Morgunblaðið - 18.07.1968, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1068
5
Heimsókn á Seyðisfjörd:
Við erum menn til að skapa
okkur sæmandi líískjðr
Viðtal við Hrólf Lngólfsson
bæjarstjóra á Seyðisfirði
ÞAð ER dauft yfir atvinnulíf-
inu á Seyðisfirði um þessar
mundir, og allmargir eru þeir,
eem enga fasta atvinnu hafa haft
um langan tíma. Aftur á móti
virðist veðrið reyna að létta
Seyðfirðingum dálítið lífið. Und-
anfarið hefur þar skinið sól í
heiði flesta daga og þeir segja
að þetta séu fyrstu góðviðris-
dagar sumarins. Þó að erfiðlega
hafi árað, virðist fjarri Seyðfirð-
ingum að gefast upp. Ég hitti
bæjarstjórann, Hrólf Ingólfsson
að máli. Hann var reifur og bar-
áttuglaður, og sagði mér fúslega
frá ýmsum almennum bæjarmál-
efnum staðarins. Hrólfur er
Vopnfirðingur fæddur, uppalinn
á Seyðisfirði, bjó lengi í Vest-
mannaeyjum, en fluttist til Seyð-
isfjarðar aftur fyrir röskum fimm
árum og ,tók við stöðu bæjar-
stjóra.
— Hvers vegna ákvaðstu að
snúa aftur til Seyðisfjarðar eftir
allan þennan tíma?
— Ég get ekki svarað öðru til
en því, að römm er sú taug, er
rekka dregur föðurtúna til.
Þetta held ég, að hafi ráðið
mestu um, að ég kom hingað eft-
ir öll þessi ár.
— Var þá síldin í algleym-
ingi?
— Já,- þá var síldin komin og
miklir uþpgangstímar í bænum.
Svo miklir, að ég mundi segja,
að fátt hafi minnt á gamla tím-
ann nema fjöllin.
— Mig langar til að spyrja
þig, hvernig mannlífið var hérna
í hafísnum í vetur?
— Vissulega var það ömurlegt,
þegar fram í sótti. Mörgum þótti
þetta skemmtilegt fyrst, en það
varð lawgdregin skemmtun. Is-
inn lokaði firðinum alveg þann
1. maí og hann hvarf ekki fyrr
en upp úr mánaðamótunum maí-
júní. Allan þennan tíma var veðr
ið að öðru leyti gott, kalt að
vísu, en sólríkt og miklar stillur. .
Fjarðarheiði var ófær þennan
tíma og raunar lengst af í vet-
ur. Auðvitað var þetta hálfgert
vandræðaástand. Töluverður
skortur á nauðsynjum gerði vart
við sig, en það stafaði þó fyrst
og fremst af því ástandi í verzl-
unarmálum, sem var ríkjandi í
bænum, um það leyti og hafís-
inn kom.
Hins vegar langar mig að leið-
rétta misskilning, sem virðist út-
breiddur víða. Það er varðandi
Fjarðarheiði. Þó að Fjarðarheiði
milli Seyðisfjarðar og Egils-
staða sé ófær öllum venjulegum
bílum, kannski allan veturinn,
er fráleitt að segja, að við sé-
um innilokuð og einangruð frá
umheiminum. Við eigum fimm
snjóbíla: þrjá litla, sem getaflutt
sex farþega hver og tvo stærri.
sem geta flutt talsvert magn af
vörum. Þessir snjóbílar eiga ekki
neinum vandræðum með að kom
ast yfir heiðina, þó að allt sé á
kafi í snjó. Það er miklu erfið-
ara á vorin, þegar klaki er að
fara úr jörðu, þá má heita að
heiðin sé um tíma ófær öllum
farartækjum. En eftir að snjór-
inn kemur á haustin ganga ferð-
ir tiltölulega vel. Við erum þvi
aldrei alveg ininilokuð. Það má
segja, að við komumst ekki allt-
af allra okkar ferða, menn
skreppa ekki ijaeð snjóbíl til Eg-
ilsstaða bara að gamni sínu. En
eigi maður erindi og þurfi að
komast, þá komumst við. Ég
held að fólk þurfi ekki að kvarta
þess vegna. Póstur og blöð ber-
ast nær daglega yfir veturinn,
og ég sé því ekki að við séum
neitt tilfinmanlega einangruð.
— Er erfitt að vera bæjar-
stjóri Seyðfirðinga?
— Ætli við getum ekki sagt, að
það er vanþakklátt starf að
Hrólfur Ingólfsson.
gegna opinberum embætt-
lim hvort sem það er bæjar-
stjórastarf eða eitthvað annað.
Fóiki finnst það hafa rétt til að
segja honum fyrir verkum og
gagnrýna störf hans nær tak-
markalaust. Ég segi alls ekki, að
það sé neitt verra hér en ann-
ars staðar.
— Þú vildir kanns'ki segja
mér undan og ofan af félagslífi
og menningarstarfsemi á Seyðis-
firði?
— Félagslífið hefur verið held
ur dauft, en eins og fleira er
það á góðum batavegj. I fyrra
var starfræktur hér tónlistar-
skóli. Við vorum svo heppin að
fá þýzk hjón til okkar, mikið úr
vals fólk, og var áhugi manna
mikill. Þessi þýzku hjón hafa nú
fengið styrk til utanfarar, en ég
er sannfærður um, að þau koma
hingað aftur síðar. Við keyptum
m.a. í fyrra hljóðfæri fyrir lúðra
sveit og æfingar voru hafnar og
karlakór var endurlífgaður.
