Morgunblaðið - 27.05.1968, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1968
19
Breytingin úti á landi gekk vel
BREYTINGIN í hægri umferð
gekk yfirleitt mjög vel um allt
iand. Um hádegi í gaer var vitað
um tvö smáóhöpp, sem þó voru
svo óveruleg, að vart tekur að
nefna þau. Einn ökumaður var
tekinn snemma dags á 90 km
hraða á klukkustund á Kefla-
víkurveginum, en þar er nú
hraðatakmörkun í gildi, 60 km. á
klukkustund. Eftirfarandi upp-
lýsingar fékk Mbl. frá Fram-
kvæmdanefnd hægri umferðar í
gær og eru þær hafðar eftir er-
indrekum nefndarinnar umhverf
is Iandið.
Vestfirðir.
Á Vestfjörðum rann H-dagur
upp bjartur og fagur og alls-
staðar sól og blíða. Umferðin
þar hefur gengið ágætlega og
verið algjörlega án óhappa. Bú-
ið var fyrir breytinguna að færa
öll umferðarmerki hvarvetna á
Vestf jörðum. Á ísafirði hefur ver
ið mikil umferð í morgun og þar
varð þegar mikil umferð strax
kl. sjö. Á Flateyri hefur verið
heldur meiri umferð en venju-
lega, og þar fór umferðin al-
mennt í gang um tíu, en á Suður
eyri fór umferðin í gang um níu
en þar urðu nokkrar breytingar
á umferðarskipulaginu. Á Þing-
eyri hefur verið lítil umferð í
morgun, en á Patreksfirði tóku
menn daginn snemma og byrj-
uðu margir að aka strax upp úr
kl. sjö. Þar gátu menn ekki bet-
ur séð, en að kindurnar hefðu
breytt um umferð líka, því um
sex var kindahópur á vinstri
kanti við kauptúnið en klukkan
sjö voru þær allar komnar yfir
til hægri.
Uppsetningu umferðarmerkja
lauk kl. þrjú í nótt í Bíldudal,
en þar eru nú 12 umferðarmerki
en ekkert merki var þar áður.
Umferðin þar hefur verið eðli-
leg. Á Súðavík var sama glaða-
sólskinið og annarsstaðar á Vest
fjörðum og kl. níu var aðeins
einn bíl'l kominn af stað f
Hnífsdal hefur verið minni um-
ferð en venjulega á sunnudags-
morgni, og allt gengið vel. Á
Bolungarvík var flutningi um-
ferðarmerkja lokið kl. hálf sex,
en alls eru nú 35 umferðarmerki
þar, og þar af eru 27 ný. Um
ferðin þar hefur verið meiri en
venjulega á sunnudagsmorgni.
Akranes og nágrenni
Mikil umferð hefur verið á
Akranesi í morgun, en þar var
flutningi umferðarmerkja lokið
fyrstu þrjá tímana í hægri um-
ferð en um níu stytti upp. Menn
eru brosandi í umferðinni á Akra
nesi, og hafa gjarnan lagt bif-
reiðum sínum á þeim stöðum, þar
sem vandinn er mestur í hægri
umferð, og eru þá að horfa á
náungann. Töluvert var um það
á Akranesi í gærkvöldi, að menn
stofnuðu til veðmála um það
hvaða umferðarmerki færu á
stengurnar, sem ekki voru merki
á. Ur Hvalfirði eru þær fréttir,
að þar hafi lítil umferð verið,
og allt gegnið slysalaust.
Borgarf jörður.
I Borgarnesi var strax mikil
umferð á milli kl. 8 og 9 og þar
hefur ekkert sérstakt borið til
tíðinda. Aurbleyta er sumsstað-
ar í vegum í Borgarfirði, en að
öðru leyti eru vegir sæmilegir,
þar er búið að skipta nokkrum
blindhæðum og lagfæra vegi. Lít
itt umferðar úti í sveitunum
og aðeins þrír bílar höfðu farið
fram hjá Hreðavatnsskála kl.
níu. Allsstaðar í Borgarfirði var
búið að færa umferðarmerki fyr
ir kl. sex
Snæfellsnes- Dala- og Austur-
Barðastrandasýsla.
Umferðin á þessum stöðum
virðist ganga mjög vel fyrir sig,
2 bifreiðir höfðu farið fram hjá
Króksfjarðarnesi í morgun, og
var til þess tekið hvað þeir óku
skikkanlega.
Á Búðardal var umferð mjög
lítil framan af í morgun. Hins-
vegar má geta þess, að í Stykk-
ishólmi tóku fyrstu bílar að aka
um 7 leytið.
Yfirleitt er umferð á Snæfells
nesi heldur meiri en gerist og
gengur á sunnudagsmorgni, og
hafa menn gert smáskissur, sem
ekki er orð á gerandi. 24 ný
umferðarmerki voru sett upp í
Ólafsvík til viðbótar þeim, sem
fyrir voru.
Svolítið er kvartað yfir því á
þjóðvegum þar sem þó eru greið
ir yfirferðar, að illa sé jafnað úr
á vegjöðrum, og því verra en
ella að halda sig á vegjaðrinum.
Aðalljós bifreiða nota menn
til áminninga um hægri umferð.
Norðurlandskjördæmi eystra
Engar umferðarfréttir voru
frá Grímsey í morgun, aðara en
þær, að einn eyjaskeggja hafði
farið til Akureyrar, til að kynna
sér umferðina þar. Frá Hrísey
voru heldur engar umferðarfrétt
ir í morgun. í Mývatnssveit
gekk allt eðlilega, og umferðar-
magnið ekkert óvenjulegt. Á
Kópaskeri var búið að færa öll
umferðarmerki fyrir breytingu
og færðin á staðnum sjálfum góð
en slæm á aðvegum. Umferðin
hefur verið meiri en venjulega
þar í morgun. Á Þórshöfn voru
tíu umferðarmerki staðarins á
réttum stöðum kl. sex. Umferð
þar hefur verið lítil í morgun.
