Morgunblaðið - 27.05.1968, Side 10
10
MORGUNRLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 19fl«
30 bílar- og ei
Farið um Hafnarfjarðarveg og
Reykjanesbraut i lögreglubíl
Það var lítil sen engin umferð
á Hafnarfjarðairvegi milli kl.
5.20 og 5.40 í gærmorgun og af
hæðinni sunnan Hafnarfjarðar
var engan bíl að sjá svo langt
sem eygt varð eftir Reykjarnes-
brautinni. Við höfðum fengið far
með Lögreglubifreiðinni, sem í
talstöðinni gekk undir nafninu
RL 2 og þegair Erlendur Sveins-
son, stjórnandi fararinnar, hafði
kannað veginn, sneri hann við
og tekin var staða við mót Hafn-
ar og Álftanesvegar. Við hlið Er
lendar sat Oddur Eiriksson lög-
reglumaður nr 177 — og þetta
var fyrsti dagur hans í starfi,
en hann starfar í afleysingum í
sumar, en les annars læknisfræði
í Háskólanum.
Kl. 5,42 fór leigubifreiðin Y-878
suður á bóginn. í aftursæti sátu
piltur og stúlka og héldu fast
hvort utan um annað. Það var
einhver „hátíð“ hjá þeim líka.
Kl. 5.45 kom G. 4202 fra Hafn
arfirði. Ökumaðurinn nam staðar
hjá okkur, ræddi við lögreglu-
þjóninn og ákvað að bíða breyt-
ingarinnar þarna- Hann notaði
tímann til að bóna bílinn sinn.
Þarna var á ferð Jónas Guð-
laugsson, tæknifræðingur hjá
Rafveitu Hafnarfjarðar.
— Mér lízt ágætlega á þessa
breytingu. Ég fékk undanþágu
til aksturs, því ég var ákveðinn
í að sjá með eigin augum og
Erlendur Sveinsson og Oddur Eiriksson — með bros á vör. —
við RL-2. (Ljósm. Kr. Ben.)
reyna sjálfur hvernig breyting-
in gengi fyrir sig. Mér lízt vel
á að aka á hægri kanti.
Frá Reykjavík kom um svip-
að leyti leigubíll frá Bæjarleið-
um og ók Jóhann Þorgilsson.
Hann kvaðst hafa ekið í 25 ár,
lengst af stórum áætlunarbílum
og flutningabílum, en Jóhann er
frá Ólafsvík. S.l. 2% ár hefur
hann verið leigubílstjóri í
Reykjavík.
— Mér lízt prýðilega á breyt-
inguna og tei hægri akstur hafa
ýmsa kosti framyfir vinstri hand
ar akstur.
Nú biðu þeir hvor á sínum
kanti Jónas tæknifræðingur og
Jóhann leigubílstjóri. K1 5.53
skiptu þeir yfir á hægri kant —
og síðan kom Jóhann og bauð
öllum viðstöddum brjóstsykur í
tilefni dagsins. Síðan var beðið
til kl. 6 og þá héldu þeir áfram
ferð sinni, en við biðum um stund
hjá lögraglumönnunum.
K1 6.02 kom fyrsti bíllinn sunn
an Reykjanesbraut og sveigði
til Hafnarfjarðar. K1 6.04 kom
Jónas tæknifræðingur aftur til
baka og ók heim á leið. Á sama
tíma komu fjórir leigubílar úr
Hafnarfirði í röð og óku í norð
urátt til Reykjavíkur. Enginn
farþegi var í þeim og innan
stundar komu þeir allir aftur —
og höfðu aðeins verið „á æfingu“
Nú tók heldur að fjölga bíl-
um úr báðum áttum og alls fóru
23 bílar þarna um fyrsta stund-
arfjórðung hægri handar akst-
urs á Íslandi. Flestir voru í „æf-
ingaferðum", leigubílar og und-
anþágubílar Allir óku afar gæti
lega og vel, einkum á gatnamót-
unum.
Þarna flaug svo þyrlan yfir
kl. 6.10 með lögreglustjóra og
dómsmálaráðherra innanborðs og
hvarf í suðurátt.
