Morgunblaðið - 11.09.1968, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 11.09.1968, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1968 ætla að binda enda á það í kvöld. Ef maðurinn er ekki fant ur, þá giftist hann þér.“. — Hvað finnst þér um þetta Kay? spurði Pam. Röddin var hvíslandi og skjálfandi. — Ég veit svei mér ekki, sagði Kay rólega. — En þetta er freklega grunsamlegt. En allt í einu greip hún í handlegginn á henni og sagði: — Hvernig vit um við, að bréfið, sem hún sýndi Jeff, hafi ekki verið falsað? Bf við bara gætum sannað það! Og eftir þessu að dæma virðist það helzt hafa verið falsað. Bara við gætum fundið rétta bréfið, sem George Bevan skrifaði — hafi hann þá nokkurt bréf skilið eft ir. Pam reyndi að halda röddinni stöðugri. — Ég held ekki, að hún hafi getað samið það sjálf. Ég meina þetta allt. Ég held, að hann hafi eitthvert bréf skilið eftir — einhverskonarbréf. Eins og þú segir, bara ef við gætum fundið það. Ef við bara vissum, hvar á að leita að því. Allt í einu var eins og Kay stirnaði upp. Hún leit á skrif- borðið og sagði með einkennilega fjarrænni rödd: — En ef það skyldi nú vera leynihólf í þessu skrifborði. Ef það skyldi vera nákvæmlega eins og borðið hans afa míns. Það gæti hugsazt, skilurðu. Ætli ég ætti að þora það. . . Því að þar mundi hún helzt hafa sett rétta bréfið. . . — Já, en . . . tók Pam fram í fyrir henni, snöggt. — O, fjandinn hafi það! sagði Kay — Þegar hann Jeff er ann ars vegar mundi ég sverja rang- an eið, ef það gæti bjargað hon- um. Það varð ofurlítil þögn. Hvorug stúlkan þorði að draga andann meðan Kay var að leita að fjöðrinni, sem opnaði leyni- hólfið. Pam varð næstum illt af eintómum spenningi og eftirvænt ingu. Loksins dró Kay andann djúpt af ánægju. — Hérna er fjöðrin, sagði hún. — Og alveg á sama stað og á borðinu hans Afa. Farðu nú hinumegin við borðið ogsjáðu til. Pam gerði svo, og stóð nú bak við borðið, eins og agndofa. Fyrst sá hún ekkert, en svo fór lítil skúffa að hreyfast, hægt og hægt þar sem rétt áður hafði engin skúffa verið sýnileg. Það var ekki hægt að draga hana út nema til thálfs, vegna þess, hve nærri veggnum borðið stóð. — Þetta er rétt hjá þér. Hér er skúffa. — Já, sagði Kay. — Eins og ég vissi alveg, er borðið nákvæm lega eins og það, sem hann afi átti. Nú þætti mér gaman að vita . . . Það kann að vera, að ekkert sé í henni og þó. . . Hún lauk ekki við setninguna Pam kinkaði kolli og horfði á meðan Kay seildist niður í skúffuna. Andartaki síðar dró hún upp samanbrotna pappírs- örk. —Þetta líkist mest bréfi, hvísl aði hún. Röddin skalf, svo að hún gat tæplega komið upp orð- unum. En . . . Hún sagði ekki meira fyrr en hún hafði opnað bréfið. En þá starði hún lengi á það, orðlaus. Taugarnar í Pam voru svo spenntar, að hún hefði getað æpt upp yfir sig. — Þetta er bréfið Pam! hvísl- aði Kay loksins í æsingi. — Rétta bréfið — Það sem George Bevan skildi eftir áður en hann dó. Jafnvel Phyllis gæti ekki véfengt það. Hún getur ekki vé fengt það. Pam leit yfir öxl bennar en í bili var hún of æst til að geta lesið bréfið. Orðalagið var það sama og í hinu bréfinu, sem Phyllis hafði sýnt Jeff, en þó var munur á — mikill munur. Bréfið hljóðaði þannig: „Phyllis! Síðan ég komst að því, að þú varst í ástarbralli með honum Hal Ruthers er lílfið ekki þess virði að lifa því. Ég ætla að binda enda á það í kvöld. Ef maðurinn er ekki fant ur, þá giftist hann þér. George