Morgunblaðið - 20.04.1968, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.04.1968, Qupperneq 20
20 MOHGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 196« Skriíðgarðabókin GARÐYRKJUFÉLAG fslands hefur í ár gefið út allstóra bók, 320 bls., nefnist hún „Skrúð garðabókin, leiðbeiningar um skipulag, ræktun og ^hirðingu skrúðgarða". Sjö fræðimenn hafa lagt til efni í þessa bók, en ritstjóri er Óli Valur Hansson, garðyrkuráðunautur Búnaðar- félags fslands. Prentsmiðjan Edda h.f. hefur séð um prentun. Myndagerð ann aðist Páll Finnbogason. Bók þessi er tileinkuð minningu Ein- ars Helgasonar, garðyrkju- stjóra, á aldarafmæli hans. Þetta er eins og vera ber í alla staði vönduð og falleg bók, pappír, leturgerð, prentun á texta og myndum, svo og bókband, allt er þetta smekklegt og vandað og ber útgefendum og bókagerðar- mönnum góðan vitnisburð. Sér- staklega er ánægjulegt að sjá litprentun íslenzkra garðplantna er eykur gildi bókarinnar. Eru þær prentanir sambærilegar við blómamyndir í erlendum garð- yrkjubókum og ritum. Þá er í Skrúðgarðabókinni mikill fjöldi teikninga, uppdrættir og svart- hvítar ljósmyndir. Margur út- gefandi myndi birta skrá yfir allan þennan mynda fjölda á hlífðarkápu, ásamt tilheyrandi lofi um annað ágæti bókarinnar, en útgefendur Skrúðgarðabók- arinnar virðast forðast allan auglýsingahávaða. Upplag bók- arinnar er sennilega fremur lít- ið, bókin seld á vægu verði, en ritstörf öll unnin án endurgjalds. Garðyrkjufélag íslands á lof skilið, fyrir að gefa út svona góða bók, vandaða að efni og frágangi. Slíka leiðbeiningabók hefur vantað hér lengi. f Skrúð garðabókinni er miklum fróðleik þjappað saman um ræktun garða. Þá er bókin fjörlega skrifuð á köflum og gefur mörg tilefni til íhugunar hverjum þeim lesenda sem vill hugsa um ræktunar og fegrunarmál. Það er að sjálfsögðu ókleift að rekja efni fræðibókar sem Skrúðgarðabókarinnar í fáum línum. Þótt taldir væru allir kaflar bókarinnar ásamt höfund um, þá segir það í sjálfu sér ekki neitt, en stundum geta ein- istaka setningar orðið tilefni (nokkurra hugleiðinga og vill undirritaður leyfa sér að benda á eftirfarandi: f fyrsta kafla bókarinnar er rætt um skipulag lóða og tækni leg atriði, svo sem staðsetningu bílastæða og leiksvæða fyrir börn o.s.frv. Höfundur þessa kafla er Reynir Vilhjálmsson skrúðgarðaarkitekt. Á bls. 40 kemst höfundur þannig að orði: „Vegghleðsla er einn sá menn- ingararfur íslendinga, sem er á góðri leið að glatast". Það gladdi mig að sjá að ungur velmennt- aður arkitekt skuli nefna vegg- hleðslukunnáttu, „menning- ararf“. Þessi verkmennt stóð með blóma víða um land á öðrum, þriðja og jafnvel fjórða tug þessarar aldar, t.d. í Rangár- þingi. Nú fara þessi meistara- verk eitt eftir annað undir tönn jarðýtunnar, með hverju árinu sem líður, og enginn má vera að því að hlaða vegg. En Reynir Vilhjálmsson hefur sjálfsagt séð kirkjugarðinn í Skarði á Landi? Hann segir I sömu grein á bls. 41: „Ennþá eru margir gamlir kirkjugarðar umgirtir hlöðnum veggjum, og vonandi ber okkar kynslóð gæfu til þess að skila þeim heilum, auknum og endur- bættum til komandi kynslóða". Þökk fyrir greinina, Reynir. Skrúðgarðabókinni lýkur með skrá yfir íslenzk