Morgunblaðið - 27.05.1968, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 27. MAÍ 196«
„Eins og sólmyrkvinn
hérna um árið“
„MUNIð þið eftir sólmyrkv-
anum héma um árið?“, spurði
bílstjórinn okkar um leið og
hann ók yfir á hægri kant-
inn laust fyrir klukkan sex
í gærmorgun. „Ég held ég
finni til sömu undarlegu
kenndarinnar og þá“, hélt
hann áfram. Skömmu síðar
hófst hægri umferð á íslandi.
í>egar við höfðum ekið
nokkra stund á hægri kant-
inum, til að átta okkur upp
á nýtt, fórum við út úr bíln-
um og héldurn ferð okkar
áfram fótgangandi. Athygli
okkar beindist aðallega að
Miklubrautinni. Reykvíking-
ar virtust hafa tekið vel á-
skorun yfirvaldanna um að
fara sem fyrst út í umfeirð-
ina, því eftir Miklubrautinni
var stanzlaus umferð, jafnvel
meiri umferð en við höfum
nokkurn tíman áður séð.
Á gatnamótum Miklubraut-
ar og Lönguhlíðar voru þrír
lögregluþjónar við umferðar-
stjórn og leiðbeiningar auk
þess sem umferðarverðir
gættu allra gangbrauta.
Götulögregluþjónn númer
182 sagði okkur, að umferð-
in hefði gengið óhappalaust
á þessum erfiðu gatnamótu
og í sama streng tók um-
ferðarlögregluþjónn númer
93, sem einnig var þama að
starfi. Þeim bar báðum sam-
an um það, að nokkurs tauga-
óstyrks gætti hjá ökumönn-
um sem og vonlegt var, því
nú voru allir byrjendur upp
á nýtt. Þá kváðu þeir fólk
ófeiimið að leita aðstoðar lög-
reglunnar og meðan við vor-
um þarna sáum við þá leysa
hvers manns vandræði með
bros á vör.
Ásgeir Jóhannesson úr
Kópavogi var einn þeirra
ökumanna, sem tóku daginn
snemma. Hann sagðist vera á-
nægður með breytinguna og
sagði, að til þessa hefði hún
gengið betur, en hann hefði
átt von á. Ásgeiri fannst erf-
iðast að átta sig á gatnamót-
um, en sagði, að með því að
einbeita huganum við akstur-
inn gengi þetta allt veL Við
spurðum frúna, hvernig hún
kynni við að sitja allt í einu
kantmegin og sagði hún, að
það væri óneitanlega skrýtið
svona fyrst í stað.
Kristján Jónsson kom sunn
an úr Hafnarfirði til að æfa
sig í hægri akstri. Hann sagð
ist vera bjartsýnn á breyt-
inguna, þó hann hefði nú eig-
inlega verið á móti henni
vegna kostnaðarins. — Núer
um að gera að aka rólega
og hafa hugann við umferð-
ina, sagði Kristján. Það kom
í ljós, að kona Kristjáns var
að koma til starfa sem um-
ferðarvörður í Reykjavík, en
síðan ætlaði hún að setjast
burt með bros á vör. Vi’ð
spurðum, hvort fólk virtist
ekkert hikandi við að fara
„öfugt“ í hringtorgið, en
hann kvað nei við og sagði
fólk aka gætilega á meðan
það væri að æfa sig. Gang-
andi fólk sagði hann sýnir
engu minni árvekni, en það
hefði umferðarverðina sér til
halds og trausts, ef eitthvað
væri að.
tímanum, en um leið og ég
kom niður í Árbæ má segja
að bíll hafi verið við bíl.
— Voru Selfyssingar ekki
byrjaðir í hægri umferðinni,
þegar þú fórst?
— Jú, jú. Þeir voru snemma
á ferðinni og ég gat ekki
annað merkt en allir væru
hinir hressustu.
Á gatnamótum Miklubraut
ar og Sóleyjargötu hittum við
götulögregluþjón númer 185.
Við stóðum þarna góða stund
og horfðum á umferðina og
stöku sinnum þurfti númer
185 að leiðbeina ökumönnum.
Mörg brosleg atvik komu
fyrir á fyrstu stundum hægri
umferðarinnar í gær; þessi
mynd sínar eitt þeirra. Öku-
maðurinn tók hægri beygju
úr Austurstræti inn í Aðal-
stræti, en varð að nema stað-
ar. Þegar hann ætlaði að taka
undir stýri og aka heim. —
Það er ekki nógu mikilum-
ferð fyrir hana í Hafnarfirði,
sagði Kristján og hló.
Á Miklatorgi var götulög-"
regluþjónn númer 184. Hann
kvað allt hafa gengið vel, að
vísu hefði orðið þama smá
ákeyrsla, en engair skemmdir
orðið og bílstjórarnir ekið
af stað aftur sat bíllinn fast-
ur og þrátt fyrir örvæntingar
fullar tilraunir tókst öku-
manninum ekki að hnika bíln
um til. Tveir nærstaddir lög-
regluþjónar brugðu við skjótt
og hugðust ýta bílnum burt,
en allt kom fyrir ekki. Eftir
Á Umferðarmiðstöðinni hitt
um við Jón Halldórsson, rútu
bítstjóra frá Selfossi, nýkom-
inn að austan.
