Morgunblaðið - 27.05.1968, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1968
15
Heillavænlegt ef allir eru samtaka
- Spjallað við tvo elziu umferðarverðina
I GÆR þreyttu umferðarverð
ir sína fyrstu prófraun. Þeir
hafa sem kunnugt er stundað
námskefð að undanförnu í því
skyni að tryggja öryggi gang-
andi fólks í umferðinni fyrstu
vikuna eftir breytinguna yfir
í hægri akstur. Þeir eru auð-
þekktir á hvítum ermahlífum;
þetta er fólk á öllum aldri og
úr öllum stéttum og vinnur
þetta verk sitt sem sjálfboða-
liðar. Tveir umferðarverðir
hljóta þó að vekja sérstaka
athygli okkar. Það eru Sigríð-
ur Þorláksdóttir, fyrrverandi
tannsmiður, 82 ára gömul, og
Meyvant Sigurðsson, sem er
orðinn 74 ára og starfar nú
sem dyravörður í Háskólabíói.
Fyrir Meyvant er þetta líka
merkisár í umferðinni fyrir
aðrar sakir en breytinguna til
hægri, því áð í þessum mán-
uði eru einmitt liðin 50 ár
síðan hann tók bílpróf.
Aldursforseti umferðar-
varða mun vera Sigríður Þor-
láksdóttir. Hún stendur á
horni Hverfisgötu og Vita-
stígs og er nýtekin við sinni
vakt þegar blaðamann ber að.
Umferð bíla er mjög stríð, en
vegfarendur fáir á þessum
slóðum og á þessum tíma
dags.
— Hvernig stóð á því að
þér tókuð að ýður þennan
starfa, Sigríður?
— Ég hef alltaf haft áhuga
á, að tryggt verði öryggi í um
ferð bæði á landi og sjó, og
reynt að leggja mitt af mörk-
um til að komið verði í veg
fyrir slysin. Ég er ævifélagi í
Kvennadeild Slysavarnafélags
ins og ég er hér innan þess
verksviðs. Og það var auglýst
svo mikið eftir fólki í þetta,
að ég ákvað a'ð gefa mig fram,
þótt ég sé orðin þetta gömul
og heilsan ekki sem bezt. Já,
hér ætla ég að vera tvo tíma
á dag í heila viku, ég reyni
það að minnsta kosti, nú og
ef það gengur ekki, þá dett-
ur maður bara og einhver tín-
ir mann upp. En ég er upp-
alin við að kvarta ekki og
falla ekki meðan ég get stað-
ið. En sálin er heilbrigð og
það bjargar mér.
— Og hvernig lízt ýður á
breytinguna yfir í hægri um-
ferð?
— Mér lízt ekkert illa á
hana. Þetta er ekki svo flókið
ef fólk hefur bara vilja til að
gera skyldu sína og fara eftir
lögum og reglum, en það er
því miður svo oft misbrestur
á því og þó hefur margt
breytzt til batnaðar á
undanförnum árum. Rétti
gangandi fólks var oft
freklega misboðið hér áð-
ur, t.d. við hornið á Banka-
stræti og Ingólfsstræti. Þar
mátti maður standa tímunum
saman áður en hægt var að
komast yfir götuna. Ég vakti
máls á þessu atriði á Slysa-
varnaþingi fyrir 10-árum,
en þá var ekkert farið að
hugsa fyrir þessum málum.
Og akreinaskiptingin hefur
líka bætt úr mörgu. Mér
finnst líka, að umferðareftir-
litið hafi batnað, þó það
mætti svo sem batna enn, en
það er kannski skiljanlegt
að lögregluþjónum finnist
ekki skemmtilegt að vera all-
af að siða fólkið. En það er
samt nauðsynlegt til að
tryggja öryggið. Ég kynntist
dálítið umferðarvandræðum
meðan ég bjó í Danmörku á
árunum 1920-24, en þá var
ég ung og gat svo oft hjálpað
gömlu fólki yfir götu. En
ekki held ég ,að þeir séu lög-
hlýðnari bílstjórrnir í Dan-
mörku en hér. Meyvant
— Akið þér sjálf bíl?
