Morgunblaðið - 27.05.1968, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1968
„Erfiðast að láta breyting
una tolla í kollinum"
„ÞAÐ ER aðalgalliim við þessa
breytingu, hvað manni gengur
erfiðlega að láta hana tolla í
kollinum, troða því inn í koll-
inn, að nú skuli ekið hægra meg-
in, en ekki öfugt“, sagði Sigmar
Guðlaugsson frá Hellu í Rangár-
vallasýslu, þegar við hittum
hann upp hjá Geithálsi um miðj-
an dag á H-dag.
„Ég ók á laugardagsmorgni
til Reykjavíkur frá Hellu gagn-
gert til þess að fá í dag æfingu
í hægri akstri. Ég ók auðvitað
vinstra meginn í bæinn, en ek
svo á sama kanti heim, svo að
ég slít veginum sömu megin. Ég
er líklega búinn að aka 100 kíló
metra 1 dag í æfingaskyni í hægri
umferð. Mér varð aðeins e%iu
sinni á í messunni og fékk bara
bros í staðinn. Og það var mjög
gott að fá þessa æfingu. Ég held
þetta komi fljótt upp í vana“,
sagði Sigmar að lokum.
Rétt þar hjá sáum við bíl úr
Árnessýslu koma úr bænum, og
tókum hjónin tali, sem í honum
voru. Það voru þau Ella og Ág-
úst Jónasson frá Selfossi .
„Mér fannst engin vandkvæði
vera að aka í hægri umferð, en
umferðin var að visu miklu
meiri en maður á að venjast. Ég
get ekki sagt, að mér finnist
mætingar erfiðari eftir en áður.
Svo hef ég ekið í hægri umferð
erlendis“.
Frú Ella bætir við: „Ég er frá
Danmörku, og þótt ég æki þar
ekki bíl, var ég mikið á reið-
hjóli, svo að ég held þetta komi
nokkuð fljótt upp í vana“.
Við Geitháls hittum við einn-
ig fyrir tvo lögreglumenn, sem
voru að koma austan frá Sel-
fossi, þá Steindór Nygaard og
Þóri Steingrímsson.
„Okkur fannst umferðin ganga
greitt,“ sagði Steindór, „og var
hún ekki mikil fyrripartinn, en
hefur verið að þéttast eftir því,
sem á daginn líður.
Engin óhöpp hafa átt sér stað,
en þó skapaðist nokkur hætta
tvívegis við framúrakstur, og þá
einkum vegna þess, að ekið var
fram úr á óheppilegum stað.
En það er óhætt að segja, að
fólk hefur ekið vel og hlýtt hraða
takmörkunum að flestu leyti“.
Eftir að hafa kvatt við Geit-
háls, vendum við okkar kvæði
í kross, og ókum eftir Vestur-
landsvegi allt að verzluninni
Esju á Álfsnesmelum, en þar
stanza yfirleitt bílar, sem koma
frá nágrannasveitum Reykjavík
ur.
Njarðvík
Til sölu nýlegt einbýlishús. Húsið er 3 herb. og eld-
hús, stofa, hol og annað herbergið teppalagt.
FASTEIGNASALAN
Hafnargötu 27 — Kefiavík, sími 1420.
íbúð - Vesturbær
4ra—5 herb. íbúð í nýlegu steinhúsi á bezta stað
í Vesturbænum til sölu.
íbúðin er nýstandsett. Tækifærisverð.
Upplýsingar gefnar á
Lögfræðiskrifstofu
Arnar Clausen og Guðrúnar Erlendsdóttur
Barónsstíg 21.
Hér sjáið þér nokkrar af þeim
endurbótum, sem við höfum gert
á 1968 árgerðinni af
VW 1300 og VW 1500
En ouk þess eru ýmsar aSrar endur-
bætur, sem ekki sjóst ó þessari mynd.
I haust hafa verið gerðar fleiri end-
urbætur á þessum gerðum en nokkru
sinni fyrr.
Fjölmargar þessara endurbóta mi3ast
við að auka öryggi bílsins. I þessu
sambandi. viljum við nefna t.d. Tvöfalt
bremsukerfi. 'O'ryggisstýrishjól. 'Örygg-
isstýrisós. Ný aðalljós, sem eru með
lóðréttum Ijós-glerjum. Tveggja hraða
rúðuþurrku. 'O'ryggisspegla bæði úti
og inni. Hærra staðsetta, lengri og
sterkari fram- og aftur-stuðara.
