Morgunblaðið - 11.09.1968, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1968
13
Magnús Ú. Ölafsson
stórkaupmaður
I>egar maður er komin nokk-
uð yfir miðjan aldur, fara sam-
ferðamennirnir á lífsleiðinni að
heltast úr lestinni. Maður sér af
einum og öðrum yfir landamær-
in. Nokkuð ber þetta mismun-
andi að, hjá einum er nokkur
aðdragandi, annar hverfur snögg
lega. Svo var um vin minn,
Magnús Ó. Ólafsson, stórkaup-
mann er andaðist snögglega að
heimili sínu Kvisthaga 9, hér
í borg aðfaranótt 3. þ.m. Ég vissi
að vísu að Magnús gekk ekki
heill til skógar, en svo snöggum
umskiptum átti ég ekki von á.
Árin færast yfir mann, lífíð
sígur áfram, og þegar svo er kom
ið haga atvikin því gjarnan á
þann veg, að maður stofnar ekki
til nýrra vináttutengsla. Þá eru
það gömul vináttubönd, er upp
úr standa, og það eru þessi vin-
arbönd og tryggð sem gefa líf-
inu gildi í önn dagsins og hvers-
dagsleika. Og svo þegar gömlu
vinimir hverfa fyllist maður tóm
leika og trega. Og svo var um
mig er ég frétti lát Magnúsar 0.
Ólafssonar.
Magnús 0. ólafsson var fædd
ur í Reykjavík 29. apríl 1908, og
var því aðeins liðlaga 60 ára er
hann lézt. Foreldrar Magnúsar
voru sæmdarhjónin Silvía Guð-
mundsdóttix og Ólafur Ó. Lárus
son héraðslæknir. Uppvaxtarár
sín dvaldi Magnús á heimili for-
eldra sinna austur á Fljótsdals-
héraði, en þar var Ólafur heit-
inn faðir Magnúsar, héraðslækn-
ir, um skeið. Árið 1925 fær Ólaf-
ur veitingu fyrir Vestmannaeyja-
læknishéra'ði, og flytur til Eyja
sama ár. Eftir komu fjölskyldu
Magnúsar til Eyja, mun hann
ekki hafa dvalið að staðaldri í
Eyjum, nám og síðan atvinna í
Reykjavík höguðu því á þann
veg að hann dvaldi fjarri föður-
húsum að miklu leyti til ársins
1935, en þá flyzt hann aftur til
Eyja. Magnús heitinn haslaði sér
í byrjun völl á sviði verzlunar-
starfa, og við þau störf vann
hann í Reykjavík og eftir að
hann kom til Eyja. í Vestmanna-
eyjum, er svo sem öllum er kimn
ugt, fiskveiðar og vinnsla sjávar-
afurða upphafið og endirinn.
Það var því ekki nema að eðlileg
heitum, að þegar Magnús heit-
inn vildi fara að gera eitthvað
sjálfstætt og fyrir eigin reikning,
að þá sneri hann sér að verzlun
með veiðarfæri og nauðsynjar
til báta og skipa. Því var það að
í byrjun seinni heimsstyrjaldar-
innar stofnsetti hann umboðs- og
heildsölufyrirtæki er verzlaði
eingöngu með fyrrgreindar vöru
tegundir.
Á þeim árum var það allt
annað en aúðvelt fyrir févana
menn að koma sér fyrir svo sæmi
legt gæti talist. En með seiglu
og iðni hafði Magnús að vinna
upp þetta litla fyrirtæki sitt.
Hann vissi gerla hvað útgerðar-
menn vantaði, og gerði sér mikið
far um að útvega góðar vörur,
og með árunum tókst honum að
útvega sér góð verzlunarsam-
bönd. Og þar kom áð að árið
1947 er fyrirtæki hans komið
það vel á legg, að hann flyzt til
Rvíkur með fjölskyldu sína og
fyrirtækið. Hér í höfuðborginni
hefur svo fyrirtækið dafnað og
blómgast og í dag er það í hópi
þeirra fyrirtækja er nokkuð kveð
ur að á sviði innflutnings veiðar
færa og nauðsynjum til skipa.
