Morgunblaðið - 06.06.1968, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JUNÍ 1968
5 íslandsmet í
Laugardalslaug
— á fyrsta mótinu þar eftir vígsluna
Frá keppninni. Hjálmar ólafsson, bæjarstjóri, Kópavogi, slær.
Bæjarstjórakeppni í golfi hjá Keili
A Sundmeistaramóti Reykjavík-
ur, sem var fyrsta mótið sem
haldið er í Sundlaugunum í
Laugardal eftir vígsluna og fram
fór í gærkvöldi, voru sett 4 ís-
landsmet og hið fimmta jafnað.
Er ]>að glæsilegur árangur hjá
sundfólkinu, því keppt var í 10
greinum.
Metin sem sett voru í gær-
kvöldi voru þessi:
100 m flugsund kvenna.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir Á
1:17.6 en gamla metið átti hún
sjáif 1:19.7 frá því í fyrra.
200 m bringusund kvenna: Ell
en Ingvarsdóttir Á 3:01.6. Gamla
metið átti Hrafnh. Guðmundsd.
ÍR 3:03.3 sett 1963.
4x100 m skriðsund kvenna.
Þjóöverjar
unnu 4-0
ÞÝZKA atvinnuliðið Schwartz-
Weiss sigraði í gærkvöldi lið
Vestmannaeyinga með 4 gegn 0.
Leikurinn fór fram í Keflavík
og var norðan strekkingur eftir
endilöngUm vellinum. Þjóðverj-
ar léku undan vindi í fyrri hálf-
leik og skoruðu 3 mörk. í sið-
ari hálfleik bættu þeir einu við.
Vestmannaeyingar reyndust
harðir í* horn að taka en vörn-
in var svifasein og spilið ekki
nægilegt, en driffjöður þess var
Guðmunur Þórarinsson. Vest-
mannaeyingar áttu aðeins örfá
skot að marki Þjóðverjanna og
ekkert hættulegt.
1 gærkvöldi fóru fram undan-
úrslit í bikarkeppni landsliða í
Evrópu. Léku annars vegar fta-
lía og Sovétríkin og hinsvegar
England og Júgóslavía. Úrslita-
keppni þessara fjögura liða fer
fram á Ítalíu og á laugardag-
inn fer fram úrslitaleikurinn og
keppnin um 3. sætið.
í Napoli mættust ftalir og
Sovétmenn. Hvorugu liðinu tókst
að skora mark jafnvel ekki
í framlenginu. Kom þá til að
láta hlutkesti ráða úrslitum og
upp kom hlutur ítala.
ítalir voru nær sigri í leikn-
um. Áttu m.a. stangarskot. —
Sovézka liðið var greinilega
veikara en áður vegna fjarveru
góðra leikmanna er meiddir eru.
Hlutkesti'ð var því ekki ranglátt
eftir allt.
En rússnesku vörninni tókst
vel upp og hélt velli fyrir ítölsku
framherjunum í 120 mínútur.
Sveit Ármanns 4:48.0 en það
eldra átti sveit Selfyssinga
4:49.0 sett í fyrra.
4x100 m skriðsund karla:
Sveit Ármanns 4:129 en það
eldra var sett í fyrra af Ár-
mannssveit 4:41.1.
í 100 m flugsundi jafnaði Guð-
mundur Gíslason Á met sitt
1:03.6, sett í fyrra.
Af öðrum úrslitum í öðrum
greinum skal aðeins minnast á
100 m baksund kvenna þar sem
varð hörkukeppni milli Sigrún-
ar Siggeirsd. Á og Hrafnhildar
Guðmundsdóttur ÍR. Fengu þær
báðar tímann 1:18.6 sem er
skammt frá meti en Sigrún var
dæmd sjónarmun á undan.
Hrafnhildur Guðmundsd. náði
1:06.0 í 100 m skriðsundi og 2.
varð Guðmunda Guðmundsd.
Selfossi 1:07.7.
í 200 m skriðsundi sigraði
Guðm. Gíslason 2:14.0 en met
JUavíðs á vegalengdinni er 2:12-9
Leiknir Jónsson Á sigraði í
200 m bringusundi á 2:45.7 en
met Harðar B. Finnssonar ÍR er
2:42.1.
ÍÞRÓTTANÁMSKEIÐ fyrir
börn og unglinga hefjast á fjór-
um leikvöllum í Reykjavík í
dag. Verða þau á þessum stöð-
um: Golfvellinum við Hvassa-
leiti, Ármannsvelli, Álfheima og
leikvellinum við Rofabæ.
En peningurinn var ítölunum
hliðhollur.
England tapaði
í Flórenz mættust Englend-
ingar og Júgóslavar. Leikurinn
var allgóður allan tímann og
mátti ekki milli sjá. Baráttan
þegar 4 mín voru eftir skoraði
Dajiu v.úth. eina mark leiksins
og enska HM-liðið varð af mögu
leika til betri frammistöðu en 3.
sætið veitir, vinni þeir Sovét á
laugardag.
