Morgunblaðið - 11.09.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.09.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1968 Morgunblaðsmenn hlutu hæsta vinninginn TÓLF starfsmenn Morgunblaðs- ins duttu heldur betur í lukku- þottinn, þegar dregið var í gaer í Happdrætti Háskóla íslands. Dregnir voru 2.300 vinningar að fjárhæð 6.500.000 krónur, en hæsti vinningurinn kr. 500 þús- und kom í hlut Milljónar hf, happdrættisfélags starfsmanna Morgunblaðsins, á hálfmiða nr. 44647. Þeir áttu röð af miðum og 'fengu einnig báða aukavinning- ána, samtals kr. 20 þúsund. 100 þúsund krónur komu á heilmiða tnr. 51519, og voru allir þessir miðar seldir í umboði Frímanns Frímannssonar í Hafnarhúsinu. Páll H. Pálsson hjá happdrætt- inu tjáðj Mbl. í gær, að mjög mikið væri um það, að starfs- félagar innan margra stofnana, spilafélagar, sauimaklúbbs’konur o. fl. mynduðu með sér happ- drættisfélag ag keyptu röð af miðum. Þannig yrðu margir um 'kostnaðinn við að endurnýja, en gæftu á hinn bóginn fengið góð- an skilding í sinn hlut ef heppn- in væri með. tslendingar á f iskmjöls- f r amlei öendaráðstef nu — Ranghermi að Norðmenn hati boðað Málverkasýning þeirra Önnu Sigríðar Björnsdóttur og Ragnheiðar Jónsdóttur í nýbyggingu Menntaskólans hefur verið vel sótt. 400 manns hafa séð sýninguna og 8 málverk selzt. Sýn- ingunni Iýkur um næstu helgi, en hún er opin daglega til kl 22. Hér sést Anna Sigríður við tvær af myndum sínum. „Nýjar aðferðir gagnbylt- ingarsinna í Tékkóslóvakíu" til ráðstefnu um lýsissölu RÁÐSTEFNA Alþjóðasamtaka fiskmjölsframleiðenda (Inter- national Association of Fish- meal Manufacturers) verður haldin í Bremen í Þýzkalandi dagna 30. sept. tii 4. okt. n.k. Þar verða markaðshorfur á mjöli fyrst og fremst til umræðu, en einnig á lýsi. íslendingar eru aðilar að þessum alþj óðasamtökum og mtmu senda fulltrúa til Brem- an-fundarins. Framkvæmdastjóri Félags ísl. fiskimjölsframleið- enda, dr. Þórður Þorbjarnarson, sækir fundinn væntanlega, auk Sveins Benediktssonar, Val- garðs Ólafssonar og Jónasar Jónssonar. Á ráðstefnunni í Bremen mun maður að nafni Harry Kriegel flytja fyrirlestur um lýsisfram- leiðslu í heiminum og markaðs- mál. Sami maður mim einnig flytja fyrirlestur á fundi sam- taka sem nefnast Intemational Association of Seed Crushers, sem haldinn vedður í Bandaríkj- unum í lok september. Þetta eru samtök framleiðenda á feitmet- isvörum til manneldis, fóðurs og iðnaðar, en framleiðsla á þess konar feitmetisvörum er talin nema 37—38 milljónum tonna á ári, þar af um 1 til 1.1 milljón tonn af lýsi. Á ráðistefnu þessara síðast- nefndu samtaka er lýsissala m.a. á dagskrá. íslendingar munu aldrei hafa sótt fundi þessara samtaka. Það hafa Norð menn hins vegar gert. Hitt er alrangt, sem fullyrt hefur verið í dagblaði í Reykjavík, að Norð- menn hafi boðað til sérstaks fundar í Bandaríkjunum til að ræða markaðshorfur á mjöli og lýsL Charles E. Goodell Republikaninn Chorles E. Coodell tekur við sæti Kennedys GERT var ráð fyrir því í gær, að Nelson Rockefeller ríkisstjóri í New York ríki, myndi tilnefna republikan- ann Charles E. Goodell sem öldungadeildarþingmann í stað Roberts heitins Kenn- adys, en sæti hans í öldunga- deild bandaríska þingsins hefur staðið autt, frá þvi hann var myrtur fyrir þremur mán uðum. Goodell hefur átt sæti í