plöntunöfn, og annarri, yfir latnesk plöntunöfn bókarinnar. f hvorri skrá eru talin meira en 8000 nöfn. Þetta er sá „garðagróður" sem höf- undar ræða um í ýmsum köfl- um bókarinnar. Hver tegund fær nokkra umsögn eftir reynslu höf unda: „mjög harðgerð", „harð- gerð hvar sem er“, „getur orð- ið illgresi", „erfið í ræktun", „viðkvæm", „hætt við kali“, „lít ið reynd', „lofar góðu‘, „algeng í görðum nágrannalandanna, von lítil hér jafnvel við beztu skil- yrði' o.s.frv. Þá er þess víða getið í bókinni, að margar ágæt- ar tegundir séu nær ófáanlegar í íslenskum gróðrarstöðvum, því miður. Ekki er rúm til þess að rekja meira hér. Hitt er alveg vafalaust, að þessi bók á eftir að „gefa tóninn“ um plöntuval og plöntuverzlun næstu árin. Uppistaðan í íslenzkum garða- gróðri verður vitanlega fjrrst og fremst gróður sem þolir íslenzka veðráttu. En með útkomu Skrúð- garðabókarinnar fjölgar vonandi þeim garðeigendum sem hægt er að nefna safnara, því bókin er vel fallin til þess, að auka skiln- ing manna á því, að hér á ís- landi — einmitt hér — getur skrúðgarðayrkja verið „spenn- andi“ tómstundastarf. Það er af nógu að taka, hvort sem menn vilja hlaða veggi, svo verkið lofi meistarann, eða glima við að rækta fjalldrapa, mosalyng og annan heimskauta — og háfjalla — gróður, sem erfiður reynist í ræktun. Eða fólk velur sér önn- Framhald af bls. 24 arnar fyrir Norður- og Austur- landi gegnir öðru máli (fiskur- inn þar er ekki rógu jafn stór og dýr í vinnslu til að hagkvæmt sé að vinna hann á þann hátt sem nú er gert) en vel má vera að með auknum vélakosti og hag ræðingu mætti kon.ast yfir þetta Meðan ég þekkti til var frysti- húsið á Þórshöfn lengst af rek- ið m eð erfiðleikum og oft halld. Á Þórshöfn hafa þó alltaf verið dugandi sjómenn eins og á Bakkafirði. Um frystihúsið á Vopnafirði er mér lítið kunnugt Lítið mun það þó hafa starfað síðari árin, enda víst aðallega treyst þar á aðkoniubáta. Vopn- firðingar sjálfir l afa svo lengi sem ég man varla getað náð beini úr sió. Bakkaflóamiðin hafa lengst af verið þrautalending og lífsakk- eri Þórshafnar og Austfjarðabát anna, enda aðstaðan góð og afli oft mikill. Ekki tii eitt sker < flóanum, og var fyrir útilegu- báta í öllum áttum: Undir Langa nesi og á Gunnólísvík í norðan og norðaustan, en á Bakkafirði í austan og sunn&n átt. Þarna tel ég ekki að um vertíð að vetri sé að ræða, enda takmarkað hvað gotfiskur gengur langt norður með landi á vetrum þó nokkuð hafi verið um það stund um. Vertíð þarna tel ég að eigi að vera frá miðjum apríl og eft- ir ástæðum frameftir hausti. í upphafi minntist ég á grein, sem var í Morgunblaðinu í haust Höfundur taldi Bakkaflóa gull- kistu sem þyrfti að nytja betur. Rétt er það, að miðin okkar eru gullkistur. En það er bara ekki sama á hvern hátt við nytjum þau. Hann vill láta taka ryðg- ur léttari viðfangsefni. Skrúð- garðabókin er sökum efnis og frágangs, heppileg vinargjöf handa fólki sem hefur smekk fyrir fallegum hlutum og áhuga á fegrunarstörfum. Valdimar Elíasson aða togara hér úr sundunum við Reykjavík og flytja aflann hing að suður til verkunar. Eitthvað mundi nú sá flutningur skerða ábatann. Og erum við ekki bún- ir að fá nóg af al'skonar ævin- týramennsku í bili? Mundi