Morgunblaðið - 26.09.1968, Page 24

Morgunblaðið - 26.09.1968, Page 24
r MORGUNÍBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1968. 24 inn hafði týnzt einhversstaðar á leiðinni upp. Loksins breiddijill teppi yfir Söndru lagaði hana til í rúminu og fór síðan sjálf upp í sitt rúm. Nú kom þreytan yfir hana eins og einhver þung alda. Allar nánari útskýringar yrðu að bíða morgunsins. Jill vaknaði ekki fyrr en morg unverðarbakkinn kom. Hún varð að hrista Söndru til þess að vekja hana og strjúka hana með votum svampi, áður en hún gat farið á fætur. Sandra stóð upp, skjálfandi og gat loks komið of- an í sig hálfum bolla af svörtu kaffi. — Æ, ég get ekki snert þetta brauð. Ég er með meiri hausverk en þú getur trúað. Hún var býsna ólík hinni glæsilegu fegurðardís frá kvöldinu. áður. Jafnvel ljósa hárið sýndist nú dauft og glanslaust. — Hvað varstu eiginlega að gera? spurði Jill. — Þessi Oli- ver Whitemore hlýtur að vera bölvuð skepna og kjóllinn þinn gjöreyðilagður. Sandra strauk ennið. — Ég man bókstaflega ekkert eftir því sem gerðist. Það er allt í þoku. Ég vann einhverja Líbanonspen inga í spilasalnum og Oliver gaf kampavín. Og svo. . . ja, hvað gerði ég svo. — Við höfum engan tíma nún til að athuga það, tók Jill fram í. — Þú ættir heldur að fara I eitthvað og laga á þér andlitið. Hérna! Þessi kjóll er sæmilega hreinn. Ungfrú Gilmore vill tala við okkur strax og við komum í skrifstofuna. Og ég hlakka ekkert til þess samtals vertu viss. Viðtalið við ungfrú Gilmore var stutt en ^ snerist eingöngu um efnið. — Ég er búin að tala við hann Van Lorenson um ykk ur báðar, sagði hún. — Oghann er á sama máli og ég, að þið séuð ekki hæfar til að vinna hjá félaginu. Ungfrú Cavanagh hefði átt að hafa vit á að senda ykk- ur ekki hingað. Hún ætti að vita að við heimtum gott siðferði af þeim, sem hjá okkur vinna. Jill dirfðist að taka fram í, lágt? — Vitanlega, ungfrú Gil- Hestamannafé- lagið Fákur Bridgeklúbbur félagsins hefur vetrarstarf sitt þriðju- daginn 1. október n.k. kl. 8. Spilað verður á þriðju- dögum í Félagsheimili Fáks. Félagar og annað áhugafólk um bridge velkomið. Þátttaka óskast tilkynnt í símum 15421 eða 20678. SKEMMTINEFNDIN. UppboB Að kröfu sveitarsjóðs Miðneshrepps verða eftirtaldar eignir Guðmundar Jónssonar á Rafnkelsstöðum, Garði, seldar á opinberu uppboði í dag, fimmtudaginn 26. september kl. 5 síðdegis, við Útgerðarstöð Guðmund- ar Jónssonar við Strandgötu í Sandgerði: Bifreiðarnar G-940, G-950, G-752, G-802 og G-2983, dráttarvél- amar Gd-290 og Gd-289 og loðnuskilvinda. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Steingrímur Gautur Kristjánsson, ftr. Eldavélasett Stílhrein, sterk sænsk úrvalsvara. A J. Þorláksson & Norðmann hf. more. Ég skil það. En. . .En þá lyfti hin hendi og þaggaði niður í henni. — Það þarf engar umræður 'um þetta, ungfrú Chadburn. Varaforstjórinn hefur ákveðið þetta og því verður ekki hagg- að. Og ég verð að segja, að sjálf ég ég á sama máli. Það hefur verið séð fyrir fari handa ykkur frá Beirut í dag klukkan tvö með flugvél til London. Vagn frá félaginu tekur ykkur klukk an eitt og hann hr. Hutchins hjá okkur fylgir ykkur í flugvél- ina. Og félagið greiðir hvorri ykkar tíu sterlingspund sem lokagreiðslu. —Þér eigið við, að við séum reknar? sagði Sandra, sem nú loks gat komið upp orði. — En það er ekki hægt. Við erum ráðn ar til eins árs, með kosti á fram- lengingu. — Lesið þér bara skilmálana, ungfrú James. Þið eruð ráðnar til eins árs, því aðeins að þið reynist viðunanlega, að áliti forstjórans eða í fjarveru hans varaforstjórans. En þið hafið ekki reynzt vel. Meira er ekki um þetta að segja. — En þetta er ekki sanngjarnt Þið fordæmið okkur án þess að gefa okkur kost á að verja okk- ur. Það er níðangurslegt og ósanngjarn.t Ungfrú Gilmore sendi henni þýðingarmikið augnatillit. Sheaffer’s penninn sniðinn eftir þiirfum yðar SHEAFFEH’s 202 penninn er fínlegur útlits með krómaðri málmhettu og öruggri klemmu. SHEAFF- ER’s 202 penninn er fyllt- ur með hreinlegum hlek- hylkjum. SHEAFFERS’s 202 penninn fæst einnig með samstæðum kúlupenna. Reynið og skoðið 9HEA- FFER’s penna hjá næsta ritfangasala og þér finnið einhvern við yðar hæfi. SHEAFFER SHEAFFER’S umboðið Egill Guttormsson