Morgunblaðið - 21.05.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.05.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1968. 13 — Hæstaréttardómur Fnamhald af bls. 17. samþykkjandinn, Svavar Sigurðs son, væri „gulltryggur maður.“ Jón Ólafsson kvaðst síðar hafa komist að því, að samþykkjand- i«n vaeri algjörlega eignalauS maður og ógjaldfær, enda hefði ih'vorugur víxillinn fengist greidd ur. Jón Þór Ólafsson höfðaði nú rniál gegn Kjartani Blöndal og krafði hann um greiðslu á and- virði víxlanna, kr. 30.000.00 ásamt vöxtum og málskostnaði. Af toálfu stefnanda var því hald- ið fram, að stefna, Kjartani, Ihefði bersýnilega verið ljóst eða mátt vera ljóst, að fjárhagur Svavars Sigurðssonar hefði ver- ið mjög bágborinn vorið 1959. Var það m.a. stutt þeim rökum, að Kjartan hefði í febrúar 1959 fengið tékka að fjárhæð kr. 22. 500.00 hjá Svavari Sigurðssyni og við sýningu í banka hefði ekki verið næg innstæða fyrir Ihonum. Þrátt fyrir þetta hefði hann lýst því yfir, að Svavar væri „gulltryggur" og stefnandi því tekið við áðurnefndum víxl- um fxá honum og hafði stefndi, Kjartan, því bakað stefnanda Jóni Þór, tjón. Taldi Jón Þór að þarna faefði verið beitt svik- um. , í málinu lá fyrir framburður bílasalans og Ásgeirs Karlsson- ar þess efnis, að stefndi, Kjartan, Ihefði neitað að gerast ábyrgðar- maður víxlanna og hann hefði látið falla ummæli í þá átt, að gamíþykkjandi víxlanna væri „gulltryggur". Stefndi, Kjartan Blöndal, krafðist sýknu og hélt því fratn, að ekkert réttarsamband hefði stofnast milli aðila málsins 4. marz 1959. Hann hefði engin við- Skipti átt beint við stefnanda og bæri þegar af þeirri ástæða að sýkna hann. Þá var sýknukrafan og rthrstudd með þeim hætti, að engum svikum hefði verið beitt, þar sem stefnandi hefði átt þess kost að kanna greiðslugetu sam-' þykkjanda víxlanna. Þá sýndi sú staðreynd, að stefndi hefði hefði ekki áritað víxlanna, að hann væri ekki ábyrgur fyrir greiðslu þeirra. Niðurstaða másins varð sú sama í héraði og fyrir Hæsta- rétti, Segir í forsendum að dómi Hæstaréttar, að gögn málsins beri greinilega með sér. að hvorki Ásgeir Karlsson né Jón Þór Ólafsson hefðu tekið við nefndum víxlum á hendur Svav- ari Sigurðssyni, sem fullnaðar- greiðslu á kröfum sínum vegna kaupanna án tillits til greiðslu- getu Svavars. Eðlilegastur skiln- ingur á framkomu Ásgeirs Kars- sonar fyrr og síðar væri sá, að hann hefði i verki framselt Jóni Þór kröfu sínar á hendur Kjart- ani Blöndal vegna þess að „vixl- arnir“ kynnu að reynast óinn- heimtanlegir. Þar sem Svavar Sigurðsson hefði eigi reynst borg unarmaður fyrir víxlunum hefði Kjartan Blöndal enn eigi staðið að sama skapi skil á því and- virði bifreiðarinnar R-5910 sem renna ætti beint til Jóns Þórs Ólafssonar til lúkningar á vð- skiptum hans og Ásgeirs Karls- sonar. , Niðurstaðan var bví sú, að Kjartan Blöndal var dæmdur t'l að greiða Jóni Þór Ólafssyni kr. 30.000.00. ásamt vöxtum og máls- kostnaði, sem fyrir báðum dóm- stigum nam samtals kr. 17.300.00. Knútur Bruun hdl. Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Sími 249401 Kröfurnar í dag eru um afl, hraða og lyftihæð MEIRA AFL VALE þekkir kröfur viðskiptavina sinna Leitið þessara eiginleika í YALE lyftaranum, þér muntið sannfærast um, að hann hefur þá alla, og VALE hefur lækkað verðið allt að 14<?o i, HtSTIIVISIII} IIIIHIII, Grjótagötu 7 — Sími 24250. Pitmon School ol English Árlegir sumarskólar í London, Oxford, Edinborg. Árangursrík enskunámskeið, þar sem sérstök áherzla er lögð á að auka getu nemenda til að skilja enskt talmál og tala ensku fullkomlega. London (University College) 3. júli til 30. júlí og London (University College) 3. júlí til 30. júlí og 31. júlí — 27. ágúst. Oxford — 31. júlí til 27. ágúst. Edinborg 12. ágúst til 6. september. (meðan alþjóðahátíðin stendur yfir). Útvegum öllum nemendum húsnæði. Lengri námskeið eru einnig haldin í Lundúna- skólanum árið um kring. Allar upplýsingar og ókeypis bæklingur frá T. Steven, principal. THE PITMAN SCHOOL OF ENGLISH. 46 Goodge Street, London W. 1. Viðurkenndur af brezka menningarsambandinu. SIMÆPLAST í e 1 d h ú s i n n r é 11 i n g u n a . SNÆPLAST er íslenzkt harðplast, unnið samkvæmt ströngustu kröfum í sam- vinnu við plast-laboratorium í Svíþjóð. Plötustærð 1.30x2.50. Einlitt og í viðar- líki. Einnig plastlagðar spónaplötur. Styðjið íslenzka framleiðslu. SPÓNN HF. Sími 35780 Skeifunni 13. GILLETTE KYNNIR NÝJU TECHMATIC RAKVÉLINA 1. Rakvélln er sérstaklega stillt fyrir enn þægilegri rakstra. Hun er léttari, svo átakið verður minna, og því hverfandi hætta á að skera sig. Húð yðarfinnur örugglega mismuninn. £f þér viljið fá nýja rakstursegg, þá snúið aðeins arminum, svo einfalt er það. Og aldrei þarí að skipta um rakblöð framar. Þessi skifa synir yður, hve margar raksturseggjar eru eftir. Þér byrjið á 6, hver egg endist | ótrúlega lengi. S. Rakblaðið er f lokuðu hylki. Allt og sumt er að smella hylkinu í rakvélina, og hún er tilbúin til notkunar. 4. Þetta rakblað, úr ryðfríu *táli, er minna en hekningi þynnra en venjulegt rakblað. —J Því hefur það beittari egg og gefur betri rakstra. Þa8 er ekkl af ástæðulausu, að þér væntið nýrra fiugmynda frá Gillette, þvi Gillette fann upp rakvélina, rak- blaðið úr ryðfría stálinu og nú Techmatic rakvélina. f stað rakblaðs hefur Techmatic rakvélin samfellt rakband úr ryðfríu stálL Þetta er algjörlega ný rakstursaðferð. Reynið þetta með Gillette Foamy rakkreminu í loftþrýsti- brúsunum, þ& munið þér ekki vera í vafa um, að það bezta er ávallt Gillette. Gillett• Techmatic - og aldrei þarf aS skipta um rakblöS framar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.