Morgunblaðið - 21.09.1968, Síða 24

Morgunblaðið - 21.09.1968, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPT. 1968. mér alveg sama um það, svaraði Sandra og gekk burt. Það var rétt svo að Jill gæti náð í hana. — Þetta hefðirðu ekki átt að segja, sagði hún ávítandi. — Það var ókurteisi. — En það var ekki nema satt hvæsti Sandra. — Hvað vill þessi hraðfrysta piparjúnka vera að ybba sig? Hún er vitanlega af- brýðisöm. Maður hittir nóg af svona kvenfólki. Vonsviknar og önugar, af því að enginn karl- maður hefur nokkurntíma vilj- að líta á þær. — Reyndu að gleyma því, sagði Jill. — Kannski er hún óþarflega nöldursöm, en það er ekki vert að taka það of hátíð- lega. _ — Ég kann bara ekki við, að fólk sé að skipta sér af mínu einkalífi. Ef út í það er farið, erum við ekki í vinnu í dag. Og það fer í taugarnar á mér, þegar — Jæja, taugarnar í þér eiga nú kannski von á einhverju skárra áður en langt um líður, tók Jill fram í. Viltu sjá, að Joe og Larry eru að bíða eftir okk- ur þarna. Eftir stutta sund voru þau öll farin að busla i sjónum. Katie kom til þeirra og Jill dokaði við hjá henni stundarkorn, en þá kallaði Sandra til hennar að slást í hópinn, sem hún hafði safnað kring um sig. Það var gaman að vera svona úti í sólskininu með kátu og hamingjusömu fólki. Þau köstuðu knetti og syntu út að björgunarflekanum og til baka og horfðu á einn manninn, sem framdi list-dýfingar. Síðan var etinn hádegisverður, sem fé- lagið lagði til, undir beru lofti. Þegar ungfrú Gilmore gekk fram hjá borðinu, þar sem Dandra og Jill sátu, lét hún eins og hún sæi þær ekki, en yrti aðeins á Katie um leið og hún gekk fram hjá. Síðar kom það í ljós, að Larry átti bíl, og þeir Joe fóru með þær stöllur í bílferð um borg- in, að sýna þeim það helzta, sem þar var að sjá. — Okkur er þá sleppt út úr fangelsinu? sagði Sandra. Larry glotti til samþykkis. — Já, víst svo. — Það er hægt að beygja grindurnar frá gluggan- um, ef maður vill. Sandra. Við tvö skulum borða úti eitthvert kvöldið og fara í bíó á eftir, hvað segirðu um það? Þau sáu stóra hvíta ameríska háskólann, sem stóð innan um olívutré og óku kring um St. Georgsflónn með ninum frægu I klettum úr þjóðsögunum. — Já, | stúlka mín. Hér er það, sem j gamli drekinn fékk fyrir ferðina. I Rétt þarna. Síðan fóru þau eft- ■ ir gömlu krókóttu götunum, sem , voru svo þröngar, að bíllinn gat 1 rétt smogið milli húsanna, dular fullar og með hlerum fyrir öll- um gluggum, og horfðu á hand- verksmennina, sem stunduðu iðju sína úti á gangstéttinni. Loksins ók Larry út í vestur- enda borgarinnar að Stjórnar- torginu og í stórt veitingahús. Þar settust þau öll fjögur undir trjánum við gangstéttina og drukku þykkt kaffi með andlegum kökum, sem voru allar þakktar hnetum og fræjum. Feit ir menn, sem sátu skammt frá og drukku arak, brostu vingjarn- lega til þeirra. Öðru hverju kom arabisk kona, þakin frá hvirfli til ilja í einhvern pokakjól og gekk þegjandi framhjá og hvarf síðan út í rökkrið. Larry ók þeim þeim í Hótel Ramuddin, skömmu fyrir mið- nætti, en þá urðu allar stúlkur félagsins að vera komnar heim. — Ég vildi ógjarnan komast á svarta listann hjá henni Söru Gil more, sagði hann. Karlmennirnir bjuggu í öðru gestaheimili, skammt frá Þau buðu góða nótt og Jill og Sandra fóru upp i herbergið sitt. — Jæja, það var nú gaman í dag, sagði Jill. — Ég kann ágæt lega við Joe og Larry. Ég hélt alltaf að Bandaríkjamenn væru hrottalegir og háværir, en þeir virðast vera vel siðaðir. — Já, ágætis strákar, sagði Sandra. En bara hálfgerðir græn ingjar. Ég fyrir mitt leyti vil hafa karlmenn þroskaðri. Og ég hitti líka einn annað kvöld. Hann Oliver skilurðu. — Ertu orðin skotin í honum? sagði Jill. Sandra yppti öxlum. — Ekk- ert um of, góða mín. Þú þekkir mig nú. Vitanlega dáist ég að honum. Hann er reyndur og auk þess skemmtilegur. Maður getur virkilega fundið, til ör- yggis með honum. Morgunkaffið kom stundvís- lega klukkan sjö næsta morgun og stundarfjórðungi fyrir átta sátu þær stöllur í félagsbílnum á leið inn í borgina, ásamt öll- um hinum. Ungfrú Gilmore var farin á undan í eigin bíl. Þegar stúlkurnar komu, var hún þegar komin til starfa, taldi þær inn og gaf nýliðunum bendingar. Langi salurinn með borðaröð- inni var gjörólíkur því, sem ver ið hafi hjá tryggingarfélaginu. Jill var ánægð, er hún lenti í sæti við hliðina á Katie en Sandra spölkorn frá þeim, og var þegar farin að fást við töl- urnar sínar, án sýnilegra erfið- leika. Hún lærði fljótt að reikna í dollurum í stað sterlingspunda. Stundum leit hún út um glugg- ann og sá trjátoppana handan við sólroðin fjöllin í fjarska. Nú var hún orðin fegin að vera þarna komin. — Þetta er hreint ekki sem