ekki sanni nær að nota hafnargerð- ina á Bakkafirði og setja þar upp verkun á saltfiski þar sem allt er fyrir hendi, sem til þess þarf, og jafnvel skreið ef um hægist með hana. Ef einhver, sem les þessa grein, kynni að hafa áhuga á að nýta þá mögu- leika, sem þarna eru, þá þyrfti hann ekki að skrifa fyrstu nót- urnar á tunnubotni og hefja fiskikaupin við algerða hafn- leysu eins og Halldór Runólfs son gerð, er hann hóf starfsemi sína. Þarna vartar dugandi mann, sem vill sinna þeim mögu leikum, sem fyrir hendi eru. Mann sem hefur þekkingu á hvað til þess þarf að framleiða fyrsta fl. saltfisk. Þess má svo geta að síldarsöltun hefur verið þarna öðru hvoru síðastliðin 12- 15 ár, og að því er virðist með sæmilegum árangri Bakkafjörð ur er og verður vegna legu sinn ar og staðhátta hættulegur keppi nautur nágrannanna, Þórshafn- ar og Vopnafj. og hefur af þeim verið meðhöndlaður sem slíkur. Þarna er úrvals hráefni (hand- færa og línufiskur). Vel mætt- um við minnast þess, að það er ekki langt síðan að saltfiskur inn var ein sterkasta stoðin und ir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Þarna vantar nú mann, sem kaup ir og verkar fisk á staðnum og rekur verzlun. Mann sem hefur bein í nefinu og sér hag sinn 1 bættum hag byggðarlagsins. Starfsmannahúsi við Sæból Kópavogi. 17.2. - 1968 Þórarinn V. Magnússon frá Steintúni. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 Lalli hoppaði út úr rúminu og klæddi sig í flýti. Síðan opnaði hann dyrnar hljóðlega og fór fram í gang. Velþekkt blísturshljóð kom út úr herberginu hinum megin við ganginn — pabbi Lalla hraut hástöfum. Lalli kveikti á litla borðlampanum í setu- stofunni. Hann horfði lengi, lengi á stóru, gömlu klukkuna, en það var sama hversu lengi hann horfði og taldi á fingrunum, hann gat ekki séð hvað klukkan var. „Bara að ég hefði hlustað þegax mamma var að reyna að kenna mér á klukkuna“, sagði hann. Lalli klóraði sér í höfð inu og hélt áfram að horfa á klukkuna. Allt í einu rann upp fyrir hon- um ljós. „Auðvitað. ég kíki bara út og þá get ég gizkað á hvað klukkan sé með því að horfa á him- ininn“. Lalli fór því aft- ur fram á gang. „Þetta er undarlegt," sagði Lalli þar sem hann stóð við útidymar. „í fyrrahaust, áður en ég fór að sotfa, náði snerill- inn upp að enni á mér, núna nær hann miklu lægra. Ég hlýt að hafa stækkað heilmikið". Lalli sneri snerlinum og togaði, en allt kom fyrir ekki. Hann reyndi aftur, en dyrnar neituðu enn að opnast. „Auðvitað kjáninn þinn,“ sagði hann við sjálfan sig, „þú getur ekki opnað dyrnar á með an þær eru læstar“. Og hann tók stóra lykilinn, sem hékk á nagla við dyrnar og stakk honum í skráargatið. Aðaldyrnar sneru ekki út, þar sem allir sem framhjá fóru gátu séð þær, því að Lalli og fjöl- skylda hans bjuggu í hlýrri holu langt ofan í jörðinni. Lalli opnaði nú dyrnar og gekk upp ha!l andi göngin. Efst uppi var mold í kringum op- ið, til þess að vatn myndi ekki renna ofan í það. Hið fyrsta sem Lalli sá var fagurblár himinn með litlum, hvítum skýj um, sem hreyfðust óð- fluga áfram. „Dásamleg- ur dagur, finnst Þér ekki?