Morgunblaðið - 25.05.1968, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 196«.
Fjórar ungar dansmeyjar í ei r>u atriðinu.
110 dansarar á sýningu
f DAG verður nemendasýn-þá dansa, sem þeir sýna. Fay
ing Listdansskóla Þjóðleikhúss-Wemer ballettmeistari Þjóðleik-
ins og verður sýningin á leik-hússins stjómar sýningunni og
sviði Þjóðleikhússins. 110 nem-hefur samið marga af dönsun-
endur sikólans taka þátt í sýn-um. Henni til aðstoðar er Ingi-
ingunni Sýningarskráin verðurbjörg Björnsdóttir ballettkenn-
mjög fjölbreytt og koma allirari.
hinir ungu dansarar fram í gerf- Sýningin hefst kl. 15.00 og
um og búningum í samræmi viðverður hún ekki endurtekin
- EIMSKIP
Framh. af bls. 2
Þá varð Eimskipafélagið fyrir
stórfelldu tjóni af völdum
tveggja verkfalla stýrimanna,
vélstjóra og loftskeytamanna.
Hófst fyrra verkfallið 26. maí
1967 og lauk ekki fyrr en 16.
júní, en hið síðara 12. nóv. 1967
og stóð til 23. nóv.
Eimskipafélagið varð fyrir
beinu fjárhagstjóni vegna hins
mikla bruna í Borgarskála 30.-
31. ágúst 1967. Má telja, að beint
tjón félagsins vegna brunans sé
um 2 millj. króna. Verða gerðar
tilraunir til að endurheimta
þetta tjón úr hendi hlutaðeig-
andi vátryggjenda.
Loks varð Eimskipafélagið að
sjálfsögðu fyrir mjög verulegu
tjóni vegna gengisfalls íslenzkr-
ar krónu í nóvember 1967. Sézt
á rekstrarreikningi, að gengis-
tap félagsins á erlendum lausa-
skuldum varð kr. 6.402.732.57.
Þá sýnir efnahagsreikningur, að
gengistap á erlendum veðskuld-
um varð kr. 32.542.085.57. Að því
er síðarnefnda gengistapið snert
ir, má geta þess, að samkvæmt
fyrirmælum ríkisskattanefndar
hækkaði Eimskipafélagið bók-
fært eignarverð skipa sinna um
gengistapið og verða skipin síð-
an afskrifuð á hinu nýja eign-
arverði, svo sem lög leyfa. Þetta
verður Eimskipafélaginu að sjálf
sögðu til hagsbóta í framtíðinni,
en þó því aðeins, að hagnaður
verði í rekstri.
öll skip Eimskipafélagsins, 12
að tölu, eru bókfærð samkvæmt
efnahagsreikningi í árslok 1967
á kr. 140.104.499,17, sem er að
sjálfsögðu langt undir sannvirði
þeirra.
Þrátt fyrir rekstrarafkomu
ársins 1967 verðum við að horfa
til framtíðarinnar með bjart-
sýni. Skip Eimskipafélagsins
hafa það sem af er þessu ári,
haft miklum verkefndm að sinna
og að óbreyttu ástandi má vissu-
lega búast við miklum flutning-
um á árinu 1968. Hinar fyrir-
huguðu framkvæmdir, sem vikið
er að síðar í þessari skýrslu,
eiga að bæta hag Eimskipafé-
lagsins og skapa viðskiptamönn
um þess aukið hagræði.
Siglingar skipanna.
