Morgunblaðið - 26.09.1968, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1968.
19
- UTAN UR HEIMI
Framhald af bs. 14
er í huga að atvinnuleysi
(þekktist varla — var 0,5% —
árið 1966.
Nokkuð dró úr eyðslu neyt-
enda á fyrra ári, en nú er
hún að aukast á ný. Sala á
nýjum bílum í júlí vaxð 12%
meiri en í sarna mánuði í
fyrra. Frá ferðaskrifstofum
berast skýrslur um að fleiri
Þjóðverjar fari utan í ár en
nokkru sinni fyrr.
Þegar þeir líta til baka
eru flestir Þjóðverjar sam-
mála um að samdrátturimn
1967 hafi verið ill nauðsyn,
sem lyfti iðnaðinum á nýjar
framfararbrautir.
AUKIN SAMKEPPNIS-
HÆFNI
Ef litið er á árssikýrslur
framleiðenda kemur árangur
uppstokkunarinnar í ljós.
Rekstur margra fram-
leiðslufélaga var endurbætf-
ur. Öllu óþarfa sarfsfólki var
sagt up. Hætt var við smíði
og framleiðslu þess vamings,
sem ekki skilaði hagmaði.
Meðalstór félög -hófu sam-
vinnu um tækniupplýsingar.
í stuttu máii þá var dregið
úr útgjöldum á breiðum
grundvelli.
Einmig hófst sókn eftir
stærra hlut á erlendum mörk
uðum til að bæta upp sam-
dráttimn heima fyrir.
„Flest verzlunarfélög standa
ibetur að vígi í dag fjárhags-
lega og eru betur samkeppm-
isfær en þau voru fyrir sam-
dráttinn," segir einn af for-
ustumönmum iðnrekenda.
Samnlei'kurinn er sá að
margir hagfræðimgar óttast
að baráttan gegn verðbólg-
unni hafi gert þýzkam iðmað
of samkeppnishæfam. Við-
skiptajöfnuður landsins er
allt of hagstæður að áliti
sumra leiðtoga. Talið er að
útflutningur lamdsins nemi
um 230 milljörðum króna
meira en innflutmingurimn á
árinu 1968. Viðskiptagengi
Þjóðverja á heimsmörkuðun-
um skapar vamdræði hjá
ýmsum öðrum viðskiptaþjóð-
um, sem eiga erfitt með að
standast samkeppnina. Að því
er varðar Bretland og Banda-
ríkin, þá er þeirra vandamál
að selja nægilegt vörumagn
á heimsmörkuðunum t il að
greiða fyrir innflutning simn
— af því leiðir óhagstœður
viðskiptajöfnuður. Af þessum
sökum gerast þær raddir æ
háværari, sem teggja hart að
Þjóðverjum að hækka vöru-
vorð til að bæta samkeppn-
isaðstöðu annara ríkja á
mörkuðunum.
Þýzkir hagfræðingar líta
sivo á að þetta yrði unnit að
gera á tvehman hátt. Anmars
vegar mætti draga úr bar-
áttunni gegn verðbólgumni.
Iæiddi það til þess að þýzkar
vörur hækkuðu í verði á út-
flutningsmörkuðum og auð-
valdaði innflutning á erlend-
um vörum til Þýzkalands.
Hinsvegar væri sivo unnt að
hækka gengi marksins gagn-
vart öðrum gjaldeyri.
Hvor leiðin sem væri Isiddi
til þess að auðvelda öðrum
ríkjum að keppa við Vestur-
Þjóðverja á mörkuðum heims
ins.
Snemma í september í
fyrra lýstu vestur-þýzk yfir-
völd því yfir að ekki yrði um
að ræða neina endurskoðun á
gengi marksins, að minnsta
kosti ekki á þ:ssu ári. Hins-
vegar telja sumir hagfræðing.
ar að með áframhaldandi
grósku í viðskiptum geti verð
bólgan skollið á án frekari
aðgerða. Afköst iðnaðarins
eru nú 86% af hámarki, en
voru hæst 89% þegar verð-
bólgan var mest árið 1965.