Vonarstræti 4 'ími 14189 — Þið ættuð heldur að fara og taka saman dót ykkar, sagði hún. Bíllinn fer klukkan tíu og hann getur skilið ykkur eftir á leið sinni. Þið hafið nægan tíma til að ná í hann ef þið far- ið núna. Stúlkurnar gengu þöglar út úr stóru skrifstounni, en tóku áð ur þá muni, sem þær áttu sjálf ar úr skrifborðunum sínum. Hin- ar stúlkurnar héldu áfram verki sínu, eins og ekkert væri um að vera. Þegar Jill gekk út, datt henni í hug, hvort hún ætti ekki að kveðja Katie, Hún hall aði sér yfir borðið hennar og hvíslaði: — Vertu sæl og þakka þér fyrir allt. Mér þykir fyrir því að verða ekki hjá ykkur áfram. Katie leit sem snöggvast upp frá vélinni og sendi henni vin- gjarnlegt bros. — Gaman að hitta þig væna mín. Láttu ekki hugfallast. Sandra sagði ekki neitt við neinn, en gekk út úr skrifstof- unni og bar höfuðið hátt. Nú var Jill tekin að finna til vax- andi óvildar gegn stöllu sinni. Þessi vandræði voru öll Söndru að kenna. Aðeins af því að hún var uppreisnargjörn og þoldi ekki aga, hafði hún leitt þessa skömm yfir þær báðar. Og um það bil sem þær komu aftur í Ramuddin, var reiði hennar kom in á hámark. Um það leyti sem hr. Hutch- ins kom, töluðust þær ekki leng ur við, en kepptust við að koma dótinu sínu fyrir. Þær sátu þögl ar að baki fylgdarmanni sínum á leiðinni á flugvöllinn. Hr. Hut chins var snar og dugnaðarleg- ur maður, eins og við átti fyrir mann í þjónustu Golíatfélagsins. Hann hafði brátt losað sig við stúlkurnar í forsalnum þar sem þær skyldu bíða eftir því að kallað væri til brottfarar. Þeg- ar svo hlaðfreyjan kom til þess að taka við farmiðunum þeirra og fylgja þeim um borð, kvaddi hann í mestra snatri og fór. Þegar Jill var að bíða eftir að fá farmiðann sinn afhentan úr eftirlitinu, varð henni að líta út um gluggann. ítölsk flugvélar áhöfn var að ganga til vélar sinnar, og flugstjórinn var hár og sterklegur maður, sem minnti hana strax á Graham Duncanl Þá fékk hún snögglega hug- dettu. Graham og leiðangurinn hans vantaði eldabusku. Ef hún 26. SEPTEMBER. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Óþolinmæði er tímaeyðsla. Ræddu við sérfróða menn í dag. Þú skalt ráðast á verkefnin af elju og atorku. Nautið, 20 apríl — 20. maí. Það sem þú hefur sarnan við fólk í áhrifastöðum að sælda er bezt að gera snemma. Farðu snemma í háttinn. Tvíburarnir, 21. ma. — 20. júní. Þú sknlt gera ráð fyrir því að nafns þíns verði getið víða í dag. Sumt er þér í vil, en annað kann að draga galia þína í ljós. Ef þér tekst að komast í gegnum dagsins önn reiðilaust, verður á- rangurinn góður. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Framáfólk, og þeir sem halda um stjórnvölinn verða leiðitamir í dag. Farðu varlega með maka og keppinauta. Ljónið, 23 júlí — 22 ágúst. Haltu fast um skildinginn, þótt stolt þitt sé í veði. Láttu til- finningamálin lönd eg leið, en sendu inn beiðni til fólks, sem heldur < taumana. Notaðu hugmyndaflug þitt frekar en reyna líkamlega á þig. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Reyndu að fara meðalveginn. Persónuleg sambönd skaltu hressa upp á einhvernveginn. Segðu eitthvað, sem þú meinar. Vogin, 23. sept. — 22 okt. Einhvor, sem hefur verið fámáll upp á síðkastið verður þér ó- '-æntur <álmi. Gefð-: þér góðan tíma til að líta raunsætt á málið, og mótmæltu síðan. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Ef þú veitir þér of mikinn munað, kanntu að komast í sjólf- heldu. Farðu þér hægt, og þú munt finna óvænt tækifæri á þessum erilsama degi. Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des. Fólk í áhrifastöðu gagnar þér vel. Þú verður að vera vel á verði 1 vinnu og einkaerindum. Þér verður ógengt. Steingeitin, 22. des. — 19. jan. Því, sem þú segir er gefinn gaumur, og sumt af því kann að valda mítmæla aðgerðum. Óþolinmæði er þér og fleirum þrándur í Götu. Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Vertu vakandi, en hægfara í dag. Það ræður miklu. Reyndu að fá vini þína með lagni til að stofna samtök. Breyttu um viðfangs- efni í kvöld. Fiskarnic, 19. febr — 20. marz. Ekki er allt sem sýnist. Reyndu að vanda þig í daglega farinu. Reyndu að stytta þér stundir við tónlist eða dans í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.