Bevan“ Þær horfðu hvor á aðra orð- lausar! — Hal Ruthers! andvarpaði Pam! — Hal Ruthers bergmálaði <Kay eftir henni. — Já, vitan- lega! Bendir ekki myndin, sem þú fannst, í sömu átt? Um eitt skeið leit svo út sem þau hlytu að vera eitthvað að dingla sam an, en eins og ég sagði, virtist það vera liðið hjá. En það hef- ur það ekki verið, og því hefur George Bevan skotið sig. Það varð andartaks þögn, en þá spurði Pam lágt: 51 »- » — En til hvers var hún þá að flækja Jeff inn í þetta. Hvers- vegna fékk hún ekki Ruthers til að giftast sér? Kay brosti kuldalega — Það var alveg vonlaust Og það skil- urðu eftir því litla, sem þú hef- ur kynnzt honum. Hann hefur enga ögn af riddaramennsku til að bera. Hún vissi vel, að hún fengi hann aldrei til að giftast sér hwernig sem hún reyndi — En með Jeff var öðru máli að gegna. Hann hafði eitthvað verið að draga sig eftir henni, endur fyrir löngu, og því datt henni þetta ráð í hug til þess að fá hann til að giftast sér. Hún falsaði rithönd mannsins síns og stældi svo bréfið frá honum, nema hvað hún setti nafn Jeffs í það í stað hins. Hún er klók. Hún er klók eins og fjandinn sjálfur, en . . . líklega hefur hún í þetta sinn verið of klók. — Hvað eruð þið að gera við skrifborðið mitt? Röddin var ‘lág og næstum hvæsandi. Pam og Kay sneru sér snöggt við og sáu Phyllis, þar sem hún stóð í dyrunum. Hún hafði kom- ið svo hljóðlega inn, að hvorug þeirra hafði heyrt til hennar. En þegar þær sögðu ekkert, hélt hún áfram og brýndi nú rödd- ina með vaxandi illsku: — Hvernig dirfist þið að brjóta upp skrifborðið mitt? Hvaða erindi eigið þið með þetta bréf sem þú ert með í hendinni? KR088VIÐUR - ÞILPLÖTUR 12 mm vatnsþéttur krossviður 6,5 — — — 3 mm krossviður Va — harðtexplötur % — ,.special“ masoniteplötur. Timburverzlunin Völundur h.f. Klapparstíg 1 — Sími 1 8430. LAUS STAÐA Staða yfirverkfræðings við Sementsverksmiðju ríkis- ins á Akranesi er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í efnaverkfræði. Umsóknir sendist stjórn Sementsverksmiðju ríkisins, Hafnarhvoli, Reykjavík sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 30. september n.k. Reykjavík, 6. sept. 1968. Stjórn Sementsverksmiðju ríkisins. Blómaúrval Blómaskreytingar GRÓÐRARSTÖÐIN Símar 22822 og 19775. GRÓÐURHÚSIÐ við Sigtún, sími 36770. Hljöðfæri til söln Nokkur notuð píanó Horn- ung og Möller, flygill, orgel, harmoníum, raf- magnsorgel, blásin, einnig transistor orgel, Hohner rafmagnspíanetta og notað- ar harmonikur. Tökum hljóðfæri í skiptum. F. Björnsson, sími 83386 M. 2—6 e. h. Kay varð fljótari til að átta sig. — Ég skal játa, að við opn- uðum skrifborðið þitt, en við brutum það ekki upp, en ann- ars skiptir það nú engu máli. Það vildi svo til, að við fund- um þetta bréf, rétta bréfið, sem maðurinn þinn skildi eftir. Phyllis starði á Pam og Kay á víxl, eins og hún tryði ekki sínum eigin augum, og svo leit hún aftuir á bréfið, sem Kay veur með í hendinni. í bili var hún of agndofa til þess að geta neitt sagt, en stamaði bara: — Þú fannst bréfið — en hvern ig gaztu fundið það? — Hann afi mrnn átti skrif- borð, sem var nákvæmlega eins og þetta sagði Kay. — Þess vegna vakti það fyrst og fremst eftirtekt mína. Ég vissi um leyni hólfið í því, svo að ég snerti fjöðrina. . . hólfið? Þú varst svo ósvífin að hnýsast í einkamál mín! Nú hafði hún alveg sleppt sér. — Hvefrtniíg diirfiisrbu aið gena þetta? Þú ert etkkent betri ©n ómenki- legur