Morgunblaðið - 09.06.1968, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JtTNT 196«
Grágæsin í Vatnsmýri
rotuð á hreiðrinu
UNDANFARIN ár hefur grágæs
orpið suður í Vatnsmýri. Hún
hefur oftast orðið fyrir meira
eða minna ónæði af völdum
barna og unglinga, sem sækjast
eftir að ganga um þessar slóð-
ir. Oftast hefur hún verið rænd
öllum sínum eggjum, nema einu
og i ár kom ungi úr þessu eina
eggi, en þá keyrði nú fyrst um
þverbak.
Þegar eftirlitsmaður fuglanna
við Tjörnina, Sigurður Samúels-
son, kom að hreiðrinu í gær,
var þar ljótt um að litast. Ein-
hver óþokkinn hafði rotað gæs-
ina með spýtu, sem lá þarna blóð
ug hjá hreiðrinu. Gæsin sjálf
var rétt við hreiðrið. Unginn var
á burtu, hefur sennilega verið
rænt. Atburður þessi hefur gerzt
annað hvort á þriðjudag eða
fimmtudag.
„Það átti svo sem ekki af þess-
ari grágæs að ganga,“ sagði Sig-
urður Samúelsson, þegar við
hittum hann hjá gæsahreiðrinu
á föstudag. „Oft er búið að hrella
hana. f hitteðfyrra var reynt að
kveikja í sinu hjá hreiðrinu,
hreinlega brenna hana. Eitt sinn
átti hún 14 egg, en þeim var
öllum rænt utan einu. Og það
er ekki svo, að verið sé að ræna
eggjunum til matar. Það væri
nú sök sér, heldur hafa þau leg
ið mölbrotin hjá hreiðrinu. Mér
er þetta alveg óskiljanlegt."
Myndina tók Sveinn Þormóðs-
son hjá hreiðrinu á föstudag.
Dúnninn í hreiðrinu má greina
nær, en gæsin er fjær og spýt-
an, sem notuð var til að rota
grágæsina. Svona atburðir mega
ekki endurtaka sig.
Varizt of
hraðan
akstur!
Galdra-Loftur
í Ósló í kvöld
GUÐLAUGUR Rósinkranz, Þjóð-
leikhússtjóri, skýrði Morgun-
blaðinu svo frá í símtali við Osló
i gær, að leikflokkur Þjóðleik-
Ferming í
Hellnakirkju
hússins muni sýna Galdra-Loft
í Det Norske Teatret í Osló í
kvöld. Sé talsverður áhugi á sýn
ingunni þar í borg.
Guðlaugur sagði, að sýning-
unni í Stokkhólmi og Helsinki
hafi verið mjög vel tekið. Hefði
bæði leikritið og leikarar feng-
ið góða dóma.
Bjargaði mönnum
og sokknum bát
Skáld á mannbroddum í Hornbjargsvita
ísafirði, 8. júní.
VARÐSKIPIÐ Albert kom hing-
að um þrjú leytið í nótt með skip-
verjana 3 af vélbátnum Reyni ÍS
526, 8 tonna, sem sökk hjá Horni
í fyrrakvöld. Varðskipsmönnum
hafði tekizt að bjarga bátnum og
drógu þeir hann hingað.
Mbl. ræddi við Kjartan Sig-
mundsson formann á Reyni og
sagðist honum svo frá: „Laust fyr
ir miðnætti í fyrrakvöld vorum
við staddir í svonefndum Régia
undir Hornbjarga um 200 metra
frá landi í þreifandi norðan bil
og frosti.
ísinn þrengdi mjög mikið að
okkur og var að loka okkur inni.
Tók þá bátinn niðri, en höggið
var svo lítið að ekkert hefði orð-
ið að. Einni til tveimur mínútum
síðar fór ég fram í til að fá mér
kaffi, en sá þá strax að sjór var
kominn upp á hálfa bekki. Rauk
ég þá aftur í og keyrði á fullri
ferð að landi, en þarna er mjög
stórgrýtt og sökk báturinn nokk-
uð fram af fjörunni. Nánar til-
tekið fram af Miðdal, sem er á
milli Kálfatinda og Miðfells.
Við reyndum að blása upp
gúmbátinn, en taugin slitnaði og
gátum við þá ekki gert meira
við hann. Við höfðum pramma
merðferðis og komumst í hann
og rérum út að Horni, en þar
höfðum við bækistöð í eyðibýli
að Horni. Þar þurrkuðum við föt-
in okkar, og rérum síðan yfir í
Höfn í Hornvík og komum þang-
að um hálf tíuleytið í gærmorg-
un.
Þar er neyðarsendir og gátum
við strax talað við ísafjörð og
látið vita af okkur. Vildi þá svo
til að varðskipið Albert var ein-
mitt á leiðinni til Látravíkur og
kom það og tók okkur.