Júgóslavar eiga nú mjög sterkt
lið einkum fráa og harða sóknar-
menn tvo sem skapað hafa sig-
urför þeirra í þessari keppni.
Og fyrir þeirra baráttu tókst
um síðir að tryggja, að enn
hafa Júgóslavar ekki tapað leik
fyrir Englendingum utan Eng-
lands.
Italir og Júgóslavar keppa því
um Evrópubikar landsliða á laug
ardag í Róm.
Á UPPSTIGNINGARDAG hófst
keppnistímabil hjá Golfklúbbn-
um Keili, Hvaleyri, með hinni
árlegu bæjarstjórakeppni. Keppn
in fór fram með þeim hætti, að
bæjarstjórarnir í Hafnarfirði og
Kópavogi, sveitarstjórinn í
Garðahreppi og oddviti Bessa-
staðahrepps kepptu í 9 holu
keppni á golfvelli klúbbsins, en
félagssvæði golfklúbbsins tekur
til þessara sveitarfélaga. — Þá
keppti sem gestur ráðuneytis-
stjórf félagsmálaráðuneytisins,
Hjálmar Vilhjálmsson.
Keppendur, sem eru byrjendur
í golfi, höfðu sér til aðstoðar
vana kylfinga, sem slóu annað
hvort högg.
Keppt var um farandbikar,
sem Jónas A. Aðalsteinsson, hdl.,
Á þessum stöðum verður
kennt á þríðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum, fyrir
hádegi kl. 9.30—11,30 börn 5—9
ára og kl. 14.00—16.00 börn 9
—12 ára.
Með sama fyrirkomulagi verð-
ur kennt á mánudögum og föstu-
dögum á þessum stöðum: K.R.-
velli, Víkingsvelli, Þróttarsvæði
við Skipasund og við Austur-
bæjarskólann.
Skráning fer fram á hverjum
stað og þátttökugjald er kr.
25.00.
17. júní
mótið
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARMÓT frjáls-
íþróttamanna í Reykjavík 1968
verður haldið á Iþróttaleikvangi
Reykjavíkurborgar í Laugardal
dagana 15. júní (kl. 2) og 17.
júní (kl. 5).
Keppt verður í þessum íþrótta
greinum:
Fyrri dagur, 15. júní kl. 2 e.h.:
400 m grindahlaup, 200 m
hlaup, 800 m hlaup, 3000 m
hlaup, kringlukast, spjótkast,
sleggjukast, þrístökk. Hástökk
kvenna, langstökk kvenna.
Seinni dagur, 17. júní kl. 5 e.h.:
110 m grindahlaup, 100 m
hlaup karla, kvenna, sveina og
drengja, 400 m hlaup, 1500 m
hlaup, kúluvarp, hástökk, lang-
stökk, stangarstökk.
Þátttökutilkynningar sendist
Þórði Sigurðssyni, pósthólf 215,
Reykjavík, fyrir 10. þ.m., en þátt
taka í mótinu er algjörlega háð
tilkynningu fyrirfram eins og
verið hefur undanfarin ár.
gaf til þessarar keppni í fyrra,
en þá vannst bikarinn af Kópa-
vogi.
Keppninni lauk þannig:
1. Eyþór Stefánsson, oddviti
Bessastaðahrepps, 48 högg. Að-
stoðarmaður hans var Jóhann H.
Níelsson, framkvstj. Hjartavernd
ar.
2. Hjálmar ólafsson, bæjar-
stjóri Kópavogs, 49 högg. Aðstoð
armaður hans var Þorvarður
Árnason, framkvæmdastjóri.
3. Kristinn Ó. Guðmundsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, 56
högg. Aðstoðarmaður hans var
Stefán Reumert.
4. Ólafúr G. Einarsson, sveit-
arstjóri Garðahrepps, 59 högg.
Aðstoðarmaður hans var Jóhann
Eyjólfsson, framkvstj.
Hjálmar Vilhjálmsson, ráðu-
neytisstjóri, 51 högg. Aðstoðar-
maður hans var Sveinn Snorra-
son, hrl.
Dómari í keppninni var Þor-
valdur Ásgeirsson.
Var gerður góður rómur að
keppninni, sem var mjög tvísýn,
en keppni þessi er liður í því að
kynna golfíþróttina og starfsemi
Golfklúbbsins Keilis.
Að lokinni keppni bauð stjórn
Keilis keppendum og bæjar- og
sveitarstjórnarfulltrúum til kaffi
drykkju í skála klúbbsins. Þar
afhenti Jónas A. Aðalsteinsson,
hdl., formaður klúbbsins, verð-
laun. Jónas gat þess, að Gísli Sig
urðsson, lögregluþjónn, hefði af-
— Kosningabarátta
Framh. af bls. 14
McCarthy kemur á óvart
Fyrir kosningarnar í Oreg
on voru þeir taldir hafa svip
aðar sigurlíkur, Kennedy og
McCarthy, en líkur Kenned-
ys þó aðeins meiri. Hér sem
annarsstaðar virtist Kenn-
edy óþreytandi í baráttunni.
