Morgunblaðið - 25.05.1968, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.05.1968, Qupperneq 28
SLYSAKÖNNUN VEGNA H-UMFERÐAR í SAMBANDI við breytingu til hægri aksturs hefur verið á- kveðið að efna til slysakönn- unar til að kanna, hvort þörf sé á auknum varúðarráðstöfun- um í tilefni hægri umferðar og ennfremur, hvenær tiltækilegt er að fella niður þær varúðar- ráðstafanir, svo sem minni há- markshraða, sem boðaður hefur verið. Við þessa könnun verður mið- að við tíðni umferðaslysa ár- anna 1967 og 1966 og byggt á tegundum slysa, — hvort t-d. bíll aki á annan bíl í þétt- býli eða bill aki á mann í dreifbýli. Upplýsingarnar verða unnar á gataspjöld og síð- an notuð Háskólatölvan til úr- vinnslu. Er gert ráð fyrir að notúð verði ein vika sem tíma- eining fyrst í stað. Tilhögun þessarar hægri um- ferðar slysakönnunar verður, að eftir H-dag skulu berast til- kynningar frá löggæzlu um allt land um umferðarslys í lögsagn- arumdæmunum og löggæzl- an gerir skýrslu um. Er gert ráð fyrir að fylgjast megi með framvindu þessara mála frá degi til dags, en ekki er gert ráð fyr- ir, að hægt verði að sjá, hvort um einhverja breytingu sé að rœða í umferðaröryggismálum fyrr en vika er liðin af H-öld á íslandi. -4) Gufustrókurinn í Kverkfjöllum. Næst á myndinni sést sigdæld í jöklinum meff sprungum í kring og vatni viff barmana. Önnur ný sigdæld hinum megin viff strókinn. Ljósm.: Sigurjón Ein- Gufugos í Kverkfjöllum Vatnajökli arsson. Holldór Lox- ness sæmdur doktors- nnfnbót HALLDÓR ^axness verffur í dag gerffur aff heiðursdoktor á- 7 isamt 20 öffrum merkum mönn um við háskólann í Aabo í Finnlandi- Meffal þeirra, sem doktorsnafnbót hljóta er Urho Kekkonen, Finnlandsforseti. 26 affrir doktorar verffa heiffr aðir. t dag er 50 ára afmæli sænskudeildarinnar við Aabo- háskóla. Gufustrókur stóff upp af hverasvæffinu í Kverkfjöllum í gær, þegar Sigurjón Einarsson, flugmaður Flugmálastjórnar- innar flaug þar yfir. Sagði Sig- Lóðað á síld Síldarrannsóknarskipið Árni Friðriksson hefur lóðað á djúp- stæðar síldartorfur um 400 sjó- mílur ANA af íslandi eða á 4. og 5. gráðu austlægrar lengdar og 67.15 gráðum norðlægrar breiddar .Mbl. reyndi að ná tali af fiskifræðingunum um borð í Árna, en árangurslaust. RÉTT eftir hádegið í gær féll barn út um glugga húss við Kvisthaga. Barnið var flutt í Slysavarðstofuna, en ekki er kunnugt um meiðsli þess. Hæð- in, sem barnið féll úr, er hálfur þriðji metri og féll það á stein- steypta stétt. urjón, aff gufustrókurinn hefði eflaust náff í 300—400 metra hæff. Hann er efst í rananum, sem gengur niffur á hverasvæff- iff milli kverkanna, og báðum megin viff voru nýmynduff sig og sprungur í kring. Ekki er vitað hvað þarna er á ferð, en dr. Sigurður Þórarins son, jarðfræðingur kvaðst telja, eftir þeim upplýsingum sem nú Kona syndir i l|orninnif KLUKKAN 03.50 í fyrrinótt kom kona á lögreglustöðina í Reykjavík og tilkynnti, að vin- kona sín hefði lagzt til sunds í Tjörninni. Lögreglan fór á stað- inn, en þá hafði konan forðað sér eftir sundsprettinn, a.m.k. fannst hún hvergi. NATO hefur stuðlað að friði í Evrdpu Yfirlýsingar um ráðherrafund banda- lagsins hér á landi — Meirihluti SFHÍ andvígur fundum NATO í háskólanum > Morgunblaðinu bárust í gær yfirlýsingar meiri- og minni- hluta stjórnar Stúdentafélags Há skóla íslands um Atlantshafs- bandalagið og ráðstefnu þess í háskólanum á næstunni. í álykt un minnihlutans, Vökumanna, kemur m.a. fram, að siðan