Morgunblaðið - 15.05.1968, Blaðsíða 28
INNIHURÐIR
i landsins i
mesta úrvali 4A4.
SIGURÐUR ELÍASSON HF.
AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI.
y * sáyv-
‘. v ”
Þá er hún komin í hólmann sinn á Tjörninni. Margir munn þeir Reykvíkingar vera, sem
eru þeirrar skoðunar að ekki sé komið vor í höfuðstaðnum, fyrr en krían er komin í hólm
ann til sumar-bólfestu Kunnugir segja, að það sé einsdæmi, að kría verpi mitt í ys og þys
mikillar iimferðar sem hér í borginni. Mynd þessi var tekin með strekri aðdráttarlinsu af
fyrsta kríuhópnum, sem settist í Tjarnarhólmann, á þessu vori. Ljósm.: Sv. Þorm.
H áaleitissókn
er lögð niður
KIRKJUMALARAÐUNEYTDD
hefur, að fenginni tillögu sókn-
arráðs og biskups, skipt: Háaleit-
issókn milli Grensássóknar og
Háteigssóknar. Er þvi Háaleitis-
sókn þar með lögð niður.
Sóknin skiptist um Safamýri
þairmig að þeir, sem búsettir eru
fyrir norðaustan Safa/mýrina, telj
ast til Grensássóknar, en þeir
sem búsettir eru fyrir neðan Safa
mýrina, teljast til Háteigssóknar.
Eftir þessa viðbót telur Háteigs-
sókn nú um 13 þúsund íbúa, en
Grensássókn um 6.600 íbúa.
Menn skili ólöglegum
skotvopnum strax
STJÓRNVÖLD skora nú á alla j
þá, sem hafa undir höndum ólög-
leg skotvopn, svo sem skamm-!
byssur, að láta þær af höndum j
hið fyrsta, og munu þeir þá ekki
sæta neinum refsingum fyrir.
Heildarrannsókn á ástandi þorsk- og
ýsustofnsins hér við landið
— Tillögu íslands um lokun ákveðinna veiðisvœða frestað þar
til niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir — Lokasamþykkt
gerð um alþjóðlegt eftirlit með fiskveiðum í úthafinu
• SJÖTTA fundi Norðaustur
Atlantshafs fiskveiðinefndar-
enn eru nokkur vafaatriði um
áhrif veiðanna á þessa fisk-
„Sjötti fundur Norð-Austur-
Atlantshafs fiskveiðinefndarinn-
ar var haldinn í Reykjavík dag-
ana 7.—13. maí. Sóttu fundinn
fulltrúar 14 aðildarríkja, en hlut
verk nefndarinnar er að fylgjast
með vexti og viðgangi fiskistofn-
anna á Norð-Austur-Atlantshafi.
Á fundinum var samþykkt til-
laga frá íslandi um yfirgrips-
miklar heildarrannsóknir á á-
standi þorsk- og ýsustofnsins hér
við land, sem færa eiga heim
sanninn um það hvort þeim staf
ar hætta af því veiðiálagi, sem
Framhald á bis. 20
Um þetta barst Morgunblaðinu
svohljóðandi fréttatilkynning frá
Dómsmálaráðuneytinu i gær:
„Með tilvísun til reglugerðar
nr. 105 frá 1946, vekur Dóms-
málaráðuneytið athygli á því, að
engum er heimilt að eiga eða
hafa í vörzlum sínum, skotvopn
eða skotfæri án sérstaks leyfis.
Er hér skorað á alla þá, sem
hafa í fórum sínum skammbyss-
ur, riffla eða önnur skotvopn eða
skotfæri, og ekki er leyfi fyrir,
að skila þeim nú þegar til lög-
reglu. Fram skal tekið, að í mörg
um tilfellum er hægt að fá leyfi
fyrir öðrum skotvopnum en
skammbyssu.
Ekki verður komið fram refsi-
ábyrgð á hendur þeim, sem
sinna áskorun þessari fyrir 1.
júní n.k.