Hann ferðaðist um ríkið og
ræddi við kjósendur. Fundir
hans voru fjölsóttir, og allt
virtist leika í lyndi.
Kosningadagurinn í Oreg-
on, 28. maí, rann upp, og kjós
endur streymdu á kjörstað-
ina. Daginn eftir komu svo
úrslitin. Kennedy hafði beð-
ið mikinn ósigur, sem nefnd-
ur var fyrsti ósigur Kenn-
edy-ættarinnar í rúmlega 20
ára baráttu. McCarthy kom
mjög á óvænt og hlaut 45%
atkvæða, en Kennedy aðeins
39%. Eftir þennan ósi'gur
töldu flestir að keppninni
væri lokið, og Humphrey
væri tryggður sigurinn á
flokksþinginu.
Þrátt fyrir þennan ósigur
gafst Kennedy ekki upp,
heldur hélt áfram baráttu
sinni í Kaliforníu og Suður
Dakota, þar sem kosið var á
þriðjudag. Hann bar sigur af
hólmi í báðum ríkjunum, þótt
sigrarnir breyttu lítið víg-
stöðu hans.
hent klúbbnum ábúendatal á
Hvaleyri, og nær það frá um
1300 til dagsins í dag, en á
stefnuskrá klúbbsins er m.a. að
viðhalda örnefnum og sögu Hval
eyrar, en á Hvaleyri er margt
gamalla örnefna og saga staðar-
ins er öll hin merkasta.
Þá kvaddf sér hljóðs Árni
Gunnlaugsson, forseti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar, þakkaði
Árni f. h. bæjarstjórnarfulltrúa,
framtak Keilis og skýrði frá þvi,
að í nýjustu tillögu um skipu-
lagsmál Hafnarfjarðar og ná-
grennis væri reiknað með, að
Hvaleyri verði framtíðarútvistar
svæði.
Gísli Sigurðsson, lögreglu-
þjónn, tók til máls og lýsti á-
nægju sinni yfir áhuga félags-
manna á að forða örnefnum
Hvaleyrar og sögu staðarins frá
gleymsku.
Að lokum kvaddi Sveinn
Snorrason, formaður Golfsam-
bands íslands, sér hljóðs og rakti
sögu golfiþróttarinar frá önd-
verðu.
Golfklúbburinn Keilir, Hval-
eyri, var stofnaður í febrúar
1967. Klúbburinn rekur nú góð-
an 9 holu golfvöll á Hvaleyri,
og í skála félagsins er rekin sala
á veitingum.
f stjórn klúbbsins eru: Jónas
A. Aðalsteinsson, hdl., formað-
ur, Pétur Auðunsson, framkvstj.,
gjaldkeri, og Hafsteinn Hannes-
son, ritari.
Þegar Kennedy var að
fagna sigri í Kaliforníu,
dundi ógæfan yfir. Hvernig
svo sem nú fer með heilsu
Kennedys, hefur morðtil-
raunin mikil áhrif á kosn-
ingabaráttuna og niðurstöð-
ur hennar. Mikið veltur að
sjálfsögðu á því hvort Kenn-
edy nær heilsu til þess að
halda baráttu sinni áfram, en
þótt hann geri það ekki í
tæka tíð, er morðtilraunin
Humphrey hættuleg. Humph-
rey hefur jafnan haldið þvi
fram að Bandaríkin séu sælu
ríki, og að þrátt fyrir al'lt
hafi íbúarnir aldrei búið við
jafn góð kjör og nú. Þessi
baráttuaðferð Humphreys
hefur reynzt honum árangurs
rík, og er talið að hann hafi
nú þegar tryggt sér fylgi um
1.200 fulltrúa á flokksþing-
inu í ágúst, en til útnefning-
ar sem forsetaefni flokksins
þarf atkvæði 1.312 fulltrúa.
Morðtilraunin á Kennedy
getur dregið úr áhrif-
um Humphreys. Bandaríkja-
menn geta dregið þá ályktun
af tilrauninni, að Bandaríkin
séu ekki það sæluríki, sem
Humphrey heldur fram. Get-
ur þetta valdið því til dæm-
is, að kjósendur flykkist um
McCarthy, mannsins sem hóf
baráttuna fyrir breyttri
stefnu, baráttuna, sem Kenn
edy gerðist málsvari fyrir.
ítalir og Júgóslav-
ar í Evrópu-úrslit
ítalir á hlutkesti í úrslitin —
England tapaði fyrir Júgóslövum
Iþróttanámskeið fyrir
börn og unglinga í dag