Morgunblaðið - 11.09.1968, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1968
0 Siðferðisuppcldi og Gamla
testamenntið
Pétur Sigurðsson hefur sent Velvakanda
eftirfarandi bréf:
„Velvakandi góður!
TVivegis hefur Auður Ingvarsdóttir rætt
1 dálkum þinum um siðferðisuppeldi og
p á sú góða kona skilið þakkir fyrir áhuga
sinn á því mikilvæga máli, því að vissu-
lega er siðferðisuppeldið einn allra veiga-
n.esti þátturinn í öllu uppeldi, en undrun
mín varð mikil, er ég las eftirfarandi orð
Auðar Ingvadóttur:
„Ég hef oft undrað mig á, hvaða erindi
Gamla testamentið á við okkur, sem köll-
um okkur kristin. Okkar trú er kennd í
Nýja testamentinu og það er það, sem á
aS kenna í barnaskólunum okkar. Gamla
testamenntið tilheyrir allt annarri trú“.
Vissulega langaði mig þá strax að koma
hér að nokkrum athugasemdum, en hugði
þó að öðrum kynni að standa það nær, og
svo komu svör Jóhanns Hannessonar pró-
fessors, auðvitað ágæt og hefur Auður Ingv
dóttir þakkað þau, en nú langar mig að
koma á framfæri nokkrum atriðum.
í Gamla testamenntinu er spurt: „Með
hverju getur ungur maður haldið vegi sín-
um?“ Svar: „Með þvl að gefa gaum að
orði þínu,“ orði Guðs í G.t., þvl að þá
var ekkert Nýja testamenti til. Hefur ung-
* ur maður ráð á, að þekkja ekki þetta
heilræði?
Um ritningar G.t. segir Kristur sjálfur:
„Þær eru það, sem vitna um mig.“ Freist-
aranum svaraði hann með orðunum, „Ritað
er.“ Og þegar hann gekk óþekktur eftir
upprisuna með sorgmæddum mönnunum
tveimur á veginum milli Emmaus og Jerú-
salem þá „lauk hann upp fyrir þeim ritn-
ingunum." Auðvitað ritningum G.t. í dæmi
sögunni um ríka manninn og Lazarus lætur
hann Abraham segja við beiðni rika manns
ins: „Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði
þeir þeim... Ef þeir hlýða ekki Móse
og spámönnunum, munu þeir ekki heldur
láta sannfærast, þótt einhver rísi upp frá
dauðum."
0 Boðorðin tíu
Grundvöllur siðalöggjafar allra kristinna
þjóða eru boðorðin tíu, og þau eru i Gamla
testamentinu. Þar eru líka blessunarorðin,
sem farið er með í hverri messu krist-
inna manna. Ennfremur segir í G.t.: „Þú
skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu
hjarta þínu og af allri sál þinni og af
öllum mætti þínum... og þú skalt eiska
náunga þinn eins og sjálfan þig.“
Þá þekkjum við flest þessi orð G.t. „Þitt
orð er lampi fóta minna og ljós á mín-
um vegum.“
Hvað segir svo postulinn Páll um G.t.?
Við trúbróður sinn Tímóteus segir hann:
„Þar eð þú frá blautu barnsbeini þekkir
heilagar ritningar, sem geta veitt þér speki
til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú."
— Svo talar postulinn um þessar innblásnu
ritningar (þá var ekkert Nýja testamenti
til), sem séu nytsamar til þess að „guðs-
maðurinn sé algjör, hæfur gjör til sérhvers
góðs verks.“ Og svo ættum við að snið-
ganga þessar ritningar Gamla testamentis-
ins, sem menntað geta guðsmanninn í öllu
góðu.
§ Spádómsbók Jesaja
Þegar Kristur kom inn í samkomuhúsið
i Nazaret, var honum fengin spádómsbók
Jesaja og þar las hann eftirfarandi orð:
„Andi drottins er yfir mér, af því að
hann hefur smurt mig, til að flytja fátæk-
um gleðilegan boðskap, hann hefur sent mig
til að boða bandingjum lausn og blindum,
að þeir skuli aftur fá sýn, til að láta
þjáða lausa, til að kunngjöra hið þóknan-
lega ár drottins."
Þennan spádóm heimfærði svo Kristur
upp á lausnarverk sitt. Ég get ekki hugs-
að mér öllu fegurri bók en spádómsbók
Jesaja. Hún er sannkallað guðsspjall Gamla
testamentisins. Þar eru margir spádómar
um Krist.
