Morgunblaðið - 11.09.1968, Page 16
r
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 196«
FIJIMDARBOÐ
Aðalfundur Sandfells h.f., ísafirði verður haldinn
í fundarsal Vinnuveitendafélags Vestfjarða í húsi
Vélsmiðjunnar Þór h.f., fsafirði, föstudaginn 13. sept-
ember 1968 kl. 2 e.h.
STJÓRNIN.
7 manno Peugeot stntion
Peugeot er bíllinn fyrir íslenzka staðhætti, mjög sterk-
byggður, kraftmikill, sparneytinn, ódýr í viðhaldi,
aksturseiginleikar frábærir.
Höfum á lager bíla af gerðinni 404 station 7 manna.
HAFRAFELL
Brautarholti 22 — Sími 23511.
Ingiríður Eyjólfsdóttir
Fædd 19. júní 1889
Dáin 25. ágúst 1968
FÓLK ER yfirleitt þannig gert,
að því kemur ekki á óvart, er
það fréttir andlát fólks, sem kom
ið er á efri ár. En mér hefur
sjaldan brugðið eins mikið, og
þegar ég frétti lát Ingiríðar Eyj'
ólfsdóttur frá Yzta-Bæli undir
Austur-Eyjafjöllum. Það er að
eins mánuður síðan ég kynnti
hana fyrir konu minni, og var
Inga þá hin hressasta eins og
hún hafði ætíð verið. Ekki
hvarflaði að okkur, að þessi
kona ætti aðeins eftir mánuð ó-
lifaðan. Ég tel mér bæði ljúft og
skylt að taka mér penna í hönd
og skrifa um Ingu heitna nokkr-
ar línur.
Inga fæddist 19. júní 1889 í
Efra-Hrútafellskoti undir Aust-
ur-Eyjafjöllum dóttir hjónanna
Eyjólfs Sveinssonar og Sigríðar
Helgadóttur. Vegna fátæktar var tók við búi foreldra sinna fyrir
heimilinu tvístrað, er hún var
ung að aldri, og ólst hún síðan
upp á Raufarfelli í sömu sveit.
Árið 1916 giftist hún Ingimundi
Brandssyni, og stofnuðu þau bú
að Yzta-Bæli. Þau eignuðust
fimm börn, og eru þau öll á lífi.
Elin húsmóðir á Eyri við Kolla-
fjörð á Barðaströnd, Tómas Ól-
afur bílstjóri í Reykjavík, Krist
björg og Sigríður húsmæður í
Reykjavík, og Sveinbjörn, sem
ÚTSALAN í Austurstræti 18
EYMUNDSSONARKJALLARA.
AÐEIIM8 4 DAGAR EFTIR
50% AFSLÁTTIJR AF ÖLLIJMI VÖRLM
VERZLUNIN HÆTTIR LAUGARDAG.
NOTIÐ ÞETTA EINSTÆÐA TÆKIFÆRI TIL AÐ
KAUPA GÓÐAN HLUT ÓDÝRT.
REYKJAVIK
Fim'mtuidagskvöld
KEFLAVIK
Mánudagsskvöld
Ræðumennska-sjálfstraust-vinsældir
Dale Camegie námisfceiðið er að hefjast — námiskedðið
imiun hjálpa þér að:
• Öðlast hugrekki og sjálfstraust.
• Tala af öryggi á fundum.
• Auka tekjur þínar, með hæfiteiikom þíniuim að
umgaangast fólik. 85% af velgemginá þinmi eru
fcomin umdiir því, hvemig þér tekst að umgamg-
ast aðna.
• Afla þér vtnsælda og áhrifa.
• Verða betri sölumaður, hiugmynda þinma, þjóm-
ustiu eða vörnx.
• Bæta minni þitt á nöfn, amdliit og staðmeyndir.
• Verða betri stjórnandi vegna þefcfcjngar þimmar
á fólki.
• Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
Dale Carnegie námskeiðið býður upp á tækifæri, til að þjólfa þín beztu persómuiLegu
hæfileika. Meira en 1.000.000 kianlia og kvenraa hafa nú þegar gent það.
Hringið í síma 82930 og eftir ki. 17.00 í síma 30216 og leitið fretoari upplýsimga.
DALE CARMEGIE NAMSKEIÐIÐ
Komráð Adolphsson, viðsfciptafræðimgur.
nokkrum árum. Einnig ólu þau
hjónin upp tvö af barnabörnum
sínum, Erlu, sem nú er húsmóðir
í Þykkvabænum og Ingimund nú
bónda á Skógum.