Við viljum reyna að fá einhvern
góðan tónlistarmann til að koma
nokkra mánuði næsta vetur, til
að þetta detti ekki niður.
LeiklistaTStarfsemi hefur hins
vegar engin verið um nokkurt
skeið. Vaxandi áhugi er á íþrótt-
um, einkum skíðaíþrótt og yfir-
leitt má segja, að áhugi á allri
íþróttastarfsemi sé mjög mikill
og almennur.
Nú, við höfum hér gamalt og
gróið amtsbókasafn, sem er mik-
ið notað, og fáum við eintak af
flestum bókum, sem koma út. Þá
má minnast á, að bærinn rekur
leikskóla fyrir 50-60 börn yfir
sumarmánuðiha og er aðsókn mik
il. Vegna húsnæðisleysis höfum
við ekki getað haldið þessari
starfsemi áfram yfir veturinn.
— Hvernig er Seyðisfjörður
jneð skóla?
— Skólahúsið er gamalt, byggt
1907, en miðað við aldur er það
í góðu ásigkomulagi. Nú er ver-
ið að teikna nýja barnaskóla-
byggingu og þá verður gamla
húsið tekið undir gagnfræða-
skóla, en nú starfa hér þrjár
deildir miðskóla. Við höfumhugs
að okkur, að gamla skólanm
mætti þá jafnframt nota sem iðn
skóla, enúr því verður víst ekki,
vegna nýju iðnfræðlulaganna.
Að mínu áliti eru þessi lög
einhver þau alvitlausustu, sem
hafa verið sett. f þeim er gert
ráð fyrir einum iðnskóla í
hverju kjördæmi og skal iðn-
skóli Austurlands vera á Norð-
firði. Hér á Seyðifirði eru bú-
settir og stunda vinnu tugir iðn-
aðarmanna, sem hafa ílenzt,
vegna þess að þeir gátu lært iðn
ína hérna. Ef þeir verða nú að
fara burt til náms, er eins lik-
legt að þeir leiti til Reykjavík-
ur og ekki á næsta iðnskóla. Og
það er svo með marga sem fara
á brott, að fæstir þeirra koma
nokkurn tíma aftur. Þessi lög
munu koma Neskaupstað að
gagni og er ágætt út af fyrir sig,
en þau munu draga mátt úr ýms-
um öðrum byggðarlögum.
— Nú hafið þið átt í margs
konar erfiðleikum í vetur og
vor, bæði hvað veðurfar og at-
vinnu snertir, hvernig hefur fólk
ið brugðið við eftir velmegun
undanfarinna ára?
— Ég tel, að bæjarbúar séu
furðu rólegir. Auðvitað veit ég
ekki, hvernig færi, ef ekkert
greiddist úr. í vetur höfum við
aðeins einu sinni tekið á mótá
afla til vinnslu, það voru 7-8
þúsund lestir af loðnu. Það
var í febrúar og marz.
— Hafa margir verið atvinnu-
lausir um langan tíma?
— Því er ekki að leyna, að
allmárgir hafa ekki fengið n-eitt
að gera um alllangan tíma. Bær-
inn hefur greitt talvert atvinnu
leysistryggingafé, en að öðru
leyti hefur ekki verið leitað til
hins opinbera.
— Og hvað tekur við, ef ekki
fer að rofa til í atvinnumálum?
— Þá er að herða mittisólina
og taka upp eldri og ódýrari
lifnaðarháttu. Ég segi ekki, að
fólk sé reiðubúið að gera það,
en fæstir mundu sjálfsagt hika
þegar í harðbakkann slær. Við
stöndum að því leyti verr
að vígi en margir nágrannafirð-
irnir, að hér er engin aðstaða
til útgerðar, þar sem við getum
ekki tekið á móti aflanum. En
Framhalð á bls. 21
Vandað raðhús
um 70 ferm. tvær hæðir alls nýtízku 6 herb. íbúð
í Austurborginni til sölu. Laust nú þegar.
Söluverð hagkvæmt.
NÝJA FASTEIGNASALAN,
Laugavegi 12, sími 24300.
m KARNABÆR
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSI NS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
KYNNIÐ YÐUR OKKAR
hagstæðu kjör!
DÖMUDEILD.
★ KJÓLAR VERÐ FRÁ KR. 730.—
★ PILS — — — 570.—
* KÁPUR — — — 1500.—
★ DRAGTIR — — — 1710.—
★ SPORTBUXUR — — — 540.—
* PEYSUR — — — 295.—
NÝJAR VÖRUR TEKNAR UPP í DAG OG
Á MORGUN í BÁÐAR DEILDIR.
HERRADEILD.
★ SKYRTUR VERÐ FRÁ 490.—
★ BUXUR TERYLENE — 980.—
★ JAKKAR — — 1700.—
★ PEYSUR — — 480,—
★ BINDI — — 190.—
* SPORTBUXUR — — 490.—
ALLAR OKKAR VÖRUR KOMA FRÁ
TÍZKUMIÐSTÖÐVUM UNGA FÓLKS-
INS — LONDON — PARÍS — KÖBEN.
PÓSTSENDUM
U M LAND ALLT.
K U N E R T — sokkabuxur fást í fjölda verzlana
í tízkulitum. Þær eru þunnar, en endingin er ótrúlega
góð. Þér sannfærizt eftir fyrstu innkaup á KUNERT-
sokkum eða sokkabuxum.
Umboðsmenn.