fuUtrúadeild bandaríska þingsins í 9 ár. Goodell er lögfræðingur að mennt og nam við Williams College og Yale-háskóla. Hann er 42 ára gamall og átti mikinn þátt í því, að sam- komulag náðist á flokksþing- inu á Miami í Florida um stefnu varðandi Víetnam- styrjöldina, svo að bæði Nix- on og Rockefeller gátu fallizt á hana. Margir republikanar hafa áður látið í ljós gagnrýni vegna þess að þeim hefur þótt líða of langur tími, án þess að skipaður yrði nýr öldungadeildarþingmaðux eft- ir dauða R. Kennedys. Af hálfu demokrata hefur þetta verið gagnrýnt einnig og það opinberlega. Áður á Rockefeller að hafa innt Lindsay borgarstjóra í New York, eftir því hvort hamn sem æðsti maður Repu- blikanafl., næst sér í New York ríki, vildi taka vfð sem öldungadeildarþingmaður. — Gerði Roekefeller þetta sök- run þess, að hann vildi ekki bera ábyrgðina á því, að Lindsay yrði að láta af borg- arstjóraembættinu, nema því aðeins að Lindsay væri því sjálfur fylgjandi. Hefði Lind- say tekið við sætinu í öld- ungadeildinni, myndi demó- kratinn Frank D. O’Connor, forseti borgarstjómarinnar í New York, sjálfkrafa hafa tekið við stöðu borgarstjóra af Lindsay. — segir „Pravda", og sakar blöð þar — um tvöfeldni í fréttaflutningi Moskvu, 10. sept. AP. — Sovézk blöð og fréttastofn- anir halda áfram kvörtunum sín um yfir því hversu hægt gangi að koma ástandinu í Tékkóslóv- akíu í „eðlilegt horf“ en það hugtak hefur ekki fengizt skil- greint af sovézkri hálfu. „Pravda“ málgagn sovézka kommúnistaflokksins, sakar í dag blöð og fréttastofnanir í Tékkóslóvakíu um tvöfeldni í fréttaflutningi og um að berjast gegn Moskvu samkomulaginu. Blaðið segir, að „gagnbylting arsinnar" í Tékkóslóvakíu séu nú að taka upp nýjar aðferðir. Þeir tali hástöfum um „eðlilegt ástand“ og þykja samþykkir Moskvusamkomulaginu, en í reynd séu þeir jafn andvígir því og áður og berjist hatrammri bar áttu fyrir því að geta haldið áfram starfsemi sinni. „Pravda“ segir, að ýmis blöð í Tékkóslóv- akíu reyni að villa almenningi í Tékkóslóvakíu sýn með því að staðhæfa að þar hafi aldrei ver ið nein gagnbylting og andbylt- ingar- eða igagnbyltingarsinnar séu 'hvergi starfandi í landinu. Þá segir „Pravda“, að blöðin birti allskyns umsagnir og grein ar, sem séu í algerri andstöðu við þær ræður og opiwberu til- kynningar, sem þau birti jafn- framt. f gær var það TASS-frétta- stofan sem kvartaði sáran undan því frelsi, sem ennþá ríkti hjá blöðum og fréttastofnunum Tékkó slóvakíu og er augljóst, að leið- togar sovézkra kommúnista ótt- ast þessa aðila mjög. Tass sagði m.a., að sum blöð Tékkóslóvak- íu birtu yfirlýsirigar, sem væru fjandsamlegar innrásinni og inn rásarliðinu, önnur blöð sveipuðu igagnrýni sína einhversonar blæju, sem þó allir sæju gegnum. Sagði Tass, að nauðsynlegt væri að blöðunum yrði stjómað af Málning hf. reynir útf lutning á málningu — íslenzk málning á fœreyskum markaði MÁLNING HF heíur nýlega sent á markað í Færeyjum málningu fyrir u. þ. b. 20 þúsund danskar kr. Kolbeinin Pétursson, for- stjóri, er nýfeominn heim frá Færeyjum, þar sem hann kann- aði markaðsmöguleika og verð og gæði þeirrar málningarvöru, sem þar er seld. f ljós kom að íslenzk málning frá Málningu er fyllilega sambærileig innfluttri Lýst eftir ökumönnum MAÐUR handleggsbrotnaði, þeg- ar hann varð fyrir Volkswaigen- bil á Vesturlandsvegi, skammt