þjófuir! Ég ,gæti femgið þig tekrna fasta. Og það skal ég Mka gera! Kay brosti bara. — Já, gerðu það bara! Ég skyldi með ánægju fara í fangelsi úr því að mér tókst að bjarga honum Jeff frá þér. Það liggur í augum uppi, hvað þú hefur gert. Maðurinn þinn skildi raunverulega eftir bréf, en það var ekki það sama, sem þú sýndir honum bróður mín um. Þú fálsaðir bréfið og settir hans nafn í staðinn fyrir Ruith- ers nafn. Þú getur ekiki neiitað því. Ég er með rétta bréfið í hendinni. Phyllis stökk að henni. Hún stökk eins og köttur hefði getað gert Ef Kay hefði ekki verið eins snör í snúningum, hefði hún hrifsað bréfið úr hendi henn ar. — Fáðu mér bréfið! æpti Phyll is í ofsa. Ég á það! Hvernig djirfisitu að stela því? Kay hélt henni frá sér með útréttum handlegg. Hún var bæði stærri og sterkari en Phyllis. — Nei, ég ætla ekki að fá þér það, svaraði hún rólega. En ég stoail senida þér það siaffna dag- inin seim Jeiff fær bréf frá þér þess efnis, að þú getir ekki gifzt honum, að þú hafir ákveðið að fara aftur til Englands og setj- ast þar að. Og ef þú vilt frek- ari sannanir þess, að þú hafir átt vingott við hann Hafl Ruibh ers, þá fann Pam áritaða ljós- mynd af þér í dag í herberg- inu, sem hann virðist kálla ástar hreiðrið sitt. Við erum hérna með hana, ef þig langar til að sjá hana. Phyllis starði á hana og glennti upp augun, eins og hún 11. SEPTEMBER. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl Róðurinn er þungur, svo að þú skalt fara þér hægt, og sjá hver viðbrögð annarra verða Nautið, 20. apríl — 2. maí. Geymdu ekki til morguns, sem þú getur gert í dag. Losaðu þig við gamalt drasl. Farðu eins snemma til hvilu og þér er mögulegt. Tviburarnir 21. maí — 20. júní. Gamall vinur eða ættingi þarfnast hjálpar þinnar. Þér kemur einhver greiðvikni á óvart. Sýndu þakklæti þitt á smetoklegan hátt. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Allt virðist lötra áfram. Notaðu tækifærið, og gerðu hreint, beint eða óbeint, og vertu kátur. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Þolinmæðin þrautir vinnur allar. Hafðu allt í röð og reglu. Ein- hver viðsvegar fjarri mun gæta hagsmuna þinna. Vogin, 23. sept. — 22. okt. Þú skalt gæta þolinmæði og smekkvísi í sambandi við áhugamál gærdagsins. Þras vegna fjármála verður oft dýrkeyptara en að ( svari kostnaði. Hættu eins snemma að vinna og hagsmunir þínir leyfa. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Orðstír þinn vex, án þess að þú hafir mikið til þess unnið. Sam- gangur þinn við fólk, er í lakasta lagi. Gefðu draumórunum og ævintýraþránni samt lausan tauminn, er á líður. Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des. Þér gengur vel I vinnunni. Þú skalt vinna jafnt og þétt, og vera léttur í lund. Morgundagurinn getur orðið erfiður. Steingeitin, 22. des. — 19.j an. Fréttir, sem þú færð langt að, kunna að valda þér áhyggjum, en við því er ekkert annað að gera en bíða eftir nánari upplýsingum Þú átt annríkt á morgun. Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Rannsakaðu vel allan öryggisútbúnað heima hjá þér. Gerðu ýmis smá verk, sem þú hefur dregið að vinna. Strax. Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz. Þú hefur brennandi áhuga á svo mörgu, sem er að ske í kringum þig. Demdu þér út í hringiðuna, meðan t ækifærið er fyrir hendi Reyndu að inna af hendi smá skyldustörf, strax og hægist um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.