GILLETTE KYNNIR
NÝJU TECHMATIC RAKVÉLINA
1. Rakvélin er sérstaklega stilR fyrir
enn þægiiegri rakstra. Hún er
léttari, svo átakið verður minna, og þvi
hverfandi hætta á að skera
sig. Húð yðar finnur
örugglega mismuninn.
4. Þetta rakband.úr ryðfríu
stáll, er minna en helmingi
þynnra en venjulegt rakblað.
Því hefur það beittari
egg og gefur betri rakstra.
Það er ekkl af ástæðulausu, að þér væntið nýrra
hugmynda frá Gillette, því Gillette fann upp rakvélina, rak-
blaðið úr ryðfría stálinu og nú Techmatic rakvélina. í stað
rakbiaðs þefur Techmatic rakvélin sámfellt rakband úr
ryðfríu stáli. Þetta er algjörlega ný rakstursaðferð.
Reynið þetta með Gillette Foamy rakkreminu í loftþrýsti-
brúsunum, þá munið þér ekki vera í vafa um, að það
bezta er ávallt Gillette.
5. Rakbandið er f
lokuðu hylki. Allt og
sumt er að smella
hylkinu í rakvélina,
og hún er tilbúin tU
notkunar.
Gillette Techmatie - og aldrei þart ai skipta um rakblöS framar
Síðan ók Erlendur af stað suð
ur nýja veginn — gæzlusvæði
hans og Odds nýliða þennan
sögufræga H-dag.
„Þetta er nú bara ekkert sárt“
sagði Erlendur, er hann hafði
ekið um km. leið á hægri kanti.
Við Hafnarfjörð mættum við
Birni Jóhannssyni vegaverk-
stjóra og kom í ljós að umdæmi
hans er ekki smávaxið. Hann hef
ur eftirlit með Reykjanesbraut
ÉIMMiísMiii
Sigdór Sigurðsson í gjaldskýlinu
og Suðurnesjavegum svo og Aust
urvegi að Kambabrún og
Þrengslaveg.
— Við vorum hér 7 í nótt með
3 bíla að færa merkin og er því
lokið, nema H-merkin verða ekki
sett upp fyrr en í vikunni.
— Ég hef séð um Suðurnesja-
vegina í 20 ár, en skemur um
vegina næst Reykjavík, sagði
Björn.
— Og hvernig lízt þér á hægri
aksturinn?
— Pérsónulega hefði ég helzt
ekki vilja skipta, því 37 ára
vani í vinstri umferð er þar
þyngstur á metaskálum. Samt
hefði ég greitt atkvæði með
hægri umferð vegna framtíðar-
innar.
Sunnar mættum við bíl með
VL númeri. Hann fékk ljósme-rki
um að stöðva. Hann var inntur
eftir undanþáguheimild — og
hafði hana í sætinu við hlið sér.
Hann var líka látinn sýna öku-
skírteini og hafði ein 3-4 slik
frá Bandaríkjunum.
Erlendur sagði eftir á, að
stjórnendur bíla vamarliðsins
væru afar kurteisir í umferðinni
og hlýddu vel boðum og bönn-
um. Þeir virtu hraðatakmarkan-
ir yfirleitt betur en íslendingar.
Erlendur sagði að mjög vel
yrði með því fylgst að hraðatak-
markanir yrðu haldnar áReykja
nesbrautinni og yrði radartæki
lögreglunnar m.a. notað. Nokk
ur brögð hefðu verið að því að
menn ækj-u þennan greiðfæra
veg of hratt, en verst væri, þeg-
ar menn á bremsulausum bíl-
um væru komnir langt yfir há-
markshraða. Það væru hættuleg
ustu menn umferðarinnar, sem
slíkt kæruleysi sýndu.
Annans sagði Erlendur að
margir þeirra, sem ækju þennan
góða veg daglega væru vanir í
hægri umferð erlendis frá og því
yrðu viðbrigði ekki mikil fyrir
þá.
