Morgunblaðið - 20.04.1968, Page 5

Morgunblaðið - 20.04.1968, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1968 5 „Ungir sem aldnir kaupa bækur“ vel, enda er það á mjög hag- stæðu verði. Heildarútfáfa Listamannaþings er nærri geng in til þurrðar. — Ber meira á yngra, en eldra fólki í bókaleit? — á bókamarkaði Helgcfells VIÐ litum inn á bókamarkað Helgafells í Unuhúsi í gær og fylgdumst með fólki, sem gekk þar um, handfjatlaði bækur og keypti þær sem hugurinn girnt ist mest. Á bókamarkaðinum er gott úrval bókatitla, enda var áhugi fólksins mikill. Einn var t.d. að leita eftir bókum til þess að fylla í safn sitt af rit- safni Laxness. Ung stúlka og vinur hennar sátu við ljóða- bækur ungu skáldanna og völdu þar úr. Roskinn maður gekk um og leit yfir úrvalið, en hann sagðist nú eiga mest af því sem þarna væri og hann langaði sérlega að eiga, en einn ig hann vantaði nokkrar af bókum Laxness. Við hittum að máli forstöðumann bókamark- aðsins, Böðvar Pétursson. — Er góð sala núna? — Já, salan hefur verið all góð. — Hvaða bækur eru í mestii úrvali? — Það eru langsamlega helzt bækur eftir íslenzka höfunda, enda erum við með mjög mik- ið eftir þá, en minna af þýdd- um bókum. — Hvaða bækur kaupir fólk helzt? — Það eru nú til bækur á þessum mörkuðum, sem er til mjög lítið af, allt niður í fá eintök. T.d. hefur núna verið góð sala.á ýmsum bokum Gunn ars Gunnarssonar og við höf- um verið með margar af hans bókum bæði úr Landnámuút- gáfunni og ýmsum öðrum út- gáfum. Af öðrum höfundu|n selzt Laxness alltaf mikið, en af honum höfum við allar frumútgáfubækur hans frá síð- ustu 10-15 árum. Eldri frum- útgáfur eru uppseldar, en í þessari nýju heildarútgáfu okk ár á Laxness hafa verið gefnar út 31 bók og af þeim eigum við 25 titla. Ég múndi halda að af eldri bókum hans væru óút- komnar 3-4 og síðan bætast við allar nýjar bækur, sem frá honum koma. Böðvar Pétursson er þarna að kanna upplag Ijóðabóka eftir yngri skáldin, en margar fyrstu bækur þeirra erp að seljast upp. — Hvernig seljast ljóðabæk- ur? — A ljóðabókum hefur verið allgóð sala. Við höfum gefið út talsvert af ljóðabókum og þá meira yngri höfunda. Á þess- um mörkuðum hefur alltaf ver ið nokkur sala á ljóðabókum. Það er hér mikið af ljóðabók- um. Nýlega höfum við heildar- útgáfu nokkurra höfunda í samstæðri útgáfu. Þar í er t.d. Tómas Guðmundsson í I bindi, Listaverkabækurnar vöktu ath ygli margra, enda eru þær goð- ir gripir. (Ljósm. Mbl. Ól. K. Magn.) Foreldra- og styrktar- félag heyrnardaufa FORELDRA- og styrktarfélag heyrnardaufra var stofnað fyrir rúmlega hálfu öðru ári. — Það hefir m.a. á stefnuskrá sinni að styrkja starfsemi Heyrnleys- ingjaskólans og hefir félagið sannarlega ekki gleymt því. Sl. sumar hafði félagið sumar- búðir fyrir nemendur skólans í Reykholti í Biskupstungum og auk þess, sem þetta varð nem- endunum til mikils gagns og gleði, safnaði félagið þá fjöl- breýttu kennsluefni bæði í mynd um o.fl., sem mjög gott er að nota við kennslu í skólanum. Þá hefir félagið fært skólan- um stór gjafir, á annað hundrað bindi af bókum, 15 pör af skíð- um ásamt viðeigandi skóm og skíðastöfum og loks 30 þús. kr. technicolor—vél, en það er sér- staklega handhæg sýningarvél, og er tiltölulega auðvelt að taka kvikmyndir af mörgu því sem kenna á