Morgunblaðið - 12.11.1968, Page 20
2«
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1968
— Gengislækkunin
Framhald af bls. 2
leyti fullnægjandi til þess að
hægt sé að tollafgreiða viðkom-
andi vöru þegar í stað, og skal
þá miða gjöld af henni, þar með
talið 20% innflutningsgjald, skv.
lögum nr. 68/1968, við eldra geng
ið, en þó því aðeins, að tollaf-
grei'ðsla eigi sér stað fyrir 17.
nóvember 1968.
Nú eru innflutningsskjöl, sem
ekki hljóta tollmeðferð, skv. 5.
málsgrein, tollafgreidd eftir 11.
nóvember 1968 með bankastimpli
fyrir þann dag, og skal þá greiða
af hlutaðeigandi vöru 20% inn-
flutningsgjald, skv. lögum nr.
68/1968, er miðist við tolíverð
hennar á gamla genginu, en toll-
afgreiðsla að öðru leyti við nýja
gengið. Það er forsenda fyrir
þessari tollafgreiðslu, að varan
hafi verfð greidd á gamla geng-
inu. Verði hún greidd á nýja
genginu, t.d. þar sem samþykkt-
ur hefur verið víxill fyrir henni,
sem ógreiddur er, þegar lögin
taka gildi, ber innflytjanda að
sanna það fyrir tollstjóra með
vottorði Gjaldeyrisdeildar bank-
anna í Reykjavík eða vottorði
útibús gjaldeyrisbanka utan
Reykjavíkur og fellur þá 20%
innflutningsgjaldið niður og var
an tollafgreiðist grundvelli 1.
og 4. málsgreina.
Akvæði 1. málsgr. þessarar gr.
gilda við tollafgreiðslu vara, sem
hafa verið afhentar innflytjend-
um með leyfi tollyfirvalda gegn
tryggingu fyrir grei'ðslu aðflutn-
ingsgjalda (sbr. 15. gr. tollskrár-
laga), nema fullnaðartollaf-
greiðsla, þ. m. t. greiðsla 20%
innflutningsgjalds, eigi sér stað
íyrir 1. desember 1968.
2. gr.
Óheimilt er vegna gengisbreyt
ingarinnar að hækka verð á
birgðum innfluttra vara, sem
greiddar hafa verið á gengi í
gildi fyrir 11. nóvember 1968. og
sama gildir um verð á birgðum
iðnaðarvara, sem framleiddar eru
úr efni, sem greitt hefur verið á
eldra gengi. Til birgða telst í
þessu sambandi vörur greiddar á
eldra gengi, sem ekki eru komn-
ar í hendur innflytjenda.
Verðlagsnefnd skal heimila
verzlunarálagningu á sem næst
30% þeirar hækkunar, sem leiðir
af gengisbreytingunni, og sé þá
miðað við þá álagningu, sem gilti
fjrrir gildistöku bráðabirgðalaga
nr. 68/1968. Þessi lækkun hundr
aðshluta álagningar gildir þó
ekki um smásölu- og heildsölu-
álagningu á vöru þar sem nú-
gildandi heildsöluálagning er
6,5% eða lægri.
3. gr.
Nú á skipafélag kröfu, sem á-
kvörðuð er í erlendum gjaldeyri
eða miðuð við erlendan gjald-
eyri, á innlendan a'ðila vegna
farmgjalda af innfluttum vörum,
er ekki hafa verið afhentar mót-
takenda hennar fyrir gildistöku
þessara laga, og skal þá einungis
heimilt að innheimta slíka kröfu
á hinu nýja gengi, að svo miklu
íeyti sem skipafélagið á ógreidd-
an kostnað utanlands í erlendum
gjaldeyri vegna flutningastarf-
semi sinnar, enda komi samþykki
verðlagsnefndar til.
4. gr.
Þá er skilað er til banka gjald-
eyri fyrir útfluttar afurðir fram-
leiddar fyrir 15. nóvember 1968,
skal hann greiddur útflytjanda á
því gengi, er gilti fyrir 11. nóv-
ember 1968. Ríkisstjórnin kveð-
ur nánar á um, til hvaða afurða
þetta ákvæði skuli taka, og eru
ákvarðanir hennar þar að lút-
andi fullnaðarúrskurðir.
