Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1968. — Harkan sat í fyrirrúmi en handknattleikur gleymdist FH bar sigurorð af sænsku meist- urunum SAAB í jöfnum og hörð um leik í gærkvöld. Síðustu mínútur leiksins voru miklu nær því að vera siagsmál en hand- knattleikur, og áttu dómararnir Valur Benediktsson og Magnús V. Pétursson sinn þátt í því. Svíamir komu óíþróttamannslega fram að leik loknum og virtust svo að þeim væri margt betur gefið en að sætta sig við tapað- an leik. Þrátt fyrir að leikurinn í gær- kvöld væri mjög jafn nema fyrsfcu mínúfcurnar var hann aldrei skemmtilegur. Til þess var harkan alltof mikil. Virtist oft og tíðum að maðurinn skipti miklu meira máli en boltinn. FH-ingar byrjuðu leikinn glæsilega og sýndn þá virkilega hvað í þeim býr. Um 'miðjan hálfleikinn var staðan orðin 5-1, og menn farnir að gera því skóna ,að FH ynni stórsigur. En hinn hávaxni Lars Göta Anders- som 'kom í veg fyrir það. Hann sýndi afburða lei'k og hin föstu skot hans lemfcu eifct af öðru í metirnu. f hálfleik höfðu FH- inigar aðeins eitt mark í forskot 6-5, og á fyrsfcu mínútu síðari hálfleiks tók Gösta við þar sem frá var horfið og jafnaði. Eftir það munaði aldrei nema einu marki á liðunum og voru það yfirleitt FH-ingar sem höfðai fruimkvæðið. Þegar 7 mín. voru eftir tóik FH forustu er Örn skoraði úr víti. Petterson jafn- aði fyrir SAAB og Gösta færði þeim eitt mark í forskot. Loka- orðin átti svo Örn Hallsteinsson er hann skoraði tvö mörk í röð á skemmtilegan hátt. Bæði liðin sýndu líka hart á móti hörðu í þessum leik, og hvorugu verður hrósað fyrir góð- an handknaittleik. í SAAB liðinu átti, sem fyrr segir, Lars Gösta Andersson, langbeztan leik, en leiðinleg framkoma 'hans við dómara að leik loknum verður til að spilla fyrir áliti hans. í SAAB liðinu áttu þeir Fredriksson og Björn Andersson einnig all- sæmilegan leik. í FH-liðinu áttu þeir bræður Öm og Geir beztan leik, svo og Kristófer markvörður sem varði af stakri prýði. Annars er leikur liðsims of einhæfur og allar sóknartilraunir fara fram á miðj- unnL Sem fyrr segir höfðu þeir Magnús og Valur næsta lítil tök á leiknum og mikið ósamræmi var í dómum þeirra. Með sann- girni verða þeir hins vegar ekki sakaðir um hlutdrægni og ekki er að efa að hlutverk þeirra hefur verið mjög erfitt. Ef strangt 'hefði verið dæmit er ekki ósennilegt að al'lir leikmenn, nema markverðirnir, hefðu feng- ið sinn reisupassa. Mörkin skoruðu. FH: Örn 7, Geir 3, Birgir 2, Auðunn 1. SAAB: Lars Göta Andersson 8, Pettersson 3, Stig Larsson 1. Bikila staðráðinn \ að sigra í 3. sinn í Maraþonhlaupi — íþróttamenn flykkjast til Mexikó og ná góðum árangri á œfingum 13.50,0 mín, nægja til sigurs í 5000 metra hlaupi á Ólympíu- leikunum sagði heimsmethafinn Ron Clarke frá Ástralíu, eftir að hann hafði hlaupið sitt fjrrsta 5000 metra hlaup á uppmýkinga braut Ol-leikvangsins í Miexíkó. Clarke fékk tímanm 14:19.8, sem talið er svara til 13.20. mín. á láglendi. Heimsmet Clarks í greininni er 13.16.6 mín. Clarke sagði eftir h'laupið, að hann hefði varla búizt við að ná betri árangri og tæpast væri mögu- leiki á nýju heimsmeti á leik- unum. Hann sagði ennfremur að súrefnisskortur hefði ekki háð sér í hlaupinu, en hann hefði kennt meiri þreytu og bein- var su Mikil náö og miskunn BLAÐAMENN Mbi. og Tím- ans fengu heldur varmar viðtökur í gærkvöldi, er þeir komu í Laugardalshöllina til að skrifa um Ieik FH og SAAB. Valdsmannlegur dyra vörður neitaði þeim að kom- ast í blaðamannastúkuna á þeim forsendum að þeir hefðu ekki passa, sem gefinn var út fyrir keppnistímabil- ið í fyrra!! Blaðamaður Mbl. fór þá fram á það að fá að fara og hringja, gegn Ioforði að hann kæmi aftur. Ekki var við það komandi, heldur notaði dyravörðurinn tæki- færið til þess að lýsa áliti sinu á blaðamannastéttinni, og var það heldur ófagurt. Við svo búið sneru blaða- mennirnir frá, en af tilvilj- un mættu þeir einum af stjómarmönnum H.K.R.R., sem hleypti þeim