Morgunblaðið - 26.09.1968, Side 11
11 v
MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1966.
Ljósrauð fyrirsæta 1935.
lítil skil gerð sem teiknara og
myndhöggvara, en á þeim sviS-
um var hann einnig frábær.
jÞetta á eðlilegar orsakir þar
sem ráðgert er að helga þessúm
þáttum listar hans sérstaka sýn-
ingu í London. Ekkja Matisse og
Alfred Barr jr. frá nútímalista-
safninu í New York og höfund-
ur mikils verks um Matisse, hafa
lagt á ráðin um fyrirkomulag
sýningarinnar.
Það vakti nokkra furðu að
Bretadrottning fór fram á það
við einkáleynilögregluþjón sinn
að hann kæmi því til leiðar að
hún yrði ekki mynduð með mynd
ir af nöktum fyrirsætum í bak-
grunninum er hún skoðaði sýn-
inguna við opnun hennar því að
slikt gæti haft óþægilegar afleið
ingar. Á okkar tímum gefa mynd
ir Matisse ekki tilefni til grófra
þanka en að sjálfsögðu var tek-
Frú Gréta Prozor 1916.
ið tillit til óska drottningarinn-
ar.
Á sýningunni eru lykilverk
svo sem „Opinn gluggi“ frá 1905,
„mynd af þrem baðandi stúlkum
með skjáldböku" frá 1908 og
Málarinn og fyrirsæta hans
frá 1917. „Tatesafnið“ hefur lán
að fjársjóði sína m.a. hin fjögur
stóru relief (veggmyndir) „Bak
ið“, sem sýnir þróun stílbragða.
Frá seinni árum eru m.a. klipp-
myndir og þar á meðal „Dans-
inn“, sem var útfærð fyrir Barn
es-stofnunina. Auk þessa upp-
kast að 16 metra langri vegg-
keramik fyrir sundhöll, sem Ma-
tisse gerði 83 ára. Hálfabstrakt
fiskar og mannsilíkamar líða um
flötinn. Matisse talaði um að
mála með skærum. — Það væri
ekki nauðsynlegt að sýna hlut-
ina í rúmi og smáartriðum tákn
nægðu sér. Þegar maður ber þetta
saman við fyrri og seinni tíma
hópmyndir sér maður hve mikil
festa, reynsla, kunnátta og lífs-
gleði felast í þessum, að sjá,
lausu formum. Matisse vann baki
brotnu allt sitt líf, hann teikn-
aði daglega og taldi það vera
lífsnauðsyn fyrir málara. Reglu-
lega gekk hann út í náttúruna
og teiknaði — gróðurlifið í nátt-
úrunni var honum ótæmandi upp
spretta verkefna, hann reif upp
blóm, lauf af blómum og trjám,
strá og hvaðeina, sem á vegi
hans varð, og sá alltaf nýjar og
nýjar línur og form, — lausnina
á hinum stóru lögmálum er einn-
ig að finna í hinum smæstu
eindum. Hann þakkaði árangur
sinn fyrst og fremst því að hann
hafði tamið sér reglubundinn
vinnudag allí sitt líf — en marg-
ir málarar hafa sinn ákveðna
vinnutíma, og það varðar heims-
endi að trufla þá. Matisse missti
he'ldur aldrei hinn lifandi létt-
leik og yndisþokka, sem ein-
kenndi línuna í verkum hans, —
hann hélt sér í æfingu fram á
það síðasta og leið fyrir hvern
dag er hann gat ekki unnið —
þessi ríka tilhneiging til vinn-
unnar á sér margar hliðstæður
meðal málara t.d. hjá Renoir, sem
lét binda á sig pensilinn, er
hann gat ekki lengur hreift
fingurna fyrir gigt, og málaði
á þann hátt jafn vel og áður.