Árið 1967 voru alls 27 skip í
förum á vegum félagsins og fóru
þau samtals 192 ferðir milli ís-
lands og útlanda. Er það 9 ferð-
um færra en árið 1966, en 51
ferð fleira en árið 1965. Eigin
skip félagsins, 12 að tölu, fóru
139 ferðir milli landa en leigu-
skip 53 ferðir. Ferðum skipanna
var hagað mjög svipað og síð-
astliðin ár og föstum ferðum
haldið uppi milli íslapds, Ant-
werpen, Gautaborgar, Hamborg-
ar, Hull, Kaupmannahafnar,
Kristiansand, Leith, London,
Rotterdam og New York. Þá
voru teknar upp reglubundnar
viðkomur í Norfolk í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku í des
ember s.L, þannig að framvegis
er gert ráð fyrir að skipin fermi
hálfsmánaðarlega bæði í Nor
folk og New York. Ennfremur
voru skip í föstum ferðum á síð-
astliðnu ári til ýmissa annarra
hafna í helztu viðskiptalöndun-
um, t.d. Póllandi, Finnlandi og
Sovétríkjunum. M.s. GULLFOSS
fór í Janúar 1967 í skemmtiferð
með farþega til Azoreyja, Ma-
deira, Kanarieyja, Casablanca og
Lissabon. Þátttaka var allgóð,
en eigi er þó sennilegt að fleiri
slíkar ferðir verði famar að
sinni við óbreyttar aðstæður.
Skip félagsins sigldu samtals
547 þúsund sjómílur á liðnu ári,
þar af 477 þúsund sjómílur milli
landa, en 70 þúsund sjómílur
milli hafna innanlands. Alls
komu skip félagsins og leigu-
skip þess 739 sinnum á 93 hafnir
í 20 löndum og 990 sinnum á 48
hafnir úti á landi. Hefur við-
komu fjöldinn aldrei verið meiri
í erlendum höfnum og nemur
aukningin miðað við árið 1966,
69 viðkomum.
Árið 1967 voru vöruflutning-
ar með skipum félagsins og leigu
skipum samtals 367 þúsund tonn
og er það um 56 þúsund tonnum
eða 13.33% minna þungamagn en
árið 1966.
Farþegar með skipum félags-
ins milli landa árið 1967voru
samtals 7.462 , en það er 466 far-
þegum færra en árið 1966. Með
m.s. GULLFOSSI ferðuðust 6.852
farþegar og með öðrum skipum
610 farþegar.
Efnahagur félagsins og sjóðir.
Þá er greint frá efnahag fé-
lagsins í skýrslunni, en þar kem
ur fram, að eignir félagsins sam-
kvæmt efnahagsreikning námu
um síðustu áramót kr. 376.813.754,
50 en skuldir kr. 389. 856. 596. 98,
skuld umfram eignir nemur því
13.042.842.48. 12 skip félagsins
eru bókfærð á rúmar 140 millj-
ónir og fasteignir á tæpa 51
milljón.
f Eftirlaunasjóði voru um síð-
ustu áramót rúmar 6 milljónir,
en greidd eftirlaun á árinu
námu tæpum 5 milljónum.
Lífeyrissjóður félagsins nam
um síðustu áramót rúmri 31.
milljón og hafði aukizt um rúm-
ar 4 milljónir á árinu. 22 sjóð-
félögum voru veitt lán úr sjóðn-
um, en alls hafa 139 fengið lán
úr honum.
Háskólasjóður nam tæpum 2
milljónum um síðustu áramót
og hafði aukizt á árinu um rúm
800 þúsund. Háskólaráði hafa
verið greiddar 125 þúsund krón
ur úr sjóðnum á síðustu þrem-
ur árum.
Hlutabréf, aukning hlutafjár.
Samkvæmt hluthafaskrá var
hlutafé Eimskipafélagsins I árs-
lok 1967 kr. 40.165.250 og skráð-
ir hluthafar um 10.800. Á síðasta
aðalfundi félagsins var sam-
þykkt, að á árunum 1967 tll 1.
júlí 1971 yrði stefnt að aukn-
ingu hlutaf járins um allt að
66.4 millj. króna, þannig að
hlutafé yrði samtals 100 millj.
króna. Skyldi hluthöfum félags-
ins fyrst og fremst gefinn kost-
ur á, að kaupa þessa aukningar-
hluti.
Árangurinn varð sá, að til árs
loka 1967 seldust hlutabréf að
nafnverði kr. 6.550.250.00. Sala
hlutabréfanna heldur að sjálf-
sögðu áfram.
Starfsemin almennt.
Þá er í skýrslunni gerð grein
fyrir starfsemi félagsins almennt
og drepið á helztu þætti henn-
ar og getið framtíðar áætlanna.
