Morgunblaðið - 26.09.1968, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1966.
13
„Guðmundur góöi“
heim að Hólum
Ég fékk þá gleðifrétt um dag-
inn að nú ætti loks sá draum-
ur að rætast, að höggmynd Gunn
fríðar Jónsdóttur: „Klerkur á
bæn“, yrði flutt norður að
Hólum og sett þar upp sem minn
isvarði um Guðmund biskup Ara
son hinn góða.
Það hafði löngum verið heilagt
áhugamál þessarar norðlenzku
listakonu að svo mætti verða og
lengi hafði hún og rösklega bar-
izt fyrir framgangi og framkvænd
en mætti vart öðru en skilnings-
leysi og tómlæti bæði almenn-
ings og þeirra, sem næst hefðu
átt að standa.
Satt að segja er það fátæk-
legt þótt ekki sé það furðulegt,
miðað við vanmat íslendinga á
fornum menningararfi, að ekki
skuli neitt vera á Hólum, sem
minnir á þennan höfuðklerk al-
þýðunnar, Hinn heilaga Franz
frá Assisi okkar íslendinga.
Að undanteknum Einari Jóns-
syni má Gunnfríður Jónsdóttir
teljast brautriðjandi í kirkju-
legri höggmyndasmíði En það
varð hún með myndinni „Land-
sýn“ í Engilsvík við Strandar-
kirkju.
En hún gerði aðra mynd í
þeim ákveðna tilgangi að hún
yrði tákn og minning Guðmund-
ar góða og nefndi hana : Klerk-
ur á bæn.
Og enn hefur þessi mynd ekki
komið fyrir almenningssjónir, en
hún er einföld í sniðum af hempu
klæddum, síðhærðum og þó krún
rökuðum fornklerki með spennt-
ar greipar.
Og jafnframt eignaðist lista-
konan þá hugsjón að mynd þessi
mætti um ókomnar aldir verða
þögul óminning til íslendinga
um að gleyma ekki hugsun og
hetjudug þessa blessaða biskups
sem var ástvinur smælingja og
málsvari kúgaðra og smáðra gegn
ranglæti, yfirgangi og valdbeit-
ingu harðsvíraðra höfðingja.
Hann barðist fyrir almennum
mannréttindum og gegn drambi
og grimmd, en hlaut að launum
ofsóknir, fyrirlitningu og smán.
Var smáður, fótum troðinn og
misskilinn, og er það að ýmsu
leyti enn í dag.
Vel má segja að ekki hafi
undirritaður vit á listum. Hann
nýtur þeirra aðeins af eigin
„brjóstviti“, sem er nú nánast
talið broslegt af sérfræðingum
og sérgæðingum meðal listdóm-
enda. Réttur og sléttur alþýðu-
maður á því sviði.
En hvar stæði listin án þessa
fólks, sem hefur tilfinningu sína
að mælikvarða?
Og sem einn af því finnst
mér, að Gunníríði 'hafi hér
vel tekizt. Sumir te'lja þó mynd-
ina of kvenlega. En þeir hinir
sömu ættu að virða fyrir sér
höggmyndir af prelátum frá sama
tíma t.d. í kirkjum Englands.
Við þann samanburð verður
mynd Gunnfríðar af karlmann-
legri 'hetju.
En hvar eru annars skilin?
Eru ekki flestar Kristsmyndir
kvenlegar frá einhverju sjónar-
miði séð?
Við ath. verður mynd klerks-
ins hennar Gunnfríðar bæði mild
og hörð í senn. Yfir henni hvíl-
ir blær heilags friðar og bjarg-
fastrar guðstrúar. Hver andlits-
dráttur er stilltur líkt og streng
ur til þess samhljóms, sem bæn-
in <son^ir til hæða.
Orðið sál er hið fyrsta og hið
s’^asta sérkenni þessarar mynd-
ar. Um hana geislar andi og líf,
híar+a, sem er án fordóma og
fjötra einhverra fyrirfram ákveð
inna kenninga
Og manni h'lýtur að skiljast
að bæn þessa klerks sé borin
Söltunarstúlkur
Viljum ráða nokkrar vanar söltimarstúlkur.
Fríar ferðir og kauptrygging.
Upplýsingar hjá Hreiðari Valtýssyni í síma 96-51126,
Raufarhöfn og hjá Valtý Þorsteinssyni í sima 21,
Seyðisfirði.
Söltunarstöðvarnar Norðursíld.
fnam af orku og hlýju, mildi og
mætti í senn og hljóti því að
heyrast í himininn til verndar
og heflla landi og þjóð.
Og æðsta óskin, óskin um efl-
ingu guðsríkis á jörðu, ríki frels
is og friðar, farmfara og bræðra
lags lýsir af hverjum andlits-
drætti, andar frá handbragði list
konunnar.
Hvað er táknrænna fyrir gró-
andi þjóðlíf kristinnar þjóðar en
klerkur á bæn.
Nú hefur sem sagt verið skip-
uð nefnd úrvalsfólki til að vinna
að því, „Guðmundur góði“ kom-
izt aftur „heim að Hólum“ og
verði aldrei ha'kinn þaðan firam-
ar.
í þessari nefnd eru:
Herra Guðmundur Jónsson,
Blönduósi.
Frú Pó'la Pálsdóttir, Hofsósi.
Sr. Sigfús Árnason, Miklabæ.
Sr. Gunnar Gíslason Glaumbæ
Frú Emma Hansen á Hólum
í Hjaltadal.
Ég þekki flest þotta fólk að
hugsjónaþrótti og dugnaði og
tel málinu vel borgið við þess
brautargengi.
Og vafalaust má einnig treysta
því að hin atorkumiklu samtök
kirkjunnar í Hólastifti ásamt
Hó'Iafélaginu veiti málinu traust
an stuðning Ætti því að safnast
fé frá stofnunum og einstakling
um sem sent yrði til einhvers
þessara aðila, svo að nú yrði
klerknum komið sem fyrst „heim
að Hólum“.
Arelíus Níelsson.
D-JAKKAR
NÝTT EFNI
NÝTT SNIÐ
GEFJUN
KIRKJUSTRÆTI
JAZZBALLETSKOLI BARU
Dömur — líkamsrætt
Megrunaræfingar fyrir konur á
öllum aldri.
Nýr þriggja vikna kúr að hefjast.
4 tímar í viku.
Dagtímar — kvöldtímar.
Góð húsakynni. — Sturtuböð.
Gufukassar
Konum einnig gefinn kostur á
matarkúr eftir læknisráði.
Prentaðar leiðbeiningar fyrir
heimaæfingar.
Frúarjazz einu sinni í viku.
Innritun alla daga frá kl. 9—7
í síma 8-37-30.
Stigahlíð 45 Suðurveri.
Skólinn tekur að fullu
til starfa 7. október
Kennt verður í öllum aldurs-
flokkum. Barnaflokkar — tán-
ingaflokkar — byrjendaflokkar —
framhaldsflokkar.
Jazzballet fyrir alla!
Stúlkur! Skólinn leitar eftir góð-
um hæfileikastúlkum í sýningar-
flokka.
Framhaldsnemendur hafi sam-
band við skólann sem fyrst.
Innritun alla daga frá kl. 9—7
í síma 8-37-30.
Jazz — Modern — Stage — Sfiow Business