At- lantshafsbandalagið var stofnað hefur ríkt friffur í Evrópu, sem áður var einn mesti ófriffarblett \ ur heims, og að það sé sómi hverrar sjálfstæffrar þjóffar, aff leggja það af mörkum, sem unnt er til að viðhalda friði og því beri að stefna aff auknu starfi íslendinga á vettvangi Atlants- hafsbandalagsins. Hér á eftir birtast yfirlýsingarnar í heild: „Á stjórnarfundi Stúdentafé- lags Háskóla fslands 22. maí sl. lögðu þrír stjórnarmenn þeir Ár mann Sveinsson, Reynir T.Geirs son, og Georg Ólafsson fram ályktunartillögu um fullan stuðn ing við Atlantshafsbandalagið Tillögu þeirra var vísað frá með atkvæðum stjórnarmeirihlutans (4 atkvæðum). Framangreindir stjórnarmenn lýsa yfir fullum stuðningi við At- lantshafsbandalagið og minna á eftirfarandi atriði: „1. Með varnarsamstarfi þeirra 15. þjóða, sem aðild eiga að At- lantshafsbandalaginu komst á, „valdajafnvægi" í Evrópu. Síð- an hefur ríkt friður þjóða á miili hér í álfu, en þessi hluti heims var áður einn mesti ófrið arblettur jarðar. 2. Auk varnarsamstarfsins, sem er aðaltilgangur bandalags ins, hefur það gengizt fyrix aukn um menningarsamskiptum milli ■ - - Framh. á bls. 20 liggja fyrir, að hver hafi sprengt sig þarna upp og sé þar svip- að umrót og sézt hefur áður. Ekki er vitað um stórgos á Kverkfjallasvæðinu, en vitað er að minni gos hafa orðið og um- rót á svæðinu. Kverkfjöllin eru í norðurbrún Vatnajökuls. Þar er eitt af mestu jarðhitasvæðum á Is- landi, kemur líklega næst á eft- ir Grímsvötnum og Torfajökuls- svæðinu. Þar er mjög fagurt að sjá hvernig litríkt hverasvæðið, með stórbrotnum svip og í marg- víslegum litbrigðum, kemur und an hvítum jöklinum. Sigurður Þórarinsson sagði, að eflaust hefðu orðið þarna smærri gos. Um 1930 sást af öskulagi, að gosið hafði. Og eins sást, þegar Jöklarannsóknar- Kverkfjöllin, eru í norffurbrún Vatnajökuls, þar sem krossinn er. menn komu þar 1959, að um- brot höfðu orðið með ösku og sigdæld. Sparifjárskírteini seld fyrir 30 milljónir kr. Samkvæmt upplýsingum Björns bankaútibú umhverfis allt land Tryggvasonar. aðstoðarbanka- stjóra Seðlabankans hefur bank inn selt í umboðssölu sparifjár- skírteini ríkissjóðs fyrir rúm- lega 30 milljónir króna. Björn kvaðst ekki geta sagt nákvæm- lega fyrir hve háa upphæð bréf- in hafa selzt, en bankar og hafa fengið góðar undirtektir og salan hefur gengið vel. Bréfin eru seld hjá öllum bönkum og bankaútibúum, en að auki hafa nokkrir verðbréfa- salar bréfin til sölu. Ails voru boðnar út 50 milljónir í spari- fj árskírteinum. 80 skammbyssum helur verið skilað BJARKI ELÍASSON, yfirlög- regluþjónn sagffi í vifftali viff Mbl. í gær aff fjöldi skotvopna, sem gerffur hefði veriff upptæk- ur nú — affallega skammbyssur væri um 80. í gær komu menn til lögreglunnar og skiluðu 20 skammbyssum. Bjarki sagði, að skotvopn þau sem fólk hefði komið með og verið ólögleg væru nú hátt á annað hundrað og eru þá skamm byssurnar 80 ekki meðtaldar. Þessum skotvopnum hefði fólkið fengið að halda og fengið leyfi til ,þar eð byssurnar uppfylltu gerðar kröfur. Nú líður að því að fresturinn, sem lögreglan hefur gefið fólki til að skila ólöglegum skotvopn um renni út, en það er um mán- aðamótin. Enn veit lögreglan um þó nokkuð marga aðila, sem eiga skammbyssur og önnur ólögleg skotvopn, og hafi menn ekki komið með þau og gert grein fyrir þeim fyrir mánaðamótin verður mál hvers viðkomandi sent saksóknara ríkisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.