Vart hefur orðið við fleiri
hættumerki. Mörg iðnfyrir-
tæki hafa skýrt frá töfum á
afgreiðslu hráefna. Sumsstað-
ar hefur borið á skorti á vinnu
afli. Að meðaltali eru nú
þrjár stöður lausar fyrir
hvern atvinnuleysingja í land
inu. Óttazt er að iðnrekendur
grípi til yfirboða til að
tryggja sér faglærða verka-
menn, og örva þannig kaup-
gjaidshækkanir. Framleið-
endur sjálfir eru teknir að
ræða hugsanlega verðhækk-
un.
Þrátt fyrir allt kunna Þjóð
verjar að meta kosti stöðugs
vsrðlags og styrks gjaldmið-
ils. Er það áliit flestra að
núna, eftir að kostirnir hafa
komið svo greinilega í ljós,
muni verðbólgu áfram haldið
niðri, og henni ekki hleypt út
í þær öfgar, sem áður var.
(Þýtt og endursagt úr U.
S. News & World Report")
- ERLENT YFIRLIT
Framh. af bls. 15
Aukin andúð
á óspektum
HUBERT HUMPHREY vara-
forseti er í alvarlegum mótbyr á
þessu stigi baráttunnar fyrir for
setakosningarnar í Bandaríkjun
um. Barátta hans virðist lítinn
hljómgrunn hafa fengið enda hef
ur hún verið sviplítil og lítt til
þess fallin að vekja brifningu.
Barátta Richard Nixons for-
setaefnis repúblikana hefur aft-
ur á móti gengið vel, og um
þessar mundir hefur hann ör-
uggt forskot, en um leið vinnur
aðskilnaðarsinninn George Wall-
ace sífellt á, og er það ef til
vill Nixon meira áhyggjuefni en
Humphrey. Nixon hefur hagnazt
á þeim erfiðleikum sem Humph-
rey á við að stríða, en þeir virð
ast eiga sér aug'ljósar ástæður.
Gagnrýni sú, sem Humphrey
hefur sætt í flokki sínum, hefur
stórum spillit fyrir honum. óspe'kt
ir margra vinstrisinnaðra demó
krata hafa leitt til harðnandi af
stöðu meðal íhaldsamari kjós-
enda. Þessir andstæðingar Hum-
phreys hafa gert honum mjög erf
itt um vik að sigra í kosning-
unum.
Meginástæðan fyrir erfiðleik
um Humphreys er ef til viil sú,
að yfirgnæfandi meirihluti banda
rískra kjósenda er á miðjum
aldri og býr við góð kjör og
að þeir haía ekki laðazt að 'hon-
um. Þeldökkir öfgamenn og öfga
fúilir andstæðingar Vietnam-
stríðsins eru aðeins örlítill minni
hluti meðal þjóðarinnar. Aðgerð
ir þeirrar hafa hins vegar leitt
til þess, að þróunin hefur stefnt
tiil hægri í bandarískum stjórn-
málum, því að þær hafa vakið
ótta og gremju sæmilegra vel-
efnaðra kjósenda.
Nixon hefur mæta vel kunnað
að færa sér í nyt þessa harðn-
andi afstöðu miðstéttanna, og
athyglisvert er hvernig hann hef
ur hagað kosningabaráttu sinni
í samræmi við niðurstöður skoð
anakannana. Nixon og Spiro Ag
new varaforsetaefni hafa gert
það að aðalbaráttumáli sínu að
berjast fyrir aukinni löggæzlu
og heita því að berjast 'gegn
glæpum. Nixon hefur á varkár
an hátt fært sér í nyt ótta meiri
hluta kjósenda við þeldökka
öfgasinna og Agnew hefur
óbeint tekið upp baráttu gegn
kommúnistum Þessi afstaða virð
ist í samræmi við afstöðu meiri-
hluta þjóðarinnar, því að sam-
kvæmt nýlegri Harris-skoðana-
könnum telur 81prs. bandarísku
þjóðarinnar, að löggæzla í land-
inu hafi farið út um þúfur. 75
prs telja að linkind dómstóla
eigi þátt í því, rúmlega 60prs.
að orsökin sé skipulögð glæpa-
starfsemi, 59prs. að þeddökkir
óeirðaseggir eigi sökina og 56
prs. að kommúnistar hafi grafið
undan löggæzlunni.
