Morgunblaðið - 29.06.1968, Side 12

Morgunblaðið - 29.06.1968, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1908 „Ungur íslendingur vekur mikla hrifningu sem aðalleikari" — í söngleiknum „Half a Sixpence" í Ba ndaríkjunum FYRIR skömmu var söngleik- urinn „Half a Sixpence“ svið- settur af nemendum Shore- wood High School í Mil- waukee, Wisconsin. Slík myndu ekki þykja markverð tíðindi á íslandi ef aðalhlut- verkið hefði ekki verið í hönd um ungs íslendings, Gísla Björgvinssonar, 15 ára, sem vakti mikla hrifningu áhorf- enda. Gísli er sonur hjónanna Jóns Björgvinssonar prent- myndasmiðs og konu hans frú Margrétar Elíasdóttir, en þau hafa verið búsett í Milwaukee sl. 8 ár, þar sem Jón er starfs- maður einnar af stærstu prent myndagerðum borgarinnar. Fréttamaður Mbl. var við- staddur frumsýninguna á „Half a Sixpence“ og það eru engar ýkjur að segja að Gísli hafi þegar í upphafi unnið hjörtu allra leikhúsgestanna, sem voru um 1000 og fögnuðu Gísla og meðieikurum hans hvað eftir annað með lófataki og þegar Gísli kom einn fram í lok sýningarinnar risu allir Gísli Björgvinsson úr sætum með dynjandi lófa- taki. Mbl. hitti Gísla að máli að tjaldabaki og ræddi við hann stutta stund, en erfitt var að komast að honum vegna allra þeirra er vildu óska honum til hamingju. „Til hamingju Gísli, hvern- ig er þér innanbrjósts eftir að hafa slegið svona í gegn?“ „Þakka þér fyrir, það er óneitanlega skemmtilegt“. „Þú hlýtur að vera þreytt- ur eftir að hafa dansað og sungið samfleytt í næstum þrjá tíma“. „Ég hef ekki haft tíma til að hugsa um þreytu ennþá, en hún kemur sjálfsagt". „Hvernig stóð á því að þú varst valinn í aðalhlutverk- ið?“ „Við vorum nokkrir er taldir voru koma til greina og vorum við látnir ganga undir próf, en að þeim loknum vor- um við tveir eftir og ég var svo heppinn að verða fyrir valinu". „Er þetta i fyrsta skiptið sem þú kemur fram á sviðs- fjölum?" „Nei, nei, þetta er í fjórða skiptið. Ég hef farið með tals- vert stór hlutverk í söng- leikjunum, „Oliver'1 og „Funny Girl“ og svo fór ég með hlutverk dauðans í „Stöðvið heiminn" í vetur“. „Hefurðu hugsað þér að halda eitthvað áfram á þess- ari braut?“ „Já, eins og er heillar leik- hú.slífið' og listir almennt hug minn og þegar ég fer í há- skóla eftir 2—3 ár geri ég ráð fyrir að leggja stund á leik- list og listir almennt". „Hefurðu áhuga á einhverri annarri listgrein?" „Já, ég hef mikinn áhuga á fríhendisteikhingu og svo hef ég svolítið verið að fikta við að mála“. „Nú er orðið stutt til prófa, hafa æfingarnar og allt þetta ekki truflað þig við námið“. Nú hló Gísli. við og sagði: „Ekki svo mjög, en eitthvað hef ég misst niður í frönsk- unni og þegar þetta er allt bú ið verð ég víst að koma mér niður á jörðina og taka hend- inni til við námið“. Eins og fyrr segir vakti Gísli mikla hrifningu með leik sínum og blaðið „Shore- wood Herald“ segir: „Nem- endasýning Shorewood High School á „Half af Sixpence“ var „hreinlega stórkostleg“, eins og viðtökur áhorfenda báru glöggt vitni um, sér- staklega hlutur aðalleikarans Gísla Björgvinssonar, sem um svifalaust vann hug og hjörtu allra viðstaddra. Þar er á f^rð inni mikið efni og það í fleiri en einum skilning, því að Gísl teiknaði einnig hina skemmtilegu kápumynd í leik skránni“. — ihj. ÓLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM: KVIKMYNDIR Stjömubíó: BRÚÐURNAR — eða fjórum sinnum sex (Bambole) MYNDIR af þessu tagi man ég eftir að hafa séð nokkrum