— Nei, það geri ég ekki. En
ég hef þá trú, að þetta verði
heillavænlegt, ef allir eru sam
taka. í að gera skyldu sína,
bæði þeir sem ganga og þeir
sem aka.
— Og þú ætlar
hér þína vakt alla
— Já, já, ég er
vera á námskeiði
að standa
vikuna?
búinn að
hjá þeim
fer enginn að garfa í því héð-
an af enda engin lög til yfir
það í þá daga. Prófið tók ég
hér í Reykjavík og prófdóm-
ari var Jessen, skólastjóri Vél
stjóraskólans. Hann var fyrsti
prófdómari í akstri hér á
landi. Það hefur margt
breytzt síðan ég fór að keyra,
mikil ósköp, þá voru allir veg
Sigurðsson gætir umferðar við Iiringbraut.
Sigríður Þorláksdóttir
og Vitastígs.
mótum Hverfisgötu
A horni Furumels og Hring-
brautar stendur Meyvant
Sigurðsson. Umferð um
Hringbrautin framhjá Elli-
heimilinu er sleitulaus og það
er ekki laust við að nærstadd
ur lögregluþjónn gefi blaða-
manni auga, þegar hann tek-
ur Meyvant tali mitt í önnun-
um, en öll brosum við nú
samt.
— Hvernig gengur hér,
Meyvant?
— Þetta er allt ósköp frið-
samt og skikkanlegt. Bílstjór-
ar taka fullkomið tillit til
vegfarenda. Þeir stoppa undir-
eins og þeir sjá, að einhver
þarf að komast yfir götuna
og umferðin er hæg eins og
þú sérð, nú svo er hér lög-
regluþjónn sem passar upp á
mig.
og mér finnst ég hafa haft
gott af því. Ég hef kynnzt
hægri umferðinni og þeim
breytingum, sem henni
fylgja, mér finnst ég ókvíðn-
ari að fara að keyra sjálfur.
Nú kann ég alveg á tilhögun-
ina.
— Það sést ekki mikil
hreyfing hjá Elliheimilinu.
— Nei, gamla fólkið er hlé-
drægt í dag, það virðist ætla
að fara rólega í sakirnar.
Ætli það haldi sig ekki mik-
ið inni í dag og bíði heldur til
morguns. Það veit að umferð
er meiri en yant er og bílstjór
ar eru úti í æfingaferðum.
— Og í ár eru liðin 50 ár
síðan þú tókst bílpróf?
— Já, ökuskírteini mitt er
rétt liðlega fimmtíu ára, —
og Meyvant dregur upp skír-
teinið. — Það er gefið út 8.
maí 1918. Ég tók próf, þegar
ég eignaðist fyrsta bílinn
minn, en ég var þá búinn að
keyra próflaus í tvö ár, já,
þú mátt vel segja frá því, það
ir sundurskornir eftir hesta-
kerrur og fyrstu vörubílarnir
hlífarlausir svo að maður
varð að galla sig upp við stýr
ið. Ég starfaði sem bílstjóri
bæði hér og á Austurlandi.
Þeir fengu mig austur til að
keyra og ég er talinn fyrsti
bílstjórinn, sem keyrði Fagra-
dalinn. Þá fór ég milli Reyð-
arfjarðar og Egilsstaða fyrir
kaupfélagið. Það var árið
1920.
— Hvernig stóð á að þú
bauðst þig fram, sem um-
ferðarvörður?
— Ja, það kemur fyrir að -
ég fæ köllun. Ætli ég hafi
ekki fundið til þjóðfélags-
skyldunnar. Heyrðu, er ég
aldursforsetinn?
— Nei, aldursforsetinn er
kona, 82 ára.
— Hvað segirðu!
— Finnst þér það verra,
Meyvant?
— Nei, nei, ég óska henni
langlífis og alls góðs. Ja,
hvaða helvíti er hún snjöll!
Slökkviliðið aefði H-aksfur
meðan umferðarbannið stóð
— Nýtt stig
Framh. af bls. 14
í Árnessýslu, og munum
reyna að fljúga einnig yfir
Akranes. Þyrluna munum
við hafa áfram. Það munar
miklu. Þannig höfum við líka
möguleika á að flytja lið á
einhvern stað ef á þarf að
halda. Og eins getum við flutt
í henni radarinn okkar, til að
mæla ökuhraða.