Með varðskipinu var Einar
Bragi rithöfunduir og kona hans,
en þau ætla að leysa vitavarðar-
hjónin á Hornbjiargsvita af í mán
aðartíma. Gerðu varðskipsmenn
tvær tilraunir til að koma þeim
Rúmlega 100 manns
til vinnu og skóla
N.K. ÞRIÐJUDAG fer þota Flug
félagsins til London með 113
manna hóp, sem fer til skóla-
náms og í vinnu. Ferðaskrifstof-
an Útsýn hefur milligöngu um
að ráða skólafólk til vinnu í sum
arbúðum Butlins, sem eru víða
í Bretlandi og Skotlandi. Mjög
mikil eftirspurn hefur verið eft-
ir þessari vinnu og verður ferða-
skrifstofan að senda töluverðan
hluta fólksins með öðrum hætti,
en Útsýn hafðileigt þotu Flug-
félagsins til þess að lækka ferða-
kostnaðinn fyrir skólafólkið.
Þetta er fyrsta leiguflug Útsýnar
á þessu sumri, en Útsýn hefur í
sumar samið um fjölda leigu-
flugferða til margra dvalarstaða
við Miðjarðarhaf til þess að gefa
fól'ki kost á, sem ódýrustum ferð
um í fjölbreyttu úrvali.
Skóla- og vinnufólkið mun
flest allir korna heið með þot-
unni þann 10. september. Lág-
marksaldur í þessa vinnu er 18
ár og gat Útsýn ekki annað öll-
um eftirspurnum.
Ljósatafla sem sýnir staðsetningu vita íslands og eðlilegt ljósblik
Albeirra.
sunnud. 9. júní,
prestur sr. Hreinn Hjartarson.
Islendingar og hafið:
DRRENGIR:
Bragi Sveinsson, Gíslabæ.
Birgir Sveinsson, Gíslabæ.
Guðjón Kr. Kristgeirsson, Felli.
Páll Pálsson, Malarrifi.
Rúnar Reynisson, Skjaldatröð.
STÚLKUR:
Dóirothea Högnadóttir, Bjargi.
Kristín Helgadóttir Y.-Tungu.
Snjólaug Sveinsdóttir, Gíslabæ.
Fréttaritari Hellnum.
Orðið felmtri
í SVÖRUM þeirra Ólafs Odds-
sonar og Guðmundar Lárusson-
ar um áhrif morðsins á Robert
Kennedy, sem birtist í Mbl. í
igær, er stafavíxl, er illa lítur út
á prenti. Þar er talað um að þeir
hafi orðið flemtri slegnir, en á
auðvitað að vera felmtri.
Kynning Hafnarmálaskrifstofunnar
á morgun mánudag
hafnargerðar væri í helzta at-
vinnuvegi þjóðarinnar og jafn-
MEÐ sýningu þeirri, sem Vita-
og hafnamálin standa hér fyrir á
íslendingar og hafið, er varla um
annan tilgang að ræða en vekja
athygli sýningargesta á þeirri
starfsemi og þeirri þjónustu, sem
ríkið rekur í sambandi við sigl-
ingar við fsland. 1 vitadeild er
skýrt frá í máli og myndum og
sýningu á vitatækjum svo og
fyrstu viðbrögðum í vitamálum
fyrir rúmum 90 árum og siðan
sýnt vitakort fslands eins og það
er nú, þar sem hver viti lýsir
með sínu sérstaka ljóseinkenni.
Árlegur kostnaður við að reka
alla vita landsins, radiovita og
sjómerki, þar með einnig talinn
rekstur vitaskips, mun um kr.
17.000.000.00, þegar með er talinn
viss hluti af stjórnunarkostnaði
stofnunarinnar. Til bygginga á
nýjum vitum, er nú árlega varið
um 3,0 millj. króna.
í hafnadeildinni er að finna
líkan af Vestmannaeyjum,
stærstu verstöð landsins, eða
réttara sagt hluta af Vestmanna-
eyjum, þar sem höfnin kemur
fram. Var þetta hugsað þannig,
að með því að vekja athygli á
einni þýðingarmestu fiskihöfn
landsins, væri sýningargestum
bent á hve veigamikill þáttur
framt vakin athygli á veigamik-
illi forgöngu sveitarfélaganna í
hafnarframkvæmdum.
Sjómælingadeildinni er sérstak
lega ætlað að sýna, með saman-
burði tveggja líkana af hafsbotni
út af Reykjanesi, mismun á gam
alli og nýrri sjómælingatækni.
Annars vegar með handlóði en
hins vegar með bergmálsdýptar-
mæli. Á það að vera auðvelt fyr-
ir hvern og einn að bera saman
þessar tvær aðferðir og fá þann-
ig séð hve nákvæmni í mæling-
um með nýjum og fljótvirkari
tækjum veitir sjófarendum auk-
ið öryggi.