REPÚBLIKANAR
MEIRIHLUTAFLOKKUR?
Um leið og stefna Nixons hef
ur fengið góðan hljómgrunn,
hafa baráttuaðferðir hans gefizt
vel, og hann þarf ekki að kvarta
yfir fjárskorti eins og Humph-
rey. Síðan Nixon var útnefndur
forsetaefni hefur varla liðið sá
dagur, að hann hefur ekki ein-
hvers staðar komið fram í út-
varpi eða sjónvarpi. En hann
hefur af ásettu ráði forðazt stóru
sjónvarpsstöðvarnar, þar sem
harðskeyttir fréttamenn geta
komið honum í bobba með erf-
iðum spurningum, og einbeitt sér
að litlum úrtvarps- og sjónvarps
stöðvum. Venjulega hefur hann
haft þann hátt á að koma fram
í þessum stöðvum um svipað
leyti og hann hefur verið á kosn
ingaferðalagi um þau svæði, sem
þessar stöðvar ná til. Af ásettu
ráði hefur hann forðazt að lenda
í sjónvarpskappræðum, við Hum
phrey eða aðra.
Sú stefna Nixons að forðast
stóru sjónvarpsstöðvarnar sýn-
ir að hann telur mest um vert
að ná nánu sambandi við þann
hluta kjósenda, sem hann kall-
ar „gleymdu Ameríkumennina“
og hafa fengið sig fullsadda á
óeirðum og mótmælaaðgerðum.
Þessi aðferð hans hefur gefizt
svo vel, að hann hefur mjög
góða sigurmögulei'ka. Hinn kunni
stjórnmálasérfræðingur Joseph
Alsop bendir á, að aðstaða demó
krata sé uggvænleg og þeir geti
tapað kosningunum, en uggvæ*-
legra sé, að republikanar virð-
ist vera á góðri leið með að
vinna fylgi meirihluta kjósenda,
miðstéttanna, sem s'litnað hafi úr
tengslum við demókrata. Þá geti
svo farið, að demokratar verði
ekki lengur meirihlutaflokkur og
republikanar taki við því hlut-
verki um ófyrirsjáanlega fram-
tíð.
Ungling vantar
til sendiferða fyrir Fræðsliumálaskrifstofuna og
Fi-æðslumyndaeafn ríkisins, Borgartúni 7.
Upplýsingar í Fræðslumálaskrifstofunni (sími 18340).
Fræðslumálastjóri.
Tilboð óskast
í hárgreiðslustofu sem er í fullum ganigi, getur verið
laus 1. des. n.k. eða eftir samkomulagi.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „2368“ fyrir næstu mán-
aðamót.
//
Þai jafnast
ekkert
á við
Lark."
Lark filterinn
er þrefaldur.
IARK
FILTER C1GAHETTES
rrF'
nm
RICHLY REWARDJNG
UNCOMMONLY SMOOTH g':
/
Reynið Lark, vinsælustu nýju amerisku sigarettuna
NÝJAR ÍBÚÐIR TIL SÖLU
á einum fegursta stað í Hraunbæ. íbúðir þessar eru 2ja og 3ja herb. og seljast alveg fullfrágengnar. I eldhúsi eru vandaðar eldhúsinnrétt-
ingar, og eldavélar, með aðskildum bakaraofni, fyrir ofan eldavélina er eldhúsvifta með lykteyðandi kolafilt. Vélar þessar eru frá hinu
þekkta firma SJEMENS. Baðherb. eru með vönduðum Iireinlætistækjum og vandlega flisalögð. Mikið er af skápum í íbúðinni og allar inni-
hurðir úr harðvið. f þvottahúsi eru aOíiar nýtízku þvottavélar. Gufubaðstofa í kjallara. Sérinngangur í hverja íbúð og sérgeymsla í kjallara.
íbúðir þessar geta verið til afhendingar innan 3ja vikna. Komið og skoðið, teikningar liggja fyrir á skrifstofunni.
FASTEIGNASALAN, Óðinsgötu 4. Sími 15605.