Morgunblaðið - 18.07.1968, Qupperneq 21
MOBGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1968
21
Systir Castros
kallar bróður
sinn ræningjn
Miami, Florida, 16. júlí AP
JUANITA Castro kenndi í dag
bróður sinum, Fidel Castro for-
sætisráðherra Kúbu, um hin tíðu
flugvélarán yfir Bandaríkjunum
að undanfömu og sagði, að eina
ráðið til þess að binda enda á
þessi flugvélarán væri að steypa
stjóm bróður síns af stóli.
Húm sagði í viðtali við frétta-
blað kúbanskra útlaga, að Fidel
Castro hefði skipað útsendurum
sínuim í ýmsum löndum Ameríku,
að neyða flugvélar til að fljúga
til Kúbu. Hún sagði, að meðan
bróðir henmar væri við völd
iruundu flugvélafarþegum verða
sífellt meiri hætrta búin vegna
flugvélarána.
- SEYÐISFJÖRÐUR
Framh. af bls. 5
raunar er það aðeins eitt sem
ég hef áhuga á, í stuttu máli: að
reyna að bæta úr atvinnuástand
inu í bænum.
— Sérðu fram á, að það tak-
ist?
— Við vorum margir að gera
okkur vonir um, að samstaða
myndaðist um rekstur fiskiðju-
versins hér, sem er í eigu rík-
isdns. Fjármálaráðherra kaus þó
að fara aðra leið en mangir bæj-
arbúar töldu rétta. Úr því sem
komið er vona ég, að sú ráðstöf-
un beri þann áramgur, sem til er
ætlazt, þó að ég hafi kosið aðra
leið. Það gæti orðið bænum
mikil hjálp, ef hér væri gerð að-
staða til að taka á móti afla til
vinmslu. Nú hefur til dæmis ver-
ið ágætis fiiskirí út af Austfjörð-
■um og atvinna næg á mörgum
fjörðunum, til dæmis í Neskaup-
stað.
— En ef þetta brygðist nú með
fiskiðjuverið. Hefurðu þá aðrar
tiliöigur?
— Þá verðum við að halda á-
fram, þar sem frá var horfið. En
auðvitað verður það erfiðara eft
ir því sem lengra líður.
— Og ef sildin ikæmi?
— Hún gæti bjargað okkur.
tÞað er ekki minnsti vafi á því.
Hér eru þrjár bræðslur og flest-
ir saltendur hafa ágæta söltun-
araðstöðu þó að það drægist eitt-
hvað fram á haustið, þar sem
flestir hafa byggt yfir plönin.
Hins vagar vantar pláss til að
lagera síldina. í fyrra voru starf
ræktar hér sjö söltunarstöðvar.
Kæmi sdld í ár, býst ég við að
þær yrði níu í gangi.
— Finnst þér menn vera með
barlóm vegna atvinnuástands-
ins?
— Nei. Og ég hef góðar von-
ir um vöxt og viðgang Seyðis-
íjarðar. Ég byggi þær vonir með
al annars á því, að á síðustu ár-
um hefur margt ungt fólk stað-
mæmzt hér og reist sér hús. Ég
hef ekki trú á að fólk hlaupi
frá milljón króna húsum, þótt
harðni um sinn á dalnum, held-
ur muni það vilja leggja eitt-
hvað á sig til að skapa sér líf-
vænleg skiiyrði hér að nýju.
Og er ég raunar andvígur öll-
um barlómi. Þessi mynd, sem ég
hef dregið upp, er af ástand-
inu eins og það er. Ég sé svo
enga ástæðu til að Seyðisfjörð-
ur þurfi að fara í hundama. Við
ættum að vera menn til að byggja
upp mannsæmandi líf fyrir okk-
ur. Hinu er svo ebki að leyna,
að það er enfitt að byggja upp
atvinnulíf samhliða síldinni, þar
sem hún hefur jafnan soigað til
sín allt vinnuaflið.
— h.k.
2Uí»r5unWaí>it>
RITSTJÓRIM • PREIMTSMIÐJA
AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA
SÍMI lO.IOD
BEZTU KAUPIIM ERU í
MICHELIIM
HJÓLBÖRÐUIMUM
MICHELIN endast lengur og þér ak'ið fleiiri
km. á MICHELIN X.
MICHELIN spara benzín 1—13%. — Þetta er
staðreynd og hiefur verið sann-
prófað atf RAC í Emglamdi og
ýmsum bitfreiðatféljögum í Hol-
landi, Belgíu, Þýzkailandi og
FrakkLandi.
MICHELIN veita mjög litla miótstiöðu við veg-
inn, en aukið öryggi við framúx-
akstur og aikstur á kröppum
beygjum vegna hins góða griip-
flatar.
FÓLKSBÍLA
OG
VÖRUBÍLA
HJÓLBARÐAR
FLESTAR STÆRÐIR
MICHELIN IIJÓLBARÐA
FYRIRLIGGJANDI.
Hf. Egill Vilhjálmsson
LAUGAVEGI 118, SÍMI 2-22-40.
SIMCA er sterkur bíll, vandaður, sparneyt-
inn og traustur.
SIMCA er bíllinn sem gengur og gengur
og gengur..........
SIMCA er til afgreiðslu strax í Reykjavík
eða á Akureyri.
þjóðvegum landsins.
Bifreiðakaupendur sem bæði velja fallegt
útlit og margsönnuð gæði, velja sér
SIMCA 1301 eða SIMCA 1501.
SIMCA er bíll hinna vandlátu, sem láta
hvert smáatriði skipta máli.
SIMCA er bíll fyrir þá sem óska eftir þæg-
indum og aksturshæfileikum á hinum erfiðu
CHRYSLER-UMBOÐIÐ VÖKULL H.F.
Hringbraut 121 — 10600
Glerárgötu 26 — Akureyri.