Morgunblaðið - 05.06.1968, Side 32
FEMA-OG FARAMGURS
m*~ ^ TRVGGING
ALMENNAR TRYGGINGAR g
POSTHUSSTRÆTI9 SÍMI 17700
MIÐVIKUDAGUR 5. JUNÍ 1968
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4«8D
Piltur drukknar
af Cullfossi —
annars saknað í Hamborg
ER GULLFOSS átti ófama
klukkustundar siglingu til Ham-
borgar, mánudaginn 27. maí, var
19 ára pilts, Grétars H. Þor-
steinssonar, saknað og fullvíst
talið að hann hafi fallið útbyrð-
is. Var þýzku lögreglunni gert
aðvart, sem leitaði ásamt Gull-
fossi á svæði því, sem pilturinn
hafði fallið í sjóinn, í þrjár klukk
stundir en án árangurs.
Gullfoss var í Hamborg í
tvo daga, en þegar hann ætlaði
þaðan, kom í ljós, að annan far-
þega vantaði. Var það ungur
pil'tur, sem farið hafði í land
fyrri daginn, sem skipið var þar
í höfn. Hefur ekkert spurzt til
hans síðan, en faðir hans er far-
inn utan og leitar sonar síns
ásamt þýzku lögreglunni.
Slysalaus helgi—
LÖGREGLAN HRÓSAR VEGFARENDUM
SLYSALAUS HELGI, takmark-
Ið, sem stefnt var að fyrir hvíta
sunnuhelgina náðist. Er lögregl-
unni ekki kunnugt um nein stór
vægileg slys eða óhöpp neins-
staðar á landinu um þessa miklu
umferðardaga. Þvert á móti
gekk umferð mjög greiðlega og
fóru ökumenn undantekningar
lítið eftir settum reglum, þó að
umferð á vegum væri mikil, og
vegir víða slæmir.
„Við erum að sjálfsögðu í sjö-
tinda himni“, sagði Óskar Óla-
son yfirlögregluþjónn umferðar
mála, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. „Umferð-
in gekk betur en þeir bjartsýn-
ustu höfðu þorað að vona, og er
lögreglan ákaflega þakklát öll-
um vegfarendum fyrir þeirra
þátt í því, að takmarkið náðist.
Hafa þó umferðaraðstæður sjald
an verið erfiðari — ekið eftir
nýjum akstursháttum og ásig-
komulag vega víða slæmt. Og
óhætt er að fullyrða, að hin
mikla löggæzla og eftirlit, sem
skipulagt var fyrir þessa helgi,
hefði orðið máttvana, ef ekki
hefði komið til einbeitni allra
vegfarenda að láta þessa um-
ferðarhelgi takast vel. Er þessi
helgi ágætt dæmi um það, að
mínum dómi hverju samtaka-
máttur fólksins fær áorkað."
Fjórtán vegaeftirlitsbifreiðar,
auk lögregluþjóna á bifhjólum
Fiske-skákmófið:
og vegaþjónustubifreiða FÍB,
Framh. á bls. 31
Hornsteinn
Cífurleg ólœti eftir dans ■ | lagður í Búrfelli
J Forseti íslands Asgeir Ásgeirs |
leik í Sandgerði
Allt brotið og bramlað
í samkomuhúsinu
Gífurleg ólæti urðu í sam-
komuhúsinu í Sandgerði á hvíta
sunnunótt, og varð lögreglan í
Sandgerði að fá liðsauka frá
Keflav. og Keflavfl.v. til að ryðja
staðinn. Sagði lögreglan í Sand-
gerði í gær við Mbl., að húsið
hefði litið út eins og orustu-
völlur, er tekizt hafði að koma
fólkinu út.
Hljómsveit á þessum dansleik
var Hljómar.
Auglýstur var dansleikur í
samkomuhúsinu og átti hann að
standa frá miðnætti á hvíta-
sunnudag og fram til kl. 4. Hins
vegar fékkst ekki leyfi nema til
Kl. 2.