Við höfum heldur ekki gleymt að
gera bílinn þægilegri. Skemmtileg-
asta nýjungin í þeim efnum, er senni-
lega loftræstikerfið. Þér getið fengið
ferskt loft að vild öðru hvoru megin,
eða beggja megin í bilinn. Aðrar end-
urbætur: — Báðar hurðir eru nú opn-
anlegar með lykli að utanverðu. Ný
gerð úti-hurðarhúna. Benzínófylling-
arstútur er í inngreyptu plássi á hægri
hvalbak og smellilok yfir. Og svo er
12 volta rafkerfi i báðum bessum
gerðum.
Varahluta- og
viðgerðaþjónusta.
jafna vel merkt, svo að ég held,
að ekki komi að sök. Nei, ég er
ánægður með breytinguna. Það
er í flestum tilfellum betra að
aka lítið eitt út af vegi en að
lenda utan í bíl, sem á móti kem
ur, og ætti því mætingar að
koma fljótt upp í vana“.
Að lokum hittum við þá lög-
regluþjóna í Mosfellssveit, Skær-
ing Hauksson yfirlögregluþjón
og Gunnlaug Jóhannsson lög-
regluþjón.
„Umferðin hefur ekki verið
mjög mikil, en drjúg allan dag-
inn“, sagði Skæringur. ,3ugin
slys hafa orðið, hvorki á mönn-
um né ökutækjum. En í nótt hitt
Sigmar Guðlaugsson frá Hellu
Þar hittum við fyrstan að máli
Gunnar Steinþórsson frá Stekkj
argili í Mosfellssveit, og var
hann nýkominn úr Reykjavík.
„Víst fannst mér það skrýtið
að aka á hægri kanti, en vand-
ræðin voru miklu minni, en ég
hafði búizt við. Að vísu aka
menn svo rólega, að vandi er að
dæma eftir þennan dag, hvernig
hægri umferðin gefst. Ég heid
það mæði mest á, þegar tekur
að skyggja og haustveðrin skella
á. Ég var orðinn eins og aðrir
vanur vinstri umferð, og ég var
alveg hlutlaus í deilunum um
umferðarbreytinguna, en ég er Magnús Jónasson frá Stardal.
á því, að hún muni stuðla að
meiri umferðarmenningu hér-
lendis, og þá er til nokkurs unn-
ið“.
Rétt hjá Gunnari hittum við
Magnús Jónasson frá Stardal.
„Hvað hefur þú að segja um
hægri umferðina, Magnús?“
„Ég hef ekki nema gott eitt
um hana að segja. Við erum með
bíla fyrir hægri umferð, og það
ætti að réttlæta breytinguna“.
„Finnst þér erfitt að þræða
vegarbrúnina á þröngum vegum
nálægt heimahögum þínum?“
Nei, en líklega er það nú fyrst
og fremst af því, að þar þekki ég
mig út og inn. Það kynni í fyrstu
að vera erfiðara fyrir ókunn-
uga“.
„Valda ræsin vandræðum?"
„Þau eru auðvitað mjó, en alla
Um 5ð ferm. lmsnæði
fyrir verzlun, léttan iðnað eða skrifstofu er til leigu
á Grettisgötu 29.
Upplýsingar á staðnum eftir kl. 5.
um við heldur ofkátan mann um
kl. 4,30. 'Hann mun sennilega
vera sá síðasti, sem missir öku-
leyfið í vinstri umferð og bíl
sinn úr umferð bremsulausan i
hægri umferð. En annars hefur
þetta alveg gengið snurðulaust".
Og síðan ókum við á lögleg-
um hraða í bæinn, og var þá um-
ferðin í H-unkti í Reykjavík,
og illmögulegt að komast leiðar
sinnar. — Fr. S.
Hestur tU sölu
8-vetra hestur, með öllum
gangi, til sölu. Uppl. í síma
40347.
Ferðafólk
Nú þegar sumarið er komið bjóðum við ykkur
velkomin til okkar.
STAÐARSKÁLI, Hrútafirði.
Heildsölu- og iðnfyrirtæki
Maður með nýjan stationbíl vill taka að sér að
aka út vörum hluta úr degi eða vissa daga.
Viðkomandi er kunnugur viðskiptalífinu og getur
því annazt bankaviðskipti eða hliðstæða þjónustu.
Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkt:
„Hagkvæm viðskipti — 8983“.
Til leigu
Til leigu er 4ra herb. íbúð í Austurborginni. Leigist
með húsgögnum. Leigutími um 1 ár.
Tilboð merkt: „Leiga — 8732“ sendist MbL fyrir
2. júnL