Morgunblaðið - 06.06.1968, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 06.06.1968, Qupperneq 32
II RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA • SKRIFSTOFA SÍIVll 10.100 FIMMTUDAGUR 6. JUNÍ 1968 AU6LYSIN6AR SÍMI SS*4*8D 4. umferð Fiske-skákmótsins: Jón á biðskák við Vasjukov og Jóhann jafnteflislega biðstöðu við Szabo FJÓRÐA umferð Fiske-skákmóts ins var tefld í gærkvöldi. Byrne vann Addison, Ostojic vann Andrés Fjeldsted, Taimanoff vann Benóný Benediktsson en biðskákir urðu hjá hinum. Skák Jóhanns Sigurjónssonar og Szabo er jafnteflisleg, tvísýnt er mjög um úrslit skákar Jóns Kristins- sonar og Vasjukov. Uhlmann hef ur betri stöðu gegn Freysteini nálgast Þorbergssyni, Bragi Kristjáns- son hefur betri stöðu gegn Guð mundi Sigurjónssyni og Friðrik Ólafsson er peði yfir í skák sinni við Inga R. Jóhannsson. Eina biðskákin úr þremur fyrstu umferðunum, milli Uhl- manns og Ostojic var tefld í gær morgun og fór hún aftur í bið, en Uhlmann hefur öllu betri stöðu- Skákin verður tefld áfram í dag, en þær skák ir, sem frestað hefur verið, verða tefldar á laugardag. í kvöld tefla saman: Friðrik og Taimanoff, Vasjukov og Ingi, Szabo og Guðmundur Sigurjóns son, Byrne og Uhlmann, Bragi Kristjánsson og Ostojic, Frey- steinn Þorbergsson og Jón Krist insson, Benóný Benediktsson og Jóhann Sigurjónsson og Andrés Fjeldsted og Addisson. ÍSINN nálgaðist land fyrir | norðan og á Vestfjörðum í i gær og olli því ríkjandi norð-, austanátt, að því er Veður- stofan tjáði Morgunblaðinu í | gærkvöldi. Einis til tveggja km breitt ísbelti nálgaðist land víð 1 Skaga og töluverð aukning I varð á ísnum kringuim Horn. Þá lieitaði íshrafl inn Eyja- fjörð, aillt inn undir Oddeyri. Mikffl ís var á sigiingalieið, en grunnleiðiin frá Bjaxgi a/ust I ur fyrir Geirólfsnúp virtist frekar greiðfær. Búist var við áframihaLdandi . norðaustanátt á þessum slóð- um í dag. Verkiöllunum í Struumsvík frestuð Á fundi fulltrúa ÍSAL hf. og full trúa verkalýðsfélaganna í Hafnaæ firði, sem haldinn var í gæir, var saimþykkt að friesta verkföllum þeim, sem verka'lýðsfélögin höfðu boðað á athafnasv. ÍSAL hf. í Straumsvík og hefjast áttu klukk an 24.00 í gærkvöHi. Var verk- föilunum frestað í tvo sólar- hringa vegna fjarvenu Hermanns Guðmundissonar, forimanns Verka mannafélagsins Hlífar. Skriðu d veginn í Fugrudul Egilstöðum 5. júni. í GÆRKVELDI um kl. 8.30 féll aurskri'ða á veginn í Fagradal rétt ofan við Skriður og bílar, sem voru þarna á ferð tepptust í tvo til tvo og hálfan tíma, en þá kom vegagerðin með jarðýtu ofan af Reyðarfirði og hreinsaði. Tvær smáskriður féllu á veg- inn nokkru neðar og var önnur þeirra smá faratálmi. Stórrigning var þarna seinni hluta gærdags- ins og laakir og ár í miklum vexti. Ekki er kunnugt um vega skemmdir víðar hér á Austur- landi. — Ha. Myndin er tekin í deild Eim-skipafélagsins á sýningunni „fslendingar og hafið“. Frexnst sjást böm skoða líkan af nýju vörugeymsluhúsi Eimskips, sem á að rísa þar sem kolakraninn stóð. — Við hafnarbakkann er svo eitt af skipum Eimskips. (Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.) Orlofsferöir Gullfoss kynntar f SÝNINGARDEILD Eim- skipafélagsins á íslendingar og hafið verða í dag staddir starfsmexxn úr farþegadeild fé Iagsirxs, til þess að kynna sýn- ingargestum hinar fjölbreyttu sumarleyfisferðir með ms. Gullfossi til Skotlands og Dan merkur. Þar verða veittar upplýsingar um allt það, sem viðkemur ferðum skipsins í sumar og einnig munu liggja frammi bæklingar með lýsing u-m á þeim mörgu og fjöl- þættu skoðunar- og skemmti- ferðum, sem farþegum gefst kostur á bæði í Skotlandi og Englandi í sambandi við