inn. Mikil var sú náð og miskunn! En við þessar tafir missti annar blaðamaðurinn af þeim happ drættisvinning að fá sæti í blaðamannastúkunni. Það er varla von að blaða- menn fýsi til að fá slíkar kveðjur aftur og óvíst er að blaðamenn áðurnefndra blaða komi til að skrifa um leik í Laugardalshöllinni, fyrr en búið er að kippa þessum málum í lag. Blaðamenn þurfa ekki að sýna passa þeg- ar þeir eru beðnir um að aug lýsa eitthvað fyrir handknatt leikinn, en þegar þeir svo koma til að skrifa um leiki, kemur önnur hlið upp á ten- ingnum. — stjL 9 gegn 1 og3-0 Júgóslavar gersigruðu Finna í fyrri leik sínum í undankeppni knattspyrnu er liðin mættust í HM í knattspyrnu. Unnu Júgó- slavar 9-1 en í hálfleik var stað- an2-0. Leikurinn fór fram í Bel grad. f Kaupmannahöfn mættust Tékkar og Danir í sömu keppni og unnu Tékkar verðskuldaðan sigur 3-0. í hálfleik stóð 2-0. 31100 sáu leikinn. verkja en ella. Clarke hafði litla keppni í hlaupinu, þar sem bezti langhlaupari Rússa mætti ekki til hlaupsins og ástralski hindrunarh'lauparinn Kerry O1 Brian gafst upp á miðri leið. Æfingaprógramm heimsmethaf- ans er nokkuð strangt, þar sem hann h leypur 10 km. og 5 km. með aðeins eins dags hvíld á milll Rússnesku íþróttamennirnir hafa einnig byrjað æfingar sin- ar í Mexico og hafa náð mjög góðum árangri á æfingum. Þann ig stökk t.d. Gavrilov 2.20 metra í hástökki og Blitzentsov 5.10 metra í stangastökki. Belgíski hlauparinm Gaston Ro- elants hefur sagt, að hann geri sér vonir um að sigra í þremur greinum á leikunum. f 3000 metra hindrunarhlaupi, 10 km, hlaupi og maraþonhlaupi, en hann sigraði í síðast nefndu greininni á „reynsluleikunum“ í Mexikó í fyrra. Margir telja samt að Eþíópíumaðurinn Bikila sé líklegastur sigurvegari í Mara FramJi. á bls. 27 Hörku golfkeppni í slagveðri hjá GR Opið golfmót var háð á vegum GR í Grafarholti um síðustu helgi. Vonzkuveður var og varfe leikfært, en kylfingar létu það ekki á sig fá og náðu mjög góð- um árangri miðað við aðstæður Hörkukeppni varð milli þeirra efstu en sigurinn féll í skaut Jóhanni Eyjólfssyni þeim gamal- kunna garpi, sem lítt hefur haft sig í frammi á golfmótum að und- anförnu. Úrslit urðu (18 holur) Jóhann Eyjólfsson 78 högg Einar Guðnason 79 hög'g Á sunnudaginn var æfð á Olympíuleikvanginum í Mexí co setningarathöfn leikanna. Meðal annars var þúsundum marglitra blaðra sleppt á leiksvæðinu og látnar stíga til Iofts. Hermenn „léku“ í1 hlutverkum keppenda. Allt fór rólega fram og tókst vel nema hátalarakerfi vallarins þarf úrbóta við. Clay í hring- mn 11. nov. Tveir framkvæmdastjórar i hnefaleikum í Columbus í Ohio hafa tilkynnt, að Cassius Clay muni heyja 15 lotu kappleik 11. nóvember þar í borg. Leikurinn er skráður sem sýningarkeppni — og mótherji hans er enn ó- kunnur, en „verður tilkynntur síðar“, sögðu þeir. Hindra OL-för Tómas Árnason 80 högg í 1. flokki sigraði Þorvarður Árnason á 84 höggum en í 2. flokki Ásmundur Sigurðsson frá Golfkl. Suðumesja á 89 höggum en Sveinn G íslason GR þurfti 90 högg. Á laugardaginn heimsækja fé- lagar í Golfkl. Rvíkur félaga sína í Golfklúbbi Suðurnesja. Verður þar keppt í tvíliðaleik milli klúbbanna og er þess vænzt að sem flestir kylfingar GR mæti. Sænskir stúdentar ráðgera mótmæiaaðgerðir til að ' hindra sænska Oiympíukepp- I endur í för þeirra til Mexíkó i að því er Aftonbladet skýrir frá. Sænsku keppendurnir halda af stað 3. oktober í | leiguflugvél frá Stokkhólmi. Hyggjast stúdentamir aftra 1 för þeirra með „setuaðgerð- I um á flugvellinum og á veg- um sem til hans liggja" Reutersfréttastofan hefur ' það eftir einum stúdentanna, að slíkar aðgerðir séu stuðn ingur við stúdentana í Mexi kó, sem hafa átt í blóðugum I erjum við lögreglu og herlið í Mexíkóborg. Annar sagði, að ef véiinni tækist að komast í loftið frá 1 Arlandaflugvellinum, myndu i danskir stúdentar reyna að I halda áfram verkinu, er flug vélin millilendir þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.