Morgunblaðið - 26.09.1968, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.09.1968, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1968. „Fyrst að hafa hugsjdnir - síðan að gera þær að veruleika" Rœtt við Magnús Gunnarsson MAGNUS Gunnarsson hefur tekið virkan þátt í starfi sam- taka ungra Sjálfstæðismanna. Bann stundar nú nám i við- skiptafræði við Háskóla fs- lands. Mbl. spurði Magnús nokkurra spuminga um mál- efni þau, sem hæst hefur bor- ið í umræðum ungra manna upp á síðkastið. — Hvern telur þú helzta mis- mun á afstöðu ungu og gömlu kynslóðanna til stjóramála? — Unga fólkið í dag, neitar að axla gömul deilumál stjórn- málamannanna. Halda áfram þeirri stjórnmálabaráttu sem einkennzt hefur af því, að sýna fram á, að andstæðingurinn hafi altlaf rangt fyrir sér en ekki að sanna ágæti eigin stefnu. — Er þá Iausnin kannski að- eins sú að ungir menn taki við fleiri áhrifastöðum í stjóramál- um? — Nei, alls ekki. Það er oft- ast svo þegar stjómmálasam- tök yngri mannanna vakna upp á tveggja til þriggja ára fresti, að herópið er „ungir menn í forystu", „kynslóðaskipti", eða eitthvað álíka. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt fyrir stjóm- málaflokk að stöðugur straum ur nýs blóðs leiki um forystu- lið hans, eins og flokkinn reyndar allan. En nýtt blóð þarf ekki undantekningarlaust að vera ungt blóð. Þáð er al- kunna, að menn geta verið há- aldraðir í stjórnmálum milli tvítugs og þrítugs, en ungir og sprækir rúmlega sextugir. Frjór og opinn hugur, og það að vera ávallt ungur í anda og síleitandi skiptir mestu í augum unga fólksins. Sömu kröfu ger- ir það vitanlega til eigin sam- taka. Þau eiga ekki aðeins að vera samtök ungra stjómmála- manna, heldur samtök ungs fólks með stjómmálaáhuga. — Nú þarf vart að fjölyrða meir um „einangrun stjóra- málamannanna", „stirðnun flokkanna" og „flokksræði" á öllum sviðum. Hvað er nú til ráða hjá unga fólkinu? — 1 fyrsta lagi tek ég fram, að ég þykist ekki sjálfkjörinn talsmaður unga fólksins. En skoðun mín og þeirra sem ég umgengst virðist mjög á eina lund. Sjálfstæðisflokkurinn þarf, ef hann á að gegna for- ystuhlutverki í íslenzkum stjórnmálum, að gerast bylt- ingarflokkur. Hann hefur því miður átt sinn þátt í að byggja upp það kerfi, sem nú er kom- ið að fótum fram og rfðar til falls sökum megns vantrausts fólksins í landinu. Flokksfor- ystunni verður að vera ljóst, að þeir flokkar, sem ætla að standa með þessu kerfi í fram- tíðinni munu falla með því. Sjálfstæðisflokknum, eðli síns vegna, er lífsnauðsyn að hafa forystu um að brjóta fún- ar stoðir ríkisflokksveldisins, ef hann á að komast heill út úr komandi stormum íslenzks stjórnmálalífs. Hann ver'ður að hafa forystu um að færa völd- in aftur til fólksins. Vitanlega á þetta hvorki skylt við stjórn leysi né að gera þjóðkjörna fulltrúa valdalausa. En það óeðlilega vald, sem safnazt hef- ur á herðar stjómmálamann- anna í öllum mögulegum og ómögulegum efnum á ekkert skylt við þá þjóðfélagshugsjón, sem Sjálfstæðisflokkurinn á að stefna að. Fyrsta skrefið í þá átt að gera þjóðfélagið heilbrig’ðara tel ég að sé að flytja fjármagn Jð úr höndum stjórnmálamann anna, sem í gegnum ríkisvald- ið hafa náð úrslitavaldi yfir megin hluta fjármagnsins og þar með atvinnulífinu. Afleið- ingin er veikt atvinnulíf, þar sem engin virðist hafa nokkra ábjrrgð. Þegar eitthvað bjátar á sjá menn oft þá lausn eina að hlaupa á náðir ríkisins. Þar er fjármagnið og ábyrgðin. En auðvitað er það ljóst, að um Magnús Gunnarsson, viðskiptafræðinemi. leið og fjármagnið verður flutt til