ferð- ir skipsins. Þá verða einni-g getoar upp- lýsingar um möguleika þá, sem eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga, til þess að ferð- ast til útlanda ódýrt með eig- in bil og um meginland Evr- ópu og víðar. Hefur Eimskipa félagið gefið út sérstakan bækling með upplýsingum fyr ir þá, sem ferðast vilja er- lendis á eigin bíl. Geta má þess, að mikil að- sókn er að ferðum ms. Gull- foss í sumar. „Fundum hvergi raunveru- lega síldargöngu" — segir Hjálmar Vilhjálmsson, íiskifræðingur, sem nýkomin er úr síldarleitarleiðangri austur og norður af landinu „Vlð fundum hvergi raunveni lega síldargöngu“, sagði Hjálm- ar Vilhjálmsson, fiskifræðingur, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann í gærkvöldi, en Hjálmar var leiðangursstjóri í fyrsta síldarleitarleiðangrinum í ár. „Allt bendir til, að síldin haldi sig djúpt framan af í sum- ar, hélt Hjálmar áfram, þó hugs anlegt sé, að hún gangi vestur með suðurjaðri kalda sjávarins úti af Austurlandi“. Þessi fyrsti síldarleitarleiðang ur stóð í tæpan mánuð, því Árni Friðriksson lagði af stað 6. maí og Hafþór tveimur dögum síðar. Leituðu skipin á svæðinu frá 8 gr. V.l. að 5 gr. A.l. og milli 63 gr. og 30 mín. N.br. og allt norður um 70 gr. N.br. Alls sigldu skipin um 10.000 mílur í þessari för. „Við byrjuðum sunnan til á þessu svæði“, sagði Hjálmar. „Þá urðum við víða varir við lóðanir þar, en sennilega hefur meirihlutinn verið kolmunni, þó verið geti að um síld hafi verið að ræða í kring um 7 gr. V.l. og 64 gr. N.br. Upp úr miðjum maí urðum við varir við torfu- Framhald á bls. 31. Gunnari Thoroddsen ingnnð á Hellissandi Geislunartilraunir á fiski hefjast hér eftir mánuð — Tæki til tilraunanna sett upp að Skúlagötu 4 HINGAð til lands er komið tæki mikið, sem nota á við til- raunir í sambandi við geislun á fiski. Verður tæki þetta sett upp í Skúlagötu 4 og þar fara síðan fram rannsóknir á geymslu þoli fisks, en rannsóknir í ýms- um löndum undanfarin ár hafa sýnt, að unnt er að tvöfalda geymsluþol fersks fisks með því að geisla hann með jónandi geislum. Að þessum rannsóknum hér standa ríkisstjórnir íslands og Bandaríkjanna, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðakjarnorku- málastofnunin. Dr. Þórður Þorbjarnarson, for stjóri Rannsóknarstofnunar fisk iðnaðarins, átti fund með blaða- mönnum í gær og kom þar fram að tilgangur tilraunanna hér væri, að kanna notagildi þess- arar geymsluaðferðar við aðstæð ur eins og þær, er ríkja í ís- lenzkum fiskiðnaði og fiskverzl Framhald á bls. 25. Hellissandi. A N N A R kynningarfundur stuðingsmanna Gunnars Thor oddsens var haldinn á Hellis- sandi í gærkveldi í hinu glæsilega félagsheimiii stað- arins. Sótti fundinn fólk frá Ólafsvík, Grundarfirði og Hellissandi og nálægum sveit um. Var hann ágætlega sótt- ur. Rögnvaldur Ólafsson framkv.- stjóri á Hellissandi setti fundinn og stjórnaði honum. Ræður fluttu: ÞórÍT Ingvars- son sveitarstjóri, Hellissandi, Emil Magnússon framkv.stj. Grundarfirði, Magnús Antons- son verzlm., Ólafsvík og séra Hreinn Hjartarson prestur í Ólafsvík. Síðan flutti Gunnar Thoroddsen ávarp. Kom hann víða við og ræddi m.a. hlutverk og starf forseta lýðVeldisins og nauðsyn þess að hann hefði sem víðtækasta þekkingu á lands og þjóðar högum. Var ræ'ðu Gunnars Thorodd- sens tekið sérlega vel. Að henni lokinni voru bornar fram fyrir- spurnir, sem Gunnar Thorodd- sen svaraði. Að síðustu mælti Friðjón ÞórSarson nokkur hvatn ingarorð til fundarmanna. Fund- inum lauk með því að fundar- menn hylltu frú Völu og Gunn- ar Thoroddsen. Fór þessi fundur í öllu hið bezta fram. Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.