Morgunblaðið - 06.06.1968, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JTTNT 199«
25
- SAGA STÓRRA
Framh. af bls. 17
greinilegt var, að Manchester
naut víðtækrar samúðar. Etft-
ir kosningu Kennedys til öld-
ungadeildarinnar 1964 fór aft-
ur að bera á þessari gagnrýni,
sem bersýnilega er að miklu
leyti sprottinn af öfund og
gremju vegna sérstöðu hans í
bandarískum stjórnmálum og
metnaðar hans um að ná skjót-
um frama, og hafa andstæð-
ingar hans haldið þessum ásök-
unum óspart á lofti, fáir meir
en stuðningsmenn Johnsons for-
seta.
Bilið óbrúanlegrt.
Kennedy hefur þó altaf ver-
ið hógvær í afstöðu sinni til
Johnsons, og deila þeirra kom
ekki upp á yfirborðið fyrr en
veturinn 1966—67, en samskipti
þeirra hafa hins vegar alltaf
einkennzt af kuldalegri kurt-
eisi. Það sem varð til þess að
ýfa upp væringar þeirra var,
að eftir ferðalag til höfuðborg-
ar í Evrópu, þar sem Kennedy
uppgötvaði sér til mikillar von-
brigða að Vietnamstefnan var
fordæmd af flestum ábyrgum
aðilum, skýrði hann frá því,
að nýtt friðartilboð hefði verið
borið fram af Hanoi-stjórninni.
Johnson leit á þessa yfirlýs-
ingu sem frekleg afskipti af
utanrikismálum Bandaríkjanna,
kallaði Kennedy fyrir sig og
ávítaði hann harðlega. Kennedy
sárnaði þessi árás, sem honum
fannst ósanngjörn, og upp frá
þessu jókst ágreiningur hans
og forsetans stig af stigi unz
hann varð óbrúanlegur með
öllu. Skömmu eftir Evrópuferð
ina, í marz í fyrra, hélt Kenn-
edy fræga ræðu þar sem hann
hvatti til þess að hætt yrði
loftárásum á Norður-Vietnam,
án þess að sett yrðu nokkur
skilyrði fyrir friðarviðræðum.
8. febrúar sl. réðst Kennedy
á öll atriði Vietnamstefnunnar
og sagði, að mat Johnsons á
ástandinu væri helber blekking
Ræðunni var víða vel tekið,
en yfirleitt hafa ræður hans
einkennzt af hófsemi þótt ýms-
um hafi þótt þær nokkuð rót-
tækar.
16. marz sl. batt Kennedy
enda á bollaleggingarnar um,
hvort hann mundi gefa kost á
sér sem frambjóðandi demókra
við forsetakosningarnar og til-
kynnti, að hann mundi leita
eftir útnefningu og þar með
breikkaði bilið milli hans og
Johnsons enn meir. Hann sagði,
að þjóðin væri á háskalegri
leið og hvatti til nýrrar stefnu
til að binda enda „á blóðbaðið
í Vietnam og í borgum okkar,
til að brúa bilið milli svartra
og hvítra, ríkra og fátækra,
ungra og gamalla, hér í þessu
landi og annars staðar í heim-
inum.“
Á því leikur enginn vafi, að
Kennedy hefur hugleitt lengi
og vel vandamál þau, sem Band
aríkin eiga við að stríða, og
talið, að til þess að tekin yrði
upp ný stefna, yrðu nýir menn
að koma til sögunnar, en sigur
Eugene McCarthys öldungar-
deildarmanns í forkosningun-
um í New Hampshire hatfa líka
á'tt mikinn þátt í ákvörðunum
hans og sannfært hann um, að
möguleikarnir á að hljóta út-
nefningu væru hagstæðir, því
að þótt Kennedy sé hugsjóna-
maður er hann einnig raunsær.
Hann tók skýrt fram, að hann
hefði ekki gefið kost á sér fyrr
vegna þess, að annars hefði
það verið túlkað sem persónu-
leg óvild en ekki málefnaleg-
ur áhugi.
Dömur — loðskinn
Minkaskinn komin í 7 litum. Einnig treflar,
trefilbönd og möttulskinn.
FELDSKERINN,
Skólavörðustíg 18, 4. h.
Lokað til hádegis
vegna jarðarfarar.
Verzlunin BRYNJA.
Tilboð óskast í byggingarframkvæmdir við virkjun
Smyrlabjargaár í A-Skaftafellssýslu.
Útboðsgögn afhendast á skrifstofu vorri gegn kr.
3.000,00 skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð 24. júní 1968, kl. 11 f.h.
Hluti af geislunartækinu flu ttur inn í Skúlagötu 4 í gær.
Ljósm.: Sv. Þorm.
