Morgunblaðið - 11.09.1968, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MTÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1963
11
vökva 'það“, bætti hún við til
skýringar.
Aðra unga st.úlku, Jónínu
Guðmundsdóttur, tókum við
tali. „Mér finnst sýningin mjög
góð,“ sagði Jónína „og hún er
skemmtilega sett upp; dálítið
sterkur svipur yfir henni. Ég
held, að sýningar sem þessi veki
áhuga fólks á listum og hing-
að kemur margt fólk, sem ekki
myndi annars eiga þess kost að
sjá myndirnar, eða þá hreinlega
ekki hafa áhuga á því“.
Þetta sannreyndum við
skömmu síðar, þegar við hittum
hjónin Ólaf Hermannsson og
Jóhönnu Ágústsdóttur.
„Við áttum leið hérna fram
hjá og datt í hug að líta á mynd-
irnar“, sagði Ólafur. „Við hefð-
um áreiðanlega ekki farið á þessa
sýningu annars staðar“.
„Og hvernig list ykkur svo á?“
„Æ, mér finnst margt af þessu
hálf dularfullt“, sagði frúin.
„En óneitanlega er gaman að sjá
hvað er að gerast í þessum mál-
um hjá okkur. Og hér kennir
svo margra grasa, að sérhver
hlýtur að finna eitthvað við sitt
hæfi“.
„Mér finnst reglulega gaman
að sjá margar þessara mynda“,
sagði Kristín Guðmundsdóttir,
híbýlafræðingur. Sumar finnast
mér að visu nokkuð framandi,
en hvað um það — svona er
þetta út um allan heim; lista-
mennirnir eru að prófa sig
áfram. Og ég minnist þess, að
myndirnar hans Ásmundar
Sveinssonar áttu ekki upp á pali
borðið hjá ýmsum fyrst í stað.
En það þýðir ekkert að bíta sig
í einhvern óumbreytanleika í
höggmyndalist frekar en á öðr-
um sviðum“.
Við fengum að taka mynd af
Kristínu við Eiturspýtuna hans
Sigurjóns Ólafssonar, sem reynd
ar er allt annað en eitursleg.
„Ég sakna þess að sjá hér ekk-
ert eftir Gerði Helgadóttur“,
sagði Kristín, þegar við kvödd-
umst.
Þannig voru skoðanir áhorf-
anda á höggmyndunum mjög
skiptar, en allir virtust sammála
um það, að gleðileg tilbreyting
væri í útisýningu sem þessari og
að vonandi yrði framhald hér á
til að liíandi tengsl sköpuðust
miLli fólksins og listanna í land-
inu.
Jónina Guðmundsdóttir við Tvíbura Gunnars Maimbergs.
Hin massiva höggmynd verður
æ sjaldséðari. Þessi heitir Kona
og er eftir Sigurjón Ólafsson.
Kristin Guðmundsdóttir við Eit
urspýtu Sigurjóns.
Ólafur Ilermannsson og Jóhanna Ágústsdóttir virða fyrir sé
nafnlausa höggmynd eftir Sigurð Steinsson.
Gutti heitir þessi mynd eftir Jón Benediktsson.
íbúðaskipti
Góð 3ja eða lítil 4ra herbergja íbúð á hæð óskast
keypt helzt í Vesturbænum fyrir stóra 2ja herbergja
íbúð á hæð við Hagamel. Milligjöf.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöidsími: 34231.
Engar þvottahendur
Þér þurfið ekki lengur að óttast þurrt og
sprungið hörund og þrútnar þvottahendur,
því að nú er ÞEL komið í verzlanir.
ÞEL er íslenzkur „lúxusþvottalögur“ og hefur inni að
halda „Dermal“, efni, sem verndar og mýkir hend-
urnar, eins og handáburður, gerir þær enn fegurri og
gúmmíhanzkana algjörlega óþaTfa.
ÞEL er fyrir al'an viðkmæman þvott, einnig uppþvott,
vinnur fljótt og vel og hefur góðan ilm.
Þvoið úr ÞEL og verndið hendurnar.
Allur þvottur verður ánægjulegri með ÞEL.
„ÞEL"
íslenzk úrvalframleiðsla frá
FRIGG