Alþýðublaðið - 25.07.1920, Side 1

Alþýðublaðið - 25.07.1920, Side 1
Greíið tít aí Alþýðnflokknum 1920 Mánudaginn 25. júlí 168. tölubi. €rknð simskeyti. Khöfn 24. júií. Pólvorjar beiðast vopnahlés. Símar er frá Warschau, að Pólland hafi beðið bolsivfka um vopnahlé. Pýzkaland hlutlanst. Símað frá Berlín, að Þýzkaland hafi lýst yfir hlutleysi sínu í stríðinu milli Póiverja og Rússa. Bela Kun. Símað frá Berlín, að Ungverja* ’iand og Sovjet-Rússland krefjist bæði að Þýzkalaud framselji Bela Kun. [Ungverjaland til þess að lífláta hann, en Rússland til að hafa hann í hávegum]. Málið óútkljáð. Erassin bannaður aðgangur að Englandi. Krassin er kominn til Stokk- /hólms og er honum bannað að kotna til fíngiands, vegna afstöðu ibolsivíka ti! Póliands. Khöfn 25. júlf. Bndainenn veita Pólverjum lið! Símað er frá London, að Þýzka- iand sé því andvígt, að banda- menn flytji her yfir Þýzkaiand til Póllands. (Er svo að sjá af þessu, að bandamenn vilji veita Pólverj- um lið.) Oiíusamningar Breta ogFrakka. Sfmað frá London, að samning- ar hafi nú tekist með Bretum og Frökkum um oifuna, ná þeir til oiíulinda uru alian heim. Litháar og bolsivíkar. Símað er frá Kovno, að Lithá sé iýst í umsátursástandi vegna athafna boisivíka þar í landi. Ásælni Gfrikkja. Símað frá Aþenu, að Grikkir haldi áfram hernaði sínum í Þrakíu. fiskhringnrinn. — Frh. Hringur nr. 2. Hringur sá er kaupir verkaða fiskinn og flytur út til Spánar, er firmaskráður, og áður er getið hvaða herrar eru í honum, En svo eru önnur samtök, sem ekki verða beinlínis kölluð hringur (trust) heldur samlag (cartell). Og þetta samlag kaupir fiskinn óverkaðan. Þeir hafa ekki firmaskráð félag, en í samtökum þessum eru aliir sömu mennirnir sem eru f hringn- um. Þannig er hringurinn kominn alveg að veiðinni. Ekki nóg með að hann kaupi fiskinn verkaðan til útflutnings, heidur upp úr sjónum. Takmark flskhringsins. Ætlun eigenda hringsins með því að koma sölunni tii útlanda og kaupunum hér innaniands á eina hendi er: x. Sprengja upp verðið á Spáni. 2. halda verðinu niðri hér á ís- Iandi. 3. að flytja flskinn á eigin skip- um eftir þörf til Spánar á mark- aðinn, til þess að hafa ekki birgð- ir liggjandi þar sökum þess að bæði er hætta á að fiskurinn skemrnist þar, og að það hafi áhrif á fiskverðið ef birgðirnar liggja þar. - Þessar aðfarir hrings þessa sanna að það er rétt sem jafnaðarmenn halda fram, að atvinnureksturinn hljóti að færast á færri hendur. Hin frjálsa samkepni er þegar horfin úr sögunni á þessu sviði. Það sem hefir unnist er stórat- vinnurekstur (í þessu falli verzlun) fram yfir smáan, og hann getur haldið uppi verði afurðanna. Ea arðurinn rennur bara í vasa „hriugormanna“ í staðinn fyrir að renna í vasa þjóðarinnar sjálfrar. En ekki nóg með það. Væri þjóðarrekstur á fiskverzlun Iands- ins myndi engum detta f hug að kosta 5% upp á Copland og þann spanslca, stjórn fslenzku fiskisöl- unnar mundi selja spönsku stjóra- inni milliliðalaust. Sú hliðin á hringnum, seni snertir verðhækkun útávið væri þó þolanleg með eftirliti stjórnvald- anna, ef ekki væri þegar stofnaður Hringur nr. 3 á Spáni. íslenzki hringurinn setti svo hátt verð á fisk þann er hantt flutti til Spánar í fyrra, að gróða- ffkn eigenda hringsins varð þess valdandi að spanskir fiskikaup- menn stofnuðu hring til þess a& vinna á móti íslenzka hringnum. Hugsar sá hringur sér að skáka f þvf skjólinu að íslenzki hringur- inn á geysimikið af fiski liggjandi á Spáni. Reikna Spánverjarnir þannig að Islendingar fari varta að flytja sinn fisk heim aftur og að þeir séu því neyddir til að selja þeim fiskinn fyrir hvað lágt verð sem er. Það verður einnig að athugast í þessu sambandi, að Norðmenn, sem eru nær einu keppinautar vorir á þessti sviði, hafa í ár fiskað fyrir 50 miljónir kr. við Lofoten á móti 5 milj. í fyrra. Má vel vera að Spanski hringur- inn hafi fisk Norðmanna á bak við eyrað, þótt ekki sé eins góð vara og vor fiskur. En það eitt er víst, að mikið af fiskinum frá f fyrra liggur ennþá óseit á Spáoi fyrir aðgerðir hringsins. Þetta bindur aftur tugi miljóna í bönk- unum, hefir iækkandi áhrif á gengi krónunnar. Það er nú öllum kunn- ugt orðið að peningavandræði vor stafa af aðgerðum sfldar- spekúlantanna og fiskihringsins og að nokkru en litlu ieyti kjötsölu- Sláturfélags Suðurlands o. fl. fé- laga. Af peningavandræðunurri stafar svo aftur húsnæðiseklan hér í Reykjavík o. fl. og það m. a., sem mest er tjónið að, að framleið'slan í landinu verður að minka, en það er auðvita stór- kostlega viðsjárverður hlutur og ófyrirsjáanlegt hverjar afleiðingac slíkt getur haft.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.