— Geislunartilraunir
Framlh. af bls. 32
un. Gefi þessar tilraunir góða
raun, má telja að það geti orð-
ið til mikils gagns fyrir fisk-
iðnaðinn í heild og gert fleiri
þjóðum unnt að neita fersks fisks
en nú er. Tilraunum þessum
mun ljúka að ári, eða í maí
1969. Er þá áætlað að geisluð
hafi verið 5 tonn af fiski.
Ákvörðun um að ráðast í þess
ar tilraunir var tekin á fundi
ofangreindra þriggja aðila í Vín
síðastliðinn vetur. Er hér um
könnunartilraunir að ræða og
geislunartækið mun Kjarnorku-
málahefnd Bandaríkjanna lána,
en það var upphaflega smíðað
til notkunar í veiðiskipi í þeim
tilgangi að gera langar veiði-
ferðir mögulegar.
Tilraunirnar munu geta hafizt
- VIÐBRÖGÐ
Framh. af bls. 16
lýstu harmi og skelfingu sinni
voru forsætisráðherra Kanada,
Trudot, forsætisráðherra Mal.
asiu, Tunku Abdul Rahman, Per
Borten, forsætisráðherra Noregs,
Torsten Nilsson, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, John Gorton,
forsætisráðherra Ástralíu, Bauns
gaard, forsætisráðherra Danmerk
u, talsmenn stjónanna í Sviss,
Belgíu, Hollandi, S-Kóreu, Fil-
ippseyjum og Thailandi.
Blaðafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins, Robert J. McCloskey,
sagði í kvöld, að ekkert hefði
komið fram, er benti til að er-
lend stjórn væri flækt í þetta
sorglega mál.
innan mánaðar og væntanlegir
eru til landsins ýmsir áhuga-
menn frá þróunarlöndunum, sem
áhuga hafa á þessum málum og
fylgjast vilja með tilraununum.
fslenzka ríkisstjórnin mun láta
í té húsrými og rannsóknarað-
stöðu í Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins, svo og hráetfni, starfs
lið og aðra þjónustu, sem þarf
vegna tilraunanna. Ríkisstjórn
Bandaríkjanna mun lána geisl-
unartæki, ásamt fylgitækjum og
einnig senda hingað sérfræðing
til þess að annast uppsetningu
tækisins.
Alþjóða-kjarnorkumálastofnun
in mun senda hingað sérfræð-
ing um geislun fiskafurða. Sú
stofnun hefur og kostað að
nokkru leyti stutta dvöl tveggja
íslenzkra sérfræðinga, Guðlaugs
Hannessonar, gerlafræðings og
Björns Dagbjartssonar, efnaverk
fræðings. Fóru þeir til Banda-
ríkjanna til þess að kynna sér
geislunartækni og meðferð geisl-
unartækja. íslenzka ríkisstjórnin
mun sjá um að fylgt verði ör-
yggisreglum Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar um geisla-
varnir.
Þótt íslenzk yfirvöld hafi enn
engin áform um notkun geisl-
unar til geymslu á sjávarafurð-
um taka þau þátt í þessum til-
raunum til þess að öðlast reynslu
í geislun matvæla, sem þegar
fram í sækir gæti orðið mikil-
væg geymsluaðferð. Geislunar-
tækið, sem verið er að setja
upp nú við Skúlagötu vegur án
umbúða 17 tonn.
Þess má að lokum geta, að
sala á fiski, sem hlotið hefur
geislun á þennan hátt er ekki
leyfð af heilbrigðiseftirlitinu.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10740
VEUUM ÍSLENZKT <H> ISLENZKAN IÐNAÐ
HÚSGÖGN
Bólstruð húsgögn, klæði görnul húsgögn.
Góð áklæði m.a. pluss, kögur, leggingar,
og snúrur.
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2, sími 16807.
í sveitinu |
VELJUM ÍSLENZKT-/V'»|V
ÍSLENZKAN IÐNAÐ j
PEYSUR
HVERGI BETRA — HVERGI ÓDÝRARA.
Teddy m
U \oOö\r\
Laugavegi 31.
Fyrir börnin
BUXUR
ÚLPUR
BREIÐHOLTSHVERFI
Höfum til sölu nokkrar tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í Breiðholtshverfi.
'k íbúðimar seljast fullfrágengnar.
★ Vandaðar innréttingar úr harðviði.
★ Sameign fullfrágengin.
ir Lóð fullfrágengin með hellulögðum
gangstígum.
Barnaleikvöllur á lóðinni frágenginn.
ir Beðið eftir húsnæðisláni.
Verð íbúðanna er fast að því leyti, að það hækkar ekki, en lækkar eftir ákveðnum reglum, .
reynist byggingarkostnaður lægri en nú er áætlað.
Þetta eru tvímælalaust hagstæðustu kjörin á nýjum íbúðum í dag.
Líkan af Breiðholtshverfinu og teikningar til sýni s á skrifstofunni. ■ >
FASTEIGIMASKRIFSTOFAN
Austurstræti 17
BJARNI BEINTEINSSON '
Símar 17466 og 13536. Kvöldsími 34441.
i
f !
t i
J