Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1966. 13 „Guðmundur góöi“ heim að Hólum Ég fékk þá gleðifrétt um dag- inn að nú ætti loks sá draum- ur að rætast, að höggmynd Gunn fríðar Jónsdóttur: „Klerkur á bæn“, yrði flutt norður að Hólum og sett þar upp sem minn isvarði um Guðmund biskup Ara son hinn góða. Það hafði löngum verið heilagt áhugamál þessarar norðlenzku listakonu að svo mætti verða og lengi hafði hún og rösklega bar- izt fyrir framgangi og framkvænd en mætti vart öðru en skilnings- leysi og tómlæti bæði almenn- ings og þeirra, sem næst hefðu átt að standa. Satt að segja er það fátæk- legt þótt ekki sé það furðulegt, miðað við vanmat íslendinga á fornum menningararfi, að ekki skuli neitt vera á Hólum, sem minnir á þennan höfuðklerk al- þýðunnar, Hinn heilaga Franz frá Assisi okkar íslendinga. Að undanteknum Einari Jóns- syni má Gunnfríður Jónsdóttir teljast brautriðjandi í kirkju- legri höggmyndasmíði En það varð hún með myndinni „Land- sýn“ í Engilsvík við Strandar- kirkju. En hún gerði aðra mynd í þeim ákveðna tilgangi að hún yrði tákn og minning Guðmund- ar góða og nefndi hana : Klerk- ur á bæn. Og enn hefur þessi mynd ekki komið fyrir almenningssjónir, en hún er einföld í sniðum af hempu klæddum, síðhærðum og þó krún rökuðum fornklerki með spennt- ar greipar. Og jafnframt eignaðist lista- konan þá hugsjón að mynd þessi mætti um ókomnar aldir verða þögul óminning til íslendinga um að gleyma ekki hugsun og hetjudug þessa blessaða biskups sem var ástvinur smælingja og málsvari kúgaðra og smáðra gegn ranglæti, yfirgangi og valdbeit- ingu harðsvíraðra höfðingja. Hann barðist fyrir almennum mannréttindum og gegn drambi og grimmd, en hlaut að launum ofsóknir, fyrirlitningu og smán. Var smáður, fótum troðinn og misskilinn, og er það að ýmsu leyti enn í dag. Vel má segja að ekki hafi undirritaður vit á listum. Hann nýtur þeirra aðeins af eigin „brjóstviti“, sem er nú nánast talið broslegt af sérfræðingum og sérgæðingum meðal listdóm- enda. Réttur og sléttur alþýðu- maður á því sviði. En hvar stæði listin án þessa fólks, sem hefur tilfinningu sína að mælikvarða? Og sem einn af því finnst mér, að Gunníríði 'hafi hér vel tekizt. Sumir te'lja þó mynd- ina of kvenlega. En þeir hinir sömu ættu að virða fyrir sér höggmyndir af prelátum frá sama tíma t.d. í kirkjum Englands. Við þann samanburð verður mynd Gunnfríðar af karlmann- legri 'hetju. En hvar eru annars skilin? Eru ekki flestar Kristsmyndir kvenlegar frá einhverju sjónar- miði séð? Við ath. verður mynd klerks- ins hennar Gunnfríðar bæði mild og hörð í senn. Yfir henni hvíl- ir blær heilags friðar og bjarg- fastrar guðstrúar. Hver andlits- dráttur er stilltur líkt og streng ur til þess samhljóms, sem bæn- in <son^ir til hæða. Orðið sál er hið fyrsta og hið s’^asta sérkenni þessarar mynd- ar. Um hana geislar andi og líf, híar+a, sem er án fordóma og fjötra einhverra fyrirfram ákveð inna kenninga Og manni h'lýtur að skiljast að bæn þessa klerks sé borin Söltunarstúlkur Viljum ráða nokkrar vanar söltimarstúlkur. Fríar ferðir og kauptrygging. Upplýsingar hjá Hreiðari Valtýssyni í síma 96-51126, Raufarhöfn og hjá Valtý Þorsteinssyni í sima 21, Seyðisfirði. Söltunarstöðvarnar Norðursíld. fnam af orku og hlýju, mildi og mætti í senn og hljóti því að heyrast í himininn til verndar og heflla landi og þjóð. Og æðsta óskin, óskin um efl- ingu guðsríkis á jörðu, ríki frels is og friðar, farmfara og bræðra lags lýsir af hverjum andlits- drætti, andar frá handbragði list konunnar. Hvað er táknrænna fyrir gró- andi þjóðlíf kristinnar þjóðar en klerkur á bæn. Nú hefur sem sagt verið skip- uð nefnd úrvalsfólki til að vinna að því, „Guðmundur góði“ kom- izt aftur „heim að Hólum“ og verði aldrei ha'kinn þaðan firam- ar. í þessari nefnd eru: Herra Guðmundur Jónsson, Blönduósi. Frú Pó'la Pálsdóttir, Hofsósi. Sr. Sigfús Árnason, Miklabæ. Sr. Gunnar Gíslason Glaumbæ Frú Emma Hansen á Hólum í Hjaltadal. Ég þekki flest þotta fólk að hugsjónaþrótti og dugnaði og tel málinu vel borgið við þess brautargengi. Og vafalaust má einnig treysta því að hin atorkumiklu samtök kirkjunnar í Hólastifti ásamt Hó'Iafélaginu veiti málinu traust an stuðning Ætti því að safnast fé frá stofnunum og einstakling um sem sent yrði til einhvers þessara aðila, svo að nú yrði klerknum komið sem fyrst „heim að Hólum“. Arelíus Níelsson. D-JAKKAR NÝTT EFNI NÝTT SNIÐ GEFJUN KIRKJUSTRÆTI JAZZBALLETSKOLI BARU Dömur — líkamsrætt Megrunaræfingar fyrir konur á öllum aldri. Nýr þriggja vikna kúr að hefjast. 4 tímar í viku. Dagtímar — kvöldtímar. Góð húsakynni. — Sturtuböð. Gufukassar Konum einnig gefinn kostur á matarkúr eftir læknisráði. Prentaðar leiðbeiningar fyrir heimaæfingar. Frúarjazz einu sinni í viku. Innritun alla daga frá kl. 9—7 í síma 8-37-30. Stigahlíð 45 Suðurveri. Skólinn tekur að fullu til starfa 7. október Kennt verður í öllum aldurs- flokkum. Barnaflokkar — tán- ingaflokkar — byrjendaflokkar — framhaldsflokkar. Jazzballet fyrir alla! Stúlkur! Skólinn leitar eftir góð- um hæfileikastúlkum í sýningar- flokka. Framhaldsnemendur hafi sam- band við skólann sem fyrst. Innritun alla daga frá kl. 9—7 í síma 8-37-30. Jazz — Modern — Stage — Sfiow Business

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.