En þær eru í því fólgnar, að
á árunum 1968—1970 verði bætt
við skipastól félagsins 2-3 nýjum
vöruflutningaskipum, að vöru-
geymslur félagsins verði endur-
bættar, og að kannaður verði
grundvöllur nýs farþegaskips,
en undirbúning þess verður að
sjálfsögðu að vanda sem mest.
Látnir starfsmenn.
f lok skýrslunnar er minnst
tveggja manna, sem faUið hafa
frá síðan síðasti aðalfundur var
haldinn og báðir höfðu um langt
árabíl starfað í þjónustu Eim-
skipafélagsins, en þeir voru Jón
Erlendsson verkstjóri og Ásgeir
Jónsson skrifstofumaður.
Stjómarkjör.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga þeir Einar B. Guðmunds-
son, Birgir Kjaran, Thor R.
Thors og Grettir Eggertsson, en
voru allir endurkjörnir til
tveggja ára setu. Aðrir í stjórn
félagsins eru: Pétur Sigurðs-
son, Halldór H. Jónsson, Ingvar
Vilhjálmsson, Ámi Eggertsson
og Páll Sæmundsson.
- NATO
Framh. af bls. 28
aðildarþjóða á sviði vísinda og
lista.
3. Á næsta ári gefst aðildar-
ríkjum bandalagsins kostur á
að segja sáttmála þess upp.
Vegna tveggja áratuga happa-
drjúgrar stefnu virðast allarlik
ur benda til þess, að allar að-
ildarþjóðir haldi áfram samstarf
inu.
4. Þrátt fyrir smæð íslenzkr-
ar þjóðar ber að stefna að
auknu starfi íslendinga á vett-
vangi Atlantshafsbandalagsins.
Það er sómi hverrar sjálfstæðr-
ar þjóðar að leggja það sem unnt
er, að mörkum til að viðhalda
friði.
5. Meginþýðing áframhald-
andi starfs bandalagsins felst í
því að bæta sambúð austurs og
vesturs með samstilltum aðgerð-
um aðildarþjóða. Auk þess sem
innan bandalagsins og annarra
alþjóðasamtaka er fremur von
til að hafa áhrif á stjórnarfar
þeirra aðildarríkja, sem búa við
einræði, eins og raunin er í
Portugal og Grikklandi. Má í
því sambandi benda á skelegga
ályktun stjórnar S.F.H.Í. frá 15.
jan. sl.“
Alit um útlán húsnæðis Háskóla
fslands.
Á sama fundi lagði minnihlut-
inn fram ályktunartillögu um
útlán húsnæðis háskólans í til-
efni af hinni blönduðu Nato-
og húsnæðismálaályktun stjórn-
armeirihlutans. Samþykkti meiri
hlutinn frestunartillögu vegna
tillögu þessarar.
Framangreindir stjómarmenn
gefa hér með út tillögu sína sem
minnihlutaálit.
„Minnihluti stjórnar stúdenta
félags Háskóla íslands ályktar
eftirfarandi um útlán húsnæðis
Háskóla íslands:
Háskólaráð hefur um áratuga
skeið fylgt þeirri stefnu að lána
aðilum utan skólans húsnæði
stofnunarinnar til margvíslegra
ráðstefnu- og fundahalda. Virð-
ist stefna þessi hefðbimdin.
Það er skoðun minnihlutans
með hliðsjón af takmörkuðu hús
rými stofnunarinnar, og megin-
hlutverki háskólans, sem fræði-
og vísindastofnunar, að háskóla
ráði beri að gæta mikils hófs við
útlán á húsnæði stofnunarinnar.
Séu útlán óhjákvæmileg, verður
að búa svo um, að sem minnst
röskun verði á starfsemi há-
skólans á hvaða tíma árs sem er.“
Ályktun meiríhluta stjórnar Stú-
dentafélags Háskóla íslands
„Stjóm Stúdentafélags Há-
skóla íslands vill gagnrýna ein-
dregið þá ákvörðun rikisstjóm-
arinnar að taka húsakynni Há-
skóla íslands undir ráðstefnu At
lantshafsbandalagsríkjanna.