í þjóðfélaginu flytzt ábyrgð in líka með því. Þarna held ég að skilji á milli okkar þjóðfé- lags annars vegar og þeirra á Norðurlöndum og í V-Evrópu hins vegar. — En hvert yrði þá fyrsta skrefið til endurbóta á stjóra- málasviðinu — Þar tel ég, að sé við hlið- stæð vandamál áð stríða. Við verðum að deila valdinu innan flokkanna. í lýðræðissamfélög- um þykir sjálfsagt að tví- ef ekki þrískipta valdinu. Jafn-vel í einræðisríkjum kommúnism- ans er hreyfing í þá átt að skilja flokksvald og ríkisvald. Þetta sáum við glögglega með falli Krúsjeff og þeirri tví- mennisstjóm, sem við tók. Þar náði samþjöppun valdsins há- marki með Stalin heitnum. Flokkur og ríki sameinuðust þar í einni persónu. í Tékkó- slóvakíu var slíkur aðskilnað- ur valdsins frumatrfði endur- bótanna. — En lítum oss Jlú nær. Hvemig eigum við að brúa aft- ur það djúp, sem myndazt hef- ur milli fólksins og flokkanna? Flokkana sem eiga að vera tæki fólksins til þess að hafa áhrif á landstjórnina. Fyrsta skrefið hlýtur að vera að láta fólkið finna að þess sé valdið. Gagnvart Sjálfstæðisflokknum er það eindregin skoðun mín, að hann eigi í næstu kosning- um að láta kjósendur sína al- gjörlega um val frambjððenda. Almennt prófkjör kjósenda hans er eina leiðin. Hér á ég þó alls ekki við það fyrir- brigði, sem nefnt var prófkjör á fyrri árum. Jafnframt endurbótunum, sem ég drap á áðan, tel ég nýja kjördæmaskipun á grundvelli einmenningskjördæma vera ráðlega til að lyfta stjórnmál- unum upp úr núverandi lægð. Slík breyting er þó áreiðanlega engin allsherjarlausn út af £yr- ir sig. Það kennir sagan okk- ur. En ég er líka sannfaerður um, að hægt væri að fram- kvæma þá kj ördæmaskipan án þess að allt koðni í einangrun- ar- og vegaspottapólitík. — Nú fara fram umræður um hugsanlega þjóðstjóm, hvert er álit þitt á slíkri stjóm? — Ég get ekki séð, að hún leysi nokkurn vanda. Ég held að þjóðareining fáist aldrei um þjóðstjórn, heldur aðeins um stefnu, sem meirihluti þjóðar- innar óskar eftir. Það er flokk- anna að leggja fram sínar stefnur um lausn vandamál- anna. Þjóðarinnar er að velja. Ef menn telja að umboðið, sem núverandi ríkisstjórn fékk frá meiri hluta kjósenda í síðustu kosningum sé útrunni’ð, þá er að leggja spilin á borðið und- anbragðalaust. Þjóðstjórn án þjóðarfylgis er vægast sagt áikaflega ólýðræðislegt fyrir- brigði. En kannski er nú óþarfi að gera ráð fyrir, að landið verði stjórnarandstöðulaust, ef af þjóðstjórn yr'ði? — Nú er sagt að hugsjónir gagni litt þegar út í raunveru- leikann er komið, er ekki hætta á að unga fólkið sé að flýja veruleikann? — Ég er þess fullviss, að bæði ungir og aldnir eiga það sameiginlegt að vilja kjósa um málefni og menn, ekki aðeins að velja milli nafna á flokk- um, sem því miður marka stefnu sína einhvem veginn frá degi til dags. Nú er það unga fólksins að koma nfður úr skýjunum og takast á við vandamálin og berjasit fyrh hugsjónamálum sínum. Það er auðvelt að rífa niður, en nú er að beita öll- um kröftum til að móta það framtíðar þjóðfélag, sem við viljum búa við. Fyrst er að hafa hugsjónir. Síðan að gera þær að veruleika. Þ. W. Sextíu hross utan með Re ykjaíossi — sérstakt gripaflutningaskip sœkir á þriðja hundrað hross hingað i SE3TÍU hrossum verður skipað um borð í Reykjafoss í dag, að því er Agnar Tryggvason hjá útflutningsdeild SÍS tjáði Morg- unblaðinu í gær. Flytur Reykja- foss hrossin ti'l Hamborgar, en október á vegum þýzkra og baðan verður þeim dreift til kaupendanna, sem eru í Þýzka- landi, Hollandi, Ausrturríki, Frakklandi og Danmörku. Hafa þá alls rúmlega 300 íslenzk hross Verið flutt út á þessu ári. Vonir standa til, að sérstakt gripaflutn ingaskip komi hingað til lands í danskra hrossakaupenda og mun það taka hér á þriðja hundr að hross. Er nú verið að velja þau hross, en flest þeirra verða úr Skagafirði. Ekki sagði Agn- ar, að fleira væri fyrirhugað í hrossaútflutningi á þessu árL Húseignir til sölu Sérhæð við Austurbrún. Húseign með tveim íbúðum. 