Mismunur andvirðis skilaðs
gjaldeyris á eldra gengi og and-
virðis hans á hinu nýju gengi,
skv. 1. málsgr., skal færður á sér
stakan reikning á nafni ríkis-
sjóðs í Seðlabankanum. Fé, sem
á reikninginn kemur, skal ráð-
stafað með sérstökum lögum I
þágu þeirra atvinnuvega, sem
eiga viðkomandi afurðaverð-
mæti.
5. gr.
Á gengisbreytingarreikning við
Seðlabankann, sem stofnaður var
skv. 5. gr. laga nr. 69 frá 25. nóv-
ember 1967, skal færa þann geng
ismun, er vei*ður vegna gengis-
breytingarinnar hjá einstökum
bönkum. Við útreikning á þess-
um gengismun skal taka tillit til
allra eigna og skulda viðkom-
andi banka í erlendum gjald-
eyri, þá er hið nýja gengi tekur
gildi. Færslur þær, sem af þess-
um ástæðum þurfa að eiga sér
stað milli Seðlabankans og bank-
anna, skulu jafnast með verð-
bréfakaupum eða öðrum eigna-
tilfærslum, eftir því sem nánar
verður um samið milli þessara
aðila. Innstæður og skuldir í
krónum á nafni erlendra aðila,
sem gengistryggðar eru með sér-
stokum samningi, þar með tald-
ir skuldareikningar ríkissjóðs
gagnvart alþjóðastofnunum, telj-
ast erlendur gjaldeyrir í þessu
sambandi, og sama gildir um gull
eign Seðlabankans.
Nú hefur bankaábyrgð til
handa erlendum aðila verið
greidd erlendis, en ekki greidd í
íslenzkum banka fyrr en eftir 11.
nóvember 1968, og skal þá gerð
upp á hinu nýja gengi. Ákvæði
þetta gildir ekki um greiðslu-
frestsábyrgð, þegar skjöl hafa
verið afhent innflytjanda fyrir
gengisbreytinguna. Gengismun-
ur, er til verður vegna ákvæða
þessarar málsgreinar, skal færð-
ur á gengisbreytingarreikning,
sbr. 1. málsgr.
6. gr.
Ríkisstjóminni er heimilt að
setja með reglugerð eða á annan
hátt nánari fjrrirmæli um fram-
kvæmd laga þessara.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og
fellur þá jafnframt niður ákvæði
5. gr. laga nr. 68/1968 um 20%
gjald á útgjöld til ferðalaga er-
lendis.
Bráðabirgðaákvæði.
Við uppgjör á endurgreiðslum
innflutningsgjalds, skv. heimild
í bráðabirgðalögum nr. 68/1968,
skal heimilt að endurgreiða eða
fella niður innflutningsgjald af
eftirtöldum vörum:
Gasoiíu, brennsluolíu, flugvéla
eldsneyti, flugvélahreyflum og
hlutum til flugvéla, skv. nánari
ákvörðun fjármálaráðuneytisins,
svo og salti og síldarkryddi.
Athugasemdir við lagafrumvarp
þetta.
í dag, 11. nóvember 1968, hef-
ur Seðlabanki íslands gefið út
tilkynningu um nýtt stofngengi
íslenzkrar krónu. Af þessu leið-
ir, að nauðsynlegt er að setja
sérstök lög, er kveði á um ýmis
framkvæmdaratriði varðandi
gengisbreytinguna. Hafa slík lög
ætíð verið sett, þegar líkt hefur
á staðið. f lagafrumvarpi því,
sem hér liggur fyrir er þó ein-
göngu að finna þau ákvæði
sem mest liggur á að lög-
festa, svo að ekki sé um nein
vafaatriði að ræða, þegar gjald-
eyrisviðskipti hefjast væntan-
lega að nýju þriðjudaginn 12.
nóvember á grundvelli hins nýja
stofngengis. Síðar verður nauð-
synlegt að setja frekari löggjöf
um ýmis vandamál, er úr þarf
að skera vegna gengisbreyting-
arinnar.
