Morgunblaðið - 27.05.1968, Blaðsíða 14
14
MORGUNELAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1968
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttastjóri:
Auglýsingastj ór i:
Ritstjóm og afgreiðsla:
Auglýsingar:
flausasölu:
Áskriftargjald kr. 120.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
Kr. 7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
VEL AF STAÐ FARIÐ
í HÆGRI UMFERÐ
Ijegar þetta er skrifað, er
ekki annað að sjá en um
ferðarbreytingin hér á landi
ætli að takast vel. Er það
mjög gleðilegt hve margir
hafa lagt hönd að verki í því
skyni að koma í veg fyrir
slys og stuðla að því að unv
ferðarbreytingin geti farið
fram eins snurðulaust og raun
ber vitni. Sem betur fer hef-
ur ekkert alvarlegt slys orðið
og er vonandi að svo verði
áfram. Fólk fer yfirleitt var-
lega, en þó aka einstaka bíl-
stjórar of hratt og eru ekki
nógu tillitssamir. Yfirleitt eru
menn rólegir og þolinmóðir
og umferðarstjórn lögreglunn
ar er til sóma.
Áreiðanlega hefur það ver
ið rétt stefna að hvetja fólk
til að fara eins fljótt út í um
ferðina og unnt var, því að
ekki þarf að aka lengi á
hægri kanti til að losna við
kvíðann, sem bjó um sig
fyrir umferðarbreytinguna.
Meðan allir eru óvanir
hægri umferð er meiri von til
þess að jafnt ökumenn sem
gangandi fólk gæti ýtrustu
varúðar og veiti samborgur-
um sínum þá hjálp og aðstoð
í umferðinni, sem nauðsyn
krefur.
Þá má einnig fullyrða, að
það var rétt stefna að hvetja
fólk til að brosa í umferðinni;
það hefur létt skapið og bætt
hugarfarið, en létt skap stuðl
ar áreiðanlega að því að losa
fólk við kvíða og koma því
yfir byrjunarörðuleika. En
léttleiki er ekki þjóðarein-
kenni íslendinga. Fréttamenn
ríkisútvarpsins eiga þakkir
skildar fyrir það á hvern hátt
þeim tókst fyrstu klukkutíma
umferðarbreytingarinnar að
ýta undir þessa brosmildi veg
farenda með léttri kímni, sem
jafnvel hafði áhrif á ást-
fangna stokkandarsteggi.
Þó að margir hafi verið úti
að aka hér í Reykjavík í gær-
dag, gekk umferðin svo
snurðulaust, að fullyrða má,
að til fyrirmyndar sé á marg*
an hátt. Er vonandi að sú urt»
ferðarmenning, sem flestir
vegfarendur sýndu á götum
borgarinnar í gær, megi ríkja
þar áfram, svo að okkur tak-
ist að stórfækka slysum og
óhöppum, bæði hér í höfuð-
borginni og einnig á vegum
úti á Iandi. í því sambandi er
nauðsynlegt að benda á, að nú
má enginn sofna á verðinum
og hugsa sem svo, að öll
hætta sé liðin hjá. Þvert á
móti þarf að hafa aukið að-
hald á vegum úti í allt sumar,
því að mest verður hættan
þegar vegfarendur fara að
slaka á, og þá einkum úti
á þjóðvegum í sumarumferð
inni.
Hvítasunnuhelgin er fram-
undan. Þá er nauðsynlegt að
leggja mikla áherzlu á að
hvetja fólk til áframhaldandi
varkárni í umferðinni. Öll
verðum við að leggjast á eitt
um það að þeir fjármunir og
sú mikla fyrirhöfn, sem lögð
var í umferðarbreytinguna
megi koma að sem beztum
notum, svo að nú skapist hér
umferðarmenning, sem við
getum í senn verið stolt af og
notið góðs af í fækkandi um
ferðaróhöppum.
Morgunblaðinu þykir á-
stæða til að þakka þeim fjöl-
mörgu aðilum, sem undirbú-
ið hafa og framkvæmt um-
ferðarbreytinguna. Strengj-
um þess öll heit að standa
vörð um þann árangur, sem
náðst hefur, höldum áfram að
brosa í umferðinni, og muna
að við erum öll byrjendur
hægri umferð.
ÞATTUR
KOMMÚNIST A
Cá blettur var á H-deginum,
^ að nokkrir kommúnistar
reyndu að efna til skrílsláta
og bundu með því um tíma
allmarga lögreglumenn við
eftirlit með þessu tiltæki og
hindruðu þá þannig í að geta
sinnt umferðarstjórn. Sýndi
þftssi skríll enn sitt rétta and-
lit. — Þeir gnístu tönnum,
þegar aðrir brostu.
Jóhann Hafstein, domsmálaráðherra, og Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri, fara í skoSun-
arferð í þyrlu um Reykjavík og nágrenni um kl. 6.15 árdegis til að fylgjast með umferðar-
breytingunni. Flugmaður var Björn Jónsson, sem lenti þyrluni á þaki nýju lögreglustöðvar-
innar. Ljósm. Ól.K.M.
