Morgunblaðið - 25.05.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐUR
>- - -
ttfelftí »~f «» »«"'
> ' <
: ...-
.............
’ •' ..............................................--■-■
■ .............................
mmm
w mm
.-
H-DAGURINN ER Á MORGUN!
81 >' *' «» »«»!*«• „H-
!!»?'* : II 8
w. M(W X4
*«*«**i* :: ...
íí
? ■
«»***■»
**■ **** *»
_____ÖSSfi
DE GAULLE
hútar afsögn
— ef franska þjóðin hafnar umbóta-
tillögum í þjóðaratkvæðagreiðslu í júni
París, 24. maí. — AP-NTB
0 Charles de Gaulle,
Frakklandsforseti, sagði í sjö
mínútna sjónvarps- og út-
varpsræðu til frönsku þjóðar-
innar í kvöld, að hann
mundi láta efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu í júní um
tillögur um þjóðfélagsumbæt-
ur í Frakklandi og ef þess-
tillögum yrði hafnað
mundi hann segja af sér sem
forseti fimmta lýðveldisins.
í ræðu sinni sagði de
Gaulle m.a.: „Allir hljóta að
skilja þá þýðingu, sem nýleg-
ir atburðir, fyrst í háskólun-
um og síðan í þjóðfélagimv
hafa. Af öllum þeim má ráða
þá nauðsyn sem ber til breyt-
inga í þjóðfélagi okkar og
allt bendir til, að þessar
breytingar ættu að fela í sér
umfangsmeiri þátttöku allra
stjórn og skipulagningu
þeirra mála, sem beinlínis
við koma þeim.“
Þá sagði Frakklandsfor-
seti: „Vissulega er það frum-
skylda ríkisins, í því æsinga-
ástandi sem nú ríkir, að
tryggja, þrátt fyrir allt, til-
veru Iandsins og almennings-
reglu jafnframt. Þetta gerir
ríkið. Skylda þess er enn-
fremur, að koma hlutunum
af stað að nýju, helzt með
því að tryggja sér sambönd,
sem gætu auðveldað slíkt.
De Gaulle.
Það er reiðubúið til þess ...
en því næst verðum við, án
nokkurs efa, að gera endur-
bætur.
0 Því ef ýmsum hindrun-
um innanlands og utanlands
hefur verið rutt úr veginum
í þeim geysilegu þjóðfélags-
breytingum, sem Frakkland
hefur lifað á okkar tímum, þá
Framihald á bLs. 27.
Lítill árangur af
Moskvuför Stewarts
Moskvu, 24. maí — AP-NTB
UTANRÍKISRÁÐHERRA Bret-
lands, Michael Stewart, fór í dag
frá Moskvu til Bonn, eftir
þriggja daga veru í Sovétríkj-
unum, þar sem hann talaði við
helztu leiðtoga.
í gær ræddi Stewart m.a. við
Á MORGUN kl. 06 gengur H-
umferð i gildi á íslandi.
Myndirnar þrjár, sem Ólafur
K. Magnússon, ljósmyndari
Mbl. tók í gær, sýna hin þrjú
stig, sem verða á 10 mínút-
unum, sem algert umferðar-
bann gildir. Efst er vinstri
umferð, þá sýnir næsta mynd
bifreiðarnar færa sig yfir á
hægri kant, þar sem þær
standa ,unz þeim leyfist að
halda af stað í H-umferð
(neðsta myndin). Umferðar-
nema fyrir undanþágu-
bifreiðar, gildir frá kl. 03 til
07. Minnist þess, að við
öll byrjendur í H-um-
Gromyko um Vietnam-styrjöld-
ina, án þess að aðilar kæmust
nær nokkru samkomulagi og
sýndist sitt hverjum. Aðalmark-
mið Stewarts var að freista þess
að fá Gromyko til að fallast á,
að Bretar og Sovétmenn veittu
aðstoð ef þurfa þætti í Parísár-
viðræðunum. Ljóst er nú, að það
hefur ekki tekizt. Gromyko hélt
fast við, að engra breytinga
væri að vænta í París fyrr en
Bandaríkin samþykktu kröfu N-
Vietnama um algera og skilyrð-
islausa stöðvun loftárása á N-
Vietnam.
Af brezkri hálfu var sagt, að
fundirnir í Moskvu væru fram-
hald þeirra viðræðna sem
Stewart hefur átt við ambassa-
dor Sovétríkjanna í London,
Michail Smirnovski. Gromyko
taldi kröfu Bandaríkjanha frá-
leita um að N-Vietnamar þyrftu
að gera einhverjar jákvæðar að-
gerðir, ef Bandaríkin fallast á
stöðvun loftárása.
Lögð er áherzla á, að viðræð-
urnar hafi verið vinsamlegar í
Framhald á bls. 27.