Á efri árum rifjaði Henri Ma-
tisse upp þá tíma er móðir hans
gaf honum, tvítugum lagastúdent
á afturbata eftir botlangakast,
olíuliti. Það sem honum fannst
skírskota mest til sín, þegar
hann hóf að mála var: að hann
var frjáls, einmana og kyrnlát-
ur. Aðrir, sem fóru út í list á
þeim árum, báru með sér eirðar-
leysi þessara umbrotatíma allt
þeirra líf. Þrýstingurinn, sem
framkallaði hinar miklu stfl-
breytingar, var farinn að gera
vart við sig og með honum frá-
hvarfið frá erfðavenjunni. Ma-
tisse meðtók breytingar 19-ald-
ar án þess að hann fyndi hjá
sér nauðsyn þess að hafa þær að
leiðarljósi. Þegar 25 ára að aldri
var hann hæfileikamikill list-
nemi í virðulegum akademískum
stíl, sem hélt sínu striki eins og
að „Manet" hefði aldrei verið til.
Hann var á góðri leið til þægi-
legs árangurs og ekkert benti á
að hann myndi víkja af þeirri
braut. Hann þekkti varla „Im-
pressjónistana", og uppgötvaði
þá fyrst 26 ára gamall. Elstu
myndir hans á sýningunni eru
málaðar undir sterkum áhrifum
frá þeim, á stundum næsta of
sterkum, sem sýnir að þetta hef-
Blá kvenvera með svífandi
hár.
ur verið honum mikið landnám,
og það er fyrst um aldamótin að
honum tekst að hagnýta sér þessa
nýju reynslu og myndir hans
fara að fá á sig sterkan persónu
legan blæ Matisse sótti ekki hug
myndir sínar í austurlenzk form
tíl þess að lýsa þeim, heldur sá
hann í allri þessari lita og form
auðlegð möguleika til að túlka
hina nýju sýn sína á málverk-
ið — hann leiðir okkur í ævin-
týraheim, þar sem óhóf, munað-
ur og fegurðarhugsjóð hefur að-
hald af listrænu jafnvægi, festu,
næmri tilfinningu og óþvinguð-
um vinnubrögðum, sem gefa
myndum hans sérstaka töfra.
„Impressjónistarnir" sáu í blæ-
brigðum ljóss, lita og endurskins
hin beinu áhrif náttúrunnar.
„Fauvistarnir" sáu í hinum
Framhald á bls. 21
Crettisgata 16 — Grettisgata 16 Crettisgata 16 — Crettisgata 16 Crettisgata 16 — Crettisgata 16
BÓKAÚTSALA TÍMARITAÚTS ALA
Sími: 13389 Sími: 13389
Stórkostlegt úrval bóka og gamalla tímarita. — Bæklingur og alls konar smárit og pésar í þúsundatali. — Einstakt tæki-
færi til kaupa á ódýru lesefni. — Skáldsögur — Ævisögur — Viðtalsbækur — Þjóðlegur fróðleikur. — Bækur um andleg
efni — Ljóðabækur — Barnabækur mikið úrval — Bæklingar smárit og pésar — Tímarit — Vasabrotsbækur mikið úrval.
Nokkur sýnishorn af verðlækkunum, tekin af handahófi.
Pésar og bæklingar.
Dætur fjallkonunnar áður kr. 185,40 nú kr. 43,00
Út úr rnyrkrinu — — 267,80 — — 86,00
Skuldaskil — — 220,00 — — 96,25
Lax á færi — — 301,00 — — 91,00
Albert Guðmundsson — — 118,25 — — 54,00
60 ár á sjó — — 204,00 — — 91,50
Skip og menn — — 279,50 — — 92,50
Skip og menn — — 278,10 — — 150,50
Morgunroði (Ragnar Þorst.) — — 220,00 — — 96,25
Sandur og sær — — 146,00 — — 53,75
Hetjuleiðir og landaf — — 257,00 — — 91,50
Söngur hafsins — — 164,00 — — 64,50
Sögur ökumannsins — — 191,00 — — 43,00
Töfrar íss og auðna — — 215,00 — — 64,50
Ást og endurfundir — — 169,00 — — 86,00
Saga og sex lesendur — — 139,00 — — 54,00
Ást og örlög — 193,50 — — 64,00
Þegar birtir af degi — 198,00 — — 43,00
í björtu báli — 344,00 — — 86,00
í fótspor meistarans — — 236,50 — — 86,00
Alls 20 bækur sem kostuðu samtals kr. 4.327,90 en kosta nú
kr. 1.537.27. Þetta er aðeins lítið sýnishorn af öllum þeim
fjölda bóka, sem hér eru til á hlægilega lágu verði.