Nýtt stig í umferðarmenningu
— segir Jóhann Hafstein, dómsmáHaráðherra
MÉR finnst að þessi fyrsti
dagur hægri umferðar á ís-
landi gefi góðar vonir um, að
með breytingunni hafi skap-
azt nýtt og betra stig í um-
ferðarmenningu okkar, sagði
Jóhann Hafstein, dómsmála-
ráðherra, þegar Morgunblað-
ið hafði tal af honum seint í
gær.
Breytingin sjálf fór í stór-
um dráttum mjög vel og skipu
lega fram og tókst betur en
nokkrar vonir höfðu staðið
til. Fólk varð að gera ráð fyr-
ir margvislegum erfiðleikum
í upphafi þessa stóra átaks og
ég held, að segja megi, að all-
ir hafi lagzt á eitt við að láta
breytinguna fara fram eins
snurðulaust og kostur var á.
Þá kom einnig vel í ljós,
hversu vel undirbúin breyt-
ingin var af hálfu allra þeirra
sem um það mál sáu.
Hvað mig sjálfan áhrærir,
fannst mér skiptingin yfir í
hægri umferð að mörgu leyti
auðveld. Vissulega voru ýms
atriði annarleg í fyrstu, en
það sem hjálpaði svo vel,
voru góð löggæzla, vel merkt-
ar götur, og skipulagt um-
f erðarmerkj akerfi.
Ég var á flugi yfir borg-
inni, þegar breytingin átti
sér stað, og það var mjög
skemmtilegt að fá svo góSs
yfirsýn yfir mjög samstillta
framkvæmd, sem umferðar-
breytingin vissulega var.
Bjartsýnn á að breytingin
takist vel.
Strax klukkan sjö í gær-
morgun, þegar umferðar-
banninu var aflétt, opnuðu
dómsmálaráðherra borgar-
stjóri og lögreglustjóri hina
almennu umferð í borginni.
Síðari hluta dagsins náðum
við svo tali af Geir Hallgríms
syni borgarstjóra, og báðum
hann að segja álit sitt á þess-
um fyrsta degi hægri um-
ferðar á íslandi.
— Mér virðist umferðar-
breytingin hafa gengið fram-
ar öllum vonum, sagði Geir,
og að fenginni reynslu fyrsta
dagsins er ég bjartsýnn á að
breytingin takizt vel. En Ijóst
er að mikillar varúðar er þörf
í umferðinni áfram, ekki hvað
sízt núna fyrstu dagana eftir
hreytinguna.
Kannski má segja, að mér
hafi fundizt þessi dagur vera
hvorttveggja í senn — hátíðis
dagur vegna sjómannadagsins
og H-dagsins, þegar allir
borgarbúar fóru út á götur
borgarinnar — og um leið
allsherjar skóli, þar sem íbú-
arnir gengu allir undir próf
að beita reglum þeirn, sem
hægri umferð er samfara.
Sérstaklega þótti mér lær-
dómsríkt að fljúga yfir borg-
ina á áttunda tímanum í
morgun og sjá hve mikið líf
var þá þegar á götunum svo
árla sunnudags. Þótt umferð-
in hafi stöðugt aukizt, þegar
á daginn leið og oft hafi menn
þurft að taka á þolinmæðinni,
verður ekki annað sagt en
reynsla dagsins sé ánægjuleg,
og Reykvíkingar staðizt próf-
ið með sóma, og ég held að
ekki sé fullsnemmt að þakka
lögreglunni og öllum þeim,
sem undirbjuggu þessa um-
fangsmiklu . umferðarbreyt-
ingu fyrir árangursríkt starf.
Þar á meðal hlýt ég að þakka
sérstaklega þeim borgar-
starfsmönnum, sem lagt hafa
á sig mikið starf vegna breyt-
ingarinnar.
Lögreglan þakkar vegfarend-
um þolinmæðina.
Sigurjón Sigurðsson, lög-
reglustjóri, var að koma úr
eftirlitsflugi á þyrlunni og
lenti á þaki lögreglustöðvar-
innar um kl. 5 síðdegis, er
fréttamaður Mbl. náði snöggv
ast tali af honum. En þyrlan
hafði verið notuð til mikils
hagræðis allan daginn, til að
fá yfirlit yfir umferðina, að
því er lögreglustjóri sagði.
Rétt fyrir kl. 6 flaug þyri-
an með Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra, og mig
yfir Reykjavík, Kópavog og
Hafnarfjörð. Sá ráðherrann
þannig yfir 3 lögsagnarum-
umdæmi. Fylgdumst við með
tilfærslu bílanna og því þeg-
ar hægri umferð hófst. Það
var mjög fróðlegt og virtist
allt fara vel. Að þyrluferðinni
lokinni fórum við þrír, dóms-
málaráðherra, borgarstjóri og
ég, út í umferðina akandi, til
að reyna H-umferð. Ókum
við um bæinn í hálftíma.
— Nei, nei, við höfðum
enga sérstaka þjónustu. Ég
var t.d. í einkabíltúr með
konu minni. Þá fór ég með
Geir Hallgrímssyni, borgar-
stjóra í stutt þyrluflug, til
að fá yfirlit yfir borgina í H-
umferð. í kvöld munum við
Óskar Ólason, yfirlögreglu-
þjónn fara á þyrlunni austur
Framh. á bls. 15
Kl. 7 árdegis var umferðarbanni aflétt og hér leggur Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri, af stað í fyrstu ökuferð sína í H-
umferð.