Morgunblaðið - 12.06.1968, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.06.1968, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JUNI ITTTO Skipta um félög en halda búsetunni Reykvískir íþróttamenn keppa fyrir ýmis félög úti á landi ÞAÐ hefur vakið athygli í vor að mikið hefur verið um félaga- skipti hjá frjálsiþróttamönnum. Munu þeir að minnsta kosti fimm talsins hafa skipt um fé- lög og keppa í sumar fyrir ýmis félög úti á landi langt frá þeim stöðvum sem þeir eiga lögheimili á. Jón Pétursson ,hástökkvari, og síðar kringlukastari KR keppir í sumar fyrir HSH á Snæfells- nesi. Hallgrímur Jónsson, kringlu- kastari, keppir í sumar fyrir HSÞ (S-Þing). Þorsteinn Löwe, kringlukastari ÍR, keppir í sumar fyrir UMS Eyjafjarðar. Karl Stefánsson lang- og þrí- stökkvari KR, keppir í sumar fyrir Breiðablik í Kópavogi og Trausti Sveinbjörnsson hlaupari í FH keppir í sumar fyrir Breiða bhk í Kópavogi. Enginn þessarra manna hefur skipt um búsetu eða lögheimili, sem er Reykjavík eða Hafnar- From - Akur- eyri 18. júní LEIKUR Fram og Afeuneyringa i 1. deiLd, sem fram átti að fara iaugardaginn 15. júní á Lau'gar- dalsvellinuim, hefur verið ffliutt- ux titt og fer hann fram þriðju- daginn 18. júní. Leifeurinn fer fram á Laugardalsveiliniuim og hefst hann fcl. 20.00. Drengjumeistaru mótið í kvöld í KVÖLD kl. 8 hefst á Laugar- dalsvelli Drengjameistaramótið í frjálsum íþróttum. Keppendur eru beðnir að mæta á vellinum ki. 7 til skráningar. Keppt verður í kvöld í þessum greinum: 100, 400 og 1500 m hlaupum, 110 m grinda'hlaupi, 4x100 m boðhlaupi, kúluvarpi, kringlukasti, hástökki og lang- stökki. — 150 þús- und pund ALLAN Clárke, hinn efni- Iegi unglingalandsliðsmaður í enskri knattspyrnu var í gær seldur frá Fulham til Leicest- er fyrir 150 þúsund pund eða sem svarar 20.7 millj. ísl. kr. Þetta er langhæsta upphæð sem getur í enskri knatt- spymu fyrir leikmann. Fulham féll úr 1. deild í 2. deild nú í vor. Félagið seldi einnig framherjann Frank Large til Leicester. Hann fór á 50 þúsund pund. fjörður, og þeir munu áfram þjálfa með sömu félögum og þefr áður kepptu fyrirH Astæðan fyrir þessum „flótta úr þéttbýlinu" er sú að í sumar verður háð landsmót UMFÍ. Munu þessir menn hafa hug á að keppa þar — en þátttaka er að- eins heimil Ungmennafélögum, en ekki öðrum íþróttafélögum. Félagi í Ungmðnnafélagi nýtur allra réttinda innan ÍSÍ en önn- ur félög t.d. íþróttafélög í kaup- stöðum hafa ekki aðgang þar. Burizt um til- verurettinn Á föstudaginn verður reynt að fá úr því skorið hvort ísfirðingar eða Siglfirðingar eiga að leika í 2. deild í ár þ.e. halda sínu sæti þar og hvort félagið eigi að falla í 3. deild. Liðin mættust hér á dögunum og skildu jöfn 1:1 eftir framlengdan leik. Leikurinn verður á Melavelli á föstudagskvöldið. 16 ára unglingur vann Jason Clark bikarinn í golfi Einar Cuðnason vann Hvítasunnubikarinn NÝLOKIÐ er á golfvel'linum í Grafarholtslandi keppni G.R. um Hvítasunnubikarinn. Keppni þessi er ein af stærri keppnum félagsins. Bikar sá, er keppt var um, var gefinn Golfklúbbi ís- lands, en svo hét G.R. fyrstu ár golfíþróttarinnar á íslandi. Einn af frumherjum þess klúbbs, Ól- afur Gíslason stórkaupm., vann þennan veglega farandgrip fyrst ur manna árið 1937. Fjölmargir kyifingar hafa unnið þess hefð oftar en einu sinni síðar. Sá, sem oftast hefur unnið eð_a fimm sinn um alls, er Ólafur Ágúst Ólafs- son, sonur þess manns, er fyrst- ur bar sigur úr býtum. Hvítasunnukeppnin 1968 hófst að vanda með undirbúnings- keppni með forgjöf, þar sem keppt var um þau 16 sæti, er rétt gefa til þátttöku í framhalds keppni. Ljómandi veður var þann dag, 18. maí. Leiknar voru 18 hol ur með forgjöf og voru þátttak- endur um 35 talsins. Árangur 3ja beztu manna þenn an dag: Með forgjöf : Arnkell B. Guðmundsson og Jón Thorlacius á 66 höggum 3. Gunnlaugur Ragnarsson 69 högg. Án forgjafar: 1. Einar Guðnason 81 högg 2. Arnkell B. Guðmundsson 83 h. 3. Tómas Árnason 86 högg. Framhaldskeppnin: Þeir 16 kylfingar, sem áfram komust, léku síðan tveir og tveir innbyrðis holukeppni í útsláttar formi