sinn- um og allar frá Ítalíu, settar saman úr stuttum sögum, sem fátt eiga sameiginlegt. Sú fyrsta sem ég man eftir var „Sjö dauða syndir", sem sýnd var hér fyrir um það bil fimmtán árum. Mynd sú sem hér um ræðir, er samansett úr fjórum stuttum myndum, sem eiga það eitt sam- eiginlegt að fjalla um samskipti karls og konu. Gera þær það á svo ólíkan og óskyldan hátt, að ekki er hægt að tala um þær öðruvísi en sem fjórar kvik- myndir. Sú fyrsta er fyndin og bitur. Giorgio (Nino Manfredi) langar að láta vel að konu sinni, Louisu (Virna Lisi), auðskilinn áhugi fyrir flesta karlmenn. Hún er að lesa, en þegar því lýkur hringir móðir hennar og símtalið dregst og virðist ætla að verða enda- laust, þegar þær fara að tala um nágrannakonu, sem sé lauslát og taki vinsamlega á móti ókunnug- um mönnum. Giorgio leggur við hlustirnar og fer í heimsókn og símtalið heldur áfram. Önnur myndin nefnist Kyn- bótafræði og segir frá ungn stúlku, sem telur sig hafa fund- ið formúlu fyrir því, hvernig eignast megi afburða sveinbarn, ef aðstæður eru réttar og mað- urinn uppfyllir viss erfið skil- yrði, -líkamleg og andleg. Stúlk- an er Elke Sommer og er að leita í Róm og hefuT sem bílstjóra og leiðsögumann góðlátlegan og heldur aumingjalegan pilt, leik- inn af Piero Focaccia. Virðist hann vera svar Ítalíu við Jerry Lewis. Elke Sommer er þarna að leika asnalegt hlutverk og er því merkilegra að hún leikur skár en hún er vön, sem segir ekki mikið. (Þriðja myndin, Kvöldverður- inn ,segir frá lífi Giovönnu (Monica Vitti), sem gift er ljót- um manni og leiðum. Þráir hún lausn og tekur það til ráða að reyna að kaupa mann til að myrða mann sinn. Það mistekst og hún reynir aftur, þar til fé hennar er búið. Reynir hún þá að kaupa sér aðstoð með því eina sem hún hefur að bjóða, sjálfri sér, en ekki verður séð fyrir end ann á því. Mynd þessi er tekin í hroðalegu umhverfi við fátækt og vesöld. Skín Monica Vitti skært og skarar fram úr öðrum leikurum. Sú fjórða nefnist Signor Kúp- ido, umrituð saga úr Dekameron eftir Boccacio, með flókinn sögu- þráð um konu, sem þráir ástir ungs manns og tekst að ná þeim þrátt fyrir erfiði og truflanir eig inmannsins. Af þessum fjórum myndum skarar þessi framúr. Hinar þrjár stúlkurnar eru allar fallegar, en Gina Lollobrigida, sem leikur aðalhlutverkið, er fallegiri en þær allar og leikur eins vel eða betur en þær allar. Akim Tamiroff leikur biskupinn og gerir það sérlega vel og Jean Sorel leikur unga manninn, og þarfnast það lítils annars en að líta þokkalega út, sem hann og gerir. Það verður ekki komist hjá því að bera saman þessar fjór- ar leikkonur. Fyrir minn smekk ber Gina Lollobrigida af fyrir fegurð, sem er sannast að segja ótrúleg. Að fegurð kemur Virna Lisi næst, síðan Monica Vitti og Elke Sommer síðustu, en það er hún einnig sem leikkona. í heild allgóð skemmtun. Kvenfélagid HRINGURINN Á morgun, sunnudaginn þ. 30. júní, verða blómamerki Hringsins seld á göt- um borgarinnar. Þau börn, sem vilja hjálpa til við sölu blómanna, fá þau afhent í eða við eftirtalda skóla frá kl. 9 f.h. 10% sölulaun. Melaskóla — Laugarnesskóla (smíðahúsinu) Austurbæjarskóla (Vitastígsmegin) Miðbæjarskóla (Þrúðvangur v/Laufásveg) Breiðagerðisskóla — Álftamýrarskóla Langholtsskóla (Félagsheimili K.F.U.M. og K.) Sjómannaskóia (Félagsheimili Óháða safnaðarins).. Allur ágóði af sölu blómanna rennur í „Barnahjálparsjóð Hringsins“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.