tékkneska ríkisstjórnin hefur látið hefja að nýju rannsókn á dauða Masaryks, en hann fannst látinn á grasflöt utanríkisráðu- neytisins rétt eftir valdatöku kommúnista. í opinberri tilkynn- ingu var þá sagt, að Masaryk hefði framið sjálfsmorð. Margir Tékkar voru samt sem áður þeirrar skoðunar, að hann hefði verið myrtur. Pokorny major starfaði við stjórnmáladeild innanríkisráðu- neytisins 1948 og tók virkan þátt í rannsókninni varðandi dauða Masaryks, sem og dauða Augist- ins Schramms majors. Hinn síð- astnéfndi, sem var foringi í Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.