“ spurði hann sjálfan sig. „Ó, jú, þetta er dásamlegur dagur", svaraði hann. Loftið var svo tært og ilmaði svo dásamlega og allt öðru— vísi en síðastliðið haust. Lalli þefaði ánægður út í loftið. En hvað var nú þetta? Þa® var fólk allt í kring- um hann. Stórt fólk og lítið fólk. Lalli varð mátt laus af skelfingu. „Þarna er hann“, sagði einhver. „Ég get séð skugga hans“ heyrðist úr öllum áttum. Lalli steypti sér koll- hnis otfan í holuna. Flýtti sér inn, skellti hurðinni aftur, sneri lyklinum, hljóp inn í svefnherbergi sitt, hoppaði upp í rúmið og dró ábreiðuna langt upp fyrir höfuð. Nokkrum minútum síð ar hringdi vekjaraklukk an í svefwherbergi pabba hans og mömmu. LalU flýtti sér út úr rúminu og fram í gang. Hann sá pabba sinn hverfa inn í setustofuna og læddist á eftir honum. , „Þetta er undarlegt. Ég man ekki eftir að hafa skiUð eftir ljós“, heyrði hann pabba sinn segja. Lalli uppgötvaði þá að hann var ekki sá eini í fjölskyldunni sem talaði við sjálfan sig. „Og lykillinn er 1 eskránni“ hélt pabbinn áfram. „Ég er næstum því viss um að ég hengdi hann upp eftir að ég læsti dyrunum síðastliðið haust. Hann tók í dyrnar. „Það er þó að minnsta kosti læst“. Hann Opnaði dyrnar og fór út. Lalli heyrði hann tala við sjáltfan sig á leið inni upp göngin. Allt í einu datt Lalla nokkuð hræðilegt í hug. Hvað etf þetta fólk tæki nú pabba. „Ég verð að hlaupa á eftir honum og aðvara hann“. En áður en Lalli hatfði safnað nægu hugrekki, kom faðir hans til baka niður göngin og inn í húsið. , „Ég skil þetta ekki“, sagði hann. „Ég get bara alís ekki skilið það“. Hann rakst á Lalla. ,.Ó, góðan daginn, sonur. Það var enginn þarna úti, alls enginn! Kannski að ég ætti að Uta betur á klukkuna“. Hann horfði og horfði á klukkuna, einmitt eins og Lalli 'hatfði gert. Það er 2. febrúar í dag. En hvers vegna var þá eng- inn þarna úti og beið eftir mér?“ Augu Lalla urðu eins og stórar undirskálar. „Þú átt þó ekki við að allt þetta fólk hafi verið að bíða eftir þér?“ „Auðvitað biðu þau eftir mér“, sagði pabbi hans valdsmannslega. „Ég er hinn löglegi veð- urmaður, sem segir til um komu vorsins. Fólkið kemur hingað til þess að vita hversu fljótt vorið muni koma — það myndi ekki vita það án mán“. Skyndlega uppgötvaði hann hvað sonur hans hatfði sagt. „Lalli“, spurði hann hugsandi, „fórst þú út í morgun?" „Já, herra". LalU tvi- sté á gólfinu, dauðhrædd ur. „Var fullt af fóllki um hverfis opið á holunni?" „Já, herra“. LaUi hætti að tvístíga og stóð nú grafkyrr og beið eftir því að faðir ha-ns myndi skamma hann. En faðir hans hló að- eins og sagði: „Svo að veðurmennirnir eru þá orðnir tveir í staðinn fyr ir einn. Og hverju spáir þú svo?“ „Ég gat ekki séð skugga minn“, sagði Lalli, „en fólkið sá hann. Ef það er eitthvað að marka það, þá eru enn sex vikur til vorsins", „Jæja“, sagði faðir hans. „Við skulum þá bara leggja okkur og sofa sex vikur í viðbót“. $----------------- SMÆLKI Frúin (við vinnukon- una): — Guð hjálpi mér, Karen. Stóri blómstur- p atturinn datt út um gluggann hjá mér. Flýttu þér út og gættu þess að hann detti ekki á hötfuð- ið á neinum. — 0 — — „Jæja,“ sagði læknir- inn, „ég held að það sé bezt að við fáum okkur stóra inntöku af laxer- olíu.“ — „Gerðu svo vel,“ sagði sjúklingurinn," ég hef ekki lyst á henni.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.