— Svo menn eru ekki leng-
ur öruggir austur í Suður-
sveit, þar sem piltur var tek-
inn fyrir of hraðan akstur á
mótorhjóli?
— Einmitt! Nú veltur á að
allir haldi réttum hraða.
— Hvernig hefur yður lit-
izt á umferðarskiptin, lög-
reglustjóri?
— Við teljum að þetta hafi
gengið vel. Finnst að fólk
hafi brugðizt mjög vel við að
fara út að æfa sig. Því er
ekki að neita, að umferðin
hefur gengið hægt, einkum í
sambandi við nýju götuvit-
ana. En unnið hefur verið við
að stilla þá í dag. Lögreglu-
menn hafa unnið mjög gott
starf. Þeir hafa staðið langar
vaktir, nær allir helmingi
lengri en venjulega. Umferðar
verðirnir hafa staðið á sínum
stað með sóma og stutt okkur
vel. Þeir hafa hjálpað gang-
andi fólki og minnt á að hér
er nokkuð sérstætt á ferðinni.
Og lögreglan vill þakka veg-
farendum þolinmæði þeirra
og hve vel þeir hafa tekið
þessu öllu.
Höfðaborg, 25. maí — AP
PHILIP Blaiberg, hjartaþegi, sem
iang lengst hefur lifað með að-
komuhjarta, yar fluttur til Groote
Schuur sjúkrahússins á föstu-
dag til almennrar skoðunar og
eftirlits. Þær sögur komust þeg-
ar kreik, að Blaiberg væri
hættulega sjúkur. Læknar við
sjúkrahúsið bera þær fréttir til
baka og segja að heilsa Blai-
bergs sé prýðileg.
Keflavík:
H-UMFERÐ hér í Keflavík hófst
eins og til stóð með umferðar-
stöðvun frá klukkan 3-7. Á
þessu tímabili voru 3 bílar stöðv-
aðir, en þeir höfðu ekki und-
anþágu til aksturs. Eftir alls-
herjarstöðvunina 10 mín. fyrir
klukkan 6 í morgun fóru slökkvi
liðsbílarnir út á götur bæjarins
til æfinga og var ekið um bæjar-
svæðið í hart nær eina klukku-
stund. Strax eftir að umferð var
leyfð aftur klukkan 7, fór að
færast fjör í umferðina. Leigu-
bílarnir fóru þá þegar af stað í
nokkurskonar kynnisför og fóru
um erfiðustu beygjur og
kynntu sér merkjasetningar,
einstefnuakstur, bílastæði o.fl.
Smátt og smátt jókst umferðin
og tóku einkabílar að bætast við
til æfingaaksturs. Síðdegis þegar
þetta er skrifað hefur allt farið
fram vel og skipulega og óhappa
laust með öllu, enda hafa allir
virt hraðatakmarkanir að fullu.
Umferðarverðir komu út á göt-
urnar klukkan 10 og eru þeir
alls 66 talsins, einkum frá
Björgunsveitinni Stakkur, skátar
og ungtemplarar svo og nokkrir
einstaklingar buðu fram þjón-
ustu sína. Hér var uppsetningu
umferðarmerkja lokið á tilsettum
tíma. Voru sett upp yfir 300
merki af öllum gerðum. Götur
voru strikaðar, gangbrautir mál-
aðar og vegabrúnir málaðar.
Aðal breytingin hér er, að
fjölgað hefur verið einstefnu-
akstursgötum, bílastöður við
ýmsar miklar umferðargötur
bannaðar, og tímatakmörkun
miðað við hálf tíma á nokkrum
helztu bílastæðunum. Allur und-
irbúningur af bæjarins hálfu
var mjög vel af hendi leystur.
12 lögregluþjónar, eða allt lög-
reglulið bæjarins, ásamt bif-
reiðaeftirlitsmönnum voru að
störfum frá því klukkan 3 að-
faranótt H-dagsins. Mikil bíla-
umferð í sambandi við sjó-
mannadags hátíðahöldin voru á
hafnarsvæðinu, en allt fór fram
slysalaust þótt þar væri mikil
þröng um tíma. — Helgi S.
RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA’SKRIFSTOFA
SÍMI 10*100