Þegar lögreglan ætlaði að
stöðva dansleikinn varð hljóm-
sveitin, æst og neitaði að hætta.
Að sögn lögreglunnar í Sand-
gerði dönsuðu þeir uppi á hljóð-
færunum og einn spilarinn
klæddi sig úr að ofan og spil-
uðu þeir þannig í 20 til 30 mín-
útur. Þegar lögreglan ætlaði að
stöðva leikinn æstist fólkið upp
braut allt og bramlaði, að því
er virtist af tómri skemmdar-
fýsn.
Fimm lögreglumenn voru í hús
inu og varð að kveðja til að-
stoðar liðsauka frá Keflavík og
Keflavíkurflugvelli, tvo frá
hvorum stað. Þá tókst að ryðja
húsið og var þá orrahríðin búin
að standa næstum tvo tíma. Ekki
var ölvun meiri en gengur og
gerist á svona samkomum.
Lögreglan hefur tvo fanga-
klefa í samkomuhúsinu og voru
þar settir inn tveir ólátaseggir,
en lögreglan sagði, að þeir hefðu
ekki verið nema brot af því sem
þurft hefði að handtaka.
Þá sagði lögreglan, að fyrr í
vetur hefði þessi h'ljómsveit neit
að að hætta leik sínum og varð
þá að taka magnara úr sambandi
til að fá þá til þess að hætta.
i son, leggur homsteininn að i
stöðvarhúsi virkjunar við
Búrfell og múrar sögu fram '
kvæmdanna, skráða á skinn, I
(í vegginn. Ámi Snævarr, for i
stjóri Fosskraft, hrærir steyp t
' una. Sjá frásögn af atburð-
inum á bls. 17.
Telpa drukknar
í sundlaug
Jón vann Uhlmann og
Freysteinn Addison
Sauðárkróki, 4. júní.
ÞAð hörmulega slys varð á tí-
unda tímanum á laugardags-
kvöldið fyrir hvítasunnu, að 5
ára stúlka féll í sundlaugina
við Varmahlíð og drukknaði.
Laugin var ekki opin almenn-
ingi, en börn úr Hverfinu höfðu
fengið leyfi til að æfa sig þá um
kvöldið.
Litla stúlkan mun hafa fengið
að fara með systkinum sínum og
var að leik við laugina, en féll
í hana án þess að nokkur yrði
þess var. Töldu unglingarnir, er
þeir söknuðu barnsins, að það
hefði farið heim til sín, en heim-
ili þess er örskammt frá laug-
inni. Nokkru síðar stakk ein
stúlkan sér í dýpri enda laugar-
innar, og sá þá litlu stúlkuna
á laugarbotninum. Sjúkrahús-
lækninum á Sauðárkróki var
þegar gert aðvart, og kom hann
að vörmu spori, en lífgunartil-
raunir báru ekki árangur.
Foreldrar litlu stúlkunnar eru
hjónin Dana Sigurðardóttir og
Steingrímur Felixsson. Litla
stúlkan var yngst fjögurra
barna þeirra hjóna.
Guðjón
Fyrsti fundur Gunnars
Thoroddsens fjölsóttur
— Friðrik tapaði fyrir Vasjukov — Sást
yfir örugga vinningsleið í tímahraki
ÞRIÐJA umferð Fiske-skák-
mótsins var tefld í gærkvöldi.
Skák Jóns Kristinssonar og
Uhlmanns fór þannig, að Uhl-
mann féll á tíma, Freysteinn
sigraði Addison, jafntefli
gerðu: Szabo og Taimanov,
Jóhann Sigurjónsson og Bragi
Kristjánsson, Guðmundur Sig
urjónsson og Andrés Fjeld-
sted, Byrne og Oostojic og
Benóný Benediktsson og Ingi
R. Jóhannsson. Friðrik Ólafs-
son tapaði gegn Vasjukov. —
Atti Friðrik á tímabili sterka
vinningsstöðu, en lék illa af
sér í tímahraki og tapaði skák
inni, sem varð 40 leikir.