Yfirleitt má segja, að frumvarp
þetta þurfi ekki mikilla skýringa
við, þar sem það er að mestu
leyti byggt á þeirri reynslu og
ákvæðum, er áður hafa verið
sett, þegar líkt hefur á staðið.
Fara hér á eftir athugasemdir
við einstakar greinar þess.
Um 1. gr.
Efni greinarinnar er hið sama
og 1. gr. laga nr. 69/1967 um
ráðstafanir vegna ákvörðunar
Seðlabanka íslands um nýtt
gengi íslenzkrar krónu. Þó hef-
ur reynzt nauðsynlegt að bæta
inn í greinina ákvæðum, sem
kveða á um ýmis atriði, sem
leiða af 20% innflutningsgjaldi,
skv. bráðabirgðalögum nr. 68/
1968.
Gert er ráð fyrir, að um inn-
heimtu innflutningsgjalds verði
farið eftir venjulegum reglum
um tollafgreiðslu, þannig að
eldra gengi gildi sem grunnur
innflutningsgjaldsins um skamm
an frest fyrir þá vöru, sem tekin
hefux verið til tollmeðferðar (full
gild skjöl, innlögð til tollyfir-
valds) fyrir 11. nóvember 1968.
í 6. málsgrein er ákvæði um,
að vörur, sem greiddar eru á
gamla genginu, en berast til toll-
afgreiðslu eftir 11. nóvember
1968, skuli hljóta sérstaka toll-
meðferð, þannig að af þeim
reiknast 20% innflutningsgjald,
miðað við tollverð á gamla geng
inu, en tolluppgjör að öðru leyti
miðast við nýja gengið. f þessu
ákvæði felst, að 20% innflutnings
gjaldið, skv. lögum nr. 68/1968
heldur áfram gildi eftir 30. nóv-
ember 1968 um vöruskjöl, sem
tollafgreiðast skv. þessari grein.
Hins vegar er ráð fyrir því
gert, að allir þeir, sem greiða
þurfa vöru á nýju gengi sleppi
við greiðslu 20% gjalds, en af
hinum sé gjaldið innheimt með
sama hætti og verið hefur.
Loks er sú breyting gerð frá
1. gr. áðurnefndra laga nr. 69/
1967, að frestur til uppgjörs á
tolli fyrir vörur, sem afhentar
hafa verið innflytjendum með
leyfi tollyfirvalda gegn trygg-
ingu, er styttur úr tveimur mán-
uðum í u.þ.b. þrjár vikur. Þykir
ekki ástæða til lengri frests í
þessu efni.
Um 2. gr.
í fyrstu málsgrein er um að
ræða samhljóða ákvæði og áð-
ur hefur verið fylgt við gengis-
breytingar, og er sett til að
tryggja, að ekki verði um verð-
hækkunargróða að réeða á þeim
birgðum erlendra vara, sem
greiddar eru á eldra genginu.
í 2. málsgr. er kveðið á um
þær ákvarðanir, sem þegar í stað
þarf að gera í verðlagsmálum
eftir gengisbreytinguna og er hér
um hliðstætt ákvæði að ræða og
sett var í 3. gr. bráðabirgðalaga
nr. 68/1968 um 20% innflutnings
gjadið, en þó þykir óhjákvæmi-
legt að hafa sérákvæði um þær
vörur, sem allra lægst álagning
hefur verið á í heildsölu.
Um 3. gr.
Samhljóða ákvæði var í lög-
um nr. 69/1967 um gengisbreyt-
inguna það ár.
Skipafélög hafa haft ákvæði
í farmsamningum, sem miða
farmgjöld við erlendan gjaldeyri.
Munu þau ákvæði byggð á því,
að verulegur hluti tilkostnaðar
skipafélaga fellur til erlendis,
enda standa félögin að jafnaði
í miklum erlendum rekstrarskuld
um, einkum við umboðsmenn.