næstu viku á eftir. Keppm var mjög hörð og urðu sumir að hefja aðra umferð á veilinum áður en úrslit fengust. Þessi keppni var líka leikin með for- gjöf. Þeir tveir er eftir stóðu á iaugardaginn 25. maí, voru Ein- ar Guðnason (forg. 8) og Sveinn Snorrason (16). Til úrsiita voru leiknar 18 holur, eins og í und- anrásunum. Lengi vel mátti efeki á milli sjá en á síðustu tveimur síðustu holunum .tryggði Einar sér sigur. Völlur félagsins er nú að verða allsæmilega leikhæfur enda fjöldi fólks, sem nýtur þar golf- leiks og útiveru dag hvern. Ný- lega er hafin veitingaþjónusta í hinu glæsilega félagsheimili, þar sem veitingar eru framreiddar frá kl. 2-10 daglega. Jason G. Clark keppni G.R. Laugardaginn 1. júní var háð á golfvelli G.R. við Grafarholt ár leg keppni um forkunnarfagra marmarastyttu, er félaginu var gefin 1958 til minningar um ung- an Bandaríkjamann, sem lézt af slysförum á Keflavíkurflugvelli. Jason G. Clark var frábær golf- leikari og ágætur félagi þann stutta tíma, er hann veitti birtu á golfíþróttina hérlendis. Veður var fremur óhagstætt til keppni. Eigi að síður hófu 38 kylfingar keppni en 7 heltust úr lestinni, er á leið, sögum slagviðris og vosbúðar. Þótt árangur væri ekki sem beztur, var mjótt á munun- um, hver hreppti hinn glæsilega grip. Ólafur Skúlason, sem að- eins er 16 ára gamall, lék 18 holur vallarins á 82 höggum, þ.e. á 69 h. nettó að frádreginni forgjöf hans 13. Við svo afleit skilyrði til leiks, er ríktu þenn- an dag, verður að telja þetta lofsverða frammistöðu af 16 ára unglingi. Þetta var bezti árangur dagsins, svo að Ólafur Skúlason hreppti hinn glæsilega farand- grip til varðveizlu í 1 ár. Árangur beztu manna varð annars, sem hér segir: Með forgjöf: 1. Ólafur Skúlason, 69 högg. 2. Haukur Guðmundsson 70 h. 3. Gunnar Kvaran 71 högg. 4. Hörður Ólafsson 72 högg. Án forgjafar: 1. Ólafur Skúlason 82 högg. 2. Hafsteinn Þorgeirsson 87 h. (gestur) 3. Ottar Yngvason 89 högg. Þessar síðbúnu myndir frá lokaátökunum í keppninni um Evrópubikar félagsliða tala skýru máli um hve snar þáttur knattspyrnan er í lífi i Evrópubúa. Fullskipaður Wembleyleikvangur og beint sjónvarp um alla Evrópu — og víðar gáfu tekjur af leikn- um sem námu um 70 millj. ísl. kr. Á annari myndinni sést mark það er Brian Kidd skor- aði með skalla undir þverslá. Kidd er á miðri mynd (dökk- klæddur nr. 8). Hin myndin sýnir Bobby Charlton, sem skoraði tvö marka Manch. Utd. í úrslitaleiknum, lyfta bikarnum, sem er engin smá- smíði, til lofts í sigurgleði og hið sama má lesa úr andliti Stephney markvarðar. íþróttubluðið komið út ÍÞRÓTTABLAÐIÐ, 1. hefti þessa árgangs, er nýlega komið út. Er blað þetta margfalt að stærð og bætir því upp að nokkru það hlé sem orðið hefur á útfeomunni. Blaðið flytur yfirlitsgreinar um íþróttastarfið 1967, afrekaskrá í sundi og frjálsum íþróttum og metaskrár. Er fjallað um eftirtald ar greinar (innan sviga blaðsíðu fjöldi um hverja grein): Bad- minton (3), Frjálsíþróttir (36), Glímu (25), judo (3), knatt- spyrnu (10), körfuknattleik (J8), lyftingar (1,5), skíðaíþróttir (4), sund (21). Blaðið er alls 114 síður auk kápu. Enn nýtt sundmet Ellen Ingvadóttir nálgasf 3 mínútur í 200 metra bringusundi Á INNINFÉLAGSMÓTI Sund- sambandsins á sunnudaginn var enn eitt ísl. sundmet sett og annað jafnað. Ellen Ingvadóttir Á synti þá 200 m bringusund og tími henn- ar var 3:01.4 sek eða 2/10 úr sek betri tími en hún náði á vígslumóti nýju Sundlaugarinn- ar, fyrir nokkrum dögum. Þessi árangur Ellenar er mjög góður og má fullvíst telja að hún fari fljótt undir 3. mínútna tak- markið. Má og geta þess að þessi tími er 4/10 úr sek. frá lágmarki því sem SSÍ setti til þátttöku á norræna unglingamótinu í Osló 2. og 3. júlí n.k. Yrði ánægjulegt fyrir Ellen að fara þangað, þvi móðir hennar er norsk en faðir Ellenar er Ingvi Þorsteinsson magister. Á sama móti jafnaði Leiknir Jónsson Á met Harðar B. Finns- sonar í 100 m. bringusundi 1:14.9. Er það met komið nokkuð til ára sinna, eða 5-6 ára, en þó meðal elztu ísl. sundmetanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.