Á Raufarhöfn eru líka 10 um-
ferðarmerki, og voru þau á rétt
um stað. þegar hægri umferð
hófst þar, en umferðin hefur ver
ið með venjulegu móti, og ekk-
ert sérstakt borið til tíðinda. Á
Húsavík var umferðarmerkjum
fjölgað úr 28 í 46. Þar var mikið
meiri umferð í morgun en venju
lega, og það helzta sem menn
gerðu rangt í umferðinni var, að
þeir tóku ekki réttar beygjur.
Á Ólafsfirði var búið að færa
og setja upp umferðarmerki fyr-
ir kl. sex, en umferðarmerkjum
fjölgaði þar úr tveim í 26. Um-
ferð hefur verið þar í meðalagi,
en engin slys eða óhöpp, en eft-
irtektarvert að allir gangandi
vegfarendur ganga réttu megin.
Á Dalvík hófst töluverð umferð,
þegar upp úr kl. sjö, og hefur
umferðin verið meiri en venju-
lega þar. Frá Akureyri eru þær
fréttir helztar í morgun, að mik
il umferð hófst þar strax upp
úr sjö, og hefur yerið að aukast
stöðugt fram að hádegi, en ekk-
ert sérstakt borið til tíðinda.
Árnes- og Rangárvallasýslur.
Árnes- og Rangárvallasýslur.
f Árnes- og Rangárvallasýsl-
um fór umferðin almennt í gang
á tímabilinu milli kl. 8-9, höfðu
þá verið flutt öll umferðarmerki
og hafði því verið lokið, áður
en umferð var almennt heimiluð.
Umferðin hefir gengið mjög vel,
engin óhöpp komið fyrir. A Sel.
fossi virðist sem óvaninn í hægri
umferð geri helst vart við sig á
gatnamótum við brúna, og að
menn gæti sín ekki á reglunni
um að veita þeim forgang, sem
koma manni á hægri hönd.
Umferðin gengur ahnennt hæg
ar en áður, og sína menn hver
öðrum fyllstu tillitssemi. Al-
mennt búast menn þar eystra
við, að umferðarþunginn komi
til mað að aukast verulega upp
úr hádeginu.
Menn hafa almennt tekið upp
þann sið, að blikka með aðal-
ljósum, er þeir mæta öðrum öku
tækjum.
Mjólkurbílar frá M.F., fengu
ekki undanþágu til þess að
leggja af stað fyrir kl. 7.00 í
morgun.
Dumbungsveður er fyrir aust
an, með sudda regni.
Suðurnes.
Á Suðurnesjum hefur umferð-
in gengið vel í morgun, og var
búið að færa öll umferðarmerki
fyrir kl. sex, nema í Njarðvík-
unum, þar sem færslunni lauk
um sjöleitið. Umferðin á Suður-
nesjum hefur yfirleitt verið eðli
leg, sumstaðar undir meðallagi,
en annarsstaðar meiri en venju
lega. í Keflavík hefur þó verið
mikil umferð, og beið fólk þar í
bílunum til þess að geta strax
farið að aka klukkan sjö. Virt-
ist kvenfólk vera þar í meiri
hluta. Ekki hefur borið á því,
að ökumenn hegðuðu sér rangt
í umferðinni, nema nokkrir hafa
ekki virt sett hraðatakmörk. í
morgun hefur verið hálfgerður
suddi á Suðurnesjum, en veðrið
að öðru leyti gott.
Austfirðir.
Á Austfjörðum eru vegir víða
slæmir, en óhöpp í umferðinni
hafa engin orðið. Á Egilsstöð-
um fór umferðin almennt í gang
um hálf átta, en ekki er þó hægt
að segja að þar hafi verið mikil
umferð. Færðin er nokkuð góð,
en nokkur hvörf í vegum. Tveir
ökumenn sáust villast yfir á
vinstri kant hér. Á Egilsstöðum
var flutningi umferðarmerkja
lokið kl. 5.00, en merkin eru 16
talsins. Á Bakkafirði laukflutn
ingi umferðarmerkja á tilsettum
tíma, en þar hefur engin umferð
verið í morgun. Má segja, að
allt sé svo að segja ófært, og
allt á floti. Á Borgarfirði eystra
er ekkert umferðarmerki og veg
ir illfærir eða ófærir, á Breið-
dalsvík fór umferðin í gang kl.
átta, og hefur hún verið í meira
lagi. Færð er slæm, en fært þó,
og er það meira en hægt er að
segja um marga aðra staði. Á
Fáskrúðsfirði er ekki búið að
færa tvö umferðarmerki, og um-
ferðin í minna lagi. Færðin þar
er góð. Á Fáskrúðsfirði var einn
ökumaður, sem ekki hafði und-
anþágu stöðvaður í nótt kl.
03.20. Segja má, að hann hafði
verið í hálfgerðum sjúkra- eða
neyðarflutningum, því hann var
að flytja drukkinn mann heim
til sín.
Á Eskifirði vair þó nokkur um
Framíhald á bls. 21
VEUUM ÍSLENZKT
fSLENZKAN IÐNAÐ
Þetta er merkiö sem
tryggir your beztu fötin
Föt hinna velklœddu
Iltlí :g| -«««. \