Að því leyti, sem skipafélag á
kröfu í erlendum gjaldeyri á inn
lendan aðila, eins og segir í
upphafi greinarinnar, þá er þvi
aðeins heimilt að innheimta um-
rætt farmgjald, miðað við hið
nýja gengi, að svo miklu leyti
sem skipafélagið á ógreiddan er-
lendan kostnað vegna flutnings-
starfseminnar, þegar gengisbreyt
ingin tekur gildi, enda komi sam
þykki verðlagsnefndar til.
Um 4. gr.
Hér er um að ræða ákvæði,
sem að efni til er það sama og
var i lögum nr. 69/1967. Er nú
miðað við 15. nóvember 1968.
Samkvæmt greininni er gert
ráð fyrir því, að sá gjaldeyrir,
sem skilað er til banka fyrir af-
urðir, sem framleiddar eru fyr-
ir nefndan dag, skuli greiddur
á hinu gamla gengi.
Þá er talið sjálfsagt, að þeim
mismun, sem þarna kemur fram,
verði varið i þágu þeirra at-
vinnuvega, sem þær afurðir
koma frá, sem ákvæði þessarar
greinar taka til.
Nánari ráðstöfun á því fé, sem
hér um ræðir, fellur hins veg-
ar ekki innan ramma þessara
laga og er því gert ráð fyrir, að
um það verði sett sérstök lög.
Um 5. gr.
Ákvæði hliðstæðs efnis er að
finna í 5. gr. nr. 4/1960, 1. gr.
laga nr. 28/1962 og 5. gr. laga
nr. 69/1967, og er hér farin sama
braut og áður um meðferð geng
ismunar við gjaldeyrisbankana.
Aðalefni greinarinnar er, að
bankarnir hvorki hagnist né bíði
skaða við gengisbreytinguna, og
er gengismunurinn, hagnaður
eða tap, færður á gengisbreyt-
ingarreikning þann, sem stofnað
ur var við Seðlabankann með
lögum nr. 69/1967, 5. gr. í grein-
inni er nú ákvæði, sem í felst, að
heildaruppgjör milli Seðlabanka
og gjaldeyrisviðskiptabanka skuli
jafnast. með verðbréfakaupum
eða öðrum eignatilfærslum, eftir
því sem nánar verður um sam-
ið milli þessara aðila.
f annarri málsgrein er um að
ræða hliðstætt ákvæði og sett var
í nefnd lög, og gengismunur, sem
til fellur í þessu sambandi, færð
ur á sambærilegan hátt og áður
hefur verið. Ákvæði greinarinn-
ar nær þó eigi til gjaldfallinna
ábyrgða með erlendum greiðslu-
fresti, þegar hlutaðeigandi vöru-
skjöl hafa verið afhent innflytj-
anda fyrir gengisbreytinguna.
Um 6. gr.
Þarfnast ekki skýringa.
Um 7. gr.
Jafnhllða gildistökuákvæði er
hér fellt úr gildi ákvæði 5. gr.
bráðabirgðalaga nr. 68/1968 um
útgjöld til ferðalaga erlendis.
Um bráðabirgðaákvæði.
Vegna gengisbreytingar þeirr-
ar, sem nú hefur verið ákveðin,
verður óþarft, að Alþingi taki
að öðru leyti, en gert er f lðg-
um þessum, afstöðu til frum-
varps til laga um staðfestingu
á bráðabirgðalögum nr. 68/1968
um innflutningsgj ald o.fl., sem
nú liggur fyrir Alþingi.
í framkvæmd laganna komu
fram fjölmörg vandamál og sum
þess eðlis, að ekki þykir fært að
gjaldið verði innheimt. Hér er
um að ræða gasolíu og brennslu
olíu til annarra en sjávarútvegs-
ins, flugvélaeldsneyti, flugvéla-
hreyfla, hluti til flugvéla skv.
sérstökum ákvörðunum fjár-
málaráðuneytisins svo og salt og
síldarkrydd.
Þykir rétt að leita hér laga-
heimildar til endurgreiðslu eða
niðurfellingar gjaldsins af þess-
um vörum.
- NIXON
Framhald af bls. 1
Brooklyn sem hann bjó í, og einn
þeirra barði að dyrum og sagðist
kominn til að gera við gasleka.