— Ferðin gekk eins og
venjulega, sagði Jón, og ég
fann ekkert til þess að skipta
um kant — kannske er það
vegna þess að stýrið er
hægra megin. Það var lítil um
ferð á Hellisheiði á tíunda
mikil átök og vísindalegar
umræður kom í Ijós að bíll-
inn var í handbremsu. Lög-
reglan brosti, áhorfendur
brostu, en við sáum ekki,
hvort ökumaðurinn brosti,
þegar hann ók burtu.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Nokkrir virtust hugsa um það
eitt að vera á hægri kantinum
og tóku ekki eftir bending-
um lögregluþjónsins, en einn,
sem áttaði sig á síðustu
stundu, fékk að launum
breitt bros og . fría braut.
Þarna óku framhjá tveiir varn
arliðsbílar og þarf ekki að
taka fram, að ökumenn þeirra
tóku hægri umferðina réttum
tökum.
Við áttum stutt spjall við
Knút Björgvinsson og sagð-
ist hann hafa ekið mikið í
hægri umferð, aðallega í
Skandinavíu. Knútuir virtist
hinn ánægðasti með lífið.
Nú fannst okkur tími til
kominn að hitta ökukonu að
máli. f sömu svifum átti Anna
María Georgsdóttir leið fram
hjá og var hún svo elskuleg
að taka okkur upp í. Þegar
við höfðum sannfærzt um, að
Anna María er ágætis öku-
kona og að öllu væri óhætt,
spurðum við hana, hvernig
henni Utist á breytinguna.
— Þetta er_ ágætt, sagði
Anna María. Ég hef alltaf
verið fyitgjandi þessari breyt
ingu og skellti mér út í
umferðina um leið og ég hafði
tóm tiL
— Ekkert óstyrk?
— Jú, auðvitað er ég það
— eru ekki allir óstyrkir?
Annars fannst mér fyirst erf-
iðast að aka hringtorgin, en
ég æfi mig og þá kemur ör-
yggið smám saman.
— Hvað er langt síðan þú
fékkst ökuskírteini?
— Það er ár, og þetta eru
fyrstu kynni mín af hægri
umferð. En ég hef trú á því,
að með fullri aðgæzlu og
nógri æfingu verði ég alveg
eins góð ökukona í hægri um
ferð og ég var í vinstri um-
ferð.
Þannig var gott hljóð í öll-
um, sem við hittum á leið okk
ar um Miklubraut. Umferðin
var að vísu stirð og mönmum
gafst gott tóm til að átta sig
á hlutunum: sumir „eltu“
bara næsta bíl á undan. En
það er engin ástæða til að
ætla annað, en fólk bregðist
vel og rétt við, þegar á hvern
einstakling reynir, því góður
vegfarandi í vinstri umferð
verður auðvitað góður veg-
farandi í hægri umferð.
m KARNABÆR
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
HÆGRI-UMFERÐAR TÍZKAN
HERRADEILD
NÝKOMIÐ
★ STAKAR BUXUR
MEÐ NÝJU SNIÐI
★ SKYRTUR
★ BINDI — SETT
KLÚTAR FYRIR
RÚLI>UKRAGA-
SKYRTUR.
★ IIÁLSKLÚTAR
★ JAKKAR O. FL.
DÖMUDEILD
NÝKOMIÐ
★ KJÓLAR — TWIGGY
OG CORNELL
★ BICINI STUTTBUXUR
BAÐFÖT O. FL.
★ PEYSUR — BLÚSSUR
★ TÍZKUSÓLGLERAUGU
★ SÍÐBUXUR
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
Siglufjörður
STRAX og ökubanninu hafði
verið aflétt, tóku fyrstu bílarnir
að bruna eftir götum bæjarins
og hefur töluverð umferð verið
í dag. Allt hefur gengið vel og
Þórðarson, yfirlögregluþjónn,
greiðlegá og taldi Jóhannes
að sjálf umferðarbreytingin
hefði farið fram mjög skipulega
og engin óhöpp orðið. Greið-
fært er úr bænum um nærsveit-
ir og má búazt við, að allmargir
utanbæjarmenn leggi leið sína
hingað í dag til þess að sjá
hægri umferðina í framkvæmd
hér á götum Siglufjarðarkaup-
staðar .Engar meiriháttar breyt-
ingar hafa verið gerðar, en sú
veigamesta er þó, að eftir aðal-
götu bæjarins, Aðalgötu, er nú
einstefnuakstur eftir henni allri
til austurs. Umferðarverðir
veita lögreglunni hér mikil-
væga aðstoð við framkvæmd
hægri umferðarinnar ekki að-
eins í dag ,heldur og næstu
daga. — Stefán.