Ég átti þess kost að dveljast
á Yzta-Bæli eitt sumar hjá Ingu
og Ingimundi, fósturbörnum
þeirra og syni þeirra Sveinbirni
og konu hans Eygló og börnum
þeirra sem þá voru þrjú. Aldrei
hef ég kynnzt neinu heimili þar
sem friður og ánægja voru í
jafn miklum heiðri höfð. Það var
furðulegt að vera á tíu manna
heimili og heyra aldrei styggð-
aryrði né þras. Þau hjónin Inga
og Ingimundur voru mjög sam-
hent, og lærði ég fljótt að meta
þaiu að verðleikum og elska.
Inga hafði einstaka skapgerð til
að bera, og mun ég ávalt minn-
ast heranar sem glaðlyndrar konu
sem leiddi allt dægurþras hjá sér
og var eins og sólargeisli hvar
sem hún fór. Hún gerði gott úr
öllu, og aldrei sagði hún nokkuð
illt um nokkurn mann. Hún var
kona mjög trúrækin og ól börn
sín upp í sannri trú og barna-
börnum sínum kenndi hún sömu
bænir og sálma sem kennt
hafði hún sínum eigin. Eygló
tengdadóttir hennar var henni
mikil stoð og stytta eftir að
hún kom inn á heimilfð, og var
samband þeirra alveg einstakt.
Ég vil að lokum færa mínar
dýpstu samúðarkveðjur öllum að
standendum og vinum Ingu og þá
sérstaklega Ingimiundi eftirlif-
andi manni hennar og hinu heim
idisfólkinu í Yzita-Bæli.
Jóhannes Long.
- MINNING
Framhald af bls. 13
ar um sko'ðanamun var að ræða,
var hann ávallt jafnaður með
léttu tilviki eða gamansemi.
Áhugi Magnúsar beindist fljótt
að viðskiptum og þá helzt þeim,
sem sneru að sjávarútvegi og
neyzluvörum hans. Hann fékk
ungur gott veganesti við kynn-
ingu og störf hjá mörgum framá
mönnum sjávarútvegsins, þeim
Skúla Jónssyni (kenradur við Ab
erdeen), Hafsteini Bergþórssyni
og Gunnari Ó'afssyni í Yestm.-
eyjum, svo að nokkrir séu nefnd
ir.
Magnús stofnaði fyrir mörgum
árum sjálfstæða innflutnings- og
umboðsverzlun, aðallega með
skip, vélar og aðrar útgerðarvör-
ur. Hann hefir byggt upp mörg
myndarleg fyrirtsaki, þótt lítið
hafi hann borizt á, en þeim mun
betur hlúð að því. Með seiglu,
árvekni og áreiðanleik Magnúsar,
hefir fyrirtæki hans vaxið og nýt
ur óskoraðs trausts erlendra um
bjóðenda og blnna mörgu við-
skiptavina við sjávarsíðuna.
Kona Magnúsar, Guðrún Karls
dóttir, hefir búið þeim fyrir-
myndar heimili frá fjrrstu tfð.
Hún hefir átt sinn stóra þátt í
velgengni Magnúsar og fyrirtæk-
isins.
Við hjónin sendum Guðrúnu
og fjölskyldunni innilegar sam-
úðarkveðjur.
Tómas Pétursson.
m Á
I A
m r- w q
<
~uni BOI IW
Hafnarfjörður
Til sölu 3ja og 4ra herbergja íbúðir í fjölbýldshúsi,
sem verið er að hefja byggingu á við Suðurgötu í
Hafnarfirði. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk
og málningu með frágenginni sameign. Stigagangur
verður teppalagður. Húsið málað og fullfrágengið
að utan. Svalarhurð og forstofuhurð fylgja hverri íbúð.
Sérþvottahús og geymsla á hæðinni fylgir hverri íbúð.
Seljendur munu bíða eftir því, að kaupendur fái lán
frú Húsnæðismálastjórn og taka það sem greiðslu á
kaupverði íbúðanna, þegar því verður úthlutað.
Teikningar að húsinu eru gerðar af Kjartani Sveins-
syni arkitekt.
ÁRNI GRÉTAR FINNSSON,
hæstaréttarlögmaður,
Strandgötu 25, HafnarfirSi.
Sími 51500.