Því til stuðnings vekur stjóm
in athygli á þrennu.
f fyrsta lagi er alkunna, að
þátttaka íslands í Atlantshafa-
bandalaginu er umdeild meðal
þjóðarinnar. Má því jafnvel bú-
ast við mótmælagöngum eða öðr
um slíkum aðgerðum, en þó ekki
af hálfu Stúdentafélags Háskóla
íslands. Af þessum sökum m.a.
er að sjálfsögðu í alla staði
ákjósanlegast að firra Háskóla
íslands áðurgreindu ráðstefnu-
haldi og þannig jafnframt öllu
hugsanlegu aðkasti.
f öðru lagi vill stjórn Stúd-
entafélags Háskóla íslands vekja
athygli á, að meðal þeirra ríkis-
stjórna, sem munu eiga fulltrúa
á hinni væntanlegu ráðstefnu,
eru portugalska fasistastjórnin
og gríska herfor Lng jast j órnin.
Er íslenzku þjóðinni, sem öðr-
um fremur vill halda í heiðri
frelsi og lýðræði, bein minnkun
að því að fá fulltrúum þvílíkra
einræðisstjórna afnot af æðstu
menntastofnun sinni til funda-
halda. Má í þessu sambandi
benda á skelegga lýðræðisálykt
un í Grikklandsmálinu, sam-
þykkta með samhljóða atkvæð-
um í stjórn Stúdentafélags Há-
skóla fslands hinn 15. janúar
1968.
í þriðja lagi telur stjórn Stúd
entafélags Háskóla íslands ein-
sýnt, að átelja beri harðlega
alla þá röskun, sem hlýst af ná-
lega tíu daga algerri lokun há~
skólans, þrátt fyrir úrbótavið-
leitni varðandi lestraraðstöðu
af hálfu forráðamanna Háskóla
íslands. Má nafna m.a., að próf-
essorar fá ekki aðgang að vinnu-
herbergjum sínum þessa daga,
stúdentar verða að yfirgefa les-
stofurnar í skólanum sjálfum og
háskólabókasafninu verður alger
lega lokað. Benda verður á í
þessu sambandi, að starf og
nám fer fram innan veggja Há-
skóla fslands allt árið, enda les
nú hluti stúdenta eða vinnur að
ritger’ðum yfir sumarið.
í framhaldi af þessu má benda
á, að Stúdentafélag Háskóla fs-
lands hefur tvo undanfarna vet
ur ekki fengið leyfi háskólayfir
valda til fundahalda
innan veggja háskólans, nema
um fundi ætlaða stúdentum ein-
um væri að ræða. Má í þessu
sambandi á Söru Lidman málið
haustið 1966. Hefur þetta vald-
ið stjóm Stúdentafélags Háskóla
íslands miklum vandræðum, en
á sama tíma fá hinir sundurleit-
ustu aðilar héðan og þaðan húsa
kynni í skólanum til fundahalda
Þessu fundabanni gagnvart Stú
dentafélagi Háskóla fslands hef
ur þó verið aflétt fyrir
skemmstu og skoðanafrelsinu
þannig hleypt á ný inn í Há-
skóla fslands, þar sem það á að
sjálfsögðu heima. Ber að fagna
þeirri ákvörðun, en hins vegar
er vandséð, að fulltrúar fram-
angreindra einræðisstjórna, er
halda uppi skoðanakúgun í lönd
um sínum eigi á sama tíma heima
innan veggja margnefnds há-
skóla.“
- FRÖNSK
Framh. af bls. 2
á Suffren, þar sem það liggur
úti á ytri höfninni, er ekki vopn
heldur hlífðarskermur á radar
inn. Fyrir leit að kafbátum er
sérstakt vandað astikkerfi. Á
skipinu er 500 manna áhöfn,
þar af um 30 yfirmenn
Tundurspillirinn D'Estrees er
minni en freygátan og komst
því inn í Reykjavíkurhöfn. Hún
hefur samskonar varnarvopraa-
kerfi með loftvamabyssum, tund
urskeytum og flugskeytum. Á
því er 350 manna áhöfn, og þar
af um 15 yfirmenn. Skipið var
akírt eftir frægum marskálkum
á 17. öld, sem fáir muna lengur
eftir. Aftur á móti áttu þeir
feðgar frænku, Gabrielli d'Estr
ees, sem enn á frægan orðstír í
Frakklandi, því hún Vcir vin-
kona Henriks 4.