4ra herb. enðaíbúð í Stóra- gerði. Fokhelt endaraðhús í Foss- vogi. 4ra herb. íbúð, útb. 300 þús. 8 herb. einbýlishús við Akur- gerði. 4ra herb. íbúð við Kleppsveg. Rannveig Þorsteinsdóttir, hrl. málflutningsskrifstofa Sigurjón Sigurbjörasson fasteignaviðskipti Laufásv. 2. Sími 19960 - 13243 FASTEIGNAVAL Skólavörðustíg 3A. 2. hæð. Símar 22911 og 19255. Til sölu m.CL Tvö lítil risherb. við Rauðar- árstíg. 2ja herb. íbúðir á hæðum í igamla bænum. 3ja herb. íbúð á 4. 'hæð við Háaleitisbraiut. 4ra 'herb. íbúð á 1. hæð í Hlíð- unum. 4ra herb. endaíbúð á 1. hæð við Kleppsveg. 5 herb. íbúð á 3. hæð í gamla bænum. íbúð óskast 160 — 170 feim, íbúð óskast á góðum stað í borginni, 'helzt í tvíbýlis- eða þríbýlishúsi. Þarf eklki að vera laus strax. Skipti á um 133 ferm. góðri íbúðar hæð s'em er í Vesturbænum, koma einnig til greina. Jón Arason hdl. Sölumaður fasteigna Torfi Ásgeirfwon. TIL SÖLU Ágæt 2ja herb. íbúð við Lauga veg. Góðir greiðsluskilmál- ar. 3ja herb. íbúðir við Langholts veg, Laufásveg, Hverfisgötu, Laugarnesveg, Skólabraut. 4ra herb. risíbúð í Vesturbæn um, 96 ferm. í góðu ásig- komulagi, hitaveita. Tvöfalt gler. 5 herb. íbúð á 2. hæð við Kleppsveg. Teppi á stofum og gangi. Suðursvalir. Einbýlishús ásamt bílskúr við Hrauntungu Einbýlishús ásamt bílskúr við Sunnuflöt. Höfum kaupendur að góðum 2ja—3ja herb. íbúðum, einn ig íbúðum í smíðum. Steinn Jónsson hdl. Lögfræðiskrifstofa og fast- eignasala, Kirkjuhvoli. Símar 19090 - 14951. Kvöldsúni 36768. Fasteignir til sölu 2ja, 3ja og 5 herb. íbúðir í igóðum timburhúsum í Mið- bænum. Hagstæðir skilmál- ar. Snotur 3ja herb. risíbúð við Miklubraut. Góð kjör. Lítið einbýlishús við Fram- nesveg. 4ra herb. hæð við Lækjarfit. 3ja herb. íbúð á hæð við Nönnugötiu. Góð 3ja herb. kjallaraíbúð við Ránargötu. Góð 3ja herb. íbúð við Raiuð- arárstíg. Verzlunarkjallari við Klapp- arstíg. Góð kjör. Austurstrætl 20 . Sfmi 19545 Til sölu 7 herb. raðhús við Miklubraut í góðu standi. 6 herb. hæðir við Rauðalæk, Gnoðarvog, Fellsmúla og Blönduhlíð. Einbýlishús við Laiugarnesveg, Aratún, Vífilsgötu, Bræðra- tungu Kópav., Hrauntungu Kópav., og Gufunesi. í smíðum Glæsilegt einbýlishús, 222 ferm. íbúð, með tvöföldum bílskúr, 55 ierm. Selst fok- helt. Útborgun aðeins 300 þús. Eftirstöðvar lánast til 5 ára. Einnig raðhús á bezta stað í Fossvogi, selst fokhelt með 400 þús. fcróna útborgun, eft irstöðvar lánast til 5 ára. 630 ferm. lóð við Sfcerjafjörð 'undir einbýlishús. Lóð, 1 hektari, lóð undir sumarbústað nálægt Reykja vík. Einar Sigurðsson hdl. Ingólfsstræti 4. Sími 16767. NÝKOMIÐ FYRIR CHEVROLET varahlutir í rafkerfi, hemla- kerfi, útblástursrör, hljóð- deyfar, blöndungar, benzín- dælur, vatnsdælur, 14 tommu hjólhlifar. Bílobúð SÍS Ármúla 3. Vil kaupa íbúð! á hæð eða í góðu risi. Þarf að vera í góðu standi og sem mest sér. Útborgun samkomulag. Uppl. í síma 14663. Falleg íbúð Til sölu 6 herbergja íbúð á II. hæð í Heimunum 160 ferm., 4 svefnherb., stofur, eldhús, búr, bað og sér þvottahús. Stórar svalir í suður og vestur. SKIP OG FASTEIGNIR Austurstræti 18. Sími 21735. Eftir lokun 36329.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.