Þegar hurðin var opnuð ruddist
hópurinn inn. Eldrj sonurinn
slapp út en náðist fljótlega aftur.
Það var lítið um mótspyrnu
og feðgarnir voru fluttir á lög-
reglustöð til yfirheyrslu. Þeir
virtust mjög öruggir með sig og
harðneituðu allri vitneskju urn
fyrirhugaða morðtilraun, en í
íbúðinni fundust nokkrir rifflar,
hnífar og skotfæri. Namer hefur
búið í Bandaríkjunum í 13 ár en
synir hans komu til landsins
fyrir tveim árum. Þeir segjast
Vera frá bænum Rafac i Jemen.
Sem fyrr segir var það á föstu
dag sem lögreglan fékk fyrst veð
ur af fyrirhuguðu morðtilræði,
en þá hringdi þangað maður sem
sagði að Namer hefði beðið sig
að skjóta Nixon. Lögregluþjónn
inn sem svaraði í símann „hélt
honum uppi á snakki“ meðan fé-
lagar hans höfðu samband við
símstöðina og fengu að vita hvað
an var hringt. Þeir æddu svo á
staðinn og voru komnir á vett-
vang áður en maðurinn lagði á.
Honum brá þó ekki sýnilega við
komu lögreglunnar, virtist frek-
ar létta en hitt.
Hann er nú undir strangri lög-
regluvernd og nafn hans hefur
ekki verið látið uppskátt. Maður
þessi er frábær skytta og hann
sagði lögreglunni að honum hafi
verið boðin milli fjárupphæð fyr
ir að myrða Nixon. Strax eftir
að ljóst varð að Nixon myndi
vinna kosningarnar bauð Namer
honum heim til sín. Þar sýndi
hann honum þrjá kraftmikla
riffla með sjónaukamiðum, gerði
honum tilboðið og útlistaði áætl-
unina. Hann vissi ekki um aðra
menn en rifflarnir þrír og ýmis-
lega annað benti til þess að hann
hafi ekki verið eina skyttan sem
leitað var til.
Fréttablaðið New York News
kveðst hafa heimildir fyrir því
að Namer fjölskyldan hafi verið
í nánu sambandi við samtök Ar-
aba bæði í Bandaríkjunum og
heimalandi sínu. Hugleiðir blað-
ið þann moguleika að um víð-
tækt samsæri sé að ræða sem
eigi jafnvel rætur sínar í Aust-
urlöndum.
Til bráðabirgða hafa feðgarnir
verið úrskurðaðir í gæzluvarð-
hald fyrir að hafa ólögleg vopn
undir höndum. Ef nægilegar
sannanir fást er hægt að dæma
þá í samræmi við lög sem sett
voru árið 1963 eftir að Kennedy
forseti var myrtur. Þessi lög
vernda bæði forseta og forseta-
efni sem hefur verið kjörinn en
ekki tekið við embætti. Sam-
kvæmt þeim lögum er hægt að
dæma i lífstíðar fangelsi fyrir
fyrirhugaða morðtilraun, en þá
verður að fjalla um málið fyrir
ríkisdómstól. Ef ríkið New York
verður ákærandinn, verður ákær
an venjuleg: samsæri með morð
fyrir augum, og minnsta hegn-
ing 15 ára fangelsi ef feðgarnir
verða fundnir sekir.
Mikið hefur verið skrifað um
hina fyrirhuguðu morðtilraun í
blöð í Austurlöndum og halda
Arabar því fram að mennirnir
séu verkfæri samsæris fsraels-
manna sem hafi viljað eyðileggja
samband þeirra við Bandaríkin.
Nixon sjálfur, og aðrir stjórn-
málamenn f Bandaríkjunum hafa
ekkert látið frá sér fara um þetta
mál.
Fulltrúaráð Heimdallar F.U.S.
Fundur verður að Himinbjörgum, Valhöll v/Suðurgötu í dag
þriðjudag kl. 18.00.
Forsætisráðlierra dr. Bjarni Benediktsson
mætir á fundinum og gerir grein fyrir
efnahagsráðstöfunum
STJÓRNIN.