Sem kaupsýslumaður var
Magnús réttsýnn, liðlegur, og
taldi ekki eftir sér, og tók stund
um á sig nokkum krók, ef það
mætti verða viðskiptamönnum
hans til góðs. Hann vildi að
vísu hafa sitt, en taldi á hinn
bóginn að viðskipti væri ekki
hægt að gera nemá báðir aðilar
hefðu nokkum hag af. Orðheldni
og áreiðanleika vildi hann við-
hafa í vfðskiptum og skuldir
sínar vildi hann greiða á gjald-
dögum og sem fyrst.
Dagfarslega var Magnús prúð-
ur maður, óáreitinn, hafði sig
lítt í frammi, og vildi umfram
allt umgangast samferðafólkið, af
meðfæddri hlédrægni og velvild.
Kátur var hann og skemmtinn í
kunningjahóp, en þar fyrir utan
blandaði hann Mft geði við fram-
andi.
Árið 1936 giftist Magnús eftir-
lifandi konu sinni, Guðrúnu Ö.
Karlsdóttur, einhverri mestu
sóma- og myndarkonu er ég hefi
kynnst. Ekki aðeins það að hún
bjó manni sínum igott heimili,
heldur var hún stoð og stytta í
öllu er hann tók sér fyrir hend-
ur. Var vakin og sofin yfir vel-
feiJð hans og heimilisins. Þau
hjónin eignuðust tvær dætur,
Sigríði Hrefnu og Ólöfu Silvíu,
glæsilegar og góðar stúlkur, er
báðar em giftar hér í höfuðborg
inni.
Það er sagt að það lofi enginn
einbýli, svo sem vert er. Þetta er
sjálfsagt satt. Af þessum sökum
var ég nokkuð hugsandi er það
var fastmælum bundið,
a’ð þau ‘hjónin Magnús
og Guðrún, ég og kona
mín byggðum ibúðarhús saman
í Eyjum. Maður hafði heyrt sög-
ur um að misjafnlega gengi hjá
fólki er stofnaði til svona sam-
býlis. En þetta sambýli var upp-
hafið að þeim vinskap og tryggð
er síðan hefur haldist. Og þegar
ég lít yfir farinn veg þá minnist
ég þess aldrei að nokkumtíma
hafi skuggi á falHð. Má það ein-
stakt heita. Dagleg umgengni
kann oft á tíðum að skapa erfið-
leika, en til erfiðleika okkar í
milli kom aldrei. Kom þar til
skapgerð og tillitssemi Magnúsar
og Guðrúnar. Og að leiðarlokum,
gamli vinur, vil ég af heilum
hug þakka þér þessi sambýlisár.
Frá þessum árum eru gejrmdar í
hugarfylsnum margar ánægjuleg
ar minningar, er þú læddir að
manni einhverju skemmtilegu er
varð til þess að dreyfa huganum
frá því sem eitthvað var mót-
stætt í það og það skiptið. Þá
vil ég þakka þér og þínu heim-
ili við tryggð við okkur eftir að
þið komið hingað til Reykjavík-
ur og ekki sést fyrir þá nær-
gætni og hlýju er þú sýndir
börnum mínum eftir að þau eru
flogin úr hrefðri
Ég vil svo fyrir mig, konu
mína og börn, votta Guðrúnu,
dætrum og öðrum venzlamönn-
um innilegustu samúðarkveðjur.
Bj. Guðm.
XXX
Þegar vinur minn Magnús Ó.
Ólafsson hringdi til mín fyrir
nokkrum dögum og við ræddum
hugðarmál líðandi stundar, eins
og svo oft áður, datt mér sízt í
hug, að leiðir myndu skilja inn-
an sólarhrings. Magnús var þá
léttur í skapi, þótt hann kæmi
glöggu og raunsæju auga á við-
fangsefnin. Gamansemina og
hnittin tilsvör hans vantaði ekki
frekar þá en endranær.
Vegir okkar Magnúsar lágu
snemma saman, bæði hér heima
og við verzlunarnám í EnglandL
Vinátta okkar var traust og þeg-
Framhald á hls. 16
Karlmannaskór frá Englandi
Svartir
Verð kr: 698.—
Svartir
Verð kr: 698.—
Svartir
Verð kr: 592,—
Svartir
Verð kr: 592.—
Svartir
Verð kr: 698.—
Brúnir
Verð kr: 698.—
Svartir
Verð kr: 698.—
Svartir
Verð kr: 823.—
Svartir
Verð kr: 823,
Gulir vinnuskór
Verð kr: 845.
SEIMDIJIVf
GEGIM
EFTIRKRÖFIJ
Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100