Á leiðinni suður á Flugvallar-
veg mættum við einungis 7 bíl-
um, sem allir óku af fyllsta ör-
yggi-
Lögreglan á Keflavíkurvelli
sagði að þar hefði breytingin
gengið mjög vel. Öll merki hefðu
verið færð á réttum tíma, umferð
hefði verið lítil, en ör.ugg og góð.
Það var tekið að rign-a nok'k-
uð, er við héldum í átt til Reykja
víkur á ný. Umferðin var enn
mjög litil. Nokkru noiðan Vatns
leysustrandarvegar mættum við
gömlum manni á hjóli. Þetta
Jón Helgason með hjólið sitt.
kvaðst Erlendur ekki hafa séð
áður, nema í grenn-d við bæina
— og við tókum manninn tali.
— Jón Helgason kvaðst hann
heita og búa í Hafnarfirði. Hann
var á leið til systur sinnar á
Vatnsleysuströnd, en þaðan
væri hann ættaður.
— Jú ég hef ekkert á móti
hægri akstrinum svoleiðis, en ég
kunni þó alltaf vel við mig
vinstra megin vegarins. En ég
var úti í Danmörku fyrir löngu
og lærði þá hægri aksturinn, svo
mér er ekkert að vanbúnaði.
— En það er dásamlegt að
hjóla svona veg. Hver skyldi
hafa trúað að svona vegur ætti
eftir að koma hér um hraunið.
Hérna smalaði ég á árum, áður,
svo ég þekki umhverfið. Og svo
sté Jón á hjólið og hjólaði hinn
reffilegasti — á hægra kan-ti.
f gjald-skýlinu, sem nú er
komið á miðjan veginn, var Sig-
dór Sigurðsson á vakt. — Þetta
er lítil umferð, sagði harun, óskop
venjuleg sunnudagsumferð að
morgni. En þetta vex er á líður
og kemur fram á daginn.
— Nú eiru Ameríkanarnir án-
ægðir. Og ég held að ég kunni
einnig vel við breytinguna. Ég
tók smáæfingu áður en ég kom
á vaktina kl. 7. Og mér féll
þetta vel.
— Hver er mesta dagsumferð
um veginn hér?
— Það var 15. maí í fyrra að
hér fór 1761 bifreið um veginn
sama daginn. Þá var í nógu að
snúast, sögðu þeir félagar í skýl
inu.
Bíla bar að sunnanað og einn
bíl.stjóranna hafði farið suður-
eftir seint í gærkvöldi og greitt
tollinn þá — og var nú aftur
rukkaður á leið til Reykjavíkur,
því innheimta gjaldsins breytt-
ist á þá leið við H-daginn. Hann
var með . tómt veski og kvaðst
óánægður með að greiða vega-
toll á báðum leiðum. Hann fékk
það svar að rukkunaraðferð þessi
væri fyrirskipuð af ráðuneytinu
og þeir í skýlinu yrðu að hlýða.
Loks fann maðurinn bandarísk-
an dal í veski sínu og komst á
honum í gegn.
Að skýlinu kom einnig Guð-
mundur Ingólfsson, sjúkrahús-
ráðsmaður í Keflavik. Hann
kvaðst ánægður með breyting-
una og kvað hana sér auðvelda,
því han-n hefði kynnst hægri um
ferð erlendis. Nú var hann á
leið til Reykjavíkur til að fara
á hestbak. Hann kvað breyting-
una ekki erfiðari en þegar
skipt væri um tromplit í bridge.
— en bridgemaður er Guðmund
ur mikill.
Ökuför okkar með RL 2 var
senn lokið. Hún teygðist þó að
kirkjugarðinum í Fossvogi, því
Erlendur og Oddur vildu skila
okkur af sér í næsta lögreglu-
bíl, sem tæki okkur til bæjar-
ins. Það tókst fyrir góð orð —
en Erlendur og Oddur héldu aft
ur suður á við. Þar var þeirra
svæði á H-dag.
Þeir brostu ?nn einu sinni til
okkar. en brosmildir höfðu þei-r
verið frá því við hitti’m þá um
5 leytið um morgunirn. Vonandi
þurf'’ þeir ekki að f.ást við marga
ökuþóra fyriir of hraðan akst.ur.
Þá k^nnu þier að mi'"a brc-'ið.