austan við Korpu, um klubkan 16:00 í fyrradag. Rannsóknarlög- reglan biður konuna, sem ók Volkswagenbílnum, að gefa sig fram. Konan nam staðar við ó- happið og ræddi við manninn, en hann taldi sig með öllu ómeiddan og ófe konan þá brott. Ekið var á Y-583, sem er grá- blár Daf, þar sem bíllinn stóð á stæði við Tryggvagötu í gær- morgun. Ramnsóknarlögreglan biður ökumanninn, sem bílnum óik, svo og vitni að gefa sig fram. málningu frá Danmörku, Noregi og Þýzkalandi, miðað við verð og gæði. Þegar Mbl. innti Kolbein frétta af útflutningstilraunum 'fyrirtæfeisins, sagði hann, að ]þeim hefði þótt tilhlýðilegt að ireyna fyrst slík vðskipti við sem nálægaStar og skyldastar þjóðir. Kolbeinn lagði áherzlu á, að á þeim útflutningsviðskiptasviðum sem væri verið að reyna í fyrsta isimn, yrði að fara varlega og feynna sér viðskipti, þar sem ýmis vandamál kærnu til greina. Fyrir Færeyjamarkað kvað Kolbeinn helzt um að ræða iskipamáliningu, utanhúss olíu- málningu á járn og tré og svo ,spred satin málningu og voru iþessar málningantegundir í send- pingunni, sem er komin á markað í Færeyjum. Umboðsmaður Máln ingar hf í þessum útflutningi er Agnar Samúelsson, kaupmaður í Kaupmannahöfn. RITSTJÓRIM • PREIMTSMIÐJA AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA 5ÍMI 10*100 „hreinum höndum“, eins og frétta stofan komst að orði. Tass hefur ennfremur birt um mæli nokkurna Sovétleiðtoga um innrásina. M.a. hafði hún eft ir Alexander Shelepin í tilvitn- un í ræðu, sem hann hélt í sendiráði Norður Kóreu í Moskvu að herlið kommúnistaríkjanna í Téfckóslóvakíu mundi „teiða hina göfugu baráttu sína til sigurs“. Á hinn bóginn hafa sovézk blöð og fréttastofnanir ekki minnzt á það einu orði, að de Gaulle forseti Frakklands, hafi fordæmt innrásina í Tékkóslóv- akíu. Tass birti einungis stutta frásögn af blaðamannafundi hans og ræðu og blöðin birtu þá sömu frásögn. Þar var ekkert minnst á Tékkóslóvakíu. Þá berast þær fregnir frá Ung verjalandi, að menntamenn þar í landi hafi sent miðstjórn komm- únistaflokksins orðsendingu þar sem mótmælt var aðild Ungverja lands að innrásinni í Tékkóslóv- akíu. Orðsending þessi mun vera tilefni greinar, er í dag birtist í blaðinu „Magyar Memzet", þar sem sagði, að atburðirnir í Tékkó slóvakíu hefði leitt til átaka með al ungverskra menntamanna, en vafalaust mundu skoðanir margra þeirra breytast, er þeir hefðu fengið nákvæmari upplýs ingar um það, sem þar gerðist og skýringar á því hversvegna „að stoð bræðraþjóðanna við Tékkó slóvakíu var nauðsynleg." Blað ið segir að meirihluti ungverskra menntamanna, sem hafi gengið gegnum „gagnbyltinguna" í Ung verjalandi 1956 og þá andlegu ringulreið, er ríkti þar á eftir, geri sér grein fyrir því, aðmenn verði að „viðurkenna stjórnmála legar staðreyndir." Greiddi 60 þúsund kr. út oð kvöldi Seyðisfirði, 10. sept. jí GÆRKVÖLDI er söltun' lauk úr Óskari Halldórssyni, ^ ! greiddi Ólafur Óskarsson, | söltunarlaunin jafnóðum og k i stúlkurnar skiluðu merkjun- I um, samtals 60 þúsund krón- | ur. Þetta kom sér vel, þar i sem hér var aðallega um, ‘ vinnu húsmæðra og unglinga' I að ræða, sem litla atvinnu' | hafa haft í sumar. Allir fóru I ánægðir heim, en breiðast 1 'brosti Ólafur eigandi síldar-J kinar, og Söderman, kaup- ‘ I andinn. — Sv. G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.