í land í Látravík, en tókst ekki.
Snéru iþeir aftux að Horni og
fóru varðskipsmenn gangandi [
fylgd með hjómmum að vitan-
um. Var svo svellað á þessum
slóðum að allir tvrðu að ganga
með mannbrodda.
Stýrimennimdx á Albert fóru
síðan að athuga bátinn, sem þá
vax í kafi með stefnið upp úr.
Köfuðu þeir þrátt fyrir mikinn
kulda og tókst að þétta bátinn
og draga hann út og var farið
með hann á Hornvík. Þar köfuðu
stýrimenniirnir aftur og skoðuðu
bátinn og reyndist sjófær. Ég tel
það alveg einstætt afrek að þeim
skyldi takast að bjarga bátnum.“
Þeir félagar voru við eggja-
töku undir Hornbjargi við mjög
erfiðar aðstæðux og höfðu feng-
ið 600 egg, þegar óhappið varð.
Þeim varð ekkert meint af þessu
volki.
H. T.
- ÚTFÖR
Framh. af bls. 1
safnazt þar í kring, bæði á Fifth
Avenue og hliðargötum.
Um kl. 12.30 að staðartíma (kl.
16.30 að ísl. tíma) var gert ráð
fyrir, að kistan yrði borin um
borð í lestina, er átti að flytja
hana og líkfylgdina til Wash-
ington. Var sagt í morgun, að
lestin mundi hægja ferðina á
nokkrum stöðum á leiðinni, m.a.
er farið yrði um Newark og
Camben í New Jersey, Philadelph
ia í Pennslyvania og Baltimore í
Maryland, þar sem búizt var við
miklum mannfjölda. Búizt var
við, að um þúsund manns yrðu
í föriruni, en kistan sjálf verður
höfð á palli, sveipuð rauðu flau-
eli.
Til Washington var áætlað að
kiomið yrði nokkru fyrir kl. 16
að staðartíma. Þar mun líkfyigd-
in fara framhjá dómsmálaráðu-
neytinu á Constitution Avenue,
þar sem Robert Kennedy var
ráðherra; fram/hjá skritfstofum
öidungadeildarinnar, þar sem
hann vann síðustu áriin; framíhjá
Hvíta húsinu; framihjá „borg
hiinna fátæku“, sem slegið hefur
vierið upp í borginni vegna her-
ferðarinnar gegn fátækt; fram-
hjá minniismerki Lincolns, þar
sem kór syngur sorgardög; yfir
Potomac um Memorial-brúna og
inn í Vixginia, þar sem er heimáli
Kennedyjhjónanna ag tii Arling-
ton kirkjugarðsins, þar sem 147
Bandaríkjamenn eiga sér hvílu-
stað.
Athiöfnin þar verður stutt og
iátlaus. Richard Gudhing, kard-
inál'i, vinur K e nn edy -fj ölskyW-
unnar, mælir síðuistu orðiin yfir
kistunni, áður en hún verður lát-
in síga í gröfina og Leonard
Bernstein hljómsveitarstj, annar
vinu fjölskyldunnar stjórnar
Philhormoniuhljómsveitinni í
New York, sem leikur þátt úr
fimmtu sinfóníu Mahlens.
Meðal þeirra, sem bera kistu
Kennedys, verða Edward, ynigsti
bróðir hans og sá eini ex eftir
lifir bræðranna og elzti sonur
Roberts, Joseph; ennfremior
Averell Harrimann, sérlegiux
sendimaður Bandaríkjaforseta,
McNarmara, forseti Alþjóða-
bankans sem kom frá París,
og Harleck lávarður, fyrrum
David Ormsby Gore, sendilherra
Breta í Washington í stjórmartíð
Johns F. Kennedys.
Sjónvarpað verður um öll
Bandaríkin frá útförinni og hófst
dagskráin, þagar klukkan níu í
morgun að staðartíma. Verður
fylgzt með öllum þáttum útfar-
arinnar og er ekki gert náð fyrir,
að dagskránni ljúki fyrr en
undir kl. 8 í kvöld, að staðar-
tíma.
f dag verður sungin sálumessa
fyrir Robert Kennedy í St.
Francis Xavier kirkjumni í
Hyannisport í Massachusettes,
en þá kirkju sótti hinn látni tíð-
um og var þar kórdrengur sem
barn.
Samúðarfcveðjur hafa borizt
Kennedy-fjölskyldunni víða að,
m. a. frá fjölda þjóðhöfðingja.
Páll páfi, sem sendix fuiltrúa
sinn til útfararinnar, söng í morg-
un í kapellu sinni messu fjrrir
sálu Roberts Kennedy, þá þriðju
frá því hann vax skotinn.