Suffren heitir eftir 18- aldar
aðmírál, sem vann sér mikla
frægð í frelsisstríði Bandaríkj-
anna og tilheyrði Mölturiddur-
unum á Mlðjarðarhafi. Hann héit
fullu nafni Suffren St. Tropes,
og sagði Salomon aðmíráll að
seinni hlutann þekktum við á-
reiðanlega betur sem sumardval
arstað Brigitte Bardot.
Skipin fóru 17. maí frá Bret-
ange og áleiðis til Jan Mayen.
Ferðin gekk vel og tilraunimar
með tækin voru hagstæðar. Að-
eins var einn hængur á. Á norð-
urslóðuim var of mikill is í sjón-
um til að skipin kæmust leiðar
sinnar, en ekki nógu kalt til að
þau gætu reynt tækin nógu vel
í ísingu, eins og þeir höfðu vilj-
að. Eftir að skipin koma heim,
verður lokið við þau og þau út-
skrifuð. Þé fer Suffren til æf-
inga á Miðjarðarhafi og síðan I
Atlantshafsflotann, en í honum
eru 13-14 frönsk herakip. d‘Es-
ann. Auk hinna eiginlegu flota
á þessum höfum er þriggja her-
skipa skipasamstæða, sem er ým
ist á Atlantshafi eða Miðjarðar-
haifi.
- Á HÖLMAVÍK
Framh. af bls. 3
koma upp þessairri myndarlegu
kirkju og kvaðst samfagna söfn
uðinum á þessum dýrðardegi- Af
henti biákup síðan sóknarpresti
og söfnuði hina nýju kirkju.
Að Iokinni vígslu steig sókn-
arpresturinn, séra Andrés Ólafa
son, í stólinn og fluitti fyrstu
prédikun í hinni nývigðu kirkju.
Skírði sóknarprestur síðan
sveinbarn, sem hlaut nafnið Jó-
hann Ingi, og er dóttursonur
sóknarnefndarformannisins.
Kristján Jónsson sóknamefnd-
armaður lýsti gjöfum, sem kirkj
unni hafa borizt en vígsluat-
höfninni Iauk með því að sung-
inn var þjóðsöngurinn. Var þetta
mjög virðuleg og áhrifamikil at-
höfn og söfnuði og öðrum kirkju
gestum mjög hugstæð.
Kvenfélagið bauð öllum krikju
gestum til kaffidrykkju að at-
höfninni lokinni, og voru þar
fram bomar miklar og ríkulegar
veitingar. Þar fluttu ávörp séra
Andrés Ólaffson próf., Séra Þor-
steinn Jóhannesson, séra Ing-
ólfur Astmarsson, Gísli Sigur-
bjömsson forstjóri og Jóhann
Guðmundsson, formaður sóknar-
nefndar.
Nánar verður sagt frá vígslu
athöfninni hér í Mbl. síðar.
Sjómannn-
dngurínn
í Hninnrfirði
Kl. 8.00 Fánar dregnir að húni
Kl. 9. Blöð og menki dagsins af-
hent sölubömum í skrifstofu
Sjómannafélagsins.
Kl. 13.30 Messa í Þjóðkirkj-
unni. Að messu lokinni verður
gengið á hátíðarsvæðið með
Lúðrasveit Hafnarfjarðar 1
broddi fylkingar, og verður
þar útihátíð sett.
Dagskrá útihátíðarinnar:
1. Fulltrúi S.V.S.K. Hraun-
prýði flytur ávarp.
2. Fulltrúi sjómanna flytur á-
varp.
3. Þrír aldraðir sjómenn
heiðraðir.
4. Skemmtiþáttur.
5. Pokahlaup.
6. Sund.
7. Kappróður.
KL 19.30 verður hóf í Sigtúni
í Reykjavfk.