í annarri umferð er tefld
var að kvöldi annars 1 hvíta-
sunnu fóru skákirnar þannig,
að Vasjukoff vanin Benóný
Ingi gerði jafntefli við Szabo,
Taimanoff vann Braga, en
hinn síðamefndi tefldi þessa
skák mjög vel, hafði jafntefl-
isstöðu, þar til í 2—3 síðustu
leikjunum, að hann lék af sér
í tímahraki. Jóhann Sigur-
jónsson vann Andrés Fjeld-
sted, Byrne vann Guðmund,
Ostojic vann Freystein, en
Addison og Uhlmann gerðu
jafntefli.
Skák Friðriks og Jóns
Kristinssonar féll niður, þar
sem Friðrik tafðist af óvi'ð-
ráðanlegum orsökum norður í
landi. Var dómnefnd látin
fjalla um fjarveru Friðriks,
og komst hún að þeirri niður-
stöðu, að ástæður þær, sem
Friðrik gaf fyrir fjarveru
sinni, væru svo fullgildar, að
Friðrik skyldi tefla seinna við
Jón. Annars hefði Fri'ðrik
tapað þessari skák á tíma.
Munu þeir Jón og Friðrik
tefla umrædda skák á laugar-
daginn kemur. Þá teflir Frið-
rik einnig við Benóný skák
þeirra úr fyrstu umferð, en
henni fékk Friðrik frestað,
þar sem hann var einmitt um
þær mundir að ljúka embætt-
isprófi í lögfræði.
Við röbbuðum stuttlega við
Framh. á bls. 31
Stykkishólmi.
Fyrsti kynningarfundur dr. Gunn
ars Thoroddsens var haldinn af
stuðningsmönnum hans í sam-
komuhúsinu í Stykkishólmi í
gærkvöldi. Fundurinn hófst kl.
21.30 og var mjög fjölsóttur.
Friðjón Þórðarson, sýslumað-
ur, setti fundinn og bauð gesti
velkomna og þá sérstaklega þau
frú Völu og Gunnar Thoroddsen.
Lýsti hann ánægju sinni yfir, að
þau hjón skyldu velja Snæfells-
nes sem fyrsta fundarstað á
kynningarferð sinni um landið.
Þá fluttu ávörp: Ásgeir Ágústs
son, forstjóri, Ellert Kristinsson,
stud. oecon., Sigurður Ágústsson,
fyrrum alþingismaður, Lárus
Guðmundsson, skipstjóri og Páll
Pálsson, hreppstjóri. Þessu næst
ávarpaði dr. Gunnar Thorodd-
sen fundarmenn og hóf mál sitt
með því að rekja kynni sín af
Snæfellingum sem fyrrum kjós-
endum sínum til Alþingis. Þá
rakti hann störf og stöðu forseta
íslands og vitnaði til þeirra
tveggja forseta, sem setið hafa
til þessa í því embætti óg sagði
að lokum, að líf sitt, störf sín og
þjóðmálaafskipti lægju ljós fyrir
öllum, er kynnast vildu, og um
þau mundi hann ekki ræða, held
ur hlyti fólkið að dæma þau.
Þá var orðið gefið frjálst til
fyrirspurna og tók til máls Guð-
mundur Guðjónsson, bóndi á
Saurum. Gerði hann fyrirspurn
er dr. Gunnar svaraði. Að lokum
talaði Friðjón Þórðarson, sýslu-
maður, og fundinum lauk með
því að sungið var „ísland ögrum
skorið“.
Næsti kynningarfundur dr.
Gunnars Thoroddsens verður á
Hellissandi í kvöld og hefst kL
20.30. — Fréttaritari