verst, sagði hún við Söndru við hádegismatinn. — Það verður slæmt þegar verulega heitt er orðið. Þessi loftræsting er hreint ekki sem bezt, er ég viss um. Og Gilmore er andstyggileg, eins og hún gengur um og snuðrar. — Hún er nú víst að hafa auga með okkur, af því að við erum alveg að byrja, Og hvað sem því líður, kann ég ágætlega við mig hérna, Sandra. Ég er fegin, að ég skyldi herða mig upp í að koma með þér. Bíllinn fer með okkur heim klukkan sjö svo að við höfum kappnógan tíma til að hafa fataskipti. Hlakk- arðu til í kvöld? — Vitanlega. Kjóllinn minn aflagaðist sem betur fer ekki mikið á leiðinni. Ég þarf ekki að spyrja, í hverju ætlar þú að vera? — Gamla græna silkikjólnum býst ég við, sagði Jill. — Ég hef ekkert annað. Og að minnsta kosti tekur hann Graham Dunc- an víst ekki mikið eftir klæða- burðinum hjá manni. — Þurfum við að segja Gil- more, að við ætlum út? vildi Sandra vita. Jill svaraði strax, að því byggist hún við og tók að sér að tilkynna það. Umsjón- arkonunni virtist vera alveg sama. Hún gaf ÍUl heimilisfang eins áreiðanlegs leigubílstjóm, sem mundi koma og skila þeim í Hotel St. Georgs. — Og heim fyrir miðnætti, ungfrú Chad- burn. Þér verðið að vera upp- lagðar í fyrramálið. Jill kinkaði kolli og fór. Sandra var töfrandi í ljóárauða kjólnum sínum og lifandi hárið á hennir firtist bjartara en nokkru sinni áður, yfir fölum hörundslitnum. Augun ljómuðu af tilhlökkun, næstum eins og og tilsvarandi armband. Leigubílstjórinn áreiðanlegi kom og þeysti þeim gegn um blásvart náttmyrkrið, eftir göt- unni, að hinu fræga hóteli. Þeg- ar þær gengu gegn um marmara lagðan forsalinn, tók Jill eftir því, að höfuð ýmissa karlmanna þarna litu við með aðdáunar- svip, en horfðu síðan á Oliver og Graham, sem stóðu upp af hægindastólum til að taka móti þeim. Og enn vakti fallega enska stúlkan aðdáun, er þau settust að borðum. Sandra fann þetta, nú sem endrnær og það jók enn á Ijóma hennar og fegurð. Jill sat þögul hinumegin við aflanga borðið, ásamt Graham Duncan, sem var nú stærri og dekkri en nokkru sinni áður, í venjulegum smókingjakka, enda þótt Oliver væri í hvítum og með rautt blóm í hnappagatinu. Sandra naut sín nú til fulls og eaf nærfærna og lifandi mynd CETIÐ ÞÉR CERT BETRI INNKAUP? Aðeins kr. 14,50 í smásölu Heimdnllur FVS KLÚBBFUNDUR Gestur fuudarins: prófessor Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, ræðir um VIÐHORF FRAMSÓKNARFLOKKSINS til þjóðmála í dag. N.k. laugardag 21. sept. verður' klúbbfundur 1 Tjamarbúð, niðri, og hefst hann kl. 12,30. Gestur fundarins verður prófessor Ólafur Jóhannesson, form. Framsóknarflokksins, og mun hann ræða um viðhorf Framsóknarflokksins til þjóðmála í dag. STJÓRNIN. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Gerðu hreint fyrir þínum dyrum, þannig að þú getir tekið áköfum breytingum, sem kunna að verða um helgina. Farðu varlega. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Reyndu að beina kröftum þínum á réttar brautir, þannig að árangur megi verða sem beztur. Vinir verða furðanlega hjálplegir. Tvíburirnir, 21. maí — 20. júní. Ef þú býður mörgu fólki og málugu heim, muntu verða margs vísari, og greiðast úr ýmsum flækjum. Konur eru afar viðkvæmar þessa dagana. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Hleypidómar hafa sjaldan reynzt gagnlegir. Einhver nákominn þarfnast hjálpar þinnar. Varaztu að binda þig við neitt til langs tíma, því að breytingar eru í aðsigi. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Vertu rólegur og ihaldssamur. Breytingar eru á næstu grösum. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Peningar, sem þú ætlar að hjálpa vinum þínum með virðast tregir f innheimtu. Vertu vakandi, og sinntu einkamálum. Vogin, 23. sept. — 22. okt. Þér ha.ttir til að segja of mikið til að fá þínu framgengt. Pukur helzt ekki lengi, og þvl er óhætt að hverfa frá því strax. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Ef þú ferð ’ þér hægar, er líklegt, að þér verði mikið ágengt. Gefð'i þér tíma til að njóta lífsins, og miðla öðrum. Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des. Athafnasemin heldur áfram, þótt smáatriðin kunni að taka aðra stefnu. Byrjaðu strax að skipuleggja. Steingeitin, 22 .des. — 19. jan. Dagurinn er alvöruþrunginn. Forðaztu fjölmenni og farðu var- lega í umierðinni. Þér gefast tækifæri til að launa greiða. Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Gefðu öðrum tækifæri til að greiða úr máluunm. Sýndu enga yfirburð'., og safnaðu þreki. Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz. Auðveldara er að halda frið. Það mun borga sig, er fram I sækir. Vertu rólegur I kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.