Að þeim tíma liðnum verður
gerð gangskör að því að leita
uppi slik vopn, sérstaklega
skammbyssur. Verða mál við-
komandi manna síðan tekin fyrir
í sakadómi“.
innar lauk í fyrradag, en
hann hófst 7. maí. Á fundin-
um var tillaga fslands um yfir
gripsmiklar heildarrannsókn-
ir á ástandi þorsk- og ýsu-
stofnsins hér við land sam-
þykkt. Var Alþjóðahafrann-
sóknarráðinu falið að skipu-
leggja þessar rannsóknir í
samráði við hlutaðeigandi
þjóðir, en rannsóknirnar
standa í þrjú ár.
• Ákvörðun um tillögu ís-
lands um lokun ákveðinna
hafsvæða var frestað þar til
fyrir liggja niðurstöður fyrr-
greindra rannsókna, þar sem
stofna.
• Fundurinn gerði lokasam-
þykkt um alþjóðlegt eftirlit
með fiskveiðum í úthafinu.
Hafa eftirlitsskip aðildarþjóð
anna heimild til að fylgjast
með því, hvort alþjóðlegum
reglum um búnað veiðarfæra,
möskvastærð og lágmarks-
stærð á fiski sé hlýtt. Reglur
þessar taka gildi 1. janúar
1970.
• Hér á eftir birtist í heild
fréttatilkynning, sem gefin
var út eftir að fundum nefnd
arinnar lauk:
Landfastur ís austur
við Hornafjörð
FRÁ Hornafirði bárust þau tíð-
indi síðla dags í gær, að þar væri
nú landfastur ís, og nær hann
eins langt og sést til vesturs.
Sigling er nú ófær til Horna-
fjarðar. Má fullyrða, að slíkt
hefur ekki gerzt sl. hálfa öld og
jafnvel lengur, en vorið 1965,
sem er mesta hafísvor síðustu
ára þar til nú, náði ísinn að landi
á Stokksnesi.
Við Kambanes var ísinn mun
þéttari í gærkvöldi en um morg-
uninn, enda var austanátt á þess-
um slóðum, sem þjappaði ísnum
upp að landinu víða við Aust-
firðina. Litlar breytingar voru á
isnum fyrir norðan land, en þar
var að leggjast yfir þoka í gær-
kveldi, sem bendir til mildara
loftslags.
Veðurfræðingurinn, sem við
ræddum við, sagði að austanátt-
in væri ekki óhagstæð, þar sem
með henni færi ísinn helzt frá
Vestfjörðunum, og ísinn gliðn-
aði annars staðar.
Breytingar á leiðakerfi
SVR vegna H-umferðar
VEGNA umferðarbreytingarinn-
ar yfir til hægri 26. maí eru fyr-
irsjáanlegar nokkrar minni hátt-
ar breytingar á leiðakerfi Stræt-
isvagna Reykjavíkur, að því er
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri
SVR, tjáði Mbl. í gær.
Breytingarnar eru aðallega í
því fólgnar, að strætisvagnarnir
munu aka öfuga leið miðað við
það, sem áður var. Sagði Eirík-
ur, að t.d. mundi Sundlauga-
vagninn nú aka inn Borgartún
og suður Reykjaveg, öfugt við
það, sem hann gerir nú í hverf-
inu sjálfu.
Leiðakerfið breytist ekki í
höfuðdráttum við umferða-
breytinguna nú fyrst um sinn,
en á hinn bóginn er unnið að
gagngerri endurskoðun á kerf-
inu, og ekki er ennþá vitað, hve-
nær þessi breyting verður. Get-
ur breikkun Lækjargötu til aust-
urs, norðan Austurstrætis, vald-
ið töfum á þessu, svo og fram-
kvæmdir við Hlemm, en þar
er gert ráð fyrir stórri enda-
stöð SVR.
Eiríkur kvað kerfisbreyting-
una einkum beinast að því að
auka tíðni ferða á aðalakbraut-
um borgarinnar og jafna tíðnina
út, þannig að fólk sem er t.d. á
Suðurlandsbraut eða Laugaveg
getur nokkurn veginn vitað að
um ákveðna tiðni vagnanna er
að ræða.
Þessi mynd var tekin yfir sovézku herskipunum í fyrradag. Þau eru nú farin frá landinu,
og er olíuskipið eitt eftir. Myndina tók Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, þegar skipin voru
út af Stokksnesi.