í sínu stórmerka erindi Alhygð, segir
Einar Benediktsson orð á þessa leið: „Bibl-
ía vor er og í því alómetanlegur fjársjóður
dásamlegrar þekkingar. Þar sem málsandi
gegnum ótölualdir ... Opinberun, spádómar,
hebreskrar tungu er logabjartur viti, á há-
um tindi, yfir hafvillurnar í reiki þjóða,
köll til alvaldsins og umfram allt bænir,
hljóðbærar til alföður stjörnuríkjanna, mæl
ast í engu máli sannar og með langskeytt-
ara hæfi en á þessari fomtungu hins út-
valda lýðs.“
Þannig talar þessi mikli hugsuður um
heilagar ritningar hebresku tungunnar, G.
testamentisins. Hitt er svo rétt, að hin
forna þjóðarsaga Gyðinganna er í G.t. og
þar er ýmislegt Ijótt, en svo er og um
sögu kristinnar kirkju. -Á fermingaraldri
þótti mér Bibliusögurnar, bæði um Jósef
og fleiri, ólíkt skemmtilegri en sumt í
kverinu, sem þó var gott. Nei, spekimáli
og leiðsögn helgirita Gamla testamentis-
ins megum við ekki sleppa við siðferðis-
uppeldi kynslóðanna, því að þau eru „loga
bjartur viti“, eins og skáldið orðaði það.
0 Nokkrar ritningargreinar
Þetta er nú orðið of langt mál, en freist-
andi er þó að bæta hér við nokkrum ritn-
ingargreinum G. t Til dæmis þessum:
Hæli er hinn eilífi Guð, og hið neðra
eru eilifir armar. — 5. Mósebók 33, 27.
Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru,
því að þar eru uppsprettur lífsins.
— Orðskv. 4,23.
Fyrir afturhvarf og rósemi skuluð þér
frelsaðir verða, í þolinmæði og trausti skal
styrkur yðar vera. — Jesaja 30,15.
Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en
dapurt geð skrælir beinin. — Orðskv. 17,22.
Hann veitir kraft hinum þreytta og nóg-
an styrk hinum þróttlausa. Ungir menn
þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, en
þeir sem vona á drottin, fá nýjan kraft,
þeir fljúga upp á vængjum sem ernir.
— Jesaja 40,29—31.
Fel þú drottni verk þín, þá mun áform-
um þínum framgengt verða. — Orðskv. 16,3
Augu drottins hvarfla um alla jörðina,
til þess að hann megi sýna sig máttugan
þeim til hjálpar, sem eru heils hugar við
hann. — 2. Kron. 16,9.
Af nógu er að taka, og allt er þetta
ungum sálum hollt veganesti.
Pétur Sigurðsson."
0 Afskiptasemi af akstri
Brandur skrifar:
„Kæri Vevlakandi!
Það voru orð í tíma töluð, sem Fjóla
skrifaði þér fyrir nokkru um farþegana,
sem alltaf eru að segja bílstjórunum til
og trufla þannig aksturinn. Ég þekki þetta
af eigin raun og veit hvað þeir eru stór-
hættulegir. Og tek undir það, að fræðslu-
menn umferðarmála geri þessu atriði sér-
stök skil i þáttum sínum. Á hinn bóginn
hefur umferðin stórbatnað og er nú ólíkt
liprari en áður. Og svo hafa göturnar í
bænum verið svo fínar I sumar, — hafl
þeir þökk, sem verkið unnu.
Beztu kveðjur, Brandur."
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
SundUugavegi 12. Síml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstíg 31
,ÍM11-44-44
vmam
Hverfisgötu 193.
Síml eftir lokun 31166.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDUM
SÍMI 82347
Balastore
gluggatjöldin j
Bafastore gluggotjöldin
eru í senn þægileg og
smekkleg. Uppsetning er
afor auðveld, og létt verk
oð halda þeim hreinum.
Fóanleg í breiddum fró
40-260 sm (hleypur ó 10
sm). Margra óra ending.
Víndutjöld
Framleiðum vindutjöld í
öllum stærðum eftir móli.
Lítið inn, þegar'þér eigið
leið um L’augaveginn!
Húsgagnaverzlun
KRISTJÁNS
SIGGEIRSSONARHF.
Laugovegi 13, sími 13879
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljoðkutar
púströr o. fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiía
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegj 168 . Siml 24180
Starfssfúlkur
vantar við Héraðsskólann í Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp til eldhússtarfa og ræstinga.
Upplýsingar í síma 82476 milii kl. 7 og 8 næstu daga.
40L3A
Telpna-
buxna-
dragtir
Ný-
komnar
6 herbergja hœð
Til sölu er 6 herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi við
Kópavogsbraut. Afhendist nú þegar tilibúin undir
tréverk. Stærð um 160 ferm. Áhvílandi lón kr. 400
þúsund til 1'5 ára með 7 % ársvöxtum. Auk þess beðið
eftir Húsnæðismálastjómariáni að nokkru Ieyti.
leyti. Allt sér á hæðinni. Glæsilegt útsýni. Teikning
til sýnis á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
Athugið
Tii sölu er hjá Gúmmívinnustofu Selfoss, vörubíll
Ford árg. ’60 2 ifz tonna í mjög góðu standi. Voliks-
wagen rúgbrauð, árg. ’50 með nýju boddíi og nýrri vél.
Skipti á jeppa eða minni bíl koma til greina.
Einnig er til sölu á sama stað loftpressa 50 lítra, mjög
hentug fyrir múrara eða málningarverkstæði.
Gúmmívinnustofa Selfoss,
sími 1626.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigngjald.
Sími 14970
Eítir lokun 14976 eða 81746.
Sigurður Jónsson.