Fíflið í firðinum. Sameinað mannkyn, Fyrsta bamið, Þögli, Varnarmálin, Heilir af sjón-
um, Handbók utanríkisráðuneytisins, Sögur frá Alhambra, Ránið í Sörlatuivgiu, Hætbu-
legur leikur, Spádómamir uim ís'land, Kosningaperla hin sigilfirzka, Raforka fál
heimilisnota, Mátfcur manna, Leiðir tid guð spekinnar, Skólasöngvar, Sýslufundangerðir
ýmissa sýslna (margar útgáfúr), Lög ýmissa félaga (margar útgáfur), Ársskýrslur ýmissa
stofnana og félaga (margair útgáfur), Árbækur (margar útgáfur), Hermemn og kven-
fólk, Handtökumálið, Landsmál og löggjöf, Englamir og nýr kynstofn, Jurtasjúkdómar
og meindýr, Söngbók Krosshersins, Sýslumað urinn í Svartárbotnum, Blákubkan, Hneyksl-
ið í Búnaðarfélagiinu, Ferð til Alpafja'lla, Reykjavík 1943, (spádómar), Vakna þú íslenzka
þjóð, Mannfélagsfræði, Monantha vetch, Skiðahandbókin, Rainnsókn skattamála, Ný-
bygging íslands, Saga mín, Uppruni íslendinga, Góðæri og gengismál, Vegurinn, Horft
um öxl og fram á leið, Ævi og ætt Halls Jónssonar, Hriingdans hamingjunnar, Erindis-
tíðindi, Lífið eftir dauðainn, Framtíðaxtrúbr ögð, Stefán íslandi, Leikskrár og fl. og fiL
Tímarit og blöð.
\
Samvinnan, Lögrétta, Landneminin, Útvar pstíðindi, Barukablaðið, Vinnam, Flugmál,
Sjómannadagsblaðið, Reykvíkingur, Filman, Gestur, Leikhúsmáí, Stígandi, Garður,
Garðyrkjuritið, Helsimigjar, Breiðfirðingar, Víðsjá, Verðandi, Freyr, Þjóðim, Lindin,
Árbækur ýmissa félaga, Hlín, Ársrit Ræktunarfél., Stjómin, Heimilispósturinn, Vikan,
Fálkinn, Trix, Skuggar, Sjón og saga, Stjarnan, Iðnnemiinn, Frúin, Andvari, Dagsskrá,
Dægradvöl, Amor, Stefnir, (gamli), Kirkjuritið, Snæfiell, Húrra, Heimilisrjtið, Bjarmi,
Tímarit Máls og menningar, Eimreiðin, Heilibrigt líf, Ægir, Allt tifl skemmtunar og fróð-
leiks, Náttúrufræðimigurimn, Kvöldvöikur, Jörð, Hjartaásinn, Samtíðin, S.O.S., Skuggar,
Spegillinn, Reyfarinn, Mánaðarriitið, Rómanblaðið, Nýtt úrval o. fl. o. fl.
Opið fimmtudag kl. 10 til 22 og föstudag frá kl. 10 til 20.
Gott bílastæði.
Lágt verð — lágt verð — lágt verð — lágt verð — lágt verð — lágt verð — lágt verð — lágt verð
Cefið yður tíma — lítið inn. Við höfum örugglega eitthvað fyrir alla
Crettisgata 16 — Crettisgata 16 — Crettisgata 16 — Crettisgata 16 — Crettisgata 16 — Crettisgata 16