og sýna svo í henni. Framangreinda hluti hefir skólinn ekki haft fé til að kaupa en þetta er allt mjög mikils virði fyrir nemendur hans. Þótt Foreldra- og styrktarfé- lag heyrnardaufra sé ekki eldra en að framan greinir, hefir því sannarlega orðið furðu mikið á- gengt í þessu efni og vil ég hér með flytja því innilegustu þakkir frá Heyrnleysingjaskól- anum fyrir rausn þess og hug- ulsemi. Brandur Jónsson, skólastjóri. Steinn Steinarr í I bindi, Örn Arnarson í I bindi og Jón úr Vör í I bindi. Þessari útgáfu verður haldið áfram með sama fyrirkomulagi. Sumar ljóða- bækurnar eru að seljast upp og t.d. eru fá eintök eftir af mynd- skreyttu útgáfunni af Fögru veröld eftir Tómas. — Hvernig seljast ljóðabæk- ur yngri skáldanna? — Það er nokkur sala, t.d. í Matthíasi Johannessen og Hannesi Péturssyni og fleirum. Sumar bækur yngri skáldanna eru að seljast upp. Má þar nefna: í sumardölum eftir Hannes Pétursson, Borgin hió eftir Matthías Johannessen, í svörtum kufli eftir Þorstein frá Hamri, Ung Ijóð eftir Nínu Björk og Ókominn dagur eftir Jón frá Pálmholti. í mörgum tilfellum eru þetta fyrstu bæk- ur höfunda. Bækur yngri höf- unda eru oft gefnar út í frem- ur smáu upplagi og þegar þær eru uppseldar er mjög erfitt að fá þær. — Hér komum við að inn- lendum fræði- og skáldsagna- höfundum. — Já, hér eru t.d. bækur Guðmundar Kambans, Sigurð- ar Nordals, Guðmundar Dan- íelssonar, Guðmundar Haga- líns, Kristmanns Guðmunds- sonar að ógleymdum Þórbergi, sem alltaf er vinsæll höfundur og mikið spurt um ýmsar bæk ur hans. Margar bækur Þór- bergs eru því miður ekki til lengur, svo sem ævisaga séra Árna Þórarinssonar. — Hvað er sérstætt af erlend um bókaflokkum? — Af erlendum bókaflokk- um má t.d. nefna bókaflokkinn Listamannaþing, en í honum eru 10 úrvals höfundar erlend- ir og þeir eru þýddir af úrvals þýðendum. Hvel- höfundur *r í sér bók. Þetta er mikið úr- valsverk og hefur selzt mjög — Það er allavega fólk, þó nokkuð af ungu fólki, en alla- jafna fólk á öllum aldri. Það eru uppi þær skoðanir að bóka lestur sé heldur á undanhaldi hjá þjóðinni og miðist frekar við eldri kynslóðina, en það er mjög margt af ungu fólki, sem kemur hingað og leitar fyrir sér í bókatitlunum. Unga fólk- ið leitar gjarnan eftir bókum eldri höfunda og það virðist leggja sig eftir að eignast heildarútgáfur ritsafna. Margir skoðuðu úrval ævisagna og t.d. þessi hjón keypt Fagurt er í Eyjum. (Ljósm. Ól. K. Magn). Víkingaöldin, glœsilegasta timabil norrœnnar sögu, stígur Ijóslifandi fram af hverju blaðiþessa mikla og veglega verks. VÍKINGARNIR Svipmikil saga, litrík og heiilandi, af lífi forfeðra vorra i önn og ævintýrum. Aldrei hefur íslenzkum lesendum gefíst kostur að kynna sér lifshætti og verkmenningu víkingaaldarinnar á jafn skýran og aðgengilegan hátt. Próf. Bertil Almgren sá um útgáfu þessa mikla verks í sámvinnu við vísindamenn í mörgum löndum. Dr. Kristján Eídjám, þjóðminjavörður, ritaði þáttinn um ísland í bókina. Þýðingu gerði Eirikur Hreinn Finnbogason, cand. mag. Bókin er 288 blaðsiður og hefur að geyma 400 myndir og teikningar, þar af 92 stórar iitmyndir. •Bókarbrot 31,5 x 29